Morgunblaðið - 14.06.2001, Page 2
Það verður erfitt að stöðva Tiger
Woods á opna bandaríska / B3
Ragnar með stórleik í frönsku bik-
arkeppninni í handknattleik / B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR20 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FIMMTUDÖGUM
ÞÝSKA rokksveitin Rammstein
lenti á Keflavíkurflugvelli í gær-
kvöldi en hún leikur á tvennum tón-
leikum hér á landi, 15. og 16. júní
næstkomandi í Laugardalshöll.
Óhætt er að segja að fjaðrafokið
hafi verið mikið í kringum komu
hennar hingað en uppselt varð á
hvoratveggju tónleikana á örskots-
stund. Meðlimir sveitarinnar ætla í
ævintýraferð um öræfi landsins í
dag ásamt fjölskyldum. Ævintýrið í
Laugardalshöll hefst svo á morgun
eins og áður er getið.
Rammstein
komin
Morgunblaðið/Arnaldur
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MILLI 80 og 90 manns sátu kynn-
ingarfund Reyðaráls hf. í Félags-
lundi á Reyðarfirði í gær þar sem
matsskýrsla um umhverfisáhrif ál-
vers í Reyðarfirði var kynnt. Fundur
sem þessi er hluti af því ferli sem lög
um mat á umhverfisáhrifum kveða á
um. Matsskýrslan var lögð fram í lok
maí og hefur almenningur frest til 6.
júlí næstkomandi til að gera athuga-
semdir við hana til Skipulagsstofn-
unar. Þá hefur stofnunin fjórar vikur
til að kveða upp úrskurð. Á fundin-
um voru hafnarframkvæmdir við ál-
verið einnig kynntar, en hafnarsjóð-
ur Fjarðabyggðar hefur umsjón með
þeirri framkvæmd.
Ánægja kom fram á fundinum
með fyrirhugaðar framkvæmdir.
Þeir fundarmenn sem Morgunblaðið
ræddi við sögðust ekki óttast meng-
un frá álverinu. Þeir sögðust vonast
til þess að framkvæmdirnar yrðu til
þess að snúa við þeim fólksflótta sem
verið hefur frá svæðinu og að at-
vinnulíf verði fjölbreyttara. Í mats-
skýrslunni kemur fram að talið er að
íbúum geti fjölgað úr 8 þúsund í 10
þúsund til ársins 2013.
„Þetta var góður fundur og komu
þar fram greinagóðar upplýsingar,“
sagði Ólafur Sigurðsson sem býr á
Framnesi sem er innan þynningar-
svæðisins svokallaða. „Okkur leist
nú ekkert á blikuna þegar við heyrð-
um að við værum innan þessa svæð-
is, þar til við fengum útskýringu hér
á fundinum,“ sagði kona hans Elín
Gísladóttir. Þynningarsvæðið er
skilgreint í samráði við Hollustu-
vernd ríkisins, en utan þess er skýr
krafa um að öllum viðmiðunarmörk-
um sé framfylgt. Innan svæðisins
mun þó ekki hættulegt að dvelja og
er það vaktað. „Mér hefur alltaf litist
mjög vel á þessar framkvæmdir, hér
er allt í dauðateygjunum og vil ég því
gjarnan sjá framkvæmdir og umsvif
hér,“ sagði Ólafur.
Á fundinum kynntu þeir aðilar,
sem gerðu matsskýrsluna fyrir
Reyðarál, helstu niðurstöður henn-
ar. Kynningarspjöld um fram-
kvæmdirnar héngu uppi og svöruðu
sérfræðingar spurningum íbúa.
Í fyrri áfanga er miðað við að
framleiðslugeta álversins verði 240–
280 þúsund tonn, og í síðari áfanga
360–420 þúsund tonn. Höfnin verður
260 metra löng og munu skip með
allt að 60 þúsund tonna flutnings-
getu geta lagst þar að.
Óli Halldórsson frá Skipulags-
stofnun kynnti fyrir íbúum hvernig
þeir ættu að bera sig að vildu þeir
gera athugasemdir við matsskýrsl-
una. Athugasemdir þurfa að vera
skriflegar og þarf að koma fram við
hvaða framkvæmd er gerð athuga-
semd, þ.e. við álver eða höfnina.
Annar kynningarfundur verður
haldinn á Hótel Sögu í dag til að
kynna íbúum höfuðborgarsvæðisins
áhrif framkvæmdanna.
Kynningarfundur á matsskýrslu Reyðaráls á Reyðarfirði
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Íbúar í Fjarðabyggð og Austur-Héraði á kynningarfundi um matsskýrslu Reyðaráls hf. í gær.
