Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 65 DAGBÓK Útsala! 10—50% afsláttur Úlpur Kápur Jakkar Pelskápur líta út sem ekta Opið laugardaga frá kl. 10—16    Mörkinni 6, sími 588 5518 Árnað heilla LJÓÐABROT Meyjarmissir Björt mey og hrein mér unni ein á Ísa-köldu-landi. Sárt ber ég mein fyrir silkirein sviptur því tryggðabandi. Það eðla fljóð gekk aðra slóð en ætlað hafði ég lengi, daprast því hljóð, en dvínar móð, dottið er fyrra gengi. Stefán Ólafsson EFTIR 15-17 punkta opnun suðurs á einu grandi lyftir norður beint í þrjú grönd. Við fáum okkur sæti í vörn- inni í vestur og spilum út spaðagosa: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ D72 ♥ DG2 ♦ KDG105 ♣75 Vestur Austur ♠ G1098 ♠ 654 ♥ A63 ♥ 9854 ♦ 43 ♦ 986 ♣ÁD102 ♣K43 Suður ♠ ÁK3 ♥ K107 ♦ Á72 ♣G986 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 grand Pass 3 grönd Pass Pass Pass Sagnhafi tekur fyrsta slaginn heima á spaðakóng og spilar smáu hjarta að blindum. Þetta er einfalt þegar allar hendur sjást – vestur verður að hoppa upp með hjartaás og spila lauft- visti. Makker tekur á kóng- inn og sendir lauf í gegnum G98 suðurs. Einn niður. En nú er að huga að því hvernig hægt er að finna vörnina við borðið. Gerum fyrst ráð fyrir að makker sé byrjandi og kunni ekkert fyrir sér í varnarreglum (sem er yfirleitt góð regla, því þá neyðist maður til að hugsa sjálfstætt). Af hverju spilar suður ekki tígli? Aug- ljóslega vegna þess að hann þarf þess ekki – hann á tíg- ulásinn. Er rétt að drepa á hjartaás og spila spaða í gegnum drottninguna í þeirri von að makker sé með ásinn? Teljum punkta: Ef makker á spaðaásinn (4 punktar), þá á suður í mesta lagi 14 (spaðakóng, hjarta- kóng, tígulás og KG í laufi). En hann opnaði á 15-17 punkta grandi. Þar með á makker ekki spaðaásinn, en gæti átt einn kóng. Vissu- lega er til í dæminu að það sé hjartakóngur, en lauf- kóngurinn kemur að meira gagni og því er rökrétt að rjúka upp með hjartaásinn og skipta yfir í smátt lauf. Stundum er hægt að leysa varnarþrautir upp á eigin spýtur, en betra er að fá hjálp frá makker. Í fyrsta slag myndi makker vísa spaðanum frá með sexunni (lág/há-köll). Þar með er vitað að suður á ÁK í spaða. Síðan, þegar vestur tekur næsta slag á hjartaás, ætti austur að fylgja lit með lægsta hjartanu til að benda á styrk í lægsta lit (talning hefur enga þýðingu í þessari stöðu). Vörnin verður þá einfaldari og suð- ur spilar litlu laufi með betri samvisku. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson. EVANS-BRAGÐ er nefnt eftir samnefndum welskum skipstjóra sem uppi var á 19. öld. Írska bragðið var á svip- uðum tíma leikið í fyrsta skipti en byrjunarleikir þess eru: 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rxe5?? Rxe5 4. d4. Við dán- ardægur upphafsmanns bragðsins kvaðst hann að- spurður aldrei hafa séð að e5- peðið hefði verið valdað! Þótt Evans-bragð hafi ólíkt betra orðspor en það írska hefur það ekki átt upp á pallborðið á meðal þeirra bestu fyrr en fyrir nokkrum árum að Garry Kasparov tefldi það í fáeinum skákum með góðum árangri. Meðal þeirra sem hafa tek- ið það upp í vopna- búr sitt er Alexand- er Morozevich (2.745). Staðan kom upp úr því á milli hans og Michael Adams (2.746) á Corus-ofurskákmót- inu í Wijk aan Zee. Englendingurinn sá við öllum klækjum Evans-bragðsins og veitti hvítum náðar- högg með 27...Rh4! Hvítur gafst upp enda verður hann mát eða tapar drottningunni. Skákin í heild sinni telfdist svona: 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4.b4 Bxb4 5. c3 Ba5 6. d4 exd4 7. 0-0 Rge7 8. Rg5 d5 9. exd5 Re5 10. Bb3 0-0 11. cxd4 Rg4 12. Df3 Rf6 13. Ba3 h6 14. Re4 Rxe4 15. Dxe4 He8 16. Bb2 Rf5 17. Df4 Bb4 18. Ra3 Bd6 19. Dd2 Dh4 20. g3 Dh3 21. Rc4 b5 22. Re5 Bb7 23. Hae1 a5 24. a3 b4 25. axb4 Bxb4 26. Bc3 Bxc3 27. Dxc3. