Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 44
MINNINGAR 44 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kristján GunnarMagnússon fædd- ist á Akureyri hinn 14. apríl 1972. Hann lést af slysförum 6. mars síðastliðinn. Foreldrar hans eru Magnús A. Jónsson, f. 22.10. 1933, og Guð- rún H. Gunnarsdótt- ir, f. 16.9. 1941. Systkini hans eru 1) Vala, f. 11.5.1974; 2) Björgvin Örn, f. 12.7. 1964; 3) Baldvina, f. 4.12. 1960; 4) Magn- ús, f. 18.01.1964; 5) Anna Sigurbjörg, f. 22.10. 1957, d. 24.5. 1967; 6) Hans Ragnar, f. 08.10. 1968, og Ragnar Aðal- steinn, f. 11.4. 1964. Hinn 17.7. 1993 kvæntist hann Elínu Helgu Guðnadóttur, f. 24.5. 1971. For- eldrar hennar eru Guðni Sigþórs- son, f. 24.7. 1948, og Helga Guðmunds- dóttir, f. 22.1. 1950. Börn Kristjáns Gunnars og Elínar Helgu eru Sigrún Birna, f. 19.2. 1990, Helga Guðrún, f. 18.3. 1993, og Gunn- ar Hafsteinn, f. 17.3. 1996. Í sumarfríum og með skóla vann Kristján með fötluð- um. Sumarið 1991 hóf hann störf hjá Eimskip og starfaði þar til ársins 1995, en þá byrjaði hann að vinna hjá Samskipum, sem síðar breyttist í FMN, þar sem hann starfaði sem flokkstjóri til dauðadags. Útför Kristjáns Gunnars verður gerð frá Glerárkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku vinur, við sem ætluðum að verða gömul og grá með fullorðin börn og skemmta okkur ein og sjálf. Svo fórstu bara í vinnuna eins og vanalega og eins og vanalega stólaði ég á að þú kæmir heim aftur. Klukkutíma áður en þú dóst frá mér töluðum við saman og þú ætlaðir að hringja aftur þegar símasambandið yrði betra en sennilega er Guð ekki kominn með gemsa. Þú hefur að minnsta kosti ekki hringt. Börnin okkar sakna þín og þau hafa ekki mikla trú á að mamma geti sett upp jólatréð eða notað hamarinn eða steikt fiskinn. Helga spurði hvort við gætum ekki bara farið á veitingahús- ið og fengið lánaðan kokk. Hvað gera bændur nú? Hver á að redda og hjálpa? Ég er bölvanlega ósjálf- bjarga án þín, stóri þykki kærastinn minn. Þau ljós sem skærast lýsa þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu, en brenna líka hraðast. En fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðadómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra er skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi þótt burt úr hörðum heimi nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Þú verður í hjarta mínu, þín Elín Helga. Ég elskaði þig og þú elskaðir mig. Þú varst og ert besti pabbi í heim- inum, sama hvað aðrir segja. Ég skal passa lyklakippusafnið þitt, spilasafnið þitt, og frímerkin þín. Ég elska þig. Vertu sæll. Sigrún Birna. Kæri Kristján minn. Ég skil þetta ekki enn, hvernig má það líka vera, að þú sem varst svo mikið innan þessarar stóru fjöl- skyldu skulir vera farinn? Við þessu eru engin svör. Vegir Guðs eru órannsakanlegir… Það er því með miklum trega að ég kveð þig með þessum orðum. Það er svo ótal margs að minnast í sambandi við þig. Ég treysti mér bara ekki til að gera upp á milli allra góðu minninganna, ég vil bara fá að eiga þær með sjálf- um mér og fjölskyldum okkar, þá er víst að ekkert gleymist. Elsku Ella mín og börn. Megi allir góðir mættir styrkja ykkur í þessum sorgaratburði. Þú elsku, kæri