Ánægja fundargesta
með framkvæmdirnar
TVEIMUR mönnum, sem setið hafa
í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á
skattsvikamáli í byggingariðnaði,
var sleppt úr haldi í gærkvöldi en
þeir hafa báðir játað brot sín. Þáttur
þeirra telst upplýstur og voru því
ekki lengur talin skilyrði fyrir
gæsluvarðhaldi. Skattsvikamálið er
eitt hið umfangsmesta sem um getur
hér á landi en svikin eru talin nema
rúmlega 70 milljónum króna.
Þrír voru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald en þriðji maðurinn verður
yfirheyrður í dag, miðvikudag. Helgi
Magnús Gunnarsson, löglærður
fulltrúi hjá efnahagsbrotadeild rík-
islögreglustjóra og stjórnandi rann-
sóknarinnar, segir að þá verði metið
hvort þörf sé á að halda honum
áfram í gæsluvarðhaldi. Þáttur
hinna tveggja teljist upplýstur. „Það
er eftir nokkur vinna í málinu en
ekkert sem réttlætir að þeim sé
haldið áfram í gæsluvarðhaldi,“
sagði Helgi Magnús.
Byggingaverktakinn hafi viður-
kennt að hafa keypt tilhæfulausa
reikninga og notað þá til að lækka
eigin skattskil og komast undan
greiðslu virðisauka- og tekjuskatts.
Með þessu er talið að um 16 millj-
ónum hafi verið skotið undan virð-
isaukaskatti. Tekju- og eignaskatts-
svik gætu numið tugum milljóna.
Hinn maðurinn sem nú hefur verið
sleppt hefur játað að hafa selt bygg-
ingaverktakanum reikninga sem
ýmist voru gefnir út á hans nafn eða
tveggja annarra tilgreindra manna.
Engin vinna lá að baki þessum reikn-
ingum sem gefnir voru út á óútfyllt
reikningseyðublöð með árituðum
nöfnum þeirra þriggja.
Byggingaverktakinn áfrýjaði
gæsluvarðhaldsúrskurðinum til
Hæstaréttar sem staðfesti hann.
Skattsvikamál í byggingariðnaði
Tveir játuðu og
var sleppt úr
gæsluvarðhaldi
UNGUR maður lenti undir
dráttarvél við sveitabæ í Vatns-
dal um hálfsexleytið í gær-
kvöldi. Að sögn lögreglunnar á
Blönduósi vildi slysið þannig til
að trappa sem maðurinn stóð í
utan á vélinni brotnaði með
þeim afleiðingum að hann féll
aftur fyrir sig og lenti fyrir
öðru afturhjóli dráttarvélarinn-
ar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð út og flutti hún
manninn á slysadeild Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi. Að sögn vakthafandi
læknis er ástand mannsins gott
eftir atvikum og hann ekki tal-
inn vera í lífshættu. Hann mun
hafa hlotið nokkra höfuðáverka
af fallinu og verið var að athuga
með innvortis meiðsl í gær-
kvöldi. Maðurinn sem lenti
undir vélinni er sonur öku-
manns vélarinnar, segir lög-
reglan á Blönduósi.
Maður
lenti undir
dráttarvél
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
komist að þeirri niðurstöðu að land-
búnaðarráðuneytinu hafi ekki verið
heimilt samkvæmt lögum að neita
einkaaðilum um stofnun einangrun-
arstöðvar fyrir gæludýr sem flutt
eru til landsins.
Þrír dýralæknar óskuðu eftir
heimild ráðuneytisins til að reisa
slíka einangrunarstöð, sem yrði rek-
in sem sjálfstætt fyrirtæki þar sem
dýralæknir væri í forsvari. Land-
búnaðarráðuneytið synjaði um leyf-
ið, en samkvæmt lögum nr. 54/1990
um innflutning dýra væri gert ráð
fyrir að einungis opinber aðili gæti
rekið slíka stöð.
Umboðsmaður Alþingis segir það
eitt koma fram í umræddum lögum
að vegna innflutnings dýra skuli
vera til staðar eða byggð sóttvarn-
arstöð á hentugum stað, en að ekki
sé hægt að draga þá ályktun að það
sé skýr og ótvíræð afstaða löggjaf-
ans að slíkur rekstur skuli alfarið
vera í höndum hins opinbera.
Hefur umboðsmaður því beint
þeim tilmælum til ráðuneytisins að
taka erindið fyrir að nýju, berist um
það ósk frá hlutaðeigandi, og af-
greiðslu málsins verði hagað í sam-
ræmi við þau sjónarmið sem um-
boðsmaður rekur í áliti sínu.
Einkaaðilum heimilt að
reka einangrunarstöð