Morgunblaðið - 13.03.2001, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur óskað eftir ráðgefandi áliti
EFTA-dómstólsins um það hvort
virðisaukaskattur á bækur, sem
fluttar eru inn til landsins frá öðrum
ríkjum Evrópska efnahagssvæðis-
ins, brjóti í bága við EES-samning-
inn. Samkvæmt lögum er inn-
heimtur 24,5% virðisaukaskattur af
bókum á erlendum tungum en bæk-
ur á íslensku bera aðeins 14% virð-
isaukaskatt.
Stefnandi, Hörður Einarsson hrl.,
telur að þetta sé óheimilt samkvæmt
EES-samningnum og hefur reynt að
fá þessu hnekkt án árangurs. Því
hefur hann stefnt íslenska ríkinu og
að sögn Grétu Baldursdóttur hér-
aðsdómara var það samkomulag að-
ila að skjóta málinu til EFTA-dóm-
stólsins og fá ráðgefandi álit hans.
Óljóst er hvenær úrskurður dóm-
stólsins liggur fyrir. Talsverð vinna
er við að þýða gögn málsins auk þess
sem aðilum þess er gefinn kostur á
að gera grein fyrir máli sínu. Því er
ekki búist við úrskurði fyrr en í
fyrsta lagi í haust. EFTA-dómstóll-
inn er með aðsetur í Lúxemburg.
Hann var settur á fót á grundvelli
EES-samningsins og eru aðildarríki
hans Noregur og Lichtenstein auk
Íslands.
Íslenskt mál fyrir EFTA-dómstólnum
Úrskurðar um
virðisaukaskatt á
erlendar bækur
RÁNFUGLAR hafa oftar en ekki
yfirhöndina í harðri lífsbaráttu
fuglanna. Stundum þurfa þeir þó
að lúta í lægra haldi fyrir öðrum
og séðari fuglum eins og ungfálk-
inn á myndinni fékk að kynnast
eftir hörð átök við fýl. Fálkinn
fannst allur ataður grúti við bæ-
inn Fit undir Eyjafjöllum og er
talið að hann hafi ætlað að gæða
sér á fýl sem brást hinn versti við
og ældi grúti yfir andstæðinginn.
Þorvaldur Björnsson, hamskeri
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands,
fékk fálkann til meðferðar og
sagði þetta ekki einsdæmi þar
sem ungfálkar viti margir hverjir
ekki af þessari varnaraðferð fýls-
ins en hann ælir lýsi þegar honum
er ógnað. Fálkarnir hafi því ekki
varann á sér og lendi í óvæntu
lýsisbaði. Lýsið gerir fjaðrirnar
klístraðar og fálkinn verður
ófleygur og getur ekki veitt sér
til matar og veslast upp á nokkr-
um dögum. Þorvaldur segir það
því nauðsynlegt að finna fugla
sem svona er ástatt um og skila
þeim inn til Náttúrufræðistofn-
unar þar sem þeir eru þvegnir
upp úr mildu og volgu sápuvatni
og gefið æti.
Fátt um þakkir
„Þessi fálkafrú var nú ekkert of
ánægð með snyrtinguna og lítið
þakklát eftir þvottinn og þurrk-
unina,“ sagði Þorvaldur og bætti
við, „ætli hún hafi ekki viljað fá
rúllur líka blessunin.“
Fálkinn verður í nokkra daga
til viðbótar í vörslu Þorvalds eða
þangað til hann hefur náð sér að
fullu en þá verður honum sleppt
út í náttúruna að nýju.
Morgunblaðið/Friðþjófur
Þorvaldur Björnsson mundaði hárþurrkuna fagmannlega á fálkann.
Fálki fékk það óþvegið þegar hann reyndi að góma fýl
Lenti óvænt í lýsisbaði
ÁÆTLUÐ aukning lífeyrisskuld-
bindinga ríkissjóðs vegna nýgerðs
kjarasamnings ríkisins við fram-
haldsskólakennara nemur ríflega
5,3 milljörðum kr. á samningstím-
anum, eða um 46,26% frá árslokum
2000 til aprílloka ársins 2004. Þetta
kemur fram í svari fjármálaráð-
herra við fyrirspurn Péturs H.
Blöndal um kjarasamning ríkisins
við framhaldsskólakennara.
Nýr kjarasamningur ríkisins við
framhaldsskólakennara var undir-
ritaður 7. janúar sl. og gildir til 30.
apríl 2004. Í svari ráðherra kemur
fram að hann feli í sér margvísleg-
ar breytingar frá eldri samningi,
t.d. breytt launakerfi með nýrri
röðun og til muna minni sjálfvirka
hækkun launa. Þessir þættir breyti
lífeyrisskuldbindingum B-deildar
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
(LSR). Tilfærsla launaliða í dag-
vinnu auki skuldbindingar í fram-
tíðinni minna en þessir þættir
hefðu gert í eldra kerfi.
