Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 25
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 25 SJÓMANNASAMBAND Íslands hefur fengið niðurstöður frá 20 af 25 félögum varðandi atkvæða- greiðslu um verkfallsboðun og samkvæmt þeim er ljóst að mikill meiri hluti sjómanna er tilbúinn að fara í verkfall 15. mars, verði ekki samið áður. „Skilaboðin eru skýr hvað það varðar,“ segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómanna- sambands Íslands, en niðurstöður úr atkvæðagreiðslu vélstjóra á fiskiskipum voru á sama veg. At- kvæðagreiðsla stendur enn yfir hjá félögum Farmanna- og fiskimanna- sambands Íslands en henni lýkur um miðjan mánuðinn. Af 20 félögum Sjómannasam- bandsins hafa 17 þeirra samþykkt verkfallsboðun og segir Sævar að mikill meiri hluti kjósenda í félög- unum hafi verið því fylgjandi eða frá 60 upp í 100% svarenda í ein- stökum félögum. Hann segir það ekki hafa komið á óvart. „Ég er mjög sáttur við niðurstöðuna og hún er í fullu samræmi við það sem við var að búast. Þetta sýnir mér sem forystumanni að vilji félags- manna til þess að við náum fram kjarasamningsgerð er ótvíræður. Sjómenn vilja ekki búa við það áfram að hafa ekki kjarasamning.“ Þrjú félög eru andvíg verkfalls- boðun; á Stokkseyri, Selfossi og Raufarhöfn, en Sævar segir að hvert þeirra sé með innan við 10 menn á kjörskrá. Svar hefur ekki borist frá félög- unum í Keflavík, Hafnarfirði, á Hólmavík, í Bolungarvík og á Þórs- höfn. Vélstjórar á sama báti Verkfallsboðun hjá vélstjórum á fiskiskipum var samþykkt með miklum meirihluta og kemur til framkvæmda 15. mars verði ekki búið að semja fyrir þann tíma. Á kjörskrá var 1.001 og greiddu 447 atkvæði í atkvæðagreiðslunni sem er um 41% þátttaka. 357 eða um 80% sögðu já, 80 eða um 17% sögðu nei en auðir og ógildir seðlar voru 10 eða um 3%. Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags Íslands, segir að 41% þátttaka sé mjög mikil og ánægju- leg. Aðeins hafi verið hægt að halda tvo almenna félagsfundi um málið og því hafi það verið kynnt í bréfi, en þessi mikla þátttaka sýni áhuga félagsmanna. „Frumvarpið á Alþingi varðandi breytingar á mönnun skipa fléttast auðvitað líka inn í þetta og menn eru að sýna andúð á því,“ segir Helgi. Atkvæðagreiðslu hjá félögum Farmanna- og fiskimannasam- bands Íslands lýkur um miðjan mánuðinn, að sögn Benedikts Vals- sonar, framkvæmdastjóra FFSÍ, og þá verður heildarafstaða allra sjómannasamtakanna skýr en Helgi segir liggja fyrir að verkfall skelli á 15. mars nema búið verði að semja áður. Yfirgnæfandi meirihluti sjómanna fylgjandi verkfallsboðun „Skilaboðin eru skýr“ BÁTAR frá Ólafsvík hafa sótt sjóinn vel í blíðunni að undanförnu. Þegar fréttaritara bar að voru bátar að streyma inn í höfnina í Ólafsvík og biðu þar eftir löndun. Aflabrögð voru yfirleitt bærileg eða ,,sæmilegt kropp“ eins og einn trillukarlinn orðaði það. Heldur hefur glaðnað yfir fiskiríinu á Breiðafirði eftir áramótin en aflabrögðin í haust þóttu afar léleg, einkum framan af. Tæplega 230 tonnum var landað í Ólafsvíkurhöfn síð- ustu vikuna í janúar. Bærilega hefur veiðst á línu en afli línubáta síðustu viku janúarmánuðar var um 60 tonn. Morgunblaðið/Elín Una Jónsdóttir Beðið eftir löndun í Ólafsvík Ólafsvík. Morgunblaðið. ÚTGERÐ rússnesk-íslenska togar- ans Bootes hefur neitað að greiða sekt vegna meintra brota á samningi Noregs og Rússlands um veiðar rúss- neskra skipa í norsku landhelginni og hyggst fara með málið fyrir norska dómstóla. Bootes er einn af þremur togurum sem gerðir eru út í samvinnu íslenska fisksölufyrirtækisins Fiskafurða og sænsk-íslenska sjávarútvegsfyrir- tækisins Scandsea og er skráður í Rússlandi. Skipið var nýverið fært til hafnar í Hammerfest í Noregi vegna þess að í veiðidagbók togarans kom fram að hlutfall ufsa í aflanum var of hátt. Samkvæmt samningum Rússa og Norðmanna má hlutfall ufsa ekki vera meira en 25% af heildarafla í togi. Kveða reglur á um að verði hlut- fall ufsa í afla hærra, beri skipstjóra að færa skipið á aðra veiðislóð. Að sögn Bjartmars Péturssonar, framkvæmdastjóra Fiskafurða, kom í ljós að af 11 holum á fyrstu þremur dögum janúarmánuðar var ufsaafli yfir leyfilegu hámarki í þremur holum eða einu hali á dag. Skipið var þá við veiðar norðarlega í norsku landhelg- inni. Hann segir að í öll skiptin hafi skipstjórinn fært skipið til og þannig talið sig fara eftir settum reglum. Norska strandgæslan telji aftur á móti að skipið hafi ekki fært sig nógu langt. „Það stendur hinsvegar hvergi í reglum hversu langt þarf að færa skipið fari ufsaafli yfir leyfilegt hár- mark. Reglurnar eru því ekki nógu skýrar hvað þetta varðar, enda er al- gengt að skip séu færð til hafnar í Noregi vegna þessa.“ Tekin var lögregluskýrsla af skip- stjóra Bootes og hann sektaður um tæpar 150 þúsund íslenskar krónur en útgerðin um rúmar 4,4 milljónir króna. Bjartmar segir að sektinni hafi þegar verið mótmælt og farið verði með málið fyrir norska dómstóla. Íslensk-rússneskur togari færður til hafnar í Noregi Málið fyrir dómstóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.