Morgunblaðið - 04.07.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ALFREÐ Þorsteinsson, formaður
stjórnar Orkuveitunnar, telur ekki
óeðlilegt að Reykjavíkurborg fái
greiddan arð frá Orkuveitunni enda
sé um að ræða eign Reykjavíkur-
borgar. Hann vísar á bug gagnrýni
orkunefndar Kópavogsbæjar á um-
ræddar arðgreiðslur og segir þær
greiddar í samræmi við eignarhlut
eins og hjá hverju öðru fyrirtæki.
„Kópavogur seldi hlut sinn í Hita-
veitu Reykjavíkur árið 1993 og fékk
þá greidda upphæð sem nemur 408
milljónum króna á núvirði. Þessa
upphæð nýtti Kópavogsbær í þágu
Kópavogsbúa á sínum tíma. Bæjaryf-
irvöld í Kópavogi óskuðu sjálf eftir
því að selja hlut sinn og geta því ekki
komið núna og krafist þess að fá tví-
borgað,“ segir Alfreð.
Að hans mati er málatilbúnaður
Kópavogsbæjar sérkennilegur.
„Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa
ekki þurft að leggja neitt í uppbygg-
ingu vegna orkumála á liðnum árum.
Orkuveitan hefur þess í stað lagt í
hundruða milljóna króna fjárfesting-
ar vegna hitaveitu- og rafmagnsmála
í nýjum hverfum í Kópavogi og vegna
viðhalds í eldri hverfum,“ segir
Alfreð.
Hann segir ávinning Kópavogs
fólginn í að losna við fjármagnskostn-
að og áhættu honum samfara auk
þess sem Kópavogsbúum séu tryggð
sömu orkugjöld og gildi í Reykjavík
sem séu með þeim lægstu á landinu.
Alfreð segir að ætti Kópavogur
ennþá hlut í Orkuveitunni eða hefði
aukið eignarhlut sinn úr tveimur pró-
sentum í fimm eins og rætt var um á
sínum tíma væri bærinn að fá greidd-
an arð í samræmi við sinn hluta.
Sama fyrirkomulag verður haft á að
hans sögn þegar Akraneskaupstaður
gengur inn í Orkuveituna. Hann fái
greiddar arðgreiðslur í samræmi við
5,5% eignahlut.
Þá segir Alfreð ekki óeðlilegt að
Kópavogsbær kynni sér hvað sé í
boði og hvað sé heppilegast fyrir
Kópavogsbæ í ljósi þess að breyting-
ar séu að verða á raforkulögum.
Breytt umhverfi
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur orkunefnd Kópa-
vogsbæjar skilað af sér skýrslu um
orkumál í Kópavogi og tillögum til
bæjarstjórnar vegna hugsanlegra
úrbóta í orkumálum bæjarins. Lagt
er til að Kópavogsbær óski eftir við-
ræðum við Reykjavíkurborg um það
með hvaða hætti Kópavogsbúar fái
notið afraksturs Orkuveitunnar til
jafns við íbúa Reykjavíkur í
tengslum við afgjöld sem Orkuveitan
greiðir í borgarsjóð.
Fram kemur í umræddri skýrslu
að hlutur Kópavogsbúa í þeirri skatt-
lagningu hafi verið 174 milljónir árið
1998 og 128 milljónir árið 1999. Að
mati skýrsluhöfunda felst mismunun
í núverandi tekju- og eignaskattsfyr-
irkomulagi hér á landi ef borin eru
saman almenn félög og orkufyrir-
tæki sem öll eru í eigu opinberra að-
ila. Segir þar að orkufyrirtæki séu
undanþegin tekju- og eignasköttum
en almenn fyrirtæki beri 30–38%
tekjuskatt auk 1,2% eignaskatts og
sérstaks eignaskatts sem sé 0,25%. Í
flestum tilfellum greiði hins vegar
orkufyrirtækin eigendum sínum af-
gjald eða arð. Í skýrslunni er bent á
að Kópavogsbúar séu háðir Orku-
veitunni um rafmagn og heitt og kalt
vatn sem hafi einkarétt á sölu og
dreifingu rafmagns í Kópavogi.