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik GULLBRÚÐKAUP. Gull- brúðkaup eiga í dag, 3. febrúar, María Sigríður Ágústsdóttir og Haraldur S. Magnússon. Þau eru að heiman. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- blað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á net- fangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Morgunblaðið/Kristján Félagarnir Magnús Amadeus, Brynjar Darri Jónasson, Arnar Gauti Ingason og Ásgeir Vincent Ívarsson héldu flóamarkað á Akureyri og söfnuðu 3.423 krónum sem þeir afhentu Akureyrardeild Rauða kross Íslands. Hlutavelta Ljósm./Barna- og fjölsk.ljósm. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 12. ágúst sl. í Bessa- staðakirkju, af sr. Sigurði Arnarsyni, Ásta Leonhards og Kristinn G. Jónsson. Heimili þeirra er í Hafnar- firði. FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá heilbrigð- isráðuneytinu, Lyfjastofnun og Tryggingastofnun ríkisins: „Af hálfu heilbrigðisráðuneytis, Lyfjastofnunar og Tryggingastofn- unar ríkisins er eftirfarandi komið á framfæri vegna villandi yfirlýsinga og umræðna í kjölfar breytinga sem gerðar voru á fyrirkomulagi greiðslna fyrir S-merkt lyf: Með reglugerð nr. 948/2000 um greiðslur almannatrygginga í lyfja- kostnaði, sem tók gildi um áramótin, fluttist kostnaður vegna S-merktra lyfja frá Tryggingastofnun ríkisins til sjúkrahúsanna. Um leið og upp- gjör fyrir árið 2000 liggur fyrir verð- ur fjármagn flutt til Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) og Fjórð- ungssjúkrahúss Akureyrar (FSA). Rökin fyrir breytingunni eru að saman fari fjárhagsleg og fagleg ábyrgð á meðferð sem tengist sjúkrahúsum. Jafnframt bera lyfja- nefndir LSH og FSA ábyrgð á að samdar séu meðferðarleiðbeiningar og að þeim sé fylgt. Göngudeildar- sjúklingar jafnt sem inniliggjandi eru taldir til sjúklinga sjúkrahúss- ins. Eina breytingin sem snertir S- merktu lyfin er því sú að sjúkrahúsin greiða nú fyrir lyfin og ekki Trygg- ingastofnun ríkisins. Skv. 8. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 er heimilt að binda veitingu markaðs- leyfis lyfs við notkun eingöngu á sjúkrahúsum eða sérstökum sjúkra- deildum. Lyf með þessa takmörkun eru S-merkt í lyfjaskrám. Ákvæðið tekur ekki einungis til notkunar inni- liggjandi og göngudeildarsjúklinga á sjúkrahúsum heldur einnig til notk- unar utan sjúkrahúss, ef hún telst vera órjúfanlegur hluti sjúkrahúss- meðferðar t.d. þegar um er að ræða meðferð í heimahúsi á ábyrgð og undir eftirliti sérfræðings/sjúkra- húss. Flestir sjúklingar, sem málið varðar, fá meðferð á göngudeildum sjúkrahúsanna. Lyf sem eru eingöngu notuð á sjúkrastofnunum þ.m.t. heilsugæslu- stöðvum, lækningastofum og að- gerðarstofum og ekki er ávísað beint til sjúklings til eigin nota, eins og t.d. innrennslisvökvar og röntgen- skuggaefni. Vandmeðfarin lyf vegna sérhæfðr- ar meðferðar sem tengist sérfræð- ingum sjúkrastofnana. Meðferð hefst á sjúkrastofnun vegna t.d. krabbameinsmeðferðar og/eða með- ferðar með hátæknilyfjum. Í mörg- um tilfellum er nauðsynlegt að setja meðferðarreglur. Hverjir mega afhenda S-merkt lyf? Undanfarin ár hafa lyfjabúðir aðr- ar en sjúkrahúsapótek ekki mátt af- greiða S-merkt lyf beint til sjúklinga nema fyrir hafi legið undanþágulyf- seðill samþykktur af Lyfjanefnd rík- isins (nú Lyfjastofnun). Samkvæmt gildandi lögum og reglum er ekkert sem bannar að S- merkt lyf séu afhent gegn ávísun læknis/sérfræðings á venjulegum lyfseðli í öllum lyfjabúðum, enda séu skilyrði um notkun lyfsins á eða í tengslum við sjúkrahús uppfyllt. Heilbrigðisráðuneytið hefur gert viðkomandi sjúkrahúsum skylt að setja sig í samband við apótekin sem allra fyrst og kynna fyrir þeim hvernig staðið verður að gerð þjón- ustusamninga vegna sjúklinga sem þurfa eða vilja fá lyfin afhent utan viðkomandi göngudeilda. Ekkert er því til fyrirstöðu að sjúklingar á landsbyggðinni geti eft- ir sem áður fengið lyf sín afgreidd í heimabyggð, m.