Morgunblaðið - 03.02.2001, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 37
tónlist er nokkuð af því sem gagn-
legt er að hafa við höndina ef grúsk-
að er í draumum. Sem dæmi kemur
fyrir í Laxdælu merkur draumur um
hringa sem týnast eða brotna sem
merki um að konan sem átti þá,
Guðrún Ósvífursdóttir, eignist menn
og missi þá. Í draumnum eru einnig
höfuðföt sömu merkingar. Hest-
vagnar, bílar og lestir eiga sér tákn-
ræna hefð sem orku- og hreyfiafl,
bæði í vöku og svefni. Litir eiga sér
langa merkingarsögu sem hefst
meðal frummanna líkt og sjá má í
hellum í Frakklandi og á klettum í
Ástralíu. Þar er rauði liturinn ígildi
orkunnar, kraftsins sem skapar og
setur hreyfingu á hlutina, fútt í lífið.
Úr og klukkur tengjast tímanum og
málmar spegla sig sjálfa líkt og gull
speglar verðmæti. Hér hef ég tínt
upp úr söguskjóðunni nokkur helstu
táknin úr draumi þínum sem er við-
vörunardraumur og nú er bara að
púsla myndunum saman í skýra
heildstæða mynd.
Í fyrsta hluta draumsins ertu
þreytt á leið heim og ferð með bílinn
í þrif en honum er lagt á sölu, það
gefur í skyn að þú sért orðin þreytt
á ýmsu í kring um þig en einnig eitt-
hvað slöpp og hirðulaus um eigið
sjálf. Framhaldið sýnir svo hugs-
anlegt ferli þegar hjón, tveir ein-
staklingar, fjarlægjast eftir langar
samvistir vegna: þreytu, pirrings
eða þeim finnst þau ekki ganga í
augu hvors annars lengur, nú eða
grái fiðringurinn sé mættur. Draum-
urinn lýsir þeim erfiðleikum (hring-
arnir) sem eru í sambandi ykkar og
þeirri stöðu (gullúrið og ólin sem
hangir saman á ósýnilegum spott-
um) sem þú ert að koma þér í. En
það eru einmitt spottarnir og ósýni-
legu þræðirnir sem gefa í skyn að
sambandið hafi gliðnað vegna van-
rækslu frekar en ástleysis og því sé
vel hægt að spinna nýjan sterkan og
sýnilegan þráð í gjöfult samband en
það krefst átaka (rokið) og þar sem
þú játtir því að bíða í bílnum ertu
væntanlega nú þegar byrjuð að
spinna þann þráð.
Þeir lesendur sem vilja fá drauma sína birta
og ráðna sendi þá með fullu nafni, fæðingar-
degi og ári ásamt heimilisfangi og dulnefni
til birtingar til:
Draumstafir
Kringlunni 1
103 Reykjavík
eða á heimasíðu Draumalandsins
http://www.dreamland.is.
Hvernig vinnur líkaminn úr
þrúgusykri í samanburði við
hvítan sykur?
Svar: Þrúgusykur og hvítur sykur
eru kolvetni. Þrúgusykur er einsykr-
an glúkósi og hvítur sykur er tví-
sykran súkrósi sem samanstendur af
einsykrunum glúkósa og frúktósa.
Meltingarensím sundra kolvetnum í
fæðu í einsykrur áður en kolvetnin
eru frásoguð úr meltingarveginum
og flutt í blóðrásina. Þar sem þrúgu-
sykur er einsykra þarf ekkert að
brjóta hann niður, hann frásogast úr
meltingarveginum og fer beint út í
blóðið. Eftir að þrúgusykur er kom-
inn inn í blóðrásina er talað um blóð-
sykur. Styrkur blóðsykurs hækkar
fljótlega eftir neyslu á þrúgusykri.
