Morgunblaðið - 13.03.2001, Side 45

Morgunblaðið - 13.03.2001, Side 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 45 Tjaldútilega í Vaglaskógi sumarið ’98, sumarið sem kom ekki fyrir norðan. Kristján var þar ásamt fjölskyldu sinni og snerist í kringum konu sína og börn eins og skopparakringla á meðan við hin skulfum okkur til hita. Mig minnir meira að segja að hann hafi grillað ofaní mig steikina af því að ég nennti ekki upp úr svefnpok- anum. Hann sagði sögur, var allt í öllu og brosti breitt. Þetta bros hvarf allt of snemma. Megi fjölskylda og vinir Kristjáns halda þessu brosi lifandi í hjarta sínu að eilífu. Amma Ella sendir alla sína samúð norður til ykkar sem eigið um hvað sárast að binda, þar sem hún getur ekki verið við útförina sjálf. Eitt er víst, hún verður hjá nöfnu sinni í huganum. Amma Elín og Trausti. Frændi minn ljúfi og nafni er dá- inn. Mér leið eins og ég hefði verið stunginn hnífi er mér var tjáð að Diddi frændi minn hefði látist af slys- förum og ég vonaði að mér hefði mis- heyrst herfilega. Þetta var því miður orðið og ég starði sljóum augum til himins og hvíslaði: „Guð minn, hvað ertu eig- inlega að hugsa?“ Það veit víst eng- inn því þetta var svo tilgangslaust, ósanngjarnt og skelfilegt. Hann féll frá í blóma lífsins, ekki orðinn 29 ára og faðir þriggja ungra barna. Verra getur það víst ekki orð- ið. Mér fannst ég alltaf eiga smá- einkahlut í honum því ég hafði það fyrir mig og gortaði af því þegar eng- inn heyrði sem vissi betur að móðir hans og systir mín hefði skírt hann í höfuðið á mér og ég ætla að halda það áfram sama hvað hver segir. Við Diddi hittumst oft heima hjá foreldrum hans, Systu systur minni og Madda mági mínum, þar sem við hjónin erum tíðir heimiliskettir. Heimili þeirra hjóna er ævinlega mannmargt og alltaf er hægt að ganga að því sem vísu að hitta eitt eða fleira af börnum þeirra þar og barnabörnin oft fleiri en eitt og tvö. Diddi var ötull við að hjálpa for- eldrum sínum og launa þeim þannig allt barnapassið. Pabbi hans gat allt- af reitt sig á að fá aðstoð sonar síns við lagfæringar og nýsmíði þegar þess þurfti og var þar ekki í kot vísað með þessa líkamsburði sem hann hafði. Hann var með eindæmum dugleg- ur til allrar vinnu, ég veit að hann vann erfiða vinnu og mikla en þessi sterki skrokkur virtist samt alltaf eiga nóg eftir til að rétta öðrum hjálparhönd þótt vinnudagurinn væri oftast langur og strangur. Við áttum óvænt tveggja manna tal í október sl. er við fengum okkur kaffi saman í Esso-skálanum á Húsa- vík, ég var þar á gegnumkeyrslu vegna starfs míns og var að taka olíu þegar heyrðist kallað glaðlega: „Þú ert nú alveg blindur og heyrnarlaus, ég er búinn að vera að flauta á þig og þú tekur ekki eftir neinu, á ég að þurfa að setja á þig loftflauturnar?“ Og þarna sat nafni við stýrið á vöru- flutningabíl, svo stórum að hann virt- ist aldrei ætla að enda, og var býsna sposkur á svipinn. Við áttum síðan notalega stund frá erli dagsins og ræddum sameiginlegt áhugamál okkar beggja, stóra bíla. Margar góðar minningar á ég um frænda minn, og minningin um hann mun ylja okkur öllum, minningin um drenginn góða sem alltaf var síbros- andi, sem færði okkur birtu og gleði með nærveru sinni og lífsgleði. Elsku Ella, Sibba, Helga og Gunn- ar, guð gefi ykkur styrk til að sigra sorgina og missinn, og elsku Systa og Maddi, Vala, Baddi og þið hin systk- inin sem eruð ekki á Akureyri, guð blessi ykkur og gefi ykkur aftur gleði að lokum. Þú skildir eftir ljós, sem aldrei slokknar. Ljós sem lýsir dapra daga. Það lýsir sporin þín, spor drengsins ljúfa ljós minninganna. Þú skildir eftir ljós. Kristján Gunnarsson og fjölskylda. ✝ Ársæll Eyleifs-son fæddist á Akranesi 6. mars 1929. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 2. mars síð- astliðinn. Foreldrar hans, bæði frá Akra- nesi, voru Sigríður Sigmundsdóttir, hús- móðir frá Ívarshús- um, f. 19.5. 1900, d. 19.3. 1972, og Eyleif- ur Ísaksson, skip- stjóri frá Dalsmynni, f. 27.9. 1892, d. 19.7. 1976. Ársæll ólst upp í stórum systkinahópi að Lög- bergi á Akranesi. Systkini hans eru: 1) Guðmundur, f. 3.3. 1919, d. 19.8. 1974. 2) Ísak, f. 5.2. 1923, d. 31.10. 1991. 3) Viggó, f. 10.8.1925, d. 1.5. 1950. 4) Ingileif, f. 26.1 1928, d. 12.3. 1990. 5) Oddný, f. 27.10. 1931, búsett í Danmörku. 