Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 21
TVÆR nýjar sýningar verða opn-
aðar í Minjasafninu á Akureyri á
sunnudag, 4. febrúar, kl. 14.
Snerting nefnist sýning á ljós-
myndum Guðrúnar Funck-Rasm-
ussen frá þriðja og fjórða áratug
síðustu aldar. Myndefnið er börn
og þeirra nánustu og munu vafa-
laust margir kannast við andlitin á
myndunum. Guðrún lærði ljós-
myndun hjá Hallgrími Einarssyni
og síðar í Kaupmannahöfn, en
starfaði lengst af á Akureyri.
Sýningin Sjúkdómar og lækn-
ingar að fornu byggist á bók Sig-
urðar Samúelssonar læknis.
Fjallað er í máli og myndum um
sjúkdóma og dánarmein íslenskra
fornmanna og -kvenna. Í textan-
um eru lýsingar á sjúkdómum úr
fornsögum og túlkun Sigurðar á
þeim. Tekin eru m.a. dæmi af
djúpri geðlægð Egils Skallagríms-
sonar úr Eglu, þvagsýrugigt
Snorra Sturlusonar úr Sturlungu
og Fróðárundrum úr Eyrbyggju,
sem gætu hafa stafað af tauga-
veiki.
Þar er einnig að finna fróðleik
um fyrsta sjúkraskýlið á Íslandi,
sem reist var árið 910, og ótal-
margt fleira. Teikningarnar gerði
Hanna Bjartmars Arnardóttir.
Sýningin kemur frá Nesstofusafni.
Á sýningunni eru einnig lækn-
ingatæki frá liðnum tímum í eigu
Minjasafnsins og Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri.
Minjasafnið á Akureyri er í vet-
ur opið almenningi frá klukkan tvö
til fjögur á sunnudögum. Aðgangs-
eyrir er kr. 300 fyrir fullorðna en
börn og eldri borgarar þurfa ekki
að borga. Hægt er að veita hópum
leiðsögn á virkum dögum en panta
þarf tíma með fyrirvara.
Næsta sunnudag verður boðið
upp á veitingar í sólstofu safnsins
og góða leikaðstöðu fyrir börn.
Allir velkomnir.
Minjasafnið á Akureyri
Tvær nýjar sýn-
ingar opnaðar
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í vikunni að
skipa 5 manna nefnd bæjarfull-
trúa, sem ætlað er að fjalla um og
meta áhrif af þátttöku bæjarins í
samstarfsverkefnum með öðrum
sveitarfélögum.
Nefndinni er ætlað að leggja
mat á þann ávinning sem sam-
starfið kann að hafa í för með sér
fyrir bæjarbúa og ennfremur ber
nefndinni að meta fjárhagslegar
forsendur fyrir þátttöku bæjar-
sjóðs í þeim verkefnum sem hér
um ræðir.
Umboð nefndarinnar
fallið niður
Á fundi bæjarráðs var fundar-
gerð samstarfsnefndar um samein-
ingu sveitarfélaga í Eyjafirði frá
því í lok janúar jafnframt lögð
fram til kynningar.
Þar kemur fram að samkvæmt
svörum að minnsta kosti fjögurra
sveitarfélaga er ljóst að tillagan
um að sameina öll sveitarfélög sem
aðild áttu að nefndinni í eitt sveit-
arfélag nýtur ekki trausts eða
fylgis í öllum sveitarfélögunum.
Þar með er umboð nefndarinnar
fallið niður.
Ásgeir Magnússon, formaður
bæjarráðs, sagði að í þeirri
ákvörðun bæjarráðs að skipa
nefnd til að fara yfir þátttöku bæj-
arins í samstarfsverkefnum með
öðrum sveitarfélögum fælist engin
hótun af hálfu bæjarins.
„Við erum ekki að ganga út úr
þessu samstarfi en viljum fara of-
an í málin, hvað þau kosta og
hverju þetta skilar.“
Tillögum skilað
fyrir lok mars
Markmiðið með þeirri vinnu sem
hér er lagt af stað með er að bæj-
arstjórn Akureyrar geti á grund-
velli vinnu nefndarinnar metið að
nýju og í heild sinni þátttöku Ak-
ureyrarbæjar í einstökum byggða-
samlögum eða öðrum samnings-
bundnum verkefnum sveitarfélaga
sem Akureyrarbær á aðild að.
Fjárveiting til þessa verkefnis er
allt að hálf milljón króna en nefnd-
inni er ætlað að skila tillögum sín-
um til bæjarráðs fyrir lok mars
nk.
Ásgeir sagði að í þessu máli
væri raunar allt undir. Hann
nefndi í því sambandi Samband ís-
lenskra sveitarfélaga, launanefnd
sveitarfélaga, Eyþing, héraðsnefnd
Eyjafjarðar, Minjasafnið, At-
vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar,
Sorpsamlag Eyjafjarðar, samstarf
á sviði slökkviliðsmála, Svæðis-
skipulag Eyjafjarðar, skólamál,
öldrunarmál, þjónustu á sviði
félagsmála og fleira.
Samstarfsnefnd um sameiningu hætt störfum
Samstarfsverkefni
tekin til skoðunar