Morgunblaðið - 04.07.2001, Side 37

Morgunblaðið - 04.07.2001, Side 37
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 37 GK REYKJAVÍK menn laugavegi konur kringlunni Lokað í dag, útsalan hefst á morgun, fimmtudag kl. 10.02 DRAUMATRÉ okkar Íslendinga er í laginu eins og tré í litabókum. Það hefur beinan, kröftugan stofn og breiða og gróskumikla krónu. Greinar krónunnar eru það voldug- ar að auðvelt er að hengja í þær rólu auk þess sem þær bjóða upp á fjölbreytt- ar æfingar í klifri. Trjá- krónan sjálf er svo um- fangsmikil að íslensk stórfjölskylda getur setið undir trénu í for- sælunni og forðað sér undan heitri sólinni um miðjan daginn. Draumatré okkar Ís- lendinga er garðahlyn- ur. Garðahlynur, Acer pseudoplatanus, er ættaður frá Evrópu og vestur í vestasta hluta Asíu. Hann vex einkum í fjalllendi í heimkynn- um sínum og getur þar náð allt að 40 m hæð. Á Íslandi eru hæstu hlynir rétt um 15 m háir. Krónan verður stór og hvelfd og þarf hlynurinn mikið og gott rými til að hann njóti sín til fulls. Blöðin eru stór og handsepótt og minna á aðra trjátegund, Plat- anus en þaðan kemur einmitt merk- ing tegundarheitis garðahlynsins, pseudoplatanus sem þýðir ,,eins og Platanus“. Garðahlynur er af hlyns- ættinni, Aceraceae en innan hennar eru tvær ættkvíslir, Acer og Dipter- onia sem samtals innihalda um 100 tegundir plantna sem aðallega er að finna á tempruðum svæðum norð- urhvels jarðar. Eitt af sameiginleg- um einkennum hlyntegunda er lög- un blaðanna en þau eru handsepótt til handflipótt. Stærð blaðanna er mjög mismunandi milli tegunda og einnig er fjöldi flipa eða sepa mis- mikill. Garðahlynurinn fær oft sér- lega fallega gula haustliti, í haust- sólinni er jafnvel eins og hann standi í ljósum logum. Fræin eru einkenn- andi fyrir ættkvíslina. Þau eru föst saman tvö og tvö og á hverju fræi er vængur. Vængir fræjanna mynda hvasst horn eða allt að því rétt horn (60- 90°) hver við annan og er þetta atriði oft notað til að greina sundur mismunandi hlynteg- undir. Þegar fræið fell- ur til jarðar gerir vængurinn það að verkum að það eins og skrúfast niður og getur þannig lent í dálítilli fjarlægð frá móður- plöntunni. Í heimkynn- um sínum getur garða- hlynurinn orðið eldgamall eða 400-500 ára þannig að íslensku plönturnar eru flestar hverjar rétt á táningsaldri. Garðahlyni er yfirleitt fjölgað með fræi. Margir þroskaðir garða- hlynir ná að mynda gott fræ hér- lendis og jafnvel eru dæmi um það að þeir sái sér í görðum sem hrein- asta illgresi. Sáningin þarf að fara fram að hausti til sama ár og fræið þroskast því það geymist mjög illa og inniheldur einnig svolítið af spír- unarhindrandi hormónum sem brotna smám saman niður yfir vet- urinn. Að vori spírar fræið og geta sáðplönturnar vaxið um nokkra tugi sentimetra yfir sumarið. Í ná- grannalöndum okkar eru til margir fallegir klónar af garðahlyn og er þeim fjölgað með ágræðslu því mjög erfitt er að fjölga hlyn upp af græð- lingum, sumir ganga jafnvel svo langt að telja það allsendis ómögu- legt. Sem fyrr segir verður garðahlyn- urinn stórt og mikið tré og á það einnig við um rótakerfið, það geng- ur mjög djúpt niður í jarðveginn. Þess vegna þarf jarðvegurinn að vera vel djúpur og frjósamur því garðahlynurinn er frekur til matar síns. Því er mikilvægt að undirbúa jarðveginn mjög vel áður en garða- hlynur