bróðir, vertu bless og takk fyrir þessa alltof stuttu sam- fylgd. Þinn stóri bróðir Björgvin. Elsku Pabbi! Mér finnst allt gam- an sem ég gerði með þér. Ég elska þig svo mikið pabbi minn og sakna þín svo mikið. Þitt kríli Helga Guðrún. Elsku Kristján minn. Besti vinur minn í öllum heiminum og besti stóri bróðir sem hægt er að eiga. Á þessari hræðilegu sorgarstund flæða minn- ingarnar fram í huga minn. Öll æsku- árin okkar á Byggðaveginum og allt sem við brölluðum þá. Og eftir að við urðum fullorðin, sumarbústaðarferð- ir, fellihýsaferðir í Vaglaskóg, spila- kvöld uppi í Keilusíðu þar sem þú yf- irleitt bauðst í mat fyrst því þú ert svo mikill gestgjafi og allir dagarnir sem bæði Ella og Einar voru að vinna og við eyddum saman með börnunum okkar. Ég gæti skrifað endalaust því ég á varla eina einustu minningu sem þú ert ekki stór hluti af. Elsku Ella, Sigrún, Helga, Gunn- ar, pabbi og mamma, góður Guð styrki ykkur og okkur öll í þessari miklu sorg. Hvíldu í friði, elsku Kristján minn. Þín systir Vala. Lát mig starfa, lát mig vaka, lifa, meðan dagur er. Létt sem fuglinn lát mig kvaka, lofsöng, Drottinn, flytja þér, meðan ævin endist mér. Lát mig iðja, lát mig biðja, lífsins faðir, Drottinn hár. Lát mig þreytta, þjáða styðja, þerra tár og græða sár, gleðja og fórna öll mín ár. (Margr. Jónsdóttir.) Kveðja og þakklæti fyrir allt. Tengdaforeldrar. Elsku Kristján minn. Ég á svo erf- itt með að trúa þessu ennþá, þú sem varst svo stór og sterkur og svo mik- ill klettur. Það er engan veginn hægt að skilja þetta og ég kem aldrei til með að sætta mig við að þú skulir vera farinn, en ég ætla að reyna að sætta mig við, að ég sætti mig aldrei við það, því þú varst góður í gegn. Ástarþakkir fyrir bjarta brosið þitt, húmorinn, alla hjálpina og að hafa fengið að kynnast þér undanfarin ár. Við sameinumst vonandi öll aftur og þá verður sko haldin heljarmikil mat- arveisla þar sem tengdapabbi þarf að elda í marga daga og tengdamamma verður í mörg ár að lofta út, því að þá verður mikið ropað, rekið við og örugglega mikið hlegið. Elsku stóra fjölskylda. Megi Guð styrkja ykkur og styðja á þessum erfiðu tímum. Far þú í friði. Friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Sóley mágkona. Fregnin af ótímabæru fráfalli þínu, elsku Stjáni, var okkur mikið áfall. Þú sem áttir allt lífið framund- an, og hafðir svo mikið að lifa fyrir. Fjölskyldan var þér allt, sem þú hafðir alltaf í fyrirrúmi. Ef einhver úr fjölskyldunni eða vinahópnum þurfti á hjálp að halda eða eitthvað þurfti að gera, varst þú alltaf boðinn og búinn til að aðstoða. Á svona stundu koma margar góð- ar minningar fram í huga okkar. Hvort sem það var spilakvöld, sum- arbústaðaferð eða spjall heima í stofu. Alltaf varst þú með spilaregl- urnar á hreinu, og varst sjálfskipað- ur banki eða dómari í ágreiningsmál- um. Ekki voru það fá skiptin sem við grilluðum saman, alltaf varst þú grillmeistarinn og var enginn svikinn af eldamennsku þinni. Að leiðarlokum viljum við kveðja þig, elsku Stjáni, með miklu þakklæti fyrir allar samverustundirnar okkar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku Ella systir, Sibba, Helga og Gunni, missir ykkar er mikill, meira en nokkur orð fá lýst. Megi guð