Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 19
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 19 AFKOMA Skagstrendings hf. var slæm á árinu 2000 og var félagið gert upp með 355 milljóna króna tapi en 324 milljóna króna hagnaður varð af rekstrinum á árinu 1999. Tap af reglulegri starfsemi eftir skatta, án tengdra félaga, nam 91 milljón króna, samanborið við 343 milljóna króna hagnað árið áður. Tap af hlutdeildarfélögum nemur 309 milljónum króna en þar vegur þyngst 273 milljóna afskrift eignar- hluta, krafna og ábyrgða vegna gjaldþrots Nasco ehf. Tap hlutdeild- arfélaganna má öðru fremur rekja til afleitrar afkomu í útgerð rækju- frystiskipa á Flæmingjagrunni, að því er fram kemur í tilkynningu Skagstrendings hf. til Verðbréfa- þings Íslands. Gengistap af erlend- um skuldum félagsins vegna veiking- ar íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum nam 181 milljón króna árið 2000 samanborið við 7 milljón króna tap á árinu 1999. Rekstrartekjur samstæðunnar drógust saman um 12,6% og námu á árinu 2.078 milljónum króna saman- borið við 2.377 milljónir króna árið áður. Þennan samdrátt má að stærstum hluta rekja til lækkunar á söluvirði rækjuafurða. Rekstrar- gjöld voru hins vegar 1.722 milljónir króna, samanborið við 1.932 milljón- ir króna árið 1999, sem er 10,9% lækkun. Rekstrarhagnaður fyrir af- skriftir og fjármagnskostnað var 356 milljónir króna árið 2000, eða 17,1% af rekstrartekjum, samanborið við 445 milljónir króna árið 1999, sem var 18,7% af rekstrartekjum. Fjármagnsgjöld að frádregnum fjármunatekjum námu 240 milljón- um króna árið 2000 sem er veruleg breyting frá fyrra ári en þá voru fjármunatekjur umfram fjármagns- gjöld 67 milljónir króna. Tap af reglulegri starfsemi fyrir skatta, án áhrifa tengdra félaga, nam 91 milljón króna, samanborið við 343 milljóna króna hagnað árið 1999. Eftir að tek- ið hefur verið tillit til áhrifa hlut- deildarfélaga og reiknaðra skatta er félagið gert upp með 355 milljóna króna tapi. Veltufé frá rekstri var 173 milljónir króna en var 371 millj- ón árið 1999. Eigið fé var í árslok 977 milljónir króna og lækkaði um 116 milljónir á árinu. Eiginfjárhlutfall lækkaði úr 37% í 29% á milli ára. Tap Skagstrendings hf. 355 milljónir króna =    #       4#  $ %          !      &      5   6 /1         ' ()   "#$%                            !                 6*688         '#+$$ %#&+'  %(&   /($ /%+  /(   %#,&+ %#**% !&  +$% %-)$ +(-*. )+-,. ! ! !   !       !    !                        77      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.