Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isAron Kristjánsson til liðs
við Hauka á ný/B1
Þórey Edda Elísdóttir setti
Norðurlandamet/B5
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM Morgunblaðinuí dag fylgir blað
frá Neistanum –
styrktarfélagi
hjartveikra
barna, „Gefum
þeim von“.
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMKEPPNISRÁÐ hefur komist
að þeirri niðurstöðu að Augun okkar
ehf. í Reykjavík hafi ekki farið að
ákvörðun ráðsins frá síðasta ári með
því að nota firmanafnið Gleraugna-
búðin með endingunni .is.
Samkeppnisráð og áfrýjunar-
nefnd samkeppnismála bönnuðu fyr-
irtækinu í fyrra að nota firmanafnið
Gleraugnabúðin eitt og sér í auglýs-
ingum, á auglýsingaskiltum og á
annan hátt í tengslum við gleraugna-
verslanir sínar í Hagkaupi í Skeif-
unni og Nýkaupi í Kringlunni. Var
vísað til firmanafnsins Gleraugna-
búðin, sem hefur verið skráð í firma-
skrá frá árinu 1965 vegna sam-
nefndrar verslunar við
Laugaveginn, og hætta talin á nafna-
ruglingi milli þessara gleraugna-
verslana.
Samkeppnisyfirvöld höfðu ítrekað
farið fram á það við forráðamenn
fyrirtækisins Augun okkar að hætta
allri notkun á firmanafninu Gler-
augnabúðin en án árangurs. Á loka-
degi frests sem gefinn var í febrúar
sl. var sú breyting gerð á auglýsinga-
skiltum að endingunni .is var bætt
við firmanafnið Gleraugnabúðin.
Fyrirtækið var þá búið að taka á
leigu lén hjá Intís með það að mark-
miði að vista heimasíðu með sama
nafni og starfrækja þar m.a. net-
verslun með gleraugu.
Dagsektir verði nafninu ekki
breytt fyrir föstudag
Augun okkar hafa frest til næst-
komandi föstudags til að fara eftir
ákvörðun samkeppnisráðs. Verði
það ekki gert hefur ráðið ákveðið
dagsektir upp á 50 þúsund krónur
þar til farið hefur verið eftir ákvörð-
uninni og firmanafninu breytt.
Augun okkar mega
ekki nota endinguna .is
NETABÁTURINN Ársæll Sigurðs-
son HF kom til Þorlákshafnar í
gærkvöldi með 20 tonn af ríga-
þorski. Höfðu skipverjarnir á Ár-
sæli lent í þvílíkri mokveiði á Sel-
vogsgrunni að annað eins hafði
ekki hent þá árum saman.
Þeir höfðu lagt netin í loðnutorfu
sem þeir lóðuðu á, alls sjö trossur
eða sjötíu net. Tólf tímum seinna
drógu þeir netin. Þegar búið var að
draga fjórar trossur höfðu þeir fyllt
bátinn og urðu að stíma í land. Þeg-
ar lokið var við löndun í Þorláks-
höfn í gærkvöldi var haldið á miðin
að nýju til að draga það sem eftir
var af netunum.
Að jafnaði var um hálft tonn af
fiski í hverju neti af rígaþorski, sem
þykir með eindæmum.
Skipstjóri á Ársæli er Viðar Sæ-
mundsson.
Fylltu
bátinn af
rígaþorski
Morgunblaðið/Friðþjófur
FUNDUR í kjaradeilu sjómanna og
útvegsmanna var haldinn hjá ríkis-
sáttasemjara í gær en að sögn Þóris
Einarssonar ríkissáttasemjara eru
horfur ekki sérlega góðar og mörg
ágreiningsmál óleyst.
Sjómenn hafa boðað verkfall frá
15. mars og ríkir ekki mikil bjartsýni
um að samningar takist fyrir þann
tíma en Þórir sagði að menn myndu
áfram ræða saman. Nýr fundur hef-
ur verið boðaður í deilunni í dag.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra boðaði deiluaðila, þ.e. full-
trúa Sjómannasambandsins, Vél-
stjórafélagsins, Farmanna- og
fiskimannasambandsins og Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna, á
sinn fund seinnipart dags í gær. Árni
sagði að margt hefði komið fram á
þessum fundi. „Það var gagnlegt að
fara yfir þetta með þeim. Það er best
að spá sem minnst um framhaldið en
það er að minnsta kosti unnið í því að
finna lausn á málinu. Það er alltaf
von þegar menn eru að ræða sam-
an,“ sagði Árni.
