Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 17
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 17
Alvöru flotefni
H
ön
nu
n:
G
ís
li
B
.
Smiðjuvegur 72, 200 Kópavogur
Sími: 564 1740, Fax: 554 1769
I Ð N A Ð A R G Ó L F
Efni frá:
ABS
147
ABS 147
ABS 154
ABS 316
Aðalfundur 2001
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður
haldinn miðvikudaginn 28. mars 2001 í Sunnusal,
Radisson SAS Saga Hótel, Reykjavík og hefst kl. 16:00.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til kaupa á eigin
hlutabréfum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Reikningar félagsins og tillögur liggja frammi á
aðalskrifstofu hluthöfum til sýnis en verða síðan
afhentir ásamt fundargögnum til hluthafa á fundarstað.
TRYGGINGA-
MIÐSTÖÐIN HF
TAP af rekstri Marel eftir skatta í
fyrra nam 29 milljónum króna en ár-
ið áður skilaði félagið 331 milljón í
hagnað. Hagnaður Marel fyrir
skatta í fyrra nam 235 milljónum
króna á móti 490 milljónum árið
1999.
Gjaldfærð viðskiptavild vegna
kaupa Marel á þýska fyrirtækinu
TVM Maschinenbau nam 169 millj-
ónum króna en engin slík viðskipta-
vild var gjaldfærð fyrir árið 1999.
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagns-
liði og skatta (EBIT) nam 310 millj-
ónum króna, eða um 5,4% af rekstr-
artekjum, sem er næstbesta
niðurstaða frá upphafi. Fjárfesting-
ar Marel og dótturfélaga þess námu
alls 932 milljónum króna á árinu,
mest í nýju húsnæði fyrir Carnitech
a/s í Danmörku.
Í tilkynningu Marel kemur fram
að skilyrði útflutningsgreina hafi
verið erfið á fyrri hluta ársins vegna
hás raungengis krónunnar en fóru
batnandi er líða tók á árið. Á miðju
ári keypti Marel 50% hlut í franska
fyrirtækinu Arbor Technologies SA
en kaupverðið var 44 milljónir en
kaupverð TVM Maschinenbau var
242 milljónir króna. Áhrifa þessara
félaga í rekstrarreikningi Marel
gætir ekki að öðru leyti en því að
keypt viðskiptavild er afskrifuð að
fullu.
Aðalfundur Marel verður haldinn
miðvikudaginn 21. mars og mun
stjórn félagsins gera tillögu um að
greiddur verði 10% arður af nafn-
verði hlutabréfa til hluthafa vegna
nýliðins árs.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningadeildar Búnaðar-
bankans Verðbréfa, segir að afkoma
Marel valdi verulegum vonbrigðum,
enda sé hún langt undir spám mark-
aðsaðila og áætlunum félagsins.
„Það er mjög stutt síðan félagið birti
áætlun um veltu og rekstrarhagnað
ársins 2000 en það var í útboðslýs-
ingu dagsettri 16. nóvember síðast-
liðinn. Félagið hefur sett sér mark-
mið um að vaxa að meðaltali a.m.k.
um 15% á milli ára. Í útboðslýsing-
unni kom fram að útlit væri fyrir að
því takmarki yrði ekki náð árið 2000.
Niðurstaðan varð 0,5% vöxtur á milli
ára sem er töluvert undir verðlags-
breytingum á tímabilinu. Þá var gert
ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir
skatta og fjármagnsliði yrði um 8%
af veltu, sem hefði þýtt 460 milljónir
en niðurstaðan varð hins vegar 5,4%
eða 311 milljónir.
Marel er mjög spennandi fyrir-
tæki og hefur að mínu mati mjög
mikla vaxtarmöguleika á alþjóða-
markaði. Mikið þróunarstarf hefur
farið fram og félagið hefur kynnt
nýjar vörur sem virðast virka vel. Þá
hefur félagið verið að vinna í að
koma sér á framfæri á mikilvægum
mörkuðum. Töluverðir vaxtaverkir
virðast hins vegar hrjá félagið og ég
tel að það hefði átt að senda frá sér
afkomuviðvörun. Markaðurinn tók
uppgjörinu enda mjög illa.
Gengi bréfa í félaginu lækkaði um
rúm 18% frá lokagengi föstudagsins
og síðustu viðskipti voru á genginu
29,5. Að baki lækkuninni voru þó
ekki háar fjárhæðir, aðeins 8,6 m.kr.
að markaðsvirði, “ segir Eddda.
=
!
"#$%&
"#'(%
)"*
+%
)&,
%"&
+#,,,
*%$
'#)*+
+#,,,
),)
'$-',.
("-(,.
)&'
77
Afkoma Marel
veldur vonbrigðum
ELDSNEYTISSALA Olíuverzlun-
ar Íslands hf. árið 2000 var alls
197 þúsund tonn eða 235 milljónir
lítra. Árið á undan var eldsneyt-
issalan 203 þúsund tonn, eða 242
milljónir lítra, og er söluminnkun
milli ára 2,8%. Eldsneytismarkað-
urinn hérlendis árið 2000 var sam-
tals um 899 þúsund tonn og var
markaðshlutdeild Olís því 26%.
