Morgunblaðið - 16.02.2001, Side 24
sem Verk- og kerfisfræðistofan vann fyrir heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið á árinu
1999. Flest þeirra voru til Reykjavíkur, eða 253,
enda er tilgangurinn að koma sjúklingnum sem
fyrst í aðhlynningu á vel útbúnu sjúkrahúsi. 84
sjúkraflug voru til Akureyrar.
Sigurður Guðmundsson landlæknir segir í
samtali við Morgunblaðið að samgöngur leiki
stórt hlutverk í viðbrögðum heilbrigðiskerfis-
ins, séu órjúfanlegur þáttur þeirra. Hann segir
að niðurstaðan varðandi flutning flugsins til
Keflavíkur sé augljós, það muni lengja flutn-
ingstíma sjúklinganna mikið. En það myndi
einnig hafa áhrif á viðbragðs- og greiningar-
sveitir sem kynnu að þurfa að fara út á land.
Spurður að því hvernig flugvöllur sunnan Hafn-
arfjarðar kæmi inn í þetta mat segir Sigurður
að það skipti máli að hafa flugvöllinn sem næst
sjúkrahúsunum og fólkinu í neyðarsveitunum
og segir að þegar völlurinn sé kominn suður á
Vatnsleysuströnd sé orðið stutt til Keflavíkur.
Segir landlæknir ekki unnt að fullyrða hvar ör-
yggismörkin liggi að þessu leyti, þau séu fljót-
andi. Þau séu augljóslega innan klukkustundar
en deila megi um hvort 15–20 mínútna seinkun
skipti öllu máli.
Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri
Almannavarna ríkisins, segir að flestar stærstu
björgunarsveitir landsins séu á höfuðborgar-
svæðinu. Því sé óskaplega þægilegt að hafa
flugvöll þar þegar senda þurfi björgunarlið út á
land. Hún segist ekki gera greinarmun á því
hvar á höfuðborgarsvæðinu flugvöllurinn sé
staðsettur því fólkið sé dreift um allt svæðið.
Hins vegar sé gott að hafa flugvöll sem næst
stóru sjúkrahúsunum ef flytja þurfi fólk á
sjúkrahús hér vegna stórslysa. Það gerist hins
vegar ekki oft. „En þjóðfélagið ákveður hvernig
það ætlar að hafa sín mál. Almannavarnir verða
síðan að gera skipulag ofan á fyrirkomulagið.
Það er almennt ekki okkar hlutverk að hafa af-
skipti af svona málum,“ segir Sólveig.
Ferðaþjónustan
á móti breytingu
Breytingin hefði slæm áhrif á ferðaþjón-
ustuna í landinu, að mati margra sem við hana
starfa. Ferðamönnum af landsbyggðinni til
Reykjavíkur myndi líklega fækka ef flutt verð-
ur til Keflavíkur og skemmtiferðir Reykvíkinga
út á land myndu örugglega dragast saman, að
mati Jóns Karls Ólafssonar hjá Flugfélagi Ís-
lands. „Mikill vöxtur hefur verið í ferðaþjónustu
undanfarin ár og hefur hlutur Reykjavíkur vax-
ið mjög, sérstaklega utan háannatímans. Er-
lendir ferðamenn hafa í sívaxandi mæli notfært
sér innanlandsflug til að heimsækja staði utan
Reykjavíkur og er hætta á að dagsferðum, að
minnsta kosti, muni fækka vegna akstursins til
Keflavíkur.“
Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálaráð
Íslands hafa í ályktunum bent á mikilvægi
Reykjavíkurflugvallar fyrir greiðar og áreiðan-
legar samgöngur innanlands og ferðaþjón-
ustuna. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar, miðar eins og
margir fleiri við það í sínum málflutningi að val-
ið standi eingöngu milli Reykjavíkurflugvallar
og flutnings miðstöðvar innanlandsflugsins til
Keflavíkurflugvallar. Hún segir að ferðaþjón-
ustuaðilar vilji halda fluginu í Reykjavík og telji
að ekki komi til greina að flytja það til Keflavík-
ur. Segir hún frá stefnumörkun Reykjavíkur-
borgar í ferðamálum þar sem fram komi að
Reykjavíkurflugvöllur verði áfram aðalflugvöll-
ur innanlandsflugsins og þar verði byggð sam-
göngumiðstöð. Hún segir að flestir erlendir
ferðamenn vilji hafa viðdvöl í Reykjavík, ekki
síst þeir sem séu á ferðinni utan háannatímans,
og hún segir að þeir muni að mestu falla út úr
innanlandsfluginu ef það verði fært í burtu.
