Morgunblaðið - 13.03.2001, Page 50

Morgunblaðið - 13.03.2001, Page 50
HESTAR 50 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ FREMSTIR FYRIR GÆÐI Milli manns og hests... ... er arhnakkur Í ÞAÐ minnsta tvö hestamót voru haldin um helgina og ber þar hæst sameiginlegt mót Sörla og Andvara sem kallað var árshátíðarmót þar sem keppt var í sjö flokkum. Auk yngri flokkanna var keppt í karla- og kvennaflokkum auk flokki öðl- inga sem er fyrir þá sem komnir eru á næstléttasta skeið lífsins. Þá var einnig keppt í 100 metra flugskeiði. Mótið var haldið í frábæru veðri við góðar aðstæður á Sörlavöllum. Þetta samstarf þessara tveggja félaga er mjög til fyrirmyndar og at- hugandi fyrir önnur félög að kanna hvort sumum þáttum félagsstarfsins sé betur farið í samstarfi við önnur félög. Þess má geta að árshátíð félaganna var einnig sameiginleg. Í Arnargerði á Blönduósi var haldið annað töltmót vetrarins og nú við enn betri undirtektir en síðast. Alls mættu 26 keppendur til leiks í tvo flokka áhugamanna og atvinnu- manna, 11 í þeim fyrrnefnda en 15 í hinum flokknum. Áhorfendur voru eitthvað á annað hundraðið og voru heimamenn mjög ánægðir með hvernig til tókst að þessu sinni. Dómari var Mette Mannseth sem naut aðstoðar sambýlings síns Gísla. Þá fylgja hér með síðbúin úrslit frá fyrsta vetrarmóti Sleipnis á Sel- fossi sem haldið var síðla í febrúar. Árshátíðarmót Sörla og Andvara haldið á Sörlavöllum Pollar 1. Steinunn Jónsdóttir, Andvara, á Röðli 8 v. frá Miðhjáleigu 2. Skúli Þ. Jóhannsson, Sörla, á Fjöður 13 v. frá Stóru-Mástungu 3. Sigríður M. Egilsdóttir, Sörla, á Sprota 10 v. frá Kirkjubæ 4. Guðrún M. Sigurðardóttir, Andvara, á Hrolli 12 v., Rangárvs. Börn 1. Anna G. Oddsdóttir, Andvara, á Braga 6 v. frá Sperðli 2. Sandra L. Þórðardóttir, Sörla, á Díönu 10 v. frá Enni 3. Margrét F. Sigurðardóttir, Sörla, á Skildi 8 v. frá Hrólfsstöðum 4. Anna Þorsteinsdóttir, Andvara, á Krumma 6 v. frá Kálfhóli 5. Jón B. Smárason, Sörla, á Frosta 7 v. frá Galtarnesi Unglingar 1. Hrönn Gauksdóttir, Andvara, á Sikli 21 v. frá Stóra-Hofi 2. Kristín M. Jónsdóttir, Sörla, á Háfeta 8 v. frá Undirfelli 3. Margrét S. Kristjánsdóttir, Andvara, á Dreka 8 v. frá Vindási 4.Þórir Hannesson, Andvara, á Fáfni 10 v. frá Vindási 5. Rósa B. Þorvaldsdóttir, Sörla, á Árvakri 12 v. frá Sandhóli Ungmenni 1. Daníel I. Smárason, Sörla, á Seiði, 15 v. Sigmundarstöðum 2. Elísabet E. Garðarsdóttir, Sörla, á Hrafnhildi 11 v. frá Glæsibæ 3. Margrét Guðrúnardóttir, Sörla, á Frökk 9 v. frá Hafnarfirði 4.Theódóra Þorvaldsdóttir, Andvara, á Kjarki 8 v. frá Litla-Moshvoli 5. Hinrik Þ. Sigurðsson, Sörla, á Skyggni 6 v. frá Holtsmúla Konur 1. Katrín Stefánsdóttir, Andvara, á Adam 9 v. frá Ketilsstöðum, valin glæsilegasta parið 2. Anna B. Ólafsdóttir, Sörla, á Grámann 8 v. frá Miðengi 3. Marín M. Magnúsdóttir, Andvara, á Fjölni 8 v. frá Reykjavík 4. Ásdís Sigurðardóttir, Andvara, á Hyllingu 8 v. frá Hjarðarholti 5. Rakel Sigurðardóttir, Sörla, á Hnotu 7 v. frá Hjallalandi Karlar 1. Adolf Snæbjörnsson, Sörla, á Glóa 10 v. frá Hóli 2. Þórður Kristleifsson, Andvara, Tristan 9 v. frá Hvanneyri 3. Siguroddur Pétursson, Andvara, á Sögu 6 v. frá Sigluvík 4. Snorri Dal, Sörla, á Gretti 6 v. frá Reykjavík 5. Logi Laxdal, Sörla, á Prinsessu 8 v. frá Árbakka Öðlingaflokkur + 50 1. Kristleifur Kolbeinsson, Andvara, á Kilju 10 v. frá Eyrarbakka 2. Ingólfur Magnússon, Sörla, á Garpi 13 v. frá Gili 100 m flugskeið 1. Pálmi Adolfsson, Sörla, á Patta 10 v. frá Búlandi, 8,59 sek. 2. Logi Laxdala, Sörla, á Seli 8 v. frá Torfunesi, 8,60 sek. 3. Eyjólfur Þorsteinsson, Sörla, á Kolbrá 7 v. frá Skarði, 8,72 sek. Vetrarmót Sleipnis haldið á Selfossi Börn 1. Ástgeir R. Sigmarsson, Fákur 15 v. bleikálóttur frá Hárlaugsstöðum. 