Morgunblaðið - 13.03.2001, Qupperneq 51
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 51
HART er nú lagt að Sigurði Sæ-
mundssyni að taka enn á nýjan leik
við stöðu landsliðseinvalds fyrir
heimsmeistaramótsúrtökuna í sum-
ar. Sigurður hafði sem kunnugt er
ákveðið að gefa ekki kost á sér til
starfans en þess í stað að freista
þess að komast í liðið með hest. Sig-
urður segir að sú ákvörðun hafi
verið klettklár en vegna mikils
þrýstings hafi hann tekið málið til
endurskoðunar. Segist hann þó
klár á því að á hvorn veginn sem
hlutir fari verði hann hamingju-
samur með sína ákvörðun. Að gefa
kost á sér til starfans sé létt leið og
ljúf þótt verkið sé erfitt en ef hann
velur hinn kostinn geri hann sér
fulla grein fyrir því að það séu að-
eins þeir bestu sem komast áfram í
liðið og út til Austurríkis.
Sigurður hugðist stefna með klár
sinn Esjar frá Holtsmúla í liðið en
saman hafa þeir náð góðum árangri
í bæði fjór- og fimmgangi sem er
nokkuð fátítt. En það eitt og sér
þykir ekki styrkur í þeirri baráttu
sem hugsanlega er framundan um
sæti í íslenska liðinu þar sem öðru
fremur er lögð áhersla á að finna
vænlega sigurkandídata.
En spjótin standa ekki bara á
Sigurði hér á Íslandi því Svíar báru
víurnar í hann fljótlega eftir síðasta
heimsmeistaramót og nú herja þeir
enn á hann og vilja jafnvel að hann
einn velji sænska landsliðið. Skiptir
þar engu máli þótt hann yrði valinn
í íslenska landsliðið.
Sigurður sagði að það mál væri
dálítið snúið því til þess að geta val-
ið landslið þyrfti viðkomandi að
þekkja vel til manna og hesta sem
til greina kæmu í liðið og því miður
teldi hann sig ekki þekkja nógu vel
til þeirra mála á þessari stundu. En
Sigurður mun gefa íslensku lands-
liðsnefndinni svar fljótlega.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Sótt er að Sigurði þessa dagana þar sem menn vilja fá hann sem landsliðseinvald og meira að segja vilja Svíar fá
hann í það starf líka, en Sigurð langar mest af öllu að koma sér og hesti sínum, Esjari frá Holtsmúla, í landsliðið.
Hart lagt að
Sigurði Sæ-
mundssyni að
taka við stöðu
landsliðs-
einvalds
SLEÐADAGAR
Notaðir vélsleðar
með ríflegum
afslætti
Þrjú frábær fyrirtæki
1. Lítið huggulegt kaffihús með léttvínsleyfi, frábært tækifæri
fyrir tvær samhentar konur sem kunna að búa til gott bakkelsi
og vilja vera sínir eigin herrar. Vel staðsett miðsvæðis og rúsín-
an í pylsuendanum, húsnæðið fengist keypt líka.
2. Skyndibitastaður staðsettur í fjölmennu íbúðarhverfi, heimilis-
matur í hádeginu. Selur mikið af kjúkling og hamborgurum. Frá-
bært verð á huggulegum veitingastað.
3. Hér eru frábær kaup, pizzustaður, heimsendingar og er að
útbúa matsal fyrir 50 manns, frábær aðstaða, búið er að gera
bar. Gott skipulag er á öllu og allt til alls, bara að byrja að baka.
Frábært verð ef samið er strax.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.