Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 31
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 31 AÐ LESA er að sjá,“ segirdr. Jeffrey D. Wilhelm,prófessor við Háskólann íMaine í Bandaríkjunum. „Ekki er nóg að börn þekki stafina og stauti sig áfram í gegnum texta þar til þau ná þeim hraða sem til er ætlast, heldur verður á markvissan hátt að kenna börnum að lesa.“ Dr. Wilhelm segir að þegar nem- endur komist í efri bekki grunnskóla aukist kröfur til þeirra um lestrar- hæfni með þyngri og flóknari við- fangsefnum í náminu. „Sú hæfni þróast ekki endilega af sjálfu sér; mikilvægt er að átta sig á því og leggja áhersluna meira á hvernig á að lesa en hvað eigi að lesa.“ Dvínandi áhugi á lestri? Dr. Wilhelm heimsótti Ísland ný- lega og hélt fyrirlestur um læsi og áhugahvöt í lestri í Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Hann hefur unnið kennslurannsóknir um lestur og læsi og hefur m.a. leitast við að svara því hvernig lestrarferli áhugasamra les- enda sé háttað, hvað það sé við hefð- bundna kennslu sem orsaki náms- leiða hjá sumum ungum lesendum og hvernig auka megi áhuga nemenda á lestri og námi. Hann hefur gefið út bók um þetta efni: You Got To BE the Book og eru tvær nýjar væntanlegar á þessu ári, sú fyrri nú um miðjan mars sem ber nafnið Strategic Reading, Guiding Students to Lifelong Literacy, 6–12. Í henni leggur hann áherslu á mikil- vægi þess að læra hvernig á að læra og bendir á að þannig geti nemendur orðið virkir í eigin menntun og hluti af skólasamfélagi virkra nemenda. Fram kom í máli dr. Wilhelm að læsi og áhugi á lestri færi þverrandi í Bandaríkjunum og víðar í menntuð- um þjóðfélögum. Hann bendir á að hugsanlega sé gömlum kennsluað- ferðum um að kenna að miklu leyti, þar sem nemendum er sagt að lesa bók og segja síðan frá innihaldi henn- ar, oft án þess að þau geri sér grein fyrir hvers vegna þau séu að lesa hana og hvað þau komi til með að nota úr henni. Hann segir að í efri bekkjum grunnskóla dvíni lestrarhæfni nem- enda. Ástæðuna telur hann vera að börnum sé ekki markvisst kennt að taka á flóknari þáttum í lestri sem fylgja þyngra lesefni og hækkandi aldri. Mörg börn eru föst í því að sjá og skynja á mjög einfaldan hátt eða á þann hátt sem þau lærðu að lesa í upphafi og ná ekki að þroskast sem lesendur. Ekki sé sjálfgefið að ung börn skilji tilgang eða viti hvers vegna þau séu að læra ákveðna hluti eða lesa ákveðnar bækur. „Í skólanum fá þau viðfangsefni, t.d. að lesa bók eða sögu, án þess að vera sagt fyrirfram hvað þau eigi að gera með það eða út frá hvaða sjón- arhorni þau eigi að lesa. Ef lestrar- efnið er þeim ókunnugt áður en þau hefjast handa er gefið mál að þeim gengur flestum erfiðlega að skilja efnið sem nær yfir hugtök og hluti sem þau þekkja ekki og hafa ekki fengið neina innsýn í. Til þess að auka bæði áhuga og skilning á lesefninu væri æskilegt að fara yfir það í gróf- um dráttum áður en textinn er lesinn og sýna þeim að það er hægt að nálg- ast efnið á mismunandi hátt, þannig að þau átti sig á því hvað á að sækja í textann og hvernig á að nota það,“ segir Wilhelm. „Munurinn á lestrarhesti og þeim sem engan áhuga hefur á lestri felst í því að sá sem les mikið sér það sem hann les og eins og hverfur inn í at- burðarásina. Hann les milli línanna og dregur eigin ályktanir út frá því sem hann les. Hann er virkur þátttak- andi í að skapa merkingu textans. Í öllum textum eru eyður sem lesand- inn verður að geta fyllt inn í sjálfur til að textinn öðlist einhverja merkingu fyrir honum. Lesandi sem ekki getur fyllt inn í eyðurnar nær engri ánægju út úr lestrinum og upplifir textann að- eins sem röð orða án merkingar, eða lestraryfirferð frá A til B. Hann hefur ekki hæfni til þess að sjá eða lifa sig inn í atburðarásina. Hann getur oft ekki svarað spurningum um lesefnið sem krefjast óbeinna svara heldur er hann bundinn við að svara spurning- um sem hafa beina tilvitnun í orðin sem hann hefur lesið,“ segir Wilhelm. Áhuginn á efninu ræður miklu Í fyrirlestri sínum kom dr. Wilhelm inn á það að mörg börn skilja ekki hvers vegna þau eru að læra. Þannig upplifa þau mörg hver bæði skólann og námið. Þau verða að