Vikið er að framtíðarskipan orku-
mála og segir meðal annars að ljóst
sé að umhverfi á orkumarkaði eigi
eftir að breytast og að innan tíðar
verði framleiðsla, dreifing og sala á
rafmagni aðskilin og virkri sam-
keppni komið á. Er í því sambandi
vísað til óánægju með einkarétt
orkufyrirtækja til vinnslu og sölu á
orku og skipulagsbreytingar á fyrir-
komulagi raforkumála vegna aðildar
Íslands að Evrópska efnahagssvæð-
inu.
Fékk 408 milljón-
ir fyrir hlutinn
VINNA við styrkingu og end-
urbætur á brúnni yfir Jökulsá í
Lóni var hafin nýlega. Eftir fram-
kvæmdirnar mun brúin geta hald-
ið 44-49 tonna vagnlest.
Skipt verður um slitgólf og leg-
ur í brúnni og settir nýir stálbitar
utan yfir þá sem fyrir eru. Eftir að
viðgerðum lýkur opnast leiðin
milli Hornafjarðar og Egilstaða
fyrir allt að 49 tonna vagnlestir.
Fleiri brýr eru eftir á landinu
sem ekki þola vagnlestir yfir 44
tonn að þyngd. Fyrir áramót
stendur til að bæta brýrnar við
Hólmsá á Mýrum, Djúpá í Fljóts-
hverfi og Svalbarðsá í Þistilfirði.
Morgunblaðið/Rax
Brúin yfir
Jökulsá í
Lóni styrkt
NÚ ER hægt að fá stjörnuspá
senda sem SMS-skeyti frá mbl.is.
Einnig hefur verið bætt við þeirri
þjónustu að gestir á vefjunum
Fólkið og Íþróttir geta glöggvað
sig á sjónvarpsdagskránni í dag
og næstu daga.
Notendum mbl.is gefst einnig
kostur á að fá stjörnuspá dagsins
senda sem SMS-skeyti í GSM-
síma. Hægt er að velja að fá spá
fyrir eitt stjörnumerki eða fleiri
send daglega í GSM-síma á þeim
tíma sem hver og einn kýs. Einnig
má skrá sig fyrir því að fá senda
sérstaka spá á afmælisdegi við-
komandi.
Í vinstri dálki á Fólkinu á mbl.is
hefur verið bætt við tenglum á yf-
irlit um helstu efnisflokka á sjón-
varpsdagskrá dagsins og næstu
daga. Með því að smella á viðeig-
andi tengla er hægt að sjá hvaða
kvikmyndir, íþróttaþættir, fram-
haldsþættir og barnaefni er í sjón-
varpinu þann dag og næstu daga.
Á forsíðu íþróttavefjar mbl.is
hefur verið bætt við tenglum á yf-
irlit um helstu efnisflokka á sjón-
varpsdagskrá dagsins og næsta
dags. Með því að smella á viðeig-
andi tengla er þá hægt að nálgast
upplýsingar um viðkomandi dag-
skrárlið.
Aukin þjón-
usta á mbl.is
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
komist að þeirri niðurstöðu að dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu hafi verið
óheimilt að hafna beiðni einstaklings
um gjafsókn í tilefni af málshöfðun
hans vegna meints skorts á upplýs-
ingum frá lækni um mögulegar afleið-
ingar tiltekinnar læknisaðgerðar.
Synjun ráðuneytisins var alfarið
byggð á því að skilyrði um meðferð
einkamála, um að málstaður einstak-
lingsins gæfi nægilegt tilefni til máls-
höfðunar, væri ekki uppfyllt. Um-
boðsmaður taldi að gjafsóknarnefnd
og eftir atvikum dómsmálaráðuneytið
yrði að túlka og beita skilyrðum lag-
anna með þeim hætti að sérstaklega
væri stefnt að því að réttur manna til
aðgangs að dómstólum yrði raunhæf-
ur og virkur. Í því sambandi yrði að
hafa í huga að sá réttur hefði nú feng-
ið stjórnarskrárvernd og að náin
tengsl væru þar við mannréttinda-
sáttmála Evrópu. Þá taldi umboðs-
maður að fyrrgreint skilyrði yrði ekki
skilið með þeim hætti að það gerði
beinlínis ráð fyrir að gjafsóknarnefnd
skyldi meta heildstætt með sama
hætti og dómstóll sönnunaratvik þess
máls sem væri tilefni beiðni um gjaf-
sókn.