Áætlað er að laun samkvæmt
kjarasamningnum út samningstím-
ann, byggð á febrúarlaunum 2001,
verði tæplega 14,7 milljarðar kr.
Hlutfall aukinna lífeyrisskuldbind-
inga af áætluðum greiddum laun-
um kennara í B-deild LSR sam-
kvæmt samningnum út samnings-
tímann er 36,3%, að því er fram
kemur í svari fjármálaráðherra.
Þar kemur enn fremur fram að
laun starfsmanna í B-deild LSR
samkvæmt kjarasamningnum út
samningstímann séu áætluð ríflega
7,9 milljarðar kr. Er sú áætlun
byggð á febrúarlaunum 2001. Hlut-
fall aukinna lífeyrisskuldbindinga
af áætluðum greiddum launum
kennara í B-deild LSR út samn-
ingstímann sé 67,1%.
Heildarskuldbinding
upp á 15,6 milljarða
Í svarinu er upplýst að stöðugildi
framhaldsskólakennara séu
1.215,34 og meðaltal aukinna líf-
eyrissjóðsskuldbindinga á hvern
framhaldsskólakennara sé áætlað
tæpar 4,4 milljónir kr. Stöðugildi
framhaldsskólakennara í B-deild
LSR eru hins vegar 622,73. Með-
altal aukinna lífeyrisskuldbindinga
á hvern framhaldsskólakennara í
B-deildinni samkvæmt samningn-
um er áætlað 8,5 milljónir kr.
Áfallin heildarskuldbinding rík-
issjóðs vegna framhaldsskólakenn-
ara, bæði núverandi og fyrrver-
andi, er í árslok 2001 áætluð ríflega
15,6 milljarðar kr. eftir að tillit hef-
ur verið tekið til nýs kjarasamn-
ings. Óafgreidd heildarskuldbind-
ing liggur hins vegar ekki fyrir.
Starfsmenn sem eru í A-deild LSR
munu fá aukinn lífeyrisrétt á
grundvelli iðgjalda sem hækka
hlutfallslega jafnt og launin. Áunn-
in réttindi eru ekki hækkuð. Í B-
deild er á hinn bóginn greitt sam-
kvæmt eftirmannsreglu, að því er
fram kemur í svarinu.
Lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs vegna samninga framhaldsskólakennara
Áætluð 5,3 milljarða aukn-
ing á samningstímanum
ÚTLIT er fyrir að rúmlega 50 þús-
und tonn af loðnukvótanum veiðist
ekki, komi til verkfalls sjómanna á
fiskiskipaflotanum. Þessi tala gæti
hækkað í 150 þúsund tonn ef sjáv-
arútvegsráðherra fellst á tillögu
Hafrannsóknastofnunnar frá í gær
um 100 þúsund tonna aukningu kvót-
ans.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum fiskvinnslustöðva höfðu í gær
borist á land rúm 555 þúsund tonn af
loðnu frá áramótum og samanlagt
rúm 681 þúsund tonn á vertíðinni. Í
gær voru því rúm 137 þúsund tonn
eftir af heildarkvótanum. Verkfall
sjómanna á fiskiskipaflotanum kem-
ur til framkvæmda á miðnætti að-
faranótt föstudagsins verði ekki búið
að semja fyrir þann tíma.
Mjög góð veiði var á loðnumiðun-
um undan Þjórsárósum um helgina
en öllu tregari veiði á miðunum fyrir
austan land. Þannig komu á land
rúm 50 þúsund tonn af loðnu frá
föstudegi til sunnudags, samkvæmt
tilkynningu Samtaka fiskvinnslu-
stöðva. Sé miðað við að loðnuskipa-
flotinn beri á land um 20 þúsund tonn
á sólarhring er ljóst að ekki næst að
veiða útgefinn loðnukvóta fyrir verk-
fallið.
Sjávarútvegsráðuneytinu barst í
gær tillaga Hafrannsóknastofnunar
um frekari aukningu loðnukvótans.
Kemur hún í kjölfar upplýsinga um
vænni loðnu á miðunum við landið en
áður var talið.
Samkvæmt samningi milli Íslands,
Grænlands og Noregs ber íslenskum
stjórnvöldum að kynna Grænlend-
ingum og Norðmönnum þessar til-
lögur. Að því loknu mun ráðherra
taka ákvörðun um frekari aukningu.
Lagt til að loðnukvótinn verði aukinn
Kvótinn næst
ekki komi
til verkfalls
Allt að /22