Þrátt fyrir samþykktir samtaka ferðaþjón-
ustufólks hafa heyrst einstaka raddir utan af
landi um að flutningur innanlandsflugsins til
Keflavíkurflugvallar kynni að styrkja sam-
keppnisstöðu ferðaþjónustunnar á landsbyggð-
inni. Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri á Hótel
Reynihlíð við Mývatn, á eina þeirra. „Það skipt-
ir mestu fyrir okkur sem byggjum á erlendum
ferðamönnum að tengjast alþjóðafluginu. Þeg-
ar farþegarnir lenda á Keflavíkurflugvelli gætu
þeir valið um það að fara beint í innanlands-
flugið, eins og víða erlendis. Nú eiga þeir ekki
kost á öðru en að fara fyrst til Reykjavíkur og
enda ferðina þar einnig.“ Telur Pétur að erlend-
ir ferðamenn myndu nýta sér innanlandsflugið í
meira mæli ef miðstöð þess væri staðsett í
Keflavík og sú aukning gæti að einhverju leyti
komið í stað þeirra hópa sem hættu að nota
flugið við þessa breytingu.
Störf fara og ný
koma í staðinn
Töluverð atvinnustarfsemi fer fram í kring-
um flugvöllinn. Auk áætlunarflugsins er rekið
þaðan áætlunarflug til Færeyja og Grænlands.
Þar er starfsemi flugskóla og ýmis þjónusta við
flugið, jafnt farþega og vélar sem fljúga innan-
lands eða hafa viðdvöl á ferðum milli landa. Þá
er starfsemi Flugmálastjórnar og flugstjórnar-
miðstöðvarinnar æði viðamikil.
Í athugun sem Hagfræðistofnun Háskólans
gerði fyrir Flugmálastjórn á árinu 1998 kom
fram að 566 einstaklingar höfðu beina atvinnu
af flugvallarstarfseminni og fyrirtækin sem þar
starfa veltu liðlega 3 milljörðum króna. Þegar
efnahagsáhrif flugvallarstarfseminnar í heild
voru metin tvöfaldaðist starfsmannafjöldinn og
veltan margfaldaðist. Þannig var áætlað að
1.156 störf sköpuðust vegna starfsemi á
Reykjavíkurflugvelli og efnahagsáhrifin væru
rúmir 11 milljarðar í krónum talið. Loks var
reynt að nálgast svar við spurningunni um þjóð-
hagsleg áhrif þeirra farþega utan af landi sem
um völlinn fara og var sá þáttur áætlaður 16
milljarðar kr. til viðbótar en ákveðnir fyrirvarar
hafðir á þeim útreikningi.
Sú starfsemi sem þarna er talin upp en er
óháð staðsetningu vallarins mun sjálfsagt verða
áfram á flugvallarsvæðinu, þótt flugið færi ann-
að en með því flyttist þó meginhluti starfsem-
innar. Menn sem þar vinna eru uggandi um sinn
hag. Þannig segir Sveinn Björnsson, sem rekur
Flugþjónustuna ehf. og annast þjónustu við
fjölda erlendra flugvéla á hverju ári, að óvissa
yrði um framtíð fyrirtækisins ef flugið yrði fært
til Keflavíkur. Hann segir að Reykjavíkurflug-
völlur skapi mikil umsvif í Reykjavík, ekki ein-
göngu vegna góðrar staðsetningar heldur
vegna þess að flugmennirnir vilji koma til þess-
arar fallegu borgar. Þá sé sérstakt að hafa hót-
elið svona vel staðsett. Segir Sveinn að frá sínu
litla fyrirtæki fari þrjú þúsund manns á hótel í
Reykjavík á hverju ári og keypt sé margvísleg
önnur þjónusta fyrir þetta fólk og farkosti þess.
Samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuð-
borgarsvæðisins hefur gert ráð fyrir því að
koma mætti fyrir 5.000 íbúðum í Vatnsmýri,
fyrir samtals 12 þúsund íbúa, auk 5.000 nýrra
starfa. Ef það gengur eftir má margfalda efna-
>4 " %" & %
>!3!
4!" "3 +%"
$ &"4 "<? /
<$4 4" 6%@% " %
" %" &; A
" "" 6%"%& '8 B" ()"$ !"4 "
%
-)"%& "
*%&
C ()"
B"%" &
B"$@!
!
%A @% " %
-"" A! 4 A"$@!%" &7" "
%A &!@% " %
4
4 A"" ""$@!"%" & 2 )3!
>4!%" &
*%" &
2" "()
B"3!
%" &7%
# ()"$
( & %
" %" & %
% %"$ %
$"%%"
A(" !"7# D
EF 4" " %" & %
'8 "G
A("
+ ,
+ -(
*
#(
+ -(
& *
.
6%%" &A(
! 4"! " %" & %
" A" ()"$! /
6% ()" #6A" &
: )6!
A"#"%" &7%" )6"
@% " %
%"
!"4 "
4
%
"7%
4 " $$" * 6 %
@5%$#!)" ""A"
%" & )"%& " !""%& FA"!
""!3 $"
! <$"% )"!"
3
$445 !
$#!)#" 4! " %" & %
3%&"! %
#% %"$ %
$"%%"
( &
!"%%A(" !"7@#"
8H3
!( & "")"%& "4
"" "
.H%$!A6"3
!( & @" !
-)" %
! %
$+%?%" &! /
-)" %
/0- 1
. (1
. -! *1
2, ( 1
2, (0 1
(1
. *0- *1
%4
!%
()"$ 3
* 3
1
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
24 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