Morgunblaðið - 13.03.2001, Side 1
60. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 13. MARS 2001
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, og eiginkona
hans, Nane, heimsækja afganska
stúlknaskólann í Shamshato-
flóttamannabúðunum skammt frá
borginni Pershawar í Pakistan, við
afgönsku landamærin.
Annan og fylgdarlið hans var á
ferð í búðunum í gær en þar búa
mörg þúsund Afganar við skelfileg-
ar aðstæður. Hét Annan því að fólk-
inu yrði veitt aðstoð. „Vera mín hér
ætti að vera ykkur staðfesting á því
að alþjóðasamfélagið hefur ekki
gleymt ykkur og þið eigið vini,“
sagði Annan við flóttafólkið.
Um 70 þúsund manns hafa hafst
við í plasttjöldum og illa gerðum
timburskýlum síðan í byrjun janú-
ar. Í öðrum flóttamannabúðum sem
komið var upp í Pakistan eftir inn-
rás Sovétríkjanna í Afganistan
1979 búa um 1,2 milljónir Afgana
og segjast pakistönsk yfirvöld ekki
hafa tök á að koma upp fleiri búð-
um. Þegar innrásin í Afganistan
stóð sem hæst flúðu fimm milljónir
Afgana til Pakistans og tvær millj-
ónir til Írans.
Reuters
Annan
lofar
hjálp
Shamshatoo í Pakistan. AP, Reuters.
LEIÐTOGAR albanskra skæruliða
undirrituðu í gær tímabundið
vopnahlé við Júgóslavíustjórn en
átökin milli þeirra í suðurhluta Ser-
bíu hafa staðið í rúmt ár. Stjórn-
völd í Belgrad og Atlantshafs-
bandalagið (NATO) komust enn
fremur að samkomulagi sem miðar
að því að flæma albanska skæruliða
frá svæðum við landamæri Maked-
óníu. Samningsundirritunin var
mikill sigur fyrir NATO sem sér
um öryggisgæslu í Kosovo. „Þetta
er mikið framfaraskref ... allt ferlið
er nú á réttri leið,“ sagði sendi-
fulltrúi NATO á Balkanskaga, Pet-
er Feith, eftir að skæruliðar höfðu
skrifað undir samninginn í víg-
stöðvum sínum í Konculj á hlut-
lausa svæðinu.
Samkomulagið í gær var árangur
af erindisrekstri Feiths alla
helgina á milli deiluaðila en júgó-
slavnesk stjórnvöld neituðu að
ræða beint við skæruliðana sem
þau nefndu „hryðjuverkamenn“.
Ef alþjóðlegir eftirlitsmenn telja
eftir viku að báðir aðilar hafi virt
vopnahléið munu deiluaðilar hefja
viðræður um framtíð héraðsins.
Nokkru áður en tilkynnt var um
vopnahléssamninginn hafði NATO
gert samkomulag við Júgóslava um
að serbneskir landamæraverðir og
lögreglumenn fengju að fara inn á
25 ferkílómetra svæði í Presevodal
sem liggur að makedónísku landa-
mærunum. Að sögn talsmanns
NATO verður Serbunum óheimilt
að nota brynvarða bíla á svæðinu,
þar sem albanskir skæruliðar hafa
staðið fyrir árásum.
Serbum hefur verið meinað að
fara með her um svæðið við landa-
mærin síðan NATO setti slíkt bann
1999. Carlo Cabigiosu, yfirmaður
friðargæslusveitanna, KFOR, á
svæðinu, tilkynnti í gær að serb-
nesku lögreglumennirnir fengju að
fara til Presevo „á næstu dögum,“
en tók fram að umsvif þeirra þar
væru ströngum skilyrðum háð.
Samið um
viku vopnahlé
Konculj, Merdare. AFP, AP.
