Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 20
AKUREYRI
20 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRARKIRKJA: Hádegis-
tónleikar í dag, laugardag, kl. 12.
Björn Steinar Sólbergsson leikur á
orgel kirkjunnar. Messa kl. 11 á
morgun, sunnudag. Sr. Jóna Lísa
Þorsteinsdóttir. Kór Akureyrar-
kirkju syngur. Fræðsla eftir
messu, sr. Jóna Lísa flytur stutt
erindi um forvarnir og með henni
verða tvær ungar stúlkur sem
svara fyrirspurnum. Konur úr
kvenfélagi kirkjunnar selja súpu
og brauð í safnaðarheimilinu en
þessi dagur er kirkjugöngudagur
félagsins. Fermingarbörn og for-
ráðamenn þeirra eru hvött til að
mæta til messu og fræðslu. Sunnu-
dagaskóli verður einnig kl. 11 á
morgun, fyrst í kirkju, svo í Safn-
aðarheimili.
Fundur Æskulýðsfélagsins kl. 17
sama dag í kapellu. Biblíulestur kl.
20.30 á mánudagskvöld. Tíu boð-
orð, „Sannleikur og lygi“, umsjón
hefur sr. Guðmundur Guðmunds-
son. Morgunsöngur í kirkjunni kl.
9 á þriðjudagsmorgun. Mömmu-
morgunn kl. 10 til 12 á miðviku-
dag. Farið í heimsókn á Punktinn.
Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12
á fimmtudag. Bænaefnum má
koma til prestanna. Léttur hádeg-
isverður í safnaðarheimili á eftir.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11 á morgun,
sunnudag. Sara og Ósk ræða við
börnin, Barnakór Glerárkirkju
syngur. Kyrrðar- og tilbeiðslu-
stund verður í kirkjunni kl. 18 á
þriðjudag. Hádegissamvera verður
á miðvikudag frá 12 til 13, helgi-
stund, fyrirbænir og sakramenti.
Léttur hádegisverður í safnaðarsal
á vægu verði. Opið hús fyrir mæð-
ur og börn á fimmtudag frá kl. 10
til 12, heitt á könnunni og Svali
fyrir börnin. Æfing Barnakórs
Glerárkirkju verður kl. 17.30 á
fimmtudag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Brauðs-
brotning kl. 20 í kvöld, laugardags-
kvöld, ræðumaður er G. Theodór
Birgisson. Sunnudagaskóli fjöl-
skyldunnar kl. 11.30 á morgun,
sunnudag. Aldursskipt kennsla þar
sem allir fá eitthvað við sitt hæfi.
Vakningasamkoma kl. 16.30 sama
dag.
Flutt verður fjölbreytt lofgjörð-
artónlist og G. Theódór Birgisson
mun predika. Fyrirbænaþjónusta
og barnapössun. Bænavika verður
í næstu viku kl. 20 öll kvöldin.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á morg-
un, sunnudag, kl. 11 í Péturskirkju
við Hrafnagilsstræti 2.
MÖÐRUVALLAKIRKJA:
Fjölskylduguðsþjónusta verður
yrir allt prestakallið í Möðruvalla-
kirkju sunnudaginn 4. febrúar kl.
11:00 f.h. Mikill almennur söngur.
Allir velkomnir, ungir sem aldnir.
Mætum öll og njótum samveru í
húsi Guðs.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundarskóla kl. 13.30 á morgun,
sunnudag. Almenn samkoma á
Sjónarhæð, Hafnarstræti 63 kl. 17
sama dag. Fundur fyrir 6–12 ára
krakka á Sjónarhæð kl. 17.30 á
mánudag.
Kirkjustarf
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur veitt Ako-Plastosi á
Akureyri heimild til að leita
nauðasamninga. Býðst fyrirtækið
til að greiða 25% af kröfum, en
samningsbundnar kröfur sem
heimildin nær til nema 166 millj-
ónum króna. Ólafur Birgir Árna-
son hefur verið skipaður umsjón-
armaður með framkvæmd nauða-
samninganna.
Plastprent hf. keypti 85% hlut í
Ako-Plastosi seint á síðasta ári og
átti Sigurður Bragi Guðmunds-
son framkvæmdastjóri fund með
kröfuhöfum í gær. Kröfuhafar
eru 94 talsins í allt, þar af eru 25
sem eiga kröfu að upphæð um
eða yfir ein milljón króna.
Stærstu kröfuhafarnir og þeir
sem eru með kröfur yfir þrjár
milljónir króna eru Reykjalund-
ur, Tréverk, Landssíminn,
Harpa, Bútur og Flytjandi. Alls
þurfa 75% kröfuhafa að sam-
þykkja frumvarpið til að það
hljóti staðfestingu.
