Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 16
LANDIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Bakkafirði - Föstudaginn 9. mars
var opnuð ný matvöruverslun á
Bakkafirði en hér hefur verið versl-
unarlaust síðan 1. febrúar síðastlið-
inn. Stofnað var félagið Sjafnarkjör
ehf. og keypti það félag gamla versl-
unarhúsið með öllum tækjum til
verslunarreksturs.
Í samtali við Sjöfn Aðalsteinsdótt-
ur, eiganda Sjafnarkjörs ehf., kom
fram að hún fékk mikla og góða að-
stoð frá Bónus í Reykjavík og sagði
hún að án þeirra hjálpar hefði hún
ekki opnað verslunina. Sjöfn sagði
einnig að sú mikla vinna sem unnin
var til að hægt væri að opna versl-
unina hefði öll verið unnin í sjálf-
boðastarfi af heimafólki sem kom og
bauð fram vinnu sína og var það
henni mikil hvatning að finna fyrir
þessum mikla hlýhug fólks. Á opn-
unardeginum bárust henni fjölmarg-
ar heillaóskir og blómahaf svo minnti
helst á blómaverslun en ekki mat-
vöruverslun.
Morgunblaðið/Áki Guðmundsson
Matvöruverslunin Sjafnarkjör
hefur verið opnuð á Bakkafirði.
Ný mat-
vöruversl-
un opnuð á
Bakkafirði
Stykkishólmi - Skemmtiferðir hjá
Sæferðum í Stykkishólmi eru byrj-
aðar á þessu ári en föstudaginn 9.
mars kom hingað fyrsti hópur er-
lendra ferðamanna. Um var að
ræða 26 stúdenta frá háskóla Ge-
orgíu í Bandaríkjunum. Þarna voru
á ferðinni afburðanámsmenn sem
fengu ferð til Íslands í verðlaun
fyrir góðan námsárangur. Hópur-
inn var á vegum ferðaskrifstofu
Guðmundar Jónassonar.
Að sögn Péturs Ágústssonar hjá
Sæferðum eru nú þegar farnir að
sjást fuglar í klettum eins og skarf-
ur og aðrir sjófuglar sem hafa hér
vetrarsetu. Hann segir að Sæferðir
hafi tekið á móti hópum í veislu-
ferðir og talsvert sé bókað í mars
og séu það einkum starfsmanna-
félög sem hafi áhuga á að skreppa í
Hólminn og sigla út á Breiðafjörð
og borða um borð í bátnum góðan
mat. Síðast í apríl fer allt á fulla
ferð hjá Sæferðum. Boðið verður
upp á skemmtisiglingar og hvala-
skoðun eins og undanfarin ár.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Fyrsti hópur erlendra ferðamanna á þessu ári fór í skemmtisiglingu
með Sæferðum í Stykkishólmi. Þetta eru námsmenn frá Bandaríkjunum
sem fengu Íslandsferð í verðlaun fyrir afburða námsárangur.
Fyrstu er-
lendu ferða-
mennirnir
komnir
Laxamýri - Endurskinsvesti voru
afhent nýlega í leikskólanum
Barnaborg, en það var Hjálp-
arsveit skáta í Aðaldal sem kom
færandi hendi eins og oft áður.
Vesti þessi eru nauðsynleg þeg-
ar farið er út að ganga, en um
þjóðveg er að fara þegar gengið er
í Hafralækjarskóla á bókasafn og í
íþróttasal. Það hefur verið eitt að
markmiðum Hjálparsveitarinnar
að styrkja unga vegfarendur og
áður hefur ungu fólki í skólanum
verið afhentir hjálmar til þess að
hafa þegar verið er á reiðhjólum.
Þessu framtaki hjálparsveit-
armanna hefur verið mjög vel tek-
ið og var strax farið að nota end-
urskinsvestin þegar þau höfðu
verið afhent og myndataka hafði
farið fram.
Starfsemi Hjálparsveitar skáta í
Aðaldal hefur verið vaxandi á und-
anförnum árum og er víða komið
við í félagsstarfinu auk þess sem
sveitin gegnir mikilvægu hlutverki
í öryggismálum almennings.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Hjálparsveitarmennirnir Þorsteinn Ragnarsson, til vinstri, og Benedikt Kristjánsson í Hjálparsveit skáta í
Aðaldal, ásamt leikskólanemendum og kennurum á Barnaborg í nýju endurskinsvestunum.
Börnum
gefin endur-
skinsvesti
Mývatnssveit - Um helgina var mik-
il vélsleðahátíð í Mývatnssveit og
fjölmenni mikið víðsvegar að, svo
sem venja er á Mývatnsmótum.