Horfur á að átökunum í Serbíu linni
ÍSRAELSKIR hermenn skutu til
bana í gær palestínskan mann og
beittu táragasi gegn grjótkasti þeg-
ar kom til átaka við vígi sem herinn
reisti til að setja borgina Ramallah á
Vesturbakkanum í herkví.
Binyamin Ben-Eliezer, varnar-
málaráðherra Ísraels, lýsti því yfir
nokkru síðar að Ísraelar myndu
opna leiðir til fjögurra annarra
borga á Vesturbakkanum en þær
voru settar í herkví þegar Palestínu-
menn hófu uppreisn fyrir fimm mán-
uðum í kjölfar þess að friðarumleit-
anir fóru út um þúfur. Ramallah yrði
áfram í herkví.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, sagði að gæsla um borgina
hefði verið hert eftir að Ísraelar
hefðu komist á snoðir um að hópur
Palestínumanna hefði lagt á ráðin
um sprengjutilræði við Ísraela.
Sharon kynnti í gær fyrir ríkis-
stjórn sinni fimm grundvallarreglur
í viðureigninni við Palestíumenn og
hét því að hefja ekki friðarumleitanir
á ný fyrr en lát yrði á uppreisn Pal-
estínumanna. Að minnsta kosti 343
Palestínumenn, 65 Ísraelar og 13
ísraelskir arabar hafa látið lífið í
átökum sem blossuðu upp í septem-
ber sl. eftir að friðarviðræður sigldu
í strand.
Þetta var í fyrsta sinn sem öll
stjórn Sharons kemur saman eftir að
hann tók við völdum í síðustu viku.
Sagði hann það forgangsverkefni hjá
sér að veita Ísraelum öryggi en það
hefði þá skort frá því uppreisnin
hófst.
Sharon sagði enn fremur að hann
hygðist gæta þess vandlega að Pal-
estínumenn myndu ekki með ofbeldi
herja út eftirgjöf af hálfu Ísraela í
friðarumleitunum og hann myndi
heldur ekki leyfa það að átökin
breiddust út á alþjóðlegan vettvang
eða bærust til nágrannaríkjanna.
Fulltrúi forsætisráðherrans sagði
í gær að fimmta grundvallarregla
Sharons væri að grípa hvert tæki-
færi sem gæfist til friðarviðræðna en
einungis þegar friður væri aftur
kominn á.
Utanríkisráðherrar aðildarríkja
Arababandalagsins, sem sitja á fundi
í Kaíró, fóru í gær fram á það að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna kæmi
tafarlaust saman til að ræða hvernig
hægt væri að veita Palestínumönn-
um alþjóðlega vernd á Vesturbakk-
anum og Gaza vegna „siðlausra“ að-
gerða Ísraela. Þeir hafa verið
gagnrýndir harðlega á alþjóðavett-
vangi fyrir að loka svæðum Palest-
ínumanna eftir að uppreisnin hófst.
Helsti ráðgjafi Sharons sagði á
sunnudaginn að ekki gæti orðið af
fundi þeirra Sharons og Yassers
Arafats, forseta heimastjórnar Pal-
estínumanna, fyrr en ofbeldisað-
gerðum yrði hætt.
„Það voru mér vonbrigði að Arafat
skyldi ekki í ræðu sinni í gær hvetja
til þess að látið verði af aðgerðum,“
sagði Sharon í viðtali við bandaríska
sjónvarpsstöð á sunnudaginn.
Palestínska forsætisembættið
brást við gagnrýni á ræðu Arafats,
sem hann hélt á þingi Palestínu-
manna á laugardag, með því að segja
að gagnrýnin væri sönnun þess að
Ísraelar vildu ekki frið.
Aflétta ferðabanni
á Vesturbakkanum
Ramallah þó
áfram í herkví
Jerúsalem. Reuters, AFP.
MIKIL lækkun varð á Nasdaq-
hlutabréfavísitölunni í Bandaríkj-
unum í gær, að því er New York
Times greindi frá, og nam rúmum
sex prósentum. Við lokun í gær var
vísitalan undir tvö þúsund stigum í
fyrsta sinn síðan í desember 1998.
