Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 57
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 57 Jóhanna Stefanía Sigrún Æfingabekkir Hreyfingar Ármúla 24, sími 568 0677 Getur eldra fólk notið góðs af þessum bekkjum? Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er þægileg, liðkar og gefur góða slökun og er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk. „Ég er búin að stunda bekkina í 8 ár, en með smá hléum, og þá strax fór ég að verða stirðari í öllum liðum. Mér finnst að bekkirnir séu nauðsynlegir, þó fólk stundi aðra líkamsrækt því þeir bæði styrkja og nudda. Mjög gott fyrir þá sem þjást af gigt, t.d. liða- og vefjagigt.“ Jóhanna Einarsdóttir „Ég hef stundað æfingabekkina í rúm 12 ár eða frá því að þeir komu fyrst til landsins. Þær æfingar, sem bekkirnir bjóða upp á, eru einstaklega fjölbreyttar og góðar. Það fann ég best þegar ég stoppaði í nokkra mánuði. Vöðabólgur og stirðleiki létu ekki á sér standa. En nú er ég byrjuð aftur og er nú orðin öll önnur. Því mæli ég eindregið með æfinga- bekkjunum.“ Sigrún Jónatansdóttir „Það eru liðin 10 og ½ ár síðan dóttir mín sagði mér að hún hefði pantað fyrir mig prufutíma í nuddbekki sem hún hélt að gætu verið mjög góðir fyrir mig. Ég hafði þá þjáðst lengi af liðagigt og vöðvabólgu. Ég er ekki að orðlengja það en allar götur síðan hef ég stundað bekkina allan ársins hring með mjög góðum árangri. Ef hlé hefur verið á æfingum finn ég mjög fljótt fyrir stirðleika í liðum og sársauka í vöðvum. Ég er sannfærð um að bekkirnir hafa hjálpað mér mikið í mínu daglega lífi.“ Stefanía Davíðsdóttir  Er vöðvabólga að hrjá þig í baki, öxlum eða handleggjum?  Stirðleiki í mjöðmum og þreyta í fótum?  Vantar þig aukið blóðstreymi og þol? Þá hentar æfingakerfið okkar þér vel! Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar sérlega vel fólki á öllum aldri, sem ekki hefur stundað einhverja líkamsþjálfun í langan tíma. Sjö bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og eykur blóðstreymi til vöðvanna. Hver tími endar á góðri slökun. Við erum einnig með göngubraut, þrekstiga og tvo auka nuddbekki. Opið mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9–12 og 16–20, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 9–18 Fr í r kynningart ími 6 Tilboð: 12 tímar á kr. 6.500 4. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 9.996.006 kr. 1.999.201 kr. 199.920 kr. 19.992 kr. 4. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 8.025.072 kr. 1.605.014 kr. 160.501 kr. 16.050 kr. 2. flokkur 1995: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 7.693.833 kr. 1.538.767 kr. 153.877 kr. 15.388 kr. 1. og 2. flokkur 1998: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.297.818 kr. 129.782 kr. 12.978 kr. Innlausnardagur 15. mars 2001. Innlausnarverð húsbréfa Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig frammi upplýsingar um útdregin húsbréf PIA Jarvad, cand.mag., fræðimað- ur hjá Danskri málnefnd í Kaup- mannahöfn, flytur opinberan fyr- irlestur í boði heimspekideildar Háskóla Íslands í stofu 301 í Árna- garði, miðvikudaginn 14. mars kl. 16.15. Fyrirlesturinn nefnist: „Dansk sprogpolitik“, Dönsk mál- stefna, og verður fluttur á dönsku. Í fyrirlestrinum fjallar Pia Jar- vad um hin raunverulegu áhrif sem enska hefur haft á dönsku og afstöðu Dana til þessara áhrifa. Einnig mun hún greina frá því hvernig hið opinbera og einkaað- ilar hafa tekið frumkvæði að því að móta sérstaka danska málstefnu. Pia Jarvad lauk cand.mag.