Ríkissáttasemjari sagði að mjög
annasamt hefði verið í húsakynnum
embættisins í gær og margir nýtt sér
fundaraðstöðuna.
Kjaradeila sjómanna
Mörg
ágreinings-
mál óleyst
falls hefur dregið mjög úr því að aðr-
ar fasteignir eða lausafjármunir séu
sett upp í kaupverð. Árið 1995 nam
þessi þáttur 20% en hefur nær horfið
á síðustu árum, var rétt um 1% árið
2000.
Hlutfall húsbréfa hækkar í
viðskiptum á landsbyggðinni
Þarna gætir væntanlega áhrifa frá
hinum miklu hækkunum fasteigna-
verðs á höfuðborgarsvæðinu enda
HLUTFALL staðgreiðslu í fast-
eignaviðskiptum hefur nær tvöfald-
ast frá árinu 1995. Þá var aðeins um
fjórðungur kaupverðsins greiddur í
peningum en á árinu 2000 fór það
hlutfall í rétt tæpan helming kaup-
verðs.
Þetta kemur fram í grein eftir
Snorra Gunnarsson, hagfræðing
Fasteignamats ríkisins, í Fasteigna-
blaðinu í dag.
Samhliða vexti staðgreiðsluhlut-
kemur glöggt í ljós þegar lands-
byggðin er borin saman við höfuð-
borgarsvæðið að áhrifa af ákvæðum
um hámarkslán og lánamið við
brunabótamat gætir síður á lands-
byggðinni. Hins vegar er hlutdeild
húsbréfalána hærri þar en á höfuð-
borgarsvæðinu og hefur farið vax-
andi þar á sama tíma og hún hefur
minnkað á höfuðborgarsvæðinu.
Staðgreiðsluhlutfall
fasteigna tæp 50%
Hvernig eru/C46
HÁTT í 1.500 manns heimsóttu sýn-
inguna Náttúrusýnir í Listasafni Ís-
lands sl. sunnudag en Ólafur Kvaran
safnstjóri segir það vera aðsóknar-
met hjá safninu. Á sýningunni, sem
kemur frá Borgarlistasafni Parísar,
Petit Palais, eru verk eftir listamenn
á borð við Monet, Cézanne, Courbet,
Sisley, Pissarro og Corot svo nokkur
dæmi séu tekin.
„Aðsóknin að sýningunni hefur
verið gífurlega góð, jafnt og þétt frá
því hún var opnuð. Hér hafa komið
nokkur hundruð manns á hverjum
degi, líka virkum dögum. Á venjuleg-
um sunnudegi koma annars yfirleitt
um 150–200 manns á safnið en þessi
dagur slær öll met,“ segir hann.
Ólafur kveðst fagna því að þjóðin
kunni að meta sýninguna. „Þetta
sýnir bara að það er hljómgrunnur
fyrir slíkri sýningu. Þetta er orðið
eins og í erlendum söfnum þar sem
fólk þarf að bíða í klukkutíma eftir
því að komast inn.“
Hann telur ekki ólíklegt að leið-
sögn um sýninguna á sunnudaginn
hafi aukið enn á aðsóknina og vekur
athygli á því að slík leiðsögn verði
einnig í boði næstu sunnudaga kl. 15.
Mjög góð aðsókn var einnig að
sýningum Listasafns Reykjavíkur
um helgina en þar hefur verið boðið
upp á leiðsögn um nokkra hríð.
Mikill fjöldi/26
Aðsóknar-
met í
Listasafni
Íslands
♦ ♦ ♦
ELDUR kviknaði í skorsteinshúsi
Geirfugls GK-66 um kl. 15 í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Keflavík var starfsmaður
útgerðar við vinnu í skorsteinshúsi
þegar eldurinn kom upp og náði
hann að slökkva eldinn. Töluverðan
reyk lagði um vistarverur bátsins
sem er bundinn við bryggju í Grinda-
víkurhöfn. Skemmdir eru þó taldar
minni háttar. Slökkvilið reykræsti.
Eldur í
Geirfugli