Morgunblaðið - 04.07.2001, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 04.07.2001, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                          !   " #          $  #%   &          '   BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. EINKENNILEGT en satt; fjöldi fólks á Íslandi rétt skrimtir. Aðrir sem vinna hörðum höndum við fóstrustörf, löggæslustörf, almenn samgöngustörf og aðhlynningar- störf ýmiss konar eru svokölluð lægrimiðstétt – og skulu hafa laun samkvæmt því. Miðstéttin aftur á móti, t.d. í verslun og þjónustu, af- sakar sig með stærilæti og er fyrir- tækishugsandi, enda kannski það eina sem hún kann og vill vinna við og er það vel. Fóstra sem vinnur við uppeldi barna okkar, lögreglumaður sem sinnir skyldum sínum, þroskaþjálfi sem hefur hugsjón, strætisvagnsbíl- stjóri sem leggur alúð í starfið. Þetta fólk þarf að lifa ekki síður en jakkafataklæddur alviti hjá Kaup- þingi eða öðrum viðlíka fyrirtækjum og stofnunum. Hvert stefnir? Jú, sagt er að bilið á milli þeirra ríku og þeirra fátæku breikki. Er það lögmál? Nei. Eðli mannsins er undarlegt en samt höfum við öll þá þörf að fæða okkur. Síðan er það kynþörfin að fjölga okkur. Síðan er það sennilega þörfin á að trúa á eitthvað. Að mínum dómi er velvild og heiðarleiki æðra en metnaðargildi og græðgi – og skyldi því vera í fjórða sæti. Það myndi virkilega vera athyglivert ef einhver vildi tjá sig um, hvaða boðorð komi næst. Mín tillaga er sú að einu prósenti verði bætt á skatta sem renni ein- göngu til ofangreindra stétta. Vissu- lega skapar þetta röskun en byrjum á því að meta störf þeirra sem vinna með hjartalagi og alúð. Með vinsemd og virðingu, HELGI STEINGRÍMSSON, Jörfabakka 18, Rvk. Sýnum sanngirni – ekki græðgi Frá Helga Steingrímssyni: EKKI treysti ég mér til að kasta tölu á þau skipti sem ég hef séð La Bohéme á sviði. Mafalda Favero, Margareta Caros- io, Maria Cebotari og Anna Moffo eru meðal margra frægra söng- kvenna sem ég hef séð túlka Mimi og Giuseppe Lugo, Prandelli, Kjepura og Rud- olf Schock eru mér allir eftir- minnilegir í hlutverki Rodolfos; svo sá ég auðvitað sýningar Þjóðleikhússins á óperunni á sínum tíma, þar sem Kristján Jóhannsson gat sér nafn með þjóðinni sem óperusöngvari. Þrátt fyrir það tókst Íslensku óp- erunni að sýna mér ýmsar nýjar hlið- ar á La Bohéme í uppfærslu sinni á liðinni leiktíð. Sýningin í Gamla bíói kom oft á óvart og leikstjórinn, áreið- anlega tilneyddur, nýtti sér húsið í hörgul; kórfélagar voru um allt, söngvararnir komu úr öllum áttum og þeystu upp á svið, aðrir sungu hlut- verk sín ofan úr stúkunni, og gestir fengu á tilfinninguna að þeir væru lentir í miðju Latínuhverfinu í París, að þeir sætu í hringiðu atburðanna, og það má auðvitað til sanns vegar færa. Ég sá uppfærsluna í Gamla bíói þrisvar og held að það hljóti að vera persónulegt met. Ég er, vona ég, þekktur fyrir annað en miskunnarlausa listrýni og sparða- tínslu og að byggja álit mitt á tilfinn- ingu. Ég læt sálina tala fremur en kalda rökhyggju og segi einfaldlega að ég hafi orðið stórhrifinn. Og ég var ekki einn um það. Í hvert sinn varð ég var við fölskvalausa hrifningu í saln- um. Auk þess var uppselt á allar sýn- ingar. Til hamingju með það, góðu lista- menn á fjölum Gamla bíós. Óperu- stjórnin má líka vel við una og getur einskis frekar óskað sér (nema gróða auðvitað, sem er erfitt ef ekki óger- legt í þessu litla og þrönga húsi). Íslenskir söngvarar voru í öllum hlutverkum. Auður Gunnarsdóttir og Sólrún Bragadóttir sungu hlutverk Mímíar fallega og sannfærandi; Sól- rún bjó þó að meiri reynslu. Kolbeinn Jón Ketilsson, fyrrverandi nemandi minn, er eftirminnilegur í hlutverki Rodolfos, hann söng með glæsibrag og af öryggi hins þjálfaða fagmanns. Bergþór Pálsson var Marcello og mér finnst hann enn vera að vaxa sem söngvari, hann túlkaði þetta klassíska hlutverk með sínum hætti og var skemmtilegur á sviði. Svo var unun að hlýða á þær Hlín Pétursdóttur og Þóru Einarsdóttur syngja í hlutverki hinnar veraldarvönu Musettu, aðra að byrja sinn feril, hina vanari. Góður var einnig Viðar Gunnarsson sem heimspekingurinn Colline, en ekki heyrði ég Guðjón Óskarsson, þegar hann söng hlutverkið, og er annar tveggja nemenda minna sem sungið hafa á sviði La Scala í Mílanó. Loks vil ég geta Ólafs Kjartans Sigurðssonar í hlutverki Schaunards. Hann skilaði sínu mjög vel, bæði söng og ekki síður leik, en á hann reynir í þessu hlut- verki. Ég sá sem sagt og heyrði næstum alla söngvarana sem tóku þátt í upp- færslu Óperunnar á La Bohéme. Þeir stóðu sig með slíkri prýði að taka má undir með auglýsendum íslensks lambakjöts þegar þeir segja: Íslenskt, já takk! En hvenær fáum við hús sem hæfir svona söngleikjum? Þótt ég dáist að hugmyndaauðgi leikstjóranna í Gamla bíói er ég orðinn þreyttur á því að horfa á óperusýningar, sem eru í eðli sínu stórar og glæsilegar, eins og þeim hafi verið troðið ofan í sardínu- dós. Ég var á fundi fyrir fjölmörgum árum þar sem var hafin söfnun til þess að byggja hús fyrir tónlist, þar sem óperan myndi eignast framtíðar- heimili. Nú skilst mér á blaðagreinum sumra af frambærilegustu söngvur- um Íslands að fyrirhugað hús eigi ekki að hýsa óperuna. Það væri synd og skömm, ef satt er. Mitt framlag til söfnunarinnar væri þá fengið á röng- um forsendum og svo væri um marga fleiri. Óperan er búin að afplána nógu mörg ár í Gamla bíói. Hún á það skilið að komast í stórt og gott hús, þar sem hún fær að njóta sín til fullnustu. Ég vona að óperuáhugamenn á Íslandi verði ekki sviknir um það. SIGURÐUR DEMETZ FRANZSON söngkennari. Óperan þarf betra hús Frá Sigurði Demetz Franzsyni: Sigurður Demetz Franzson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.