vera í skóla að læra og eru sífellt að nema námsefni sem aðrir hafa skrifað. Þau fá sjaldan tækifæri til þess að gagnrýna á eigin hátt eða vinna efnið út frá því hvort þau séu sammála höfundinum eða hafi sjálf eitthvað til málanna að leggja eða möguleika á að nota efnið til hliðar við eitthvað sem þau hafa sjálf áhuga á. Hann segir hæfni barna til náms markast af áhuga þeirra á efninu eða áhuga á nálguninni á efn- inu. Dr. Wilhelm leggur áherslu á að kennarar hjálpi nemendum að temja sér lestrarvenjur sem gera þeim kleift að fylla í eyður textans. Fyrstu skrefin í þá átt gætu falist í því að kynna baksvið textans, hvenær hann er skrifaður, af hverjum og í hvaða til- gangi. Síðan þarf að tengja við eitt- hvað sem nemandinn þegar þekkir, eða kynna honum baksviðið þannig að hann hafi eitthvað við að tengja. Þá er mikilvægt að hvetja nemandann til að byggja sögusviðið, sjá fyrir sér mynd- rænt þær aðstæður sem textinn fjallar um. Ritmálið bregður gjarnan upp einhverri mynd af aðstæðum, en ímyndunaraflið þarf að taka við og fylla inn í eyðurnar. Í þessu samhengi má nýta mögu- leika myndrænnar framsetningar hvers konar eða fá nemandann til að teikna sögusvið textans. Mikilvægt er að hvetja nemandann til að lifa sig inn í persónur eða frásögn. Til að auð- velda slíka innlifun má nýta leikræna tjáningu og hvers konar leikræna út- færslu. Loks getur verið gagnlegt að fá nemendur til að máta sjálfa sig við aðstæðurnar sem textinn lýsir, spyrja sig hvernig þeir myndu bregðast við í sporum sögupersónunnar og velta fyrir sér möguleikum. Allt þetta eru leiðir til að hjálpa nemendum til að lifa lestrarefnið, gera lesturinn að lif- andi reynslu sem snertir lesandann. Þegar lesa ætti bók með nemend- um í skóla sagði dr. Wilhelm að gott sé að leggja þrjár spurningar til grundvallar. 1. Hvað vitum við um það efni sem bókin eða textinn tekur fyrir? 2. Hvað langar okkur að vita? 3. Hvað vitum við nú sem við vissum ekki fyrir? Allar þessar spurningar ættu að vera hvati að umræðu um reynslu hvers og eins í víðastri merk- ingu, en ekki miða að einu afmörkuðu svari. „Vandamálið sem við stöndum frammi fyrir er að kennarinn kennir ekki nemendum að lesa á áhugaverð- an og árangursríkan hátt, heldur tíð- kast það enn að nemendur fá fyrir- mæli um að lesa og endursegja. Málið er að nemandinn þarf að bregða sér inn í bókina,“ segir dr. Jeffrey Wil- helm. Lestur/ Hvað er læsi? Dr. Jeffrey D. Wilhelm leggur áherslu á að kennarar hjálpi nemendum að temja sér lestr- arvenjur sem gera þeim kleift að fylla í eyður textans. Anna Ingólfsdóttir spurði hann um aðferðir til að gera lestur nemenda að lifandi reynslu sem snertir manneskjuna í þeim. Hvernig er gefandi lestur? Lesandinn bregð- ur sér inn í efnið Morgunblaðið/Árni Sæberg Hvað vitum við um efni textans? Hvað langar okkur að vita? Hvað vitum við nú sem við vissum ekki fyrir? spyr Jeffrey D. Wilhelm.  Lestrarhestur les milli línanna og dregur eigin ályktanir.  Sá sem ekki fyllir í eyður textans nýtur ekki lestursins. SKAPA heilsueflandi umhverfi til vinnu og náms, m.t.t. bygg- inga, leikvalla, matstofa og ör- yggis. Efla ábyrgð einstaklinga, fjölskyldu og samfélagsins á eigin heilsu. Hvetja til heilbrigðra lífs- hátta með raunhæfum og að- laðandi valkostum fyrir nem- endur og starfslið. Gera nemendum kleift að nýta líkamlega, andlega og félagslega getu sína og auka sjálfsvirðingu þeirra. Setja skýr markmið heilsu- eflingar og öruggs umhverfis fyrir alla í skólanum, nemendur og fullorðna. Ala á góðum samskiptum nemenda og kennara og bæta tengsl milli skóla, heimila og sveitarfélags. Kanna styrkleika og úrræði samfélagsins til að styðja að- gerðir til bættrar heilsu. Skipuleggja samfellda nám- skrá í heilbrigðisfræðslu með virkri þátttöku nemenda. Bæta þekkingu og hæfileika nemenda til að geta tekið ábyrga afstöðu um eigin heilsu og til að vernda og bæta um- hverfi sitt. Nýta sér skólaheilsugæslu út frá sem víðustu sjónarhorni og nýta sér möguleika hennar til að kenna nemendum að nýta sér heilbrigðisþjónustuna á sem hagkvæmastan hátt. Heilsuefling SNÆLANDSSKÓLI, sem er heild- stæður grunnskóli, er einn af fleiri skólum í Kópavogi sem