2. Rakel D. Leifsdóttir, Vinur 9 v. leirljós frá Vorsabæjarhjáleigu. Unglingar 1. Sigrún A. Brynjarsdóttir, Logi 7 v. Rauður frá Voðmúlastöðum . 2. Kristinn Loftsson, Hruni 7 v. móálóttur. 3. Emil þór Guðjónsson, Gunndís 5 v. rauðtvístjörnótt frá Strönd 4. Daníel Larsen, Sokki 7 v. brúnblesóttur frá Herríðarhóli. Áhugamenn 1. Sveinbjörn Guðjónsson, Hannibal 10 v. bleikálóttur frá Kaðalst. 2. Þorsteinn L. Einarsson, Gola 8 v. Jörp frá Egilsstaðakoti. 3. Davíð Sigmarsson, Kopar 8 v. jarpur frá Sandhóli . 4. Haraldur Arngrímsson, Sindri 7 v. brúnn frá Laugardælum. 5. Guðmundur Sigurjónsson, Fyrirmyndarsamstarf hjá Sörla og Andvara Iða 7 v. Rauðblesótt frá Eyrarbakka. 6. Sigmar Ólafsson, Blakkur 10 v. brúnn frá Hárlaugsstöðum. 7. Sigríður Harðardóttir, Sævar 6 v. Brúnstjörnóttur frá Dalbæ. 8. Jónas M. Hreggviðsson, Goðgá 10 v. Brúnskjótt frá Hjaltastöðum. Atvinnumenn 1. Brynjar J. Stefánsson, Röst 6 v. gráskjótt frá Voðmúlastöðum. 2. Sigursteinn Sumarliðason, Toppur 8 v. brúnn frá Selfossi. 3. Jóhann Guðmundsson, Rakel 10 v. rauðskjótt frá Hárlaugsstöðum. 4. Hermann Karlsson, Prins 7 v. leirljós frá Ytri-Bægisá. 5.Helgi Þ. Guðjónsson, Sylgja 8 v. brún frá Kolsholti. 6.Magnús Jakobsson, Skvetta 6 v. rauð frá Krækishólum. 7.Sigurlaugur Gíslason, Reykur 6 v. brúnn frá Minni-Borg. 8. Sigurður R. Guðjónsson, Faxi 7 v. rauðblesóttur frá Eyrarbakka. Töltkeppni Neista og Arnargerðis á Blönduósi Áhugamenn 1. Magnús Elíasson á Heði 7 v. frá Stóru-Ásgeirsá. 2. Fanney Indriðadóttir á Ásjónu 7 v. frá Grafarkoti. 3. Magdalena Einarsdóttir á Funa 7 v. frá Orrastöðum. 4. Angela Berthold á Sóma 7 v. frá Sturluhóli. 5. Finnur Björnsson á Vafa 7 v. frá Köldukinn. Opinn flokkur 1. Herdís Einarsdóttir á Kæti 7 v. frá Grafarkoti 2. Jón Kristófer á Freyju 5 v. frá Steinnesi. 3. Elsa Albertsdóttir á Skrá 6 v. frá Strönd 4. Kjartan Ólafsson á Gretti 13 v. frá Blönduósi. 5. Gísli Guðmundsson á Tögg 12 v. frá Auðkúlu II. Þær voru smart, Grease-skvísurnar frá Andvara, og slógu rækilega í gegn í næstsíðasta atriði sýningarinnar. METAÐSÓKN var í Reiðhöllinni á hinum árlega Æskulýðsdegi sem sjö hestamannafélögin á suðvestur- horninu halda sameiginlega. Vin- sældir þessara sýninga hafa vaxið og dafnað allt frá því að byrjað var að halda þær fyrir sex árum og má heita að höllin hafi verið sneisafull nú. Þar er það eingöngu unga kyn- slóðin og hesturinn sem skemmta öðrum ungmennum og víst er að á fáum eða engum hestasýningum eru undirtektir jafn miklar og á þessum sýningum. Krakkar úr félögunum koma með vel æfð sýningaratriði og vakti nú mesta athygli „Spánski reiðskólinn í Vín“ sem kom frá Gusti og svo „Grease“ atriði krakkanna úr And- vara. Þá mættu á staðinn Siggi sæti og Glanni glæpur og náðu þeir góð- um tökum á krakkaskaranum í „Brekkunni“ svo undir tók í höllinni. Aðgangur var að venju ókeypis og fríar veitingar fyrir allan skar- ann. Metaðsókn á Æsku- lýðsdegi SPENNA er farin að aukast vegna væntanlegs vals á landsliði Íslands í hestamennsku. Fræknir knapar eru margir hverjir klárir með hesta og hafa verið um tveggja ára skeið, aðr- ir hafa nýverið orðið sér úti um hesta og þriðji hópurinn leitar logandi