Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. SAMKEPPNISRÁÐ ákvað í gær að afturkalla fyrri ákvörðun sína frá 17. desember 1999 um að hafast ekki að vegna yfirtöku Grænmetis ehf. á fyr- irtækinu Ágæti hf. Ráðið hefur komist að þeirri nið- urstöðu að Búnaðarbankinn, Sölufélag garðyrkju- manna og Grænmeti ehf. hafi vísvitandi veitt rangar og villandi upplýsingar um kaupin og því hafi ákvörðunin frá árinu 1999 byggst á röngum for- sendum. Samkeppnisstofnun hefur sent lögreglu- yfirvöldum kæru vegna málsins, en röng skýrslu- gjöf til samkeppnisyfirvalda varðar refsingu samkvæmt ákvæðum hegningarlaga. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem samkeppnisyf- irvöld hafa lagt fram kæru til lögreglu vegna sam- keppnismála og einnig mun þetta vera í fyrsta sinn sem samkeppnisráð afturkallar fyrri ákvörðun sína. Samkeppnisráð telur upplýst að kaup Grænmetis á Ágæti hafi í raun verið gerð að frumkvæði og fyrir reikning og áhættu Sölufélagsins, en samkvæmt upplýsingum sem ráðið hafi fengið árið 1999 hafi Sölufélagið ekki á nokkurn hátt verið talið viðriðið kaupin. Þessu vísa talsmenn Sölufélags garðyrkjumanna og Grænmetis á bug. Sigurður G. Guðjónsson, lög- maður sölufélagsins, segir að samkeppnisyfirvöld hafi frá fyrsta degi vitað um fyrirhugaðar breyt- ingar á sölufélaginu og stofnun nýrrar ávaxta- og grænmetisdreifingarstöðvar. Sigurður vitnar í þessu sambandi í bréf sem hann sendi Samkeppn- isstofnun um málið 23. nóvember sl. Þórhallur Bjarnason, framkvæmdastjóri Græn- metis, kveðst vera afar undrandi á ákvörðun sam- keppnisráðs og segir hana fyrst og fremst til marks um slæleg vinnubrögð Samkeppnisstofnunar. Stef- án Pálsson, bankastjóri Búnaðarbanka Íslands, segir að bankinn telji sig hafa gefið samkeppnisyf- irvöldum fullnægjandi upplýsingar um málið en lýsi sig jafnframt reiðubúinn að vinna með Samkeppn- isstofnun að skoðun málsins. „Það lá alltaf ljóst fyrir að Sölufélag garðyrkju- manna hafði forkaupsrétt og að við myndum kaupa bréfin fyrir félagið ef Samkeppnisstofnun gerði ekki athugasemdir við kaupin. Samkeppnisstofnun var alla tíð gert ljóst að sölufélagið hafði forkaups- rétt að bréfunum. Mér kemur því spánskt fyrir sjónir að það skuli koma upp nú að við höfum ekki gefið réttar upplýsingar. Við erum reiðubúnir til samstarfs við þessa aðila eins og fram kemur í okk- ar yfirlýsingu,“ segir Stefán. Samkeppnisráð afturkallar fyrri ákvörðun vegna yfirtöku Grænmetis ehf. á Ágæti hf. Vísvitandi röng upplýs- ingagjöf kærð til lögreglu  Veittu/38 undanförnu gefi tilefni til að kann- aðar verði leiðir til að auka stjórn- arskráreftirlit og ganga úr skugga um að löggjöf Alþingis samrýmist stjórnarskrá. Allir lögfræðingarnir sem við var rætt benda á þann möguleika að sett verði á stofn sérstakt laga- ráð eða stofnun við Alþingi sem veiti ráðgefandi álit um lagafrum- vörp. Einnig nefna sumir þann mögu- leika að heimilt verði að bera und- ir Hæstarétt, eða sérstaka stjórn- lagadeild við réttinn, hvort frumvörp eða nýsamþykkt lög samrýmist stjórnarskrá. Ómarkviss og brotakenndur undirbúningur löggjafar Viðmælendur blaðsins úr hópi lögfræðinga eru á einu máli um að HÓPUR lögfræðinga, sem rætt er við í Morgunblaðinu í dag, eru þeirrar skoðunar að atburðir að ekki sé þörf á að setja á stofn sér- stakan stjórnlagadómstól hér á landi. Eiríkur Tómasson lagaprófessor segir ástæðu til að menn velti því fyrir sér hvort hægt sé að ganga úr skugga um stjórnskipulegt gildi laga, annaðhvort áður en frumvarp er samþykkt, eða þá strax eftir að lög hafa verið samþykkt á Alþingi. Eiríkur segir nokkrar leiðir koma til álita en telur æskilegast að í fyrstu verði