Síðdegis á föstudag ýtti Jón Ingi
Hinriksson í Vogum báti á flot og
fór að leggja net sín í Vogaflóa, en
flóinn er nú mikið auður eftir þíð-
viðrið, auk þess sem heitt inn-
streymi frá jarðhitasvæðinu heldur
alltaf auðri vök fram af Vogabæj-
um. Jón hefur ekki sett bátinn fram
fyrr í vetur enda ekki venjulegt á
þessum árstíma. Þetta kom sér bet-
ur en ekki fyrir vélsleðamenn
nokkra, ókunnuga aðstæðum á Mý-
vatni.
Sem Jón Ingi er að leggja net sín
þarna í flóann sér hann koma sleða-
hóp í Teigasund og stefnir hann
beint á vökina en mörk íss og vatns
var erfitt að greina í kvöldhúmi og
krapi.
Þrír sleðar sukku
til botns
Það skipti engum togum að
þarna fóru fjórir vélsleðar fram í
eyðuna og sukku þar þrír til botns,
en sá fjórði náði að snúa við þegar
hann fann sig á vatni og sveigði til
baka upp á ísinn aftur.
Jón Ingi, kom strax á staðinn á
báti sínum og gat hjálpað fólkinu.
Engum varð verulega meint af
þessum sundspretti en einn fékk þó
aðhlynningu í Bergholti. Strax var
hóað í hjálparmenn sem dreif í að
sækja sleðana, þar á meðal var kaf-
ari í froskmannsbúningi. Björg-
unaraðgerðir gengu greiðlega
enda bátur Jóns Inga á vatninu sem
fyrr segir en stutt í vinnuvél, flot-
belgi og mannskap. Kafarinn batt í
sleðana sem síðan voru hífðir upp
að bátshlið og þannig fleytt að
landi, þar sem grafa tók við þeim
og flutti í vélaskemmu Vogunga.
Þeir komust svo í gang aftur um
nóttina.
Væntanlega hefur ekki í annan
tíma veiðst betur úr vatninu þar í
Vogum, en á þessari kvöldstund og
má telja mikið lán að Jón Ingi
skyldi láta sér til hugar koma að
leggja net frá báti þarna, á þessum
árstíma og einmitt á þessari stundu.
Ekki er getið um silungsveiði
Jóns Inga í netin í gær, en á sunnu-
daginn fór enn einn sleði í vatnið
við Teigasund. Hann náðist upp
fljótlega með hjálp björgunar-
sveitar. Miklar vakir eru nú víða í
ísinn á Mývatni, þannig að menn
þurfa að fara þar um með mikilli
gát.
Vélsleðamenn
féllu niður í vök
á Mývatni
Morgunblaðið/BFH
Jón Ingi vitjar um net sín undir ís fyrir nokkru.
Hvammstanga - Fyrir skömmu
var Breiðabólstaðarkirkju í Húna-
þingi færð stórgjöf, ein milljón
króna. Það var Herdís Bjarnadótt-
ir, sem hélt nú á dögunum upp á
100 ára afmæli sitt, sem færði
fermingarkirkju sinni þessa höfð-
inglegu gjöf. Gjöfinni fylgja fyrir-
mæli um að fénu skuli varið til við-
gerðar á kirkjuhúsinu að utan, en
margt er þar farið að láta undan.
Herdís kallaði til sín fulltrúa
sóknarnefndar og sóknarprestinn
og afhenti þeim gjafabréf. Sagði
hún kirkjuna alltaf hafa verið
„sína kirkju og enga aðra“. og
þætti henni afar vænt um hana.
Herdís dvaldist á sínum yngri ár-
um nokkur ár á Breiðabólstað og
man vel þá tíð.
Kirkjan á Breiðabólstað var
byggð af Vilhjálmi „kirkjusmið“
Halldórssyni Borgfirðingi, sem
síðan bjó vítt um Húnaþing. Hún
var vígð árið 1894, og er því ríflega
100 ára gömul. Sigurður Grétar
Sigurðsson sóknarprestur tók við
gjöfinni ásamt fulltrúum sóknar-
nefndar. Sagði hann þennan hlý-
hug Herdísar koma sér afar vel
fyrir kirkjuna. Söfnuðurinn væri
afar fámennur, telur aðeins
sautján sálir, og því mikill fengur
að fá slíkan stuðning til viðhalds
kirkjunni.
Gaf „kirkjunni sinni“ milljón
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Séra Sigurður Grétar Sigurðsson sóknarprestur, Marsibil Ágústs-
dóttir og Ragna Sigurbjartsdóttir ásamt Herdísi Bjarnadóttur.