ljósi ða hentugum hestum. Vignir Jónasson hefur lengi stefnt með Klakk frá Búlandi en þeir eru sem kunnugt er Íslandsmeistarar í fimmgangi og silfurhafar frá lands- mótinu í A-flokki gæðinga. Vignir og Klakkur eru taldir eiga góða mögu- leika og vilja sumir taka svo djúpt í árinni að segja þá eiga nánast öruggt sæti. Ragnar Hinriksson, bronshafi A- flokks á landsmóti, er í haltu mér/ slepptu mér ástandi með stóðhest sinn, Stjarna frá Dalsmynni. Þar togast á draumurinn um að komast í landsliðið eða vinna í A-flokki á landsmóti á næsta ári. Nágranni Ragnars, Gunnar Arnarsson, telur ekki spurningu hvað Ragnari beri að gera, sigur á landsmóti sé í seiling- arfjarlægð. Sigurbjörn Bárðarson á nokkuð tryggt sæti í liðinu þar sem hann vann tvo HM-titla á Gordon frá Stóru-Ásgeirsá og eiga þeir rétt á að mæta til leiks sem slíkir. Sigurbjörn segir að það sé hins vegar háð sam- þykki eiganda Gordons að hann mæti með hann til leiks á HM en hann sé að skoða hlutina og ákvörð- un um hvað hann mæti með í úr- tökuna verði ekki tekin fyrr en nær dregur. Sagði hann þó að Bylur frá Skáney væri nú þegar sterkur inn í myndinni en einnig myndi hann sjálfsagt mæta með fjórgangshest. Sigurbjörn er með mörg járn í eldinum og er það meðal annars að frétta að hann hefur selt helming í hóteli sínu sem staðsett er í landi Oddhóls á Rangárvöllum. Kaupend- ur eru kunnir fjárfestar og hesta- menn og má þar nefna Jón Ingvars- son, Bjarna í Blómaval, Einar Sveinsson og Ingimund Sveinsson. Atli Guðmundsson ætlar að sjálf- sögðu að freista gæfunnar í úrtöku og er hann með tvo hesta í sigtinu, þá Breka frá Hjalla og Kolskegg frá Garði, sem hann þjálfar þessa dag- ana með það fyrir augum. Ormur frá Dallandi þjónar nú hlutverki reið- hests eiganda síns, Þórdísar Sigurð- ardóttur. Sagði Atli að engar yfirlýs- ingar væru gefnar aðrar um klárinn að svo komnu máli. Það væri Þórdís- ar að ákveða hvort hún vildi eiga klárinn sem reiðhest eða gefa hann falann í eitthvað annað. Ef svo yrði stæði ekki á honum að taka við klárnum, það væri alltaf heiður og sómi að fá að ríða svona hesti. Sveinn Ragnarsson hyggst geyma öll HM-eggin sín í einni körfu ef svo má að orði komast því hann stefnir með aðeins einn hest, Brynjar frá Árgerði, í úrtökuna. Saman hafa þeir náð góðum árangri í fimmgangi og slaktaumatölti og í lok síðasta keppnistímabils náðu þeir mjög góð- um tíma í 250 metra skeiði. Þeir ættu því að verða mjög sterkir í saman- lögðu en Sveinn sagði að ef það brygðist ættu þeir einnig góða möguleika að fara inn í liðið á skeið- sætinu því klárinn væri orðinn mjög sterkur þar. Baldvin Ari Guðlaugsson er kom- inn með sinn kandídat á hreint og hann ekki af lakara taginu. Þar er um að ræða hryssuna Golu frá Ysta- gerði sem er að sögn Baldvins feikna góð og sögðu félagar hans fyrir norð- an við hann að Íslandsmeistararnir Sveinn Ragnarsson og Hringur frá Húsey ættu ekki nokkurn möguleika á móti þeim, en þess ber að geta að þetta eru að vísu mjög góðir vinir mínir, bætti Baldvin Ari við. Hafliði Halldórsson hyggst stefna ótrauður á úrtöku með hinn endur- heimta Valíant frá Heggstöðum „en sá orðrómur gekk í haust að Sigur- björn Bárðarson hefði keypt hestinn og eigum við ekki að segja að ég hafi keypt hann aftur,“ segir Hafliði og hefur gaman af þessum sögusögn- um. Hann stefnir einnig með stóð- hestinn Frakk frá Mýnesi í kynbóta- sýningu á HM. FÓLK 2001

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.