6) Einar, f. 9.2. 1933, d. 8.9. 1984. 7) Jóhannes, f. 19.1. 1944, búsettur á Akranesi Auk þeirra ólst upp á Lögbergi systursonur Ársæls, Eyleifur Hafsteinsson, f. 31.5. 1947, bú- settur á Akranesi. Hinn 29. desember 1957 kvænt- ist Ársæll eftirlifandi eiginkonu sinni, Erlu Sigríði Hansdóttir, f. 19.9. 1938 , frá Akrakoti í Innri- Akraneshreppi. Fósturforeldrar hennar voru Ólafía Guðrún Björnsdóttir og Ellert Jónsson. Börn þeirra eru 1) Ólafía Guðrún, f. 11.11. 1956, maki Sigfús Þór Elíasson. Börn hennar eru Ár- sæll Þór, f. 1973, í sambúð með Ka- millu Sveinsdóttur, hennar sonur er Arnar Freyr; Engil- bert, f. 1978, í sam- búð með Fanneyju Gunnlaugsdóttur; Eyþór, f. 1982; Elías Þór, f. 1988; og Sævar Þór, f. 1992. 2) Ellert, f. 2.12. 1957, maki Gunilla Kolm. Synir hans eru Joh- an Erik, f. 1988, og Emil Linus, f. 1990. 3) Edda Björk, f. 12.8. 1959, maki Ólafur Sigurðsson. Hennar börn eru Erla Björk, f. 1986, Ro- bert, f. 1992, og María Rún, f. 1996. 4) Gunnar Ársæll, f. 12.2. 1973. Ársæll byrjaði ungur að stunda sjóróðra með föður sínum og var sjómaður frá Akranesi alla sína ævi. Lengi stundaði hann eigin trilluútgerð. Síðasta aldarfjórð- unginn starfaði hann á Akraborg- inni þar til hún hætti ferðum. Útför Ársæls fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku afi minn, ég á eftir að sakna þín mikið og allra þeirra góðu stunda sem við áttum saman þegar ég kom í heimsókn til þín og ömmu uppá Akranes. Það verður öðruvísi núna næstu sumur þegar ég kem á Skagann og þú ert ekki þar. Þú varst orðinn svo veikur og ég fékk alltaf sting í hjartað við að sjá þig, en ég veit að þú ert kominn á betri stað þar sem þér líður betur. En minningin um þig mun alltaf lifa með mér. Ég kveð þig í bili, elsku afi minn, og þakka fyrir allar stundirnar sem ég var svo lánsamur að fá að eiga með þér. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Eyþór. Afi minn, þú sagðir mér að það gæti komið að þessum degi en áfall- ið varð mér samt ofboðslega mikið, ég fann það að ég gat ekki und- irbúið mig fyrir þessa skilnaðar- stund. Ég er í dag ofboðslega dapur en samt er það léttir að þú skulir nú vera laus við þennan sjúkdóm sem reyndist þér svo erfiður. Ég er dap- ur yfir því að geta ekki heimsótt þig aftur, fá ekki að tala við þig og finna hlýju þína. En mest sakna ég þess þó að vera ekki lengur kallaður Alli hu, sem þú einn kallaðir mig svo oft og brostir. Hjá þér og ömmu leið mér alltaf svo vel. Góður Guð, viltu passa og styrkja hana ömmu. Þegar ég var að keppa í sundi vissu allir hver Alli afi var, jú, hann var kall- inn með video-vélina á öllum sund- mótunum og hvatti mig og Gunna áfram. Það varst þú sem kenndir mér að kasta með veiðistöng og smitaðir mig af veiðibakteríunni sem einkenndi allt þitt líf. Ég á svo margar góðar og skemmtilegar minningar með þér sem fylgja mér alla tíð. Þegar ég heimsótti þig, afi, á mánudaginn spjölluðum við lengi um allt og þú spurðir eins og alltaf um Kamillu, Arnar Frey og Bósa og hvernig við hefðum það, þú vildir okkur alltaf svo vel. Skrítið að hugsa til þess að þetta voru okkar seinustu samræður. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífs þín nótt. Þig umvefi blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guð geymi afa minn. Þinn Ársæll Þór. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti signaði Jesú mæti. (Höf. ók.) Hvíl í friði, elsku „tattoo“ afi. Þinn Arnar Freyr. ÁRSÆLL EYLEIFSSON  Fleiri minningargreinar um Ár- sæl Eyleifsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. -             .2 .>   9D8 - % +  "     00  +( $'  (   $$! -- .0   $'  20'  $$! -'+$"$'   !   5 *      . 4@.(4. . *       00         @! <&$'  % $$! !  5 ,  )     )       ! ""    !     *   *   .=1 . 542(; ,>== ' -$E - % +      06 &! 6#%&0$$! @&+(56#%&0$'   6#%&0$'  6#%&0$$! #  $ . '  .  F#5=#!$ -$$! - F#5=#!$ -$$! 4 ,+$!6#%&05 -  *     *    ( 2(;4(7 5G H2.  #+I9 - % +      7      08 0223   '+$- $'  20'$ ( $$!   )$ (  !"'+$5 -             );@.2 . 3 - 0  2'  9 (    00  - ) '   -'    !   5 *    *     (21( ( ,>==( &  30 C  : " ; *   03  '      #(     08 0223   <&$$!  '+$$ $'   + $<&$'  -&") $! @ A <&$'  .'A$$!        !   5 ;*      "  =4( " 24( &; 0 $ 0 2    . /    7   )   8    '     0< 0433 $ ! '$ $ #$&  5

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.