sett á stofn sérstök laganefnd eða lagaráð við Alþingi, sem myndi veita þinginu ráðgjöf um hvort frumvörp brytu í bága við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar. „Ég hallast að því að þessi leið væri æskilegust í byrjun á meðan menn væru að ræða aðra kosti og finna út úr því hvað æskilegast væri í því efni. Þessi leið væri til- tölulega einföld og myndi ekki kosta mikil fjárútlát í sjálfu sér,“ segir hann. Fleiri lögfræðingar eru á sama máli. Skúli Magnússon, dósent við lagadeild HÍ, segir að málskots- rétt til slíkrar stjórnlaganefndar gætu t.d. átt forseti Alþingis, for- sætisráðherra, ákveðinn lágmarks- fjöldi þingmanna og jafnvel forseti lýðveldisins. Oft ekki vandað nægilega til löggjafar hér á landi Að mati nokkurra viðmælenda er oft ekki vandað nægilega til lög- gjafar hér á landi og undirbún- ingur lagafrumvarpa of ómarkviss og brotakenndur. Stjórnlagadómstóll óþarfur hér að mati lögfræðinga Lagt til að lagaráð við Alþingi meti stjórnskipunargildi laga  Ekki ástæða/10–12 SEÐLABANKINN sendi í gær frá sér nýja verðbólguspá þar sem fram kemur að hann gerir ráð fyrir að verðbólga frá upphafi til loka þessa árs verði 4,6%. Þetta er sama spá og í nóvember á síðasta ári. Spáð er minni verðbólgu á næsta ári eða 2,7%. Birgir Ísleifur Gunnarsson, for- maður stjórnar Seðlabankans, segir að vextir verði ekki lækkaðir en að áfram verði fylgst með því hvort hag- kerfið taki að kólna. Rök bankans fyr- ir áframhaldandi aðhaldi peninga- mála eru meðal annars þau að vinnumarkaður sé spenntari en nokkru sinni áður og að enn sé útlána- aukning mjög mikil. Seðlabank- inn spáir áfram 4,6% verðbólgu  Óbreyttir vextir/24 Morgunblaðið/Jim Smart Nautið Guttormur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er enn að slá þyngdarmet en hann mælist nú 910 kg. NAUTIÐ Guttormur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er enn að slá þyngdarmet. Talið er að hann sé þyngsta naut landsins af ís- lensku kyni og nú er búið vigta gripinn í fimmta sinn. Hann reyndist vera 910 kíló sem er fjórum kílóum meira en á sama tíma í fyrra. Það vakti nokkra athygli í október síðastliðnum þegar Gutt- ormur var vigtaður, að hann hafði misst nokkur kíló en þá var hann 893 kíló. Skýringin á því er sú að Guttormur var í gríðarlega góðu formi eftir að hafa trimmað úti síðastliðið sumar. Hann hefur nú náð upp fyrra holdafari og gott betur enda aðstæður yfir vetrartímann ekki jafn góðar til trimmiðkunar fyrir nautgripi og á sumrin. Guttormur var borinn í október árið 1992 á Eystri-Sólheimasandi í Vestur-Skaftafellssýslu. Hann var fluttur í Húsdýragarðinn 27. janúar 1994. Aðdáendur Guttorms eru hvatt- ir til að fara og kíkja á gripinn en garðurinn er opinn alla daga frá klukkan 10–17. Bolinn Guttormur orðinn 910 kg Talinn þyngsta naut lands- ins af ís- lensku kyni Á FUNDI hreppsnefndar Vatns- leysustrandarhrepps í gær var sam- þykkt samrunaáætlun Hitaveitu Suðurnesja og Rafveitu Hafnar- fjarðar. Hafa þá allir eigendur Hita- veitu Suðurnesja samþykkt áætl- unina og verður í framhaldinu unnið að nauðsynlegum breytingum á lög- unum um fyrirtækið og öðrum und- irbúningi samrunans, sem stefnt er að að taki gildi hið allra fyrsta. Sameining samþykkt ♦ ♦ ♦ EKIÐ var á gangandi vegfaranda á Fífuhvammsvegi í Kópavogi um klukkan hálftíu í gærkvöld. Að sögn lögreglu var maðurinn, sem er um tvítugt, að ganga yfir götuna þegar ekið var á hann. Maðurinn, sem hlaut einhverja höfuðáverka var fluttur með sjúkrabifreið á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi en er ekki talinn alvarlega slasaður. Ekið á gangandi vegfaranda ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.