Líkaminn bregst við þessari hækkun
á blóðsykri með því að brisið gefur
frá sér hormónið insúlín. Insúlín
gegnir því mikilvæga hlutverki að
senda boð til frumna í vefjum og líf-
færum um aðtaka upp sykur úr blóð-
inu og við það lækkar styrkur blóð-
sykursins. Þegar styrkur blóðsykurs
lækkar hættir brisið að seytla insúl-
íni út í blóðið ogstyrkur þess lækkar.
Það er mjög mikilvægt fyrir eðlilega
starfsemi líkamans að styrk blóðsyk-
urs sé haldið innan ákveðinna marka.
Áður en hvítur sykur eða súkrósi er
frásogaður úr meltingarveginum
klýfurmeltingarensímið sem nefnist
súkrasi súkrósann í einsykrurnar
glúkósa ogfrúktósa. Glúkósahlutinn
frásogast eins og greint er frá að of-
an. Frúktósi, sem frásogast úr melt-
ingarvegi, hefur ekki strax áhrif á
styrk blóðsykurs eins og glúkósi.
Fyrst fer frúktósi til lifrarinnar og er
þar meðal annars ummyndaður í
glúkósa sem birtist þá sem sykur í
blóði. Þetta ferli tekur lengri tíma og
áhrifin á styrk blóðsykurs verða ekki
eins mikil og þegar þrúgusykur er
borðaður.
Ef líkaminn getur ekki unnið al-
mennilega úr sykri verður blóðsyk-
urinn of hár. Efnaskiptasjúkdóm-
urinn sykursýki einkennist af of
háum blóðsykri og honum fylgja
ýmsir alvarlegir kvillar svo sem
nýrnaskemmdir og blinda og sjúk-
dómurinn getur leitt til dauða. Einn-
ig eru hjarta- og æðasjúkdómar
meðal annars taldir vera fylgikvillar
sykursýki. Tíðni hinnar svokölluðu
insúlínóháðu sykursýki eða syk-
ursýki af tegund 2 er há meðal aldr-
aðra og hefur farið ört vaxandi meðal
yngra fólks, bæði hér á landi og ann-
ars staðar í heiminum. Insúlínóháð
sykursýki er meðal annars talin stafa
af því að frumur verða ónæmar fyrir
insúlíni og afleiðingin er skert upp-
taka glúkósa inn í frumur. Fyrir
sextán árum birtust niðurstöður
rannsóknar sem sýndu að næmi
frumna fyrir insúlíni jókst, og þar
með upptaka blóðsykurs inn í frum-
ur, þegar aldraðir og ungir ein-
staklingar höfðu stundað reglulega
líkamshreyfingu í eina viku. Fjórum
árum síðar birtust niðurstöður rann-
sóknar þar sem sýnt var fram á að
blóðsykur einstaklings með insúl-
ínóháða sykursýki lækkaði eftir
reglulega líkamshreyfingu í eina
viku. Frumur miðtaugakerfisins, þar
með talin heilinn og mænan, og rauð
blóðkorn hafa þá sérstöðu að vera
háð orku frá blóðsykri til eðlilegrar
starfsemi. Einstaklingur sem er í ná-
munda við kjörþyngd sína og hreyfir
sig reglulega nýtir bæði þrúgusykur
(glúkósa) og hvítan sykur (glúkósa
og frúktósa) sem orkugjafa. Ein-
staklingur sem er of feitur og hreyfir
sig lítið þarf ekki á mikilli orku úr
næringarefnum að halda og þá er lík-
legt að þrúgusykurinn oghvíti syk-
urinn stuðli enn meir að uppsöfnun
fitu í líkamanum, þar sem umfram-
neysla á sykri verður að fitu.
Guðrún V. Skúladóttir, lífefnafræðingur
Súkrósi – hvítur sykur.
Reuters
Starfsmenn hollenskrar stofnunar taka sýni úr kýrhaus á dögunum vegna rannsóknar á riðuveiki.