Morgunblaðið - 13.03.2001, Page 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 13
Ný þvottavélalína frá Hotpoint
Orka
Framleiðandi
Gerð
Góð nýtni
Orkunotkun í kWh/ lotu
(byggt á stöðluðum prófunarniðustöðum
þvottalotu fyrir baðmull við hitan 60°C)
Raunnotkun fer eftir því hvernig tækið
er notað.
Þvottahæfni
Þeytivinduafköst
Snúningshraði vindu (snún. á mín.)
Afköst (baðmull) kg.
Vatnsnotkun
Hávaði Þvottur
(dB(A) re 1 pW) þeytivinding
Nánari upplýsingar eru að finna
í bæklingum sem fylgja vörunni.
Staðall EN 60456 Tilskipun
95/12/EB um merkingar þvottavéla.
Slæm nýtni
A
B
C
D
E
F
G
Þvottavél
WMA60
A
1.04
ABCDEFG
ABCDEFG
1400
5.5
58
R A F T Æ K J A V E R S L U N
HEKLUHÚSINU • LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 590 5000
Ein flík
Frábært fyrir eina flík sem vegur minna en 1kg,
sparar tíma, orku og þvottaefni
Tímasparnaður
Fyrir fólk sem hefur ekki tíma til að bíða eftir
þvottinum. Hægt að nota með öllum þvottakerfum
til að spara tíma allt að 30%
Mjúk aðgerð
Fer vel með vandfarnar flíkur. Dregur úr krumpun
og sparar því tíma með straujárnið.
Handþvottur
Þvær á 25 gráðu hita með mjög mjúkri aðgerð.
Flíkur með „hand wash only“ geta farið í
þessa þvottavél.
1000 snúninga: kr. 49.900.-
1300 snúninga: kr. 59.900.-
1400 snúninga: kr. 69.900.-
5kg. m/barka: kr. 25.900.-
5kg. m/barka og
rakaskynjara: kr. 29.900.-
6kg. barkalaus: kr. 39.900.-
6kg. barkalaus
með rakaskynjara: kr. 49.900.-
ÞRJÁR GERÐIR AF ÞVOTTAVÉLUM
Fáanlegar í hvítu og stálgráu
FJÓRAR GERÐIR AF ÞURRKURUM
FRÁBÆRIR EIGINLEIKAR
Tekur 5,5 kg. af þvotti
Þú sérð hvað er mikið eftir af þvottakerfinu í mínútum.
Einstakt þvottakerfi fyrir allann handþvott.
Einstakt þvottakerfi fyrir aðeins eina flík í einu
Hraðþvottur sem styttir kerfin um 33%
Hurð opnast 180° og gat á tromlu eru 30sm.
1400 snúninga vinda.
Einkunn
Nýtni - Nýtir rafmagn eins vel og hægt er
Þvottahæfni - Þvær eins vel og hægt er
Þeytivinduafköst - Vindur eins vel og hægt er
A
A
A
BYLTINGAKENND
ÞVOTTAVÉL
One
Gentle Action
Time Saver
1.5kg pakki af Maraþon EXTRA þvottaefni fylgir hverri vél.
A: Meiri G: Minni
A: Meiri G: Minni
ELDUR kviknaði í vélarrúmi
Hraunsvíkur GK 90 skömmu fyrir
hádegi á laugardag þar sem báturinn
lá við bryggju í Þorlákshöfn. Skip-
stjórinn segir eldinn hafa verið tölu-
verðan en slökkvikerfi bátsins réði
að mestu niðurlögum hans.
Hraunsvík er 172 brúttólesta
netabátur.
Óskar Örn Ólafsson skipstjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið að
eldurinn hefði kviknað við öxul-
bremsur og stóð eldsúla þar upp
þegar vélstjóri kom að. Skipverjar
lokuðu þá vélarrúminu og ræstu hal-
on-slökkvikerfi í vélarrúmi. Tals-
verður reykur barst á millidekk og
þykkur reykur var á gangi hjá vist-
arverum skipsverja.
Talsverðar
skemmdir
Einn skipverjanna var í káetu
sinni þegar eldurinn kom upp. Há-
seti setti upp reykköfunartæki, fór
að káetu skipverjans og leiddi hann
upp á dekk.
Ólafur Örn sagði að rafalar í að-
alvél væru illa farnir og stjórntæki
við skrúfuskurð væru ónýt. Reyk-
skemmdir urðu óverulegar. Hann
býst við að viðgerðir taki um tvær
vikur.
Ólafur Örn segir Slökkvilið Þor-
lákshafnar hafa verið snöggt á stað-
inn en eldurinn var þá að mestu
kulnaður. Slökkviliðið reykræsti síð-
an bátinn.
Ljósmynd/Þorgeir BaldurssonSlökkvilið Þorlákshafnar var
fljótt á staðinn en eldurinn var
þá að mestu kulnaður. Slökkvi-
liðið reykræsti bátinn.
Eldur í vélarrúmi Hraunsvíkur GK 90
Tefst
frá veið-
um í tvær
vikur
ÚRSKURÐARNEFND fjarskipta-
og póstmála hefur fellt úr gildi
ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofn-
unar (PFS) frá 6. og 20. desember s.l.
um breytingar á fastagjaldi fyrir tal-
síma. Þess í stað skal ákvörðun PFS
frá 27. mars 2000 standa.
Forsaga málsins er sú að 1. janúar
2000 tók gildi bráðabirgðaákvæði í
fjarskiptalögum en það kveður á um
að PFS eigi að ákveða fastagjald á
síma. Skyldi ákvörðunin taka gildi
ekki síðar en 1. apríl sama ár.
Í samræmi við þetta ákvað stofn-
unin 27. mars síðastliðinn að fasta-
gjald af heimilissíma skyldi vera 1.111
krónur og var svokallað WACC-gildi
(Weighted Average Capital Cost)
miðað við ársreikninga Landssímans
frá árinu 1998 haft til hliðsjónar
ákvörðuninni. Þegar ársreikningar
fyrir árið 1999 lágu fyrir var ljóst að
WACC-gildið hefði lækkað og á
grundvelli þess tók PFS ákvörðun
sína til endurskoðunar og úrskurðaði
þann 6. desember sl. að fastagjaldið
skyldi lækka og verða 1.051. Eftir
mótmæli Landssímans endurskoðaði
PFS ákvörðun sína og úrskurðaði
þann 20. desember að fastagjaldið af
heimilissíma skyldi vera 1.068 kr.
Þessu vildi Landssíminn ekki una
og kærði úrskurð PFS til úrskurðar-
nefndar fjarskipta- og póstmála sem
nú hefur fellt úrskurð PFS frá 6. og
20. desember úr gildi.
Í niðurstöðu úrskurðarnefndarinn-
ar segir að PFS hafi ekki gert fyr-
irvara um að leiðrétta ákvörðun sína
frá 27. mars ef tilefni gæfist og því
hafi mátt ætla að ákvörðunin hafi ver-
ið endanleg. Ekki sé um leiðréttingu á
bersýnilegri villu að ræða og ekki
megi ætla annað en að Landssíminn
hafi gefið umræddar upplýsingar eft-
ir bestu vitund. Því skal ákvörðun
stofnunarinnar frá 27. mars standa
óbreytt.
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála um fastagjald talsíma
Fyrri ákvörðun felld úr gildi