Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI 18 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ rekstrarreikningi hvernig staðan er á uppgjörsdegi en hagnaður Íslands- banka-FBA eftir skatta nam 662 milljónum í fyrra. Ég vek athygli á þessu vegna þess að okkar helstu keppinautar gera þetta ekki með sama hætti. Hluti af þeirra markaðs- skuldabréfum er ekki gerður upp á markaðsgengi heldur á framreiknuðu kostnaðarverði.“ Ofmat á hagnaði ríkisbankanna Kristján benti á að hagnaður Bún- aðarbankans eftir skatta hafi verið 202 milljónir króna en samkvæmt upplýsingum í ársreikningi bankans hafi fjárfestingarskuldabréf verið færð á verði sem er 195 milljónum hærra en markaðsgengið í lok árs. „Ef Búnaðarbankinn hefði beitt sömu varfærnisreglu í sínu uppgjöri og Ís- Í RÆÐU Kristjáns Ragnarssonar, formanns bankaráðs, á aðalfundi Ís- landsbanka-FBA, kom fram að sam- runaferill Íslandsbanka og Fjárfest- ingarbanka atvinnulífsins í fyrra hafi verið óvenju skammur þrátt fyrir að um hefði verið að ræða stærstu sam- einingu Íslandssögunnar þegar tekið sé tillit til markaðsvirðis fyrirtækj- anna. „Báðir bankarnir voru einka- fyrirtæki og það flýtti augljóslega fyrir ákvörðuninni um niðurstöðu, gagnstætt því þegar tillit þarf að taka til pólitískra sjónarmiða.“ Kristján gerði einnig að umtalsefni misjafnar uppgjörsaðferðir Landsbankans og Búnaðarbankans annars vegar og svo Íslandsbanka hins vegar. Hann sagði það vera tímabært að Fjármálaeftir- litið beitti sér fyrir því að uppgjör ís- lenskra fjármálafyrirtækja verði samræmd. Á fundinum var kjörin ný stjórn bankans. Guðmundur H. Garðarsson og Finnbogi Jónsson gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Í þeirra stað koma inn í stjórnina Jón Ólafsson og Víg- lundur Þorsteinsson en endurkjörnir voru Einar Sveinsson, Eyjólfur Sveinsson, Helgi Magnússon, Jón Ás- geir Jóhannesson og Kristján Ragn- arsson sem er formaður. Þá var og samþykkt að greiða út 5% arð á árinu, eða tæpar 495 milljónir króna, til hluthafa. Öll bréf gerð upp á markaðsgengi „Sveiflur af því tagi sem við sáum á síðasta ári á verðbréfamörkuðum hafa umtalsverð áhrif á afkomu fjár- málafyrirtækja. Eðli málsins sam- kvæmt eiga þau á hverjum tíma tölu- vert af eignum í markaðsverðbréfum. Öll markaðsverðbréf í okkar eigu eru gerð upp á markaðsgengi. Sama á við, hvort heldur um er að ræða skulda- bréf eða hlutabréf, eða hvort um er að ræða bréf sem bókuð hafa verið í veltubók til skamms tíma eða fjár- festingarbók til langs tíma. Með þessu viljum við sýna nákvæmlega í landsbanki-FBA hefði hagnaður bankans eftir skatta verið um það bil 14 milljónir en ekki 202 milljónir og er þá miðað við 30% skattgreiðslu. Svip- aða sögu er að segja af Landsbank- anum. Hagnaður hans eftir skatta er samkvæmt ársreikningi 955 milljónir króna en í skýringum með ársreikn- ingnum kemur fram að markaðs- skuldabréf í eigu bankans séu ofmet- in miðað við raunverulegt markaðsvirði, um 855 milljónir, í árs- lok. Ef Landsbankinn hefði beitt sömu reglu og Íslandsbanki-FBA væri hagnaður Landsbankans 355 milljónir en ekki 955 milljónir króna. Svo ber þess að geta að í reikningi Landsbankans er tekjufærsla vegna eignarhluta bankans í Vátryggingar- félagi Íslands sem nemur 313 millj- ónum króna eftir skatta. Það er tíma- bært að Fjármálaeftirlitið beiti sér fyrir því að uppgjör fjármálafyrir- tækjanna séu samræmd að því er snertir mat á skuldabréfum í fjárfest- ingarbók.