ö.o. breytingin tak- markar á engan hátt þjónustuna við sjúklinga á landsbyggðinni. Lyf sem var bætt í hóp sjúkrahús- lyfja um áramótin eru aðallega röntgenskuggaefni, svæfingalyf, dreypilyf, ýmis sérhæfð stungulyf, staðdeyfilyf, sýklalyf, glasafrjóvgun- arlyf og vaxtarhormón. Flest lyfjanna eru eingöngu notuð á sjúkrahúsum eða í tengslum við þau, eða á heilsugæslustöðvum og lækna- stofum og eru þá hluti af rekstrar- kostnaði, en ekki ávísað á lyfseðil. Þá var S-merking nokkurra lyfja felld niður þar sem þau féllu ekki undir ofangreinda skilgreiningu. Með breytingunni nást fram eft- irfarandi markmið: Fjárhagsleg og fagleg ábyrgð er komin á sömu hendi, sem er mun vænlegri leið til skynsamlegri lyfjanotkunar en þeg- ar þriðji aðili greiðir fyrir hana, betra aðhald og yfirlit fæst yfir lyfja- kostnað, ákvarðanataka er komin nær sjúklingnum sem leiðir til meiri hagkvæmni, minni skriffinnska s.s. vottorðaskrif lækna, umsýsla vegna innheimtu lyfseðla, undanþágur í apótekum o.fl. og betra aðgengi fyrir sjúklinga þar sem gert er ráð fyrir þjónustusamningum.“ S-merkt lyfSTJÖRNUSPÁef t i r Frances Drake VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þú ert draumóramaður og átt það til að gleyma þér í hugarheimi þínum og missir því af mörgum tækifærum sem þér bjóðast. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er eitthvað sem hindrar þig í að leggja síðustu hönd á viðamikið verkefni. Þú þarft að hrista þetta slen af þér og klára dæmið. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það eru margar hliðar á sömu málum og þú kemst ekki hjá því að kynna þér þær ef þú vilt komast að réttlátri niður- stöðu. Gefðu þér til þess góðan tíma. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft ekki að taka öll and- mæli persónulega því menn geta verið á annarri skoðun en þú þótt þeim líki ágætlega við þig persónulega. Þú þarft að greina í milli þín og þinna mála. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það er margt sem liggur fyrir í dag og þú mátt hafa þig allan við ef þú ætlar að komast yfir öll verkefni dagsins. Haltu þig því að vinnu undanbragða- laust. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Morgunstund gefur gull í mund og það getur reynst óvinnandi vegur að klára dagsverkið ef þú byrjar of seint. Láttu þér ekki bregða við mótlæti. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það getur reynst dýrt spaug að gera mistök þegar allt ríður á því að hlutirnir klárist sem fyrst. Reyndu því að einbeita þér að starfi þínu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Oft er það svo að maður getur dregið nokkurn lærdóm af ókunnugum sérstaklega þeim sem koma frá öðrum menning- arsamfélögum en þá er eins gott að vera fordómalaus. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Einhverjar breytingar liggja í loftinu og gera þig órólegan en hvað sem það kostar þarftu að ganga í gegnum þær og á vit nýrra daga. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það getur hefnt sín síðar að reyna að leyna hluta mála- vaxta, þeim sem óþægilegir eru. Vertu því hreinskilinn því það reynist alltaf best. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það er sjálfsagt að fylgjast með því sem er að gerast í ver- öldinni en best fer á því að hver tutli sitt hrosshár án þess að fá glýju í augun yfir öðrum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú hefur fest sjónir á tak- marki sem er núna fjarlægt. En hálfnað er verk þá hafið er og vilji er allt sem þarf til þess að þú náir árangri. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Einhver þér nákominn þarf nú á ráðum þínum að halda. Gaumgæfðu alla málavexti og hugsaðu þig svo vel um áður en þú kveður upp þinn dóm. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.