tekur þátt í verkefninu Heilsuefling í skólum. Verkefnið er liður í samstarfi Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar, Evrópuráðsins og Evrópu- sambandsins. Fjörutíu lönd í Evrópu taka þátt í verkefninu, sem nefnist „European Network of Health Promoting Schools“, og varð Ísland formlegur þátttakandi í maí 1999. Á fyrstu ráðstefnunni sem haldin var um heilsueflingu á vegum Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar í Ottawa, Kanada, árið 1986 var heilsuefling skilgreind sem „ferli sem auðveldar fólki að hafa vald á og auka við eigið heilbrigði og samfélagsins“. (Samantekt um Heilsueflingu í skólum – nóv. 1999.) Þátttaka Snælandsskóla í verk- efninu miðar að því að andleg og líkamleg líðan nemenda sé sem best í skólanum og er verkefnið unnið undir heitinu: Betri skóli – bætt líð- an. Fólkið sem verkefnið nær til eru: nemendur, kennarar og starfs- fólk skólans, foreldrar, heilsugæsla og sveitarstjórn, eða allir sem tengjast skólasamfélagi barnanna á einhvern hátt. Snælandsskóli er annar tveggja grunnskóla í Kópa- vogi sem aðild eiga að þessu verk- efni, auk eins leikskóla og Mennta- skólans í Kópavogi. Gert er ráð fyrir að börn sem eru í leikskóla sem tekur þátt í verkefn- inu eigi möguleika á að fara síðan í heilsueflandi grunnskóla og þaðan inn í menntaskóla sem er þátttak- andi í sama verkefni. Þannig er reynt að vinna að því að nemendur geti stundað skóla í heilsueflandi samfélagi allt frá því þau byrja í leikskóla. Hanna Hjartardóttir, skólastjóri Snælandsskóla, segir verkefnið einnig vera sjálfsmatsverkefni á skólasamfélaginu í heild. Það komi til með að gefa þátttakendum tæki- færi á að skoða hvernig öllum sam- skiptum er háttað og hvað megi betur fara. Hún segir verkefnastjórnunina byggjast á svokallaðri „action- planing“- eða „communiti-planing“- aðferð sem byggir á því að fá alla þátttakendur verkefnisins til þess að segja sinn hug um hvað betur megi fara í starfinu og umhverfi þess og koma með eigin hugmyndir að lausnum. Sigurborg Kr. Hannesdóttir ráð- gjafi hefur unnið með þessa aðferð sem þróuð hefur verið í Bretlandi. Sigurborg stýrði fyrst fundi með öllu starfsfólki skólans og þar á eft- ir þjálfaði hún kennara til þess að nota tæknina sem aðferðin byggir á, til þess að halda fundi með nem- endum. Að lokum var sams konar fundur með foreldrum. Allir þátttakendur í verkefninu hafa jafna möguleika á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og enginn þarf að óttast það að þurfa að halda ræðu eða tjá sig með orð- um við það að koma hugmynd sinni áfram, heldur eru allar hugmyndir skrifaðar niður á nafnlausa gula miða. Á þessa gulu miða skrifar fólk niður það sem það telur vera vanda- mál í stöðunni, þarnæst drauma um hvað betur megi fara og síðast hug- myndir að lausnum. Allar hugmyndir eru síðan skráð- ar inn í tölvu og er svo skipaður samráðshópur sem samanstendur af fulltrúum allra úr skólasamfélag- inu til þess að flokka hugmyndir og forgangsraða. Hanna telur að verk- efnið muni efla samskipti milli nem- endanna sjálfra, milli nemenda og kennara, milli kennara og foreldra og einnig milli heimila og skóla. Hún segir það jafnframt vera til skoðunar að leggja meiri áherslu á samskipti milli yngstu og elstu nem- enda og hvernig hægt sé að fá eldri nemendur til þess að koma inn sem stuðnings- og ábyrgðaraðilar að einhverju leyti yngri nemenda. Hanna bendir á að verkefnið sé ekki eitthvert skyndiátak sem nái yfir stuttan tíma, heldur sé það hugsað til langframa. „Við höfum haldið fyrsta vinnufund til þess að forgangsraða því sem betur má fara og skoða þær hugmyndir sem fram komu um úrbætur. Það sem brýnt þykir að vinna nú eru t.d. úti- aðstæður í frímínútum og einnig eru uppi hugmyndir um að breyta lengd og skipulagi frímínútna,“ segir Hanna. Hún segir einnig mjög ofarlega á verkefnalistanum að bæta mataraðstöðu nemenda. Mat- sal vanti í Snælandsskóla og meira eldhúsrými til þess að geta boðið nemendum upp á heitan mat í há- deginu eins og stefnt sé að. Betri líðan nemenda Morgunblaðið/Ásdís Barnið á að geta verið í heilsuleikskóla, -grunnskóla og -menntaskóla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.