“ Sameiningin kostaði sitt Kristján sagði að stofnun Íslands- banka-FBA hafi verið sóknarleikur. Tilgangurinn hafi verið að skapa sterkari banka og honum hafi strax í upphafi verið sett sex fjárhagsleg markmið. „Í fyrsta lag skal stefnt að því að arðsemi eigin fjár til lengri tíma nemi vöxtum óverðtryggðra rík- isskuldabréfa að viðbættum 5 til 8%. Við núverandi aðstæður er þessi arð- semiskrafa 17 til 20%. Í annan stað var sett sú stefna að arðgreiðslur til hluthafa nemi að jafnaði 25 til 50% af hagnaði bankans. Í þriðja lagi var sett það markmið að eiginfjárhlutfall á CAD-grunni verði ekki lægra en 10%. Í fjórða lagi að kostnaður sem hlutfall af heildartekjum verði innan við 55% og í fimmta lagi að afskriftir útlána verði innan við 0,5% af útistandandi útlánum og ábyrgðum. Loks var það markmið sett að vöxtur í tekjum og hagnaði nemi 7 til 15% árlega. Kristján sagði að þegar menn líti nú til baka og beri saman árangur og markmið sé nauðsynlegt að hafa í huga að hinn nýi banki starfaði ekki nema rúmt hálft síðastliðið ár og einnig hitt að síðasta ár var samein- ingarár. Sameiningin sjálf hafi að sjálfsögðu nokkurn kostnað í för með sér sem kom fram á fyrsta árinu og einnig sé ljóst að mikill tími stjórn- enda og hluta starfsfólks hafi farið í sjálft sameiningarferlið meðan það stóð yfir. Þetta hafi óhjákvæmilega haft áhrif á reksturinn í fyrra. Þá hafi bankinn ekki farið varhluta af nei- kvæðri þróun á verðbréfamarkaði, þ.e. hækkun ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði og lækkun hlutabréfa. Nafnbreyting í skoðun Kristján sagði að eitt af því sem hafi komið til skoðunar í stefnumót- unarvinnu bankans, þar sem öllum steinum sé velt og allt skoðað, sé nafn bankans og hvernig það sé markaðs- sett. „Því er ekki að neita að nafnið Ís- landsbanki-FBA er ekki sérlega þjált né auðvelt að markaðssetja, hvorki innanlands né utan. Því er nú unnið að sérstakri athugun á þessu máli og er helst litið til Íslandsbankanafnsins og jafnframt til einhverrar skamm- stöfunar til einkennis fyrir hverja starfstöð og þjónustustöð. Þegar bankaráð hefur fengið tillögur og tek- ið afstöðu til þeirra munum við kynna málið opinberlega. Það verður þó tæplega fyrr en með vorinu.“ Kristján Ragnarsson stjórnarformaður á aðalfundi Íslandsbanka-FBA Morgunblaðið/Jim Smart Stjórn og forstjórar ÍslandsbankaFBA. Samræma ber uppgjör fjármálafyrirtækjanna REKSTRARHAGNAÐUR Olíu- félagsins hf. og dótturfélaga fyrir af- skriftir og fjármagnsliði nam 1.012 milljónum króna á árinu 2000 og hækkaði um 11% milli ára, eða um 103 milljónir króna. Hagnaður af reglulegri starfsemi var 429 milljón- ir króna en var 606 milljónir árið áð- ur. Veltufé frá rekstri hækkaði á milli ára um 22% og nam 882 millj- ónum króna. Arðsemi eigin fjár var 7,3% samanborið við 11,9% árið áður og jókst eigið fé félagsins um 510 milljónir króna á árinu 2000. Rekstrarumhverfi ársins 2000 ein- kenndist af verulega hækkandi heimsmarkaðsverði olíuvara og lækkandi gengi íslensku krónunnar og í tilkynningu frá Olíufélaginu hf. segir að þessir þættir hafi haft veru- leg áhrif á rekstur og efnahag félags- ins. Fjármagnskostnaður jókst um 335 milljónir króna og hafði megin- áhrif á lakari afkomu milli ára, og niðurfærsla viðskiptakrafna jókst vegna aukinnar útlánaáhættu. Efna- hagsreikningurinn hækkaði umtals- vert, meðal annars vegna hækkandi birgðaverðs og útistandandi skulda í kjölfar hækkandi heimsmarkaðs- verðs og útsöluverðs hér á landi sem aftur hafði í för með sér aukna fjár- magnsþörf. Rekstrartekjur Olíufélagsins hf. og dótturfélaga voru 14.693 milljónir króna á árinu 2000 og er það um 3.232 milljóna króna tekjuaukning frá fyrra ári eða um rúm 28%. Segir félagið að meginástæðan fyrir þess- ari aukningu sé hækkun á útsölu- verði í kjölfar hækkunar á heims- markaðsverði eldsneytis og aukin umsvif í öðrum vörum en olíuvörum. Kostnaðarverð seldra vara hækkaði um 37%. Rekstrargjöld án afskrifta hækkuðu um 7,6%. Þar af var sölu- og dreifingarkostnaður nær óbreytt- ur á milli ára en annar rekstrar- kostnaður hækkaði um 196 milljónir. Heildareignir Olíufélagsins hf. og dótturfélaga þess voru í árslok 16.869 milljónir króna. Bókfært verð hlutabréfa samstæðunnar í öðrum félögum nam 4.574 milljónum króna í árslok 2000. Hagnaður Olíufélags- ins 429 milljónir króna                 18*587    %%#%(' $#*%& '&& +#()+ '#$++ '$* "$ '**  +"$  /%'    "#*&$ (#)+* ! $'' %"'      01   !           !        ! 1                  "#$%                 2 3 1 =    #               !  !  !  ! !  !       !     "                77     
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.