er gróðursettur og búa hann undir lífið með ríkulegt nesti af líf- rænum áburði og kalki. Tískusveiflur í plöntuvali hafa haft áhrif á ræktun garðahlyns á Ís- landi. Hlynurinn vex hægt og getur kalið illa á haustin ef frystir snemma. Fyrstu árin eftir að tréð er gróðursett í garði geta því verið dá- lítið erfið, bæði fyrir tréð og fyrir óþolinmóða eigendur þess. Nú á síð- ari árum í kjölfar aspafársins mikla hafa hægvaxta tré fengið uppreisn æru og fara vinsældir garðahlyns vaxandi ár frá ári. Í flestum tilfell- um er garðahlynur fluttur inn til Ís- lands frá Evrópu, oftast Danmörku. Þessar innfluttu plöntur eru mis- duglegar við það að aðlaga sig að ís- lensku loftslagi og getur þær kalið illa fyrstu árin. Plöntur sem rækt- aðar eru upp af íslensku fræi eru ekki endilega betri en þær innfluttu því fræmæðurnar eru jú af sama uppruna. Garðeigendur ættu þó ekki að hræðast það að fá sér garða- hlyn í garðinn sinn, hann sýnir það strax í upphafi hvort hann fellir sig við íslenskt veðurfar eða ekki. Margar aðrar hlyntegundir eru vinsælar garðplöntur og eru þær ýmist ræktaðar vegna blaðanna eða barkarins. Sumar hlyntegundir hafa börk með ákaflega fallegu mynstri og hafa því verið nefndir slönguskinnshlynir (snake bark maples). Kanadamenn láta sér þó ekki nægja að dást að hlyntrjánum úr fjarlægð. Sykurhlynur (Acer saccharum) hefur ákaflega sætan plöntusafa sem notaður er til að búa til hlynsýróp en eins og sigldir Ís- lendingar vita er það algerlega nauðsynlegt út á amerískar pönnu- kökur. Hér í lokin fylgir því sérlega einföld og ljúffeng uppskrift að slíku hnossgæti: 3 bollar hveiti, 1 bolli sykur, 1 egg, 1 tsk matarsódi, mjólk eftir þörfum, slatti af bláberjum ef árstíminn leyfir. Allt hrært saman og deigið haft fremur þykkt. Pönnukökurnar eru steiktar á pönnu og bornar fram með smjöri, osti og hinu ómissandi hlynsýrópi. Verði ykkur að góðu! Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur. GARÐAHLYNUR VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 456. þáttur (ACER PSEUDOPLATANUS) Í KVÖLD, miðvikudagskvöld, 4. júlí heldur Hafnagönguhópurinn áfram að ganga með strönd Skerjafjarðar. Farið verður frá Hafnarhúsinu, Miðbakkamegin, kl. 20 upp Grófina, Aðalstræti og um Austurvöll og í Lækjargötu. Síðan farið með Strætó leið 7 suður í Öskjuhlíð og skógar- gatan gengin suður á Lyngberg við Nauthólsvík, þaðan gengið með ströndinni inn í Fossvogsbotn og út með voginum í Kópavogshöfn. Þar er valið um að ganga til baka eða fara með Strætó inn í Lækjargötu. Hægt verður að stytta gönguferðina og koma í hana við Nesti í Fossvogi um kl. 21. Gengið með strönd Fossvogs UMSÓKNARFRESTUR um há- skólanám með vinnu við Háskólann í Reykjavík rann út 1. júlí og bárust alls 337 umsóknir. Konur eru í meiri- hluta umsækjenda eða um 62%. Mest ásókn reyndist vera í BS-nám, alls 102 umsóknir. Nemendur í háskólanámi með vinnu geta lokið BS-prófi (90 eining- ar) á þremur árum og diploma-prófi (45 einingar) á 21 mánuði. Kennsla fer fram þrjá daga í viku kl. 16 – 19 og eru námsannir þrjár á ári í stað hefðbundinna tveggja námsanna. Alls munu um 100 nemendur fá inn- göngu í námið sem hefst síðustu vik- una í ágúst,“ segir í fréttatilkynn- ingu frá Háskólanum í Reykjavík. Háskólanám með vinnu fær góðar undirtektir ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.