-prófi í dönsku og hljóðfræði frá Kaup- mannahafnarháskóla árið 1973. Hún hefur starfað sem fræðimaður hjá Danskri málnefnd frá árinu 1974, þar sem hún hefur fengist við skráningu og rannsóknir á ný- yrðum í dönsku og orðabókafræði. Hin síðari ár hafa rannsóknir hennar einkum beinst að enskum áhrifum á danska tungu. Fyrirlesturinn verður fluttur á dönsku. Allir eru velkomnir. Fyrirlestur um danska mál- stefnu LÖGREGLAN í Reykjavík kærði 54 kærðir vegna hraðakst- urs um helgina, 19 vegna gruns um ölvun við akstur og fimm voru teknir fyrir að aka þrátt fyrir að hafa verið sviptir öku- réttindum. Þrjátíu og fimm um- ferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu en ekki urðu alvarleg slys. Einn ökumanna, sem lög- reglumenn hugðust stöðva í Árbæ vegna hraðaksturs, reyndi að komast undan. Lögreglumenn hlupu hann uppi og kom í ljós að hann var réttindalaus. Brotist var inn í húsnæði í iðnaðarhverfi í Mosfellsbæ og þaðan stolið verkfærum. Þá hefur einhvern þjófinn vantað nýtt á rúmið því brotist var inn í sængurveraverslun í miðbænum og stolið rúmteppi. Farið var inn í húsnæðið gegn- um glugga á annarri hæð. Þá var stolið skartgrip að verðmæti um 100 þúsund úr skartgripaverslun við Laugaveg. Unnið er að frekari rannsókn málsins. Rúmlega tvítugur karlmaður var handtekinn í miðbænum eft- ir að hafa slegið tvo menn í göt- una. Árásarmaðurinn var vist- aður í fangageymslu. Karlmaður skarst á baki er hann í átökum lenti á glerbroti á gólfi veitinga- staðar í miðbænum. Maðurinn var fluttur á slysadeild. Stakk á uppblásna dúkku Tveir piltar voru handteknir eftir átök við söluturn aðfaranótt mánudags. Mennirnir höfðu orð- ið eitthvað ósáttir og hafði þá annar þeirra sótt hafnabolta- kylfu til að nota við átökin. Karl- maður óskaði aðstoðar lögreglu á veitingastað í miðbænum að- faranótt laugardags. Maðurinn, sem er af landsbyggðinni, virðist ekki hafa treyst sér til að nálg- ast konur höfuðborgarinnar því hann hafði meðferðis uppblásna kvendúkku. Fór það greinilega mikið fyrir brjóstið á erlendri konu á veitingastaðnum sem stakk á dúkkuna gat svo loftið lak út. Krefst nú karlmaðurinn bóta fyrir tjónið því sjálfsagt hefur kvöldið orðið tilbreytinga- snautt hjá honum fyrir vikið. Óskað var eftir aðstoð lög- reglu vegna kattar sem hafði komið óvelkominn inn í kjall- araíbúð í vesturbænum. Kettin- um hafði tekist að skemma sófa- sett og ráðast að barni. Fengin var aðstoð frá meindýraeyði til að fjarlægja köttinn. Úr dagbók lögreglunnar Óvelkominn köttur í kjallaraíbúð 9.–11. mars Í ÞESSARI viku og til mánaðamóta verða haldnar lokahátíðir Stóru upplestrar-keppninnar í 7. bekk víða um land. Mars er að verða sér- stakur hátíðarmánuður upplestrar í grunnskólum á Íslandi. Í ár verða haldnar 26 upplestr- arhátíðir víða um land, allt frá Rauf- arhöfn í norðaustri til Hornafjarðar í suðaustri. Sú fyrsta var haldin í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi hinn 7. mars síðastliðinn og sú síðasta verður haldin hinn 30. mars í Safna- húsinu á Húsavík. Keppnin í ár er helguð evrópska tungumálaárinu annars vegar, hins vegar minningu Tómasar Guð- mundssonar, sem varð 100 ára hinn 6. janúar síðastliðinn. Hinir ungu lesarar munu flytja nokkrar þýddar sögur og valin ljóð Tómasar, auk þess sem þeir flytja ljóð að eigin vali. Allir fá bókarverðlaun frá Eddu en Sparisjóðirnir veita þrem- ur bestu lesurunum peningaverð- laun. Á hátíðunum koma einnig fram ungir tónlistarmenn og víða munu nýbúar lesa upp ljóð á móð- urmáli sínu. Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk er nú haldin í fimmta sinn. Að þessu sinni taka liðlega fjögur þúsund nemendur í 120 skólum þátt í keppninni, eða um 90% árgangsins. Nemendur hafa allt frá degi ís- lenskrar tungu æft vandaðan upp- lestur og framburð reglulega undir leiðsögn kennara síns. Á lokahátíð- um keppninnar koma fram, saman lagt, um 230 upplesarar úr 7. bekk, sem valdir hafa verið við hátíðlega athöfn í skólum héraðsins. Að keppninni standa: Heimili og skóli, Íslensk málnefnd, Íslenska lestrarfélagið, Kennaraháskóli Ís- lands, Kennarasamband Íslands og Samtök móðurmálskennara, í sam- vinnu við skólaskrifstofurnar á hverjum stað. Keppnina styrkja: Edda – miðlun og útgáfa, Flugfélag Íslands, menntamálaráðuneytið, Mjólkur- samsalan, Skólaskrifstofa Hafnar- fjarðar og Sparisjóðirnir. Upplestrarhátíð í heilan mánuð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.