Þetta kom fram á aðalfundi félags-
ins sem haldinn var síðastliðinn
föstudag.
Í máli Einars Benediktssonar,
forstjóra Olís, kom fram að rekstr-
artekjur Olís á síðasta ári námu
alls 11,8 milljörðum króna og
hækkuðu þær verulega frá árinu á
undan, en það skýrist fyrst og
fremst af hækkandi olíuverði.
Gísli Baldur Garðarsson, stjórn-
arformaður Olís, sagði að gífurleg-
ar eldsneytishækkanir hefðu haft
neikvæð áhrif á afkomu heimil-
anna í landinu og aukið kostnað
fyrirtækja og þá ekki síst í sjávar-
útvegi. Hann sagði það vekja
nokkurn óhug að við þessar að-
stæður skyldi kjarabarátta stefna í
átök sem hugsanlega gætu leitt til
stöðvunar flotans.
„Slík átök gætu orðið langvinn
og það er vissulega mikil ábyrgð
sem hvílir á þeim sem stöðva
stærsta hluta verðmætamyndunar
í þjóðarbúinu um lengri tíma. Slík
stöðvun hefur keðjuverkandi áhrif
sem gætir um allan þjóðarlíka-
mann, meðal annars hjá olíufélög-
unum og getur á skömmum tíma
leitt til aukinnar verðbólgu og
hraðversnandi afkomu þjóðarinn-
ar.
Án þess að ég ætli á neinn hátt
að leggja mat á réttmæti krafna
eða málatilbúnað deiluaðila, þá tel
ég að báðir aðilar þessarar deilu
ættu að hugsa til þess að allt of
mikið er í húfi til þess að verkfall
sé réttlætanlegt. Flest deilumál í
þjóðfélögum nútímans eru leyst án
átaka, með gerð eða dómi ef samn-
ingaleiðir þrýtur. Ég fæ ekki séð
að eðli kjarabaráttu í dag sé þann-
ig að það geti ekki sætt venjuleg-
um leiðum um lausn deilna. Verk-
fallsrétturinn er neyðarréttur, og
honum á að sönnu ekki að beita
fyrr en allt um þrýtur,“ sagði Gísli
Baldur Garðarsson.
Morgunblaðið/Þorkell
Einar Benediktsson, forstjóri Olíuverzlunar Íslands hf.,
í ræðustól á aðalfundi félagsins.
Olís með 26%
markaðshlutdeild
VÍSITALA neysluverðs miðuð við
verðlag í marsbyrjun 2001 var 204,0
stig og hækkaði um 0,6% frá fyrra
mánuði. Samkvæmt frétt Hagstofu
Íslands var vísitala neysluverðs án
húsnæðis 202,5 stig og hækkaði um
0,7% frá febrúar. Vetrarútsölum er
nú víða lokið og hækkaði verð á fötum
og skóm um 6,2%.Verð á bensíni og
olíu hækkaði um 1,7% en verð á raf-
magni lækkaði um 5,1%. Síðastliðna
tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 3,9% og vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis um 3,5%. Undan-
farna þrjá mánuði hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 0,9% sem
jafngildir 3,8% verðbólgu á ári.
Vísitala neyslu-
verðs hækkaði
um 0,6%
Á AÐALFUNDI Samtaka verslun-
arinnar sagði Haukur Þór Hauks-
son, formaður samtakanna, meðal
annars að það væri undarlegt að
fylgjast með afstöðu Samtaka iðnað-
arins til nýrrar stöðu í samkeppn-
ismálum. Þeir noti hvert tækifæri til
þess að berja á samkeppnisyfirvöld-
um og gagnrýna nýja samkeppnis-
löggjöf. Þá skjóti það skökku við að
Samtök iðnaðarins, sem kostuð séu
af stórum hluta af almannafé, skuli
berjast gegn samkeppnislögum sem
hafi það að markmiði að efla sam-
keppni og tryggja sanngjarna við-
skiptahætti.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Sveinn Hannesson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins, að menn
væru svo sem ekki óvanir gagnrýni
af þessu tagi af hálfu stórkaup-
manna. „Iðnaðarmannagjaldið sem
Haukur er væntanlega að vísa til
hefur verið lagt á allt frá árinu 1975.
Ástæðan er sú að löggjafinn hefur
litið svo á að það væri rétt að iðn-
aðurinn í landinu greiddi gjald til
þess að standa straum af hagsmuna-
gæslu fyrir hann. Það er iðnaðurinn
sjálfur sem greiðir þetta gjald til eig-
in samtaka þannig að þetta kemur
stórkaupmönnum einfaldlega ekki
nokkurn skapaðan hlut við. Tilgang-
urinn með gjaldinu er að efla iðnað
og iðnþróun í landinu og ríkið fær
raunar innheimtuþóknun frá okkur
fyrir að sjá um það. Það er því alls
ekki rétt sem Haukur heldur fram að
hér sé um almannafé að ræða. Og við
tökum tillit til þess við ákvörðun
okkar félagsgjalda hverjir greiða
þetta gjald,“ sagði Sveinn
Iðnaður-
inn greiðir
gjaldið
♦ ♦ ♦