Dow Jones-vísitalan lækkaði einnig
um fjögur prósent.
Þá hrundi gengi hlutabréfa í
sænska símafyrirtækinu Ericsson
á markaði í Stokkhólmi í gær í
kjölfar afkomuviðvörunar frá
félaginu fyrir fyrsta ársfjórðung
þessa árs. Minnkaði markaðsvirði
fyrirtækisins um sem svarar 1.170
milljörðum íslenskra króna í gær,
að því er Dagens Nyheter greindi
frá.
Ericsson tilkynnti að búist væri
við fjögurra til fimm milljarða
sænskra króna tapi á rekstrinum á
fyrsta fjórðungi þessa árs. Áður
hafði því verið spáð að fyrirtækið
kæmi út á sléttu.
Dagens Nyheter reiknar út, að
gengislækkunin á hlutabréfunum
samsvari því, að 130 milljarðar
sænskra króna, sem samsvarar um
1.170 milljörðum íslenskra króna,
af markaðsverðmæti Ericssons
hafi gufað upp síðdegis í gær og
hafi verðmæti fyrirtækisins lækkað
úr 640 milljörðum í 510 milljarða.
Mikil
lækkun á
Nasdaq
GRUNUR leikur á að gin- og klaufa-
veikitilfelli sé komið upp í hjörð 113
kúa á búi í Norðvestur-Frakklandi,
að því er staðaryfirvöld greindu frá í
gær. Hefðu sex kýr greinst með ein-
kenni sjúkdómsins. Þeim hefði öllum
verið slátrað og farga átti allri hjörð-
inni í gærkvöldi og nótt. Rannsókn-
arniðurstaða er að vænta í dag.
Gin- og klaufaveiki hefur breiðst
út eins og eldur í sinu á Bretlandi
síðan hún kom þar upp í síðasta mán-
uði. Enn hafa engin staðfest tilfelli
komið upp á meginlandi Evrópu.
Landbúnaðarráðherra Írlands, Joe
Walsh, neitaði í gær að taka undir
harkalega gagnrýni aðstoðarráð-
herra í írsku stjórninni á hendur
Bretum fyrir meint slæleg viðbrögð
við útbreiðslu sjúkdómsins. Kvaðst
Walsh treysta því að bresk yfirvöld
hefðu gert hvað þau gætu til að fást
við faraldurinn.
Hugh Byrne, náttúruauðlindaráð-
herra Írlands, sendi Bretum heift-
arlega tóninn um helgina og sagði
viðbrögð þeirra við útbreiðslu veik-
innar hafa verið slæleg. Sagði hann
Bretland vera „holdsveikisjúkling
Evrópu“ og sakaði breska ráðherra
um andvara- og ráðaleysi í viðureign
sinni við faraldurinn.
Gin- og klaufaveikin
Grunur um
tilfelli í
Frakklandi
París, London. Reuters.
SPRENGJA, sem missti marks
er henni var varpað úr banda-
rískri orrustuþotu, varð fimm
eða sex vestrænum hermönn-
um að bana á æfingasvæði í
Kúveit í gær. Fimm þeirra voru
Bandaríkjamenn, einn var
Nýsjálendingur en heimildum
ber ekki saman um hvort fimm
eða sex hermenn hafi fallið.
Átta til tólf hermenn, þar á
meðal tveir Kúveitar, særðust.
Bandarískir varnarmála-
fulltrúar sögðu að mennirnir
hefðu verið að fylgjast með
sprengjuæfingum í myrkri.
Hefði atburðurinn orðið um
klukkan átta í gærkvöldi að
staðartíma, eða um fjögur síð-
degis að íslenskum tíma. Eng-
an óbreyttan borgara hefði sak-
að. Haft var eftir sjónarvotti að
sprengja frá bandarískri F-18
þotu hefði misst marks.
5 féllu í
Kúveit
♦ ♦ ♦