„Úrlausn um raunverulegan sönn-
unarvanda og lagalegan ágreining
ætti þannig að vera í höndum dóm-
stóla en ekki stjórnvalda þegar beiðni
um gjafsókn væri afgreidd,“ segir í
niðurstöðu umboðsmanns.
Taldi umboðsmaður gjafsóknar-
nefnd hafa farið þá leið í umfjöllun
sinni að leggja með beinum og sjálf-
stæðum hætti mat á sönnunarstöðu
málsins að virtum þeim gögnum sem
fylgdu beiðninni um gjafsókn. Um-
boðsmaður taldi nefndina hafa gengið
lengra að efni til en heimilt var við úr-
lausn málsins og að ekki yrði annað
ráðið af gögnum málsins en að raun-
verulegur vafi hafi verið til staðar um
það hvort viðkomandi einstaklingi
voru veittar fullnægjandi upplýsingar
af hálfu læknis um afleiðingar skurð-
aðgerðarinnar. Umboðsmaður beindi
þeim tilmælum til ráðuneytisins að
taka mál viðkomandi til endurskoð-
unar, komi fram sú ósk, og meðferð
þá hagað í samræmi við sjónarmið
sem rakin eru í áliti umboðsmanns.
Var óheimilt að hafna
ósk um gjafsókn
BÚNAÐARBANKI Íslands hf. hefur
selt allt hlutafé í Fóðurblöndunni til
Mjólkurfélags Reykjavíkur svf. (MR)
og Lýsi hf. MR mun eiga 75% í félag-
inu og Lýsi 25%. Í kjölfarið verður
unnið að stækkun hluthafahóps fyr-
irtækisins og mun Búnaðarbankinn –
verðbréf aðstoða við það ferli. Mark-
miðið með fjölgun hluthafa er að eign-
arhlutur MR lækki niður í allt að 35%
eftir fjölgun hluthafa.
Að sögn Steinars Helgasonar hjá
fyrirtækjaráðgjöf Búnaðarbankans
var samið við Kaupþing um sölu á
Fóðurblöndunni til Búnaðarbankans.
Bankinn hafi þá þegar verið í sam-
bandi við MR og Lýsi hvað varðaði
möguleg kaup þeirra á Fóðurblönd-
unni.
Söluverð Fóðurblöndunnar fæst
ekki uppgefið. Reykjagarður hf. sem
framleiðir Holtakjúklinga, sem ný-
lega komst í eigu Fóðurblöndunnar,
fylgir ekki með í þessum kaupum.
MR og Lýsi
kaupa Fóð-
urblönduna
FYLGI Sjálfstæðisflokks minnkaði
um 5% frá maí til júní. Flokkurinn
var með 43% fylgi í maí en 38% fylgi í
júní. Þetta kemur fram í nýrri síma-
könnun Gallup fyrir Ríkisútvarpið.
Stuðningur við ríkisstjórnina hef-
ur minnkað í samræmi við minna
fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Fylgi VG hefur aukist um 3% frá
síðustu könnun og er nú 20%. Fram-
sóknarflokkurinn hefur sama fylgi,
eða 15%, og fylgi við Samfylkinguna
er 20%, sem er eilítið meira en í maí.
Frjálslyndir mælast með 3% fylgi.
Minna fylgi
Sjálfstæðis-
flokksins
♦ ♦ ♦
ÍSLENDINGUR, sem hefur rekið
hreindýrabúgarð á Grænlandi um
nokkurt skeið, hefur farið þess á leit
við íslensk yfirvöld að hann fái leyfi
til að koma á fót hreindýrabúgarði á
Melrakkasléttu. Embætti yfirdýra-
læknis hefur umsókn mannsins,
Stefáns H. Magnússonar, til umfjöll-
unar og er niðurstöðu að vænta inn-
nan tveggja vikna að sögn Halldórs
Runólfssonar yfirdýralæknis.
Stefán óskar eftir því að fá að
flytja inn 300 dýr frá Grænlandi og
handsama önnur 300 á Austurlandi.
Halldór segir ómögulegt að segja
til um hver niðurstaða embættisins
verður að svo stöddu. Hann segir að
einkum sé það innflutningur dýr-
anna sem sé til skoðunar og segir
Halldór að grænlenski hreindýra-
stofninn sé sá sami og hér á landi.
Vill rækta
hreindýr á
Íslandi
Alfreð Þorsteinsson, formaður Orkuveitunnar,
gagnrýnir skýrslu orkunefndar Kópavogs