Sem fyrr segir býðst fyrirtæk-
ið til að greiða 25% af skuldum
samkvæmt frumvarpi að nauða-
samningum, en kröfur sem nema
100 þúsund krónum eða minna
verða greiddar að fullu. Gert er
ráð fyrir að samningurinn verði
efndur með þeim hætti að þriðj-
ungur verði greiddur út innan
mánaðar frá því samningurinn er
staðfestur, þriðjungur eftir fimm
mánuði og eftirstöðvar eftir níu
mánuði. Kröfuhafar eiga sam-
kvæmt frumvarpinu einnig þann
valkost að fá helming greiddan út
innan fjögurra vikna frá staðfest-
ingu og hinn helminginn sem
hlutabréf í Ako-Plastosi á geng-
inu 1.
Héraðsdómur Norðurlands eystra veitir
Ako-Plastos heimild til nauðasamninga
Bjóðast til að
greiða 25%
af kröfum
NEMENDUR í Giljaskóla hafa
síðustu daga unnið að sérstöku
þemaverkefni um Afríku og mátti
glöggt sjá þess stað í húsakynn-
um skólans í gærdag, á lokadegi
þessarar verkefnavinnu.
Unnið var í sjö aldursblönd-
uðum hópum, en þeir fjölluðu um
börn í Afríku, sögu og forn-
minjar, búninga og grímugerð,
dýralíf, tónlist og dans, leiki og
íþróttir og loks var fréttahópur
sem aflaði frétta fyrir blað, sjón-
varps- og útvarpsþætti.
Meðal þess sem börnin gerðu
var að safna saman fötum af
heimilum sínum, flokka þau og
pakka, en Rauði krossinn á Akur-
eyri mun síðan hafa milligöngu
um að senda fatapakkana út til
Lesótó. Akureyrardeildin hefur
verið með það svæði og m.a. á
sviði heilsugæslu. Einn hópurinn
fór í heimsókn til Akureyrar-
deildarinnar í gær og fékk upp-
lýsingar um Lesótó. Auk þess
sem börnin úr Giljaskóla senda
nú pakka með fötum, skóm og
leikföngum þangað lögðu þrjár
verslanir, Bókval-Penninn, Bóka-
búð Jónasar og AB-búðin, börn-
unum lið og gáfu skólapakka, en
hann inniheldur ýmislegt sem
nauðsynlegt er að hafa með sér í
skólann, penna, blýanta, strok-
leður, liti og yddara svo eitthvað
sé nefnt.
Nemendur
í Giljaskóla
fræðast
um Afríku
Morgunblaðið/Kristján
Nemendur Giljaskóla flokka og brjóta saman föt sem send verða til
Lesótó: Alexandra, Tómas, Hulda og Vordís.
Auglýsing um lausar byggingalóðir
Nýjar iðnaðar- og þjónustulóðir
Lausar eru til umsóknar iðnaðar- og þjónustulóðir í Baldursnesi nr. 6 og í
Njarðarnesi nr. 3, 4, 5, 6, 7 og 8.
Lóðirnar verða byggingarhæfar þann 1. júlí 2001.
Eftirtaldar eldri lóðir eru einnig lausar til umsóknar:
Einbýlishús
Bakkasíða 6 ein hæð Urðargil 2-6 ein hæð
Bakkasíða 16 ein - ein og hálf hæð Valagil 11-23 tvær hæðir
Borgarsíða 23 hæð og ris Víkurgil 2-6 tvær hæðir
Borgarsíða 29 hæð og ris Miðteigur 10 tvær hæðir
Borgarsíða 39 ein og hálf til tvær
Brekkusíða 6 ein hæð
Brekkusíða 8 ein hæð
Brekkusíða 10 ein hæð
Brekkusíða 16 hæð og ris
Raðhús - parhús
Valagil 1-9 tvær hæðir
Iðnaðar- og þjónustulóðir utan miðbæjarsvæðis:
Kiðagil 1 Þjónusta /verslun/6 íbúðir
Ósvör 2 verbúð
Freyjunes 4 iðnaður/þjónusta/verslun
Ósvör 10 verbúð
Ósvör 12 verbúð
Ósvör 14 verbúð
Sjá einnig kort á Netinu. Slóðin er: http://www.akureyri.is/ undir Umhverfi -
byggingarmál - Yfirlit yfir lausar byggingalóðir.
Umsóknareyðublöð, úthlutunarskilmálar og skipulags- og byggingaskilmálar liggja
frammi á skrifstofu umhverfisdeildar og í upplýsingaanddyri bæjarskrifstofu að
Geislagötu 9.
Umsóknum skal skila á þessa staði fyrir 16. febrúar n.k.
Eldri umsóknir skal endurnýja.
Skipulags- og byggingafulltrúi Akureyrarbæjar
alltaf á sunnudögum