styrkja ykkur og hugga á þessum erfiðu tímum. Sigþór, Gunna, Kara og Guðni. Oss er svo léttgengt um æskunnar stig í ylgeislum himinsins náðar, og fyrir oss breiða brautirnar sig svo bjartar og rósum stráðar. Vér lékum oss, börnin, við lánið valt, og lútum þó dauðans veldi, því áður en varir er allt orðið kalt og ævinnar dagur að kveldi. (Einar Ben.) Þegar maður fréttir af banaslysi á þessu landi, grípur eigingirnin mann og maður vonar að þekkja ekki þann sem fórst, til að þurfa ekki að upplifa sorgina og tómleikann sem fylgir. En því var ekki svo farið í þetta sinn. Hann Kristján hennar Ellu frænku minnar var hrifsaður burtu úr þessu jarðlífi frá konu og þremur börnum. Maður upplifir sorgina, tómleikann og reiðina enn og aftur. Kristján kom inn í líf Ellu frænku minnar rólegur, yfirvegaður og myndarlegur ungur maður. Hann sýndi strax mikla ábyrgð, tók Sig- rúnu Birnu litlu dóttur hennar sem sína frá fyrsta degi svo aldrei bar þar á skugga svo ég viti. Það voru falleg brúðhjón sem gengu inn Glerárkirkju fyrir tæpum 8 árum, ljómuðu af hamingju og skírðu Helgu Guðrúnu litlu dóttur sína. Þremur árum seinna fæddist Gunnar Hafsteinn og fjölskyldan var orðin stór. Kristján sýndi að hann var ábyrgur eiginmaður og faðir, það fór ekki framhjá neinum. Hann fékk ekki að klára þetta hlutverk því mið- ur, og eftir standa þrjú föðurlaus börn og ung ekkja. Elsku Ella mín, ég veit að orð eru lítils megnug á svona stundu og spor- in sem gengin verða inn kirkjuna í dag verða þung. Megi almættið gefa þér styrk og blessun og breiða ljós sitt yfir þig og börnin. Minningin um Kristján Gunnar Magnússon lifir. Sigþóra (Sissa) frænka og fjölskylda. Mig langar að minnast Kristjáns heitins með nokkrum orðum, fyrir mína hönd og ömmu Ellu. Ég veit að ömmu langar sjálfa, á þessari stundu að segja svo margt, sérstaklega við nöfnu sína og dótt- urdóttur fyrir norðan. En þótt hún kunni orðin getur hún því miður ekki sagt þau vegna veikinda sinna. Yfirleitt er lífið ljúft, allt leikur í lyndi og framtíðin er björt. En svo hringir síminn. Skrýtið hvað eitt sím- tal getur breytt miklu. Um leið og mamma heilsaði vissi ég að eitthvað var að. Spurningin var ekki hvort, heldur hver! Hvað hugsar maður, hvað vonar maður? Eftirá hellast hugsanir yfir mann, og myndir. Ég þekkti Kristján heitinn því miður ekki nógu vel, en leiðir okkar lágu þó öðru hverju saman, sérstak- lega í reglulegum heimsóknum mín- um á Norðurlandið. Og úr einni slíkri er skýrasta myndin. KRISTJÁN GUNNAR MAGNÚSSON                   !          "#  $ %&$'  (   '   $$$!   $! )* +, +-$'  .   '  /#$  0 )  $!  + $1 $'  %  $! 234 2-$'   !   5             (224( 5 64( 7'89 .  -$  ! "! #    $% &! '  "     ()( *"   +   ""        4  $'     -$$! 4+& '   $ -$$! 4'' & 63$'  6 ! -$$!  #-, *  $'   !   5  ,  )   (  ! ""    !            :;.<);  =0 $'  ( % 3 '  % 2 %  $$! <& 3 $! . 50 $'  3=5%  $! 3<&$$!5 -           > >;.7 ' 4 $  ?2-' #!  23 -% #- "    . /    %  '      "     01 0223 @ A 4+ $'  4+ $$! > $$! )'+$$'  3$'  "!$ -20'$$! B3$'  .C-) $! <&+  !@& -5  *    *    ( =1 :;1 ,>==(  0 -  +     4  "  5  '  "     ()( *"    <&$ <&$$! 4$ @ + > $'  3+$<&$$!  . %  '      !  5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.