Morgunblaðið - 04.07.2001, Blaðsíða 44
FÓLK Í FRÉTTUM
44 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Andsetinn
(Possessed)
H r o l l v e k j a
Leikstjórn Steven E. De Souza. Að-
alhlutverk Timothy Dalton, Henry
Czerny. (100 mín.) Bandaríkin
2000. Skífan. Bönnuð innan 16 ára.
ÞESSI sjónvarpsmynd er sögð
fjalla um eina særingartilfellið sem
kaþólska kirkjan hefur fyrirskipað og
skjalfest í samtímanum. Sú harða
rimma við drottn-
arann í neðra var
háð á 7. áratugnum
í Bandaríkjunum,
þegar hann á að
hafa tekið sér ból-
festu í líkama ungs
rauðhærðs dreng-
hnokka.
Timothy Dalton
leikur prestinn sem
framkvæmir særinguna, þjakaður af
samviskubiti og eftirsjá vegna atviks
sem átti sér stað þegar hann var her-
prestur í síðari heimsstyrjöldinni.
Þrátt fyrir að hér eigi augljóslega
að vera á ferð hrollvekja, þá er þessi
ótrúlega saga alveg undarlega lítið
spennandi og ekki vitund skelfileg.
Það er erfitt að henda reiður á hvað
veldur, of lík hinni langtum betri The
Excorcist eða hreinlega alltof jarð-
bundin? Það liggur nærri að halda að
handritið sé eiginlega bara einhver
B.A. ritigerð, svo þurrt og leiðinlegt
er það og ekki bjargar fúli-Bond,
hann Dalton, neinu.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Svæfandi
særingar
LARA CROFT – Tomb Raider –
var sú mynd sem flestir höfðu
áhuga á að sjá í bíóhúsum landsins
um síðustu helgi. Myndin var frum-
sýnd formlega á föstudag og ekk-
ert skrítið að landinn væri forvitinn
að sjá hana í ljósi þess að tökur
fóru að stórum hluta fram á há-
lendinu, þar sem Lara eltist við
vonda karla, vaðandi alíslenskt jök-
ulkrapið upp að hnjám.
Tomb Raider hefur gengið hreint
bærilega vestra og virðist ætla að
skila vænum hagnaði, eins og
reyndar búist var við af svo stórri
sumarmynd. Myndin er önnur
tveggja erlendra mynda
sem uppfyllir tilskildar
kröfur um að fá end-
urgreitt frá íslenska
ríkinu 12% af þeim
kostnaði sem fór í
tökurnar hér á landi.
Ætti hagur framleið-
enda því að vænkast
enn við þá fúlguna.
„Myndin hefur fengið
rífandi aðsókn síðan hún
var forsýnd á fimmtudag,“
segir Magnús Gunnars-
son hjá dreifingaraðil-
anum Myndformi.
„Frá fimmtudegi
til sunnudags
sóttu hana 10.800
manns og það
þrátt fyrir að veðrið
hafi verið frábært yfir
mestanpart helgarinn-
ar.“ Hann bætti við að
þrjú þúsund manns
hafi svo séð myndina á mánudags-
kvöldið og telur því útlitið bjart,
gerir ráð fyrir að yfir 30 þúsund
manns sjái myndina:„Við höfum
óhikað sett markið á 40 þúsund.“
Magnús segir að umfjöllunin sem
myndin hefur fengið í fjölmiðlum
vegna tengsla hennar við Ísland
hafi eflaust sitt að segja um áhug-
ann en bætir við að hér sé þar að
auki á ferð alveg skotheld ævin-
týramynd, svona ekta afþreying
sem bíóunnendur sæki eftir á þess-
um árstíma.
Önnur tíðindi af listanum eru
þau að sænska myndin Tillsamm-
ans er komin í 6. sætið en þetta er
nýjasta mynd Lukasar Moodysson-
ar, þess er gerði hina mögnuðu og
vinsælu unglingamynd Fucking
Åmål. Tillsammans fjallar um líf
nokkurra ungmenna sem búa
saman í kommúnu og hefur hún
gert það gott á kvikmyndahá-
tíðum víða um heim undanfar-
ið.
Síðasta skal telja bresku
myndina About Adam sem
er komin í 10. sætið en
þar fer lítil og
nett rómantísk
gamanmynd
með hjartað á
réttum stað
með ný-
stirninu
Kate Hud-
son, úr Al-
most Famo-
us, í einu
aðalhlutverka.
!
"
" #
$%&
!"#
$$ %&
!
$ "
!
(
#
)*
++ ,
-
(.
%
&
'
(
)
*
&
+
,
-
&
.
/
'0
''
'+
'*
'(
')
(+
',
1
2
(
)
(
-
2
(
-
+
2
.
*
-
'0
')
'/
/
-
,
/
345678 9417 5678 :2; %5118 5678 <% 61
=58 345678 567 :18 < 5678 &> 567 <% 61
67!? 8 6758 < 5678 &> 67 <%8 :18 9@61
67!? 8 &> 67 :1 =58 345678 567 :18 "
9417 567
9417 567
67!? 8 < 5678 &> 67 :1 >?5678 34567
>?567
67!? 8 < 5678 :18 A%>?
67!? 8 :18 9%>?
9417 567
6758 :1 67!? 8 9@61
675 67!? 8 < 567
=5 B#%>?
=5 Sannkölluð
Croft í krapinu
Laðandi-Lara.
Tomb Raider vinsælasta bíómynd helgarinnar
ÍÞRÓTTIR
mbl.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Á leikferð um landið:
!" ! !
#$ %
!&'## (&!#) * ! !#+ !#
, -&./-
& #
!" #" $% $&''()&
% *+ "" ,% &-- ..'//**!""0+1!2/!
333 & ( $4 & (
HEDWIG KL. 20.30
Forsýning mið 4/7 UPPSELT
Frumsýning fim 5/7 UPPSELT
Lau 7/7 A,B,C,D,E,F,G,H&I kort gilda
örfá sæti laus
Fös 13/7
Lau 14/7
Hádegisleikhús KL. 12
RÚM FYRIR EINN
fim 5/7 nokkur sæti laus
Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og
frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í
síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða
530 3037.
midasala@leik.is — www.leik.is
Miðasölusími er 530 3030
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Fös 6. júlí kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 14. júlí kl. 20 - NOKKUR LAUS SÆTI
Lau 21. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI
Fös 27. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI
Síðustu sýningar í sumar
WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason
Stórsöngleikur Leikfélagsins WMU
Verslunarskóla Íslands
Í KVÖLD: Mið 4. júlí kl. 20 – Frumsýning
Lau 7. júlí kl. 20
Sun 8. júlí kl. 20
Ath. TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið