Morgunblaðið - 13.03.2001, Side 22
ÚR VERINU
22 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fundarefni:
Staða ríkissjóðs og framvinda
efnahagsmála.
Framsögumaður:
Geir H. Haarde
fjármálaráðherra.
Hvetjum alla Garðbæinga til að koma og taka
þátt í umræðum um áhugavert málefni.
Garðbæingar
Þjóðmálafundur
í kvöld, þriðjudaginn 13. mars kl. 20.30
Kirkjuhvoli í Garðabæ.
VERUM BLÁTT - ÁFRAM
Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar
Viktoria Antik Síðumúla 34 Sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18,
lau. frá kl. 11-17,
sun. kl. 13-17
Til fermingargjafa
Skrifborð - Skrifborðsstólar
Kommóður - Bókahillur
Fyrir
fermingarveisluna
Borðstofusett -
Stök borð og stólar
Gömul dönsk postulínsstell
ÚTLIT er fyrir að rúmlega 50.000 til
150.000 tonn brenni inni af loðnu-
kvótanum komi til verkfalls sjó-
manna á fiskiskipaflotanum sem
boðað hefur verið þann 15. mars nk.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum fiskvinnslustöðva höfðu í gær
borist á land rúm 555.000 tonn af
loðnu frá áramótum og samanlagt
rúm 681.000 tonn á vertíðinni. Í gær
voru því um 137.000 þúsund tonn eft-
ir af heildarkvótanum. Hafrann-
sóknastofnun hefur hins vegar lagt
til aukningu loðnukvótans um
100.000 tonn. Stjórnvöld eiga hins
vegar eftir að taka ákvörðun um það
hvort kvótinn verði aukinn, en slíka
ákvörðun þarf að kynna þeim þjóð-
um, sem nýta loðnustofninn með
okkur, Norðmönnum og Evrópu-
sambandinu fyrir hönd Grænlend-
inga.
Verkfall sjómanna á fiskiskipaflot-
anum kemur til framkvæmda á mið-
nætti aðfaranótt föstudagsins verði
ekki búið að semja fyrir þann tíma.
Mjög góð veiði var á loðnumiðunum
undan Þjórsárósum um helgina en
öllu tregari veiði á miðunum fyrir
austan land. Þannig komu á land
rúm 50 þúsund tonn af loðnu frá
föstudegi til sunnudags, samkvæmt
tilkynningu Samtaka fiskvinnslu-
stöðva. Sé miðað við að loðnuskipa-
flotinn beri á land um 20 þúsund
tonn á sólarhring er ljóst að ekki
næst að veiða útgefinn loðnukvóta
fyrir verkfallið.
Hjalti Einarsson, stýrimaður á
Faxa RE, sagði í samtalið við Morg-
unblaðið í gær að enn væri mokveiði
úr vesturgöngunni en skipið var í
gær á leið í Neskaupstað með full-
fermi, rúm 1.400 tonn. Aflinn fékkst í
fjórum köstum. „Þetta voru þéttar
torfur, alveg upp við yfirborð. Þessi
loðna er komin alveg að hrygningu
en ég á von á að það náist að vinna
hrogn úr þessum farmi,“ sagði
Hjalti.
Mest hefur borist af loðnu til
Hraðfrystihúss Eskifjarðar frá ára-
mótum eða rúm 66.500 tonn. Tæpum
54 þúsund tonnum hefur verið land-
að hjá Síldarvinnslunni hf. í Nes-
kaupstað og tæpum 42 þúsund tonn-
um hjá Samherja hf. í Grindavík,
rúmu 41 þúsund tonni hjá SR-mjöli á
Seyðisfirði og um 40.500 tonnum hjá
HB hf. á Akranesi.
Minna fryst af Japansloðnu
en vonir stóðu til
Víða er nú verið að frysta loðnu og
loðnuhrogn fyrir Japansmarkað.
Loðnufrystingu er þó lokið á flestum
stöðum vestanlands enda er loðnan
þar nánast komin að hrygningu.
Hinsvegar er enn verið að heilfrysta
loðnu á nokkrum stöðum austan-
lands, úr þeirri loðnu sem berst úr
austangöngunni svokölluðu. Loðnan
úr austangöngunni er þó misjafnlega
hæf til frystingar á Japan, töluverð
áta er í henni en það er þó mismun-
andi eftir förmum. Ekki liggur enn
fyrir hve mikið hefur verið heilfryst
af loðnu á Japansmarkað hérlendis á
vertíðinni en þó má ljóst vera að
magnið er mun minna en vonir stóðu
til. Ótíð hamlaði veiðum þegar
hrognfylling loðnunnar var hentug-
ust fyrir Japan, auk þess sem áta
hefur gert frystinguna erfiðari en
ella. Auk þess hefur töluvert verið
fryst af loðnu á markaði í Austur-
Evrópu.
Hrognvinnslan hefur hinsvegar
gengið ágætlega frá því hún hófst en
að sögn Steindórs Gunnarssonar,
deildarstjóra hjá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, er ekki mikill mark-
aður fyrir hrognin í Japan á þessu
ári. Þar séu til miklar birgðir, enda
mikið verið framleitt af hrognum hér
á landi í fyrra. Vinnsla á loðnuhrogn-
um fyrir Japansmarkað er nú víða
hafin hjá framleiðendum austan-
lands. Þannig hófst hrognafrysting á
Japansmarkað hjá Hraðfrystistöð
Þórshafnar um helgina og að sögn
Elfars Aðalsteinssonar, forstjóra
Hraðfrystihúss Eskifjarðar, mun
hrognavinnsla að öllum líkindum
hefjast þar í dag. Þar er nú búið að
heilfrysta um 200 tonn af loðnu á
Japansmarkað og um 1.300 tonn á
Rússlandsmarkað.
Heilfrysting á loðnu fyrir Japans-
markað er nú hafin af fullum krafti í
Noregi. Talið er að þar sé nú búið að
frysta hátt í 5.000 tonn. Loðnan í
Noregi þykir stór og falleg og henta
vel til frystinga á Japan.
Ljósmynd/Snorri Snorrason
Mokveiði var á loðnumiðunum undan Þjórsárósum í gær og var Faxi RE á leið til Neskaupstaðar með fullfermi.
Allt að 150.000 tonn
gætu brunnið inni
Loðnukvótinn
næst ekki komi
til verkfalls
sjómanna
Ljósmynd/Þorgrímur Kjartansson
Loðnuhrognavinnsla hófst hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar um helgina.
SKIPVERJAR á írska ofurtogaran-
um Atlantic Dawn, stærsta fiskiskipi í
heimi, fullyrða að um 30% af afla
skipsins sé hent og stundum meira.
Skipið hefur að undanförnu verið að
veiðum við vesturströnd Afríku en
þar er brottkast á fiski bannað. Skipið
landaði um 6.000 tonnum af frosnum
uppsjávarfiski á Kanaríeyjum fyrir
skömmu, að verðmæti ríflega 350
milljóna króna.
Atlantic Dawn er nú að veiðum
undan strönd Máritaníu og hefur ekki
verið notuð hringnót við veiðarnar
vegna þess hve fiskurinn er dreifður.
Grunur leikur á að fiski sem skemm-
ist vegna þrýstings í trollinu sé kastað
aftur í hafið, að því er fram kemur í
norska sjávarútvegsblaðinu Fisk-
aren. Framkvæmdastjóri útgerðar
Atlantic Dawn, Niall O’Gorman, vísar
ásökununum hinsvegar á bug.
30% aflans hent?