Morgunblaðið - 04.07.2001, Síða 52

Morgunblaðið - 04.07.2001, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. VIÐRÆÐUR samninganefnda Þroskaþjálfafélags Íslands og samn- inganefndar ríkisins sigldu í strand hjá ríkissáttasemjara síðdegis í gær, eftir að nokkuð hafði dregið saman með deiluaðilum á mánudag. Gunnar Björnsson, formaður samninga- nefndar ríkisins, segir kröfur þroska- þjálfa alltof háar, en Sólveig Steins- son, formaður Þroskaþjálfafélagsins, segir að ekki hafi verið komið til móts við þroskaþjálfa. Næsti fundur hefur verið boðaður 11. júlí. Sólveig segir viðræðurnar hafa strandað á launaliðnum. „Við teljum raunhækkun heildarlauna ekki vera nægjanlega,“ segir hún. Þroskaþjálfar settu í upphafi fram kröfu um 145 þúsund króna byrjun- arlaun og segir Sólveig að til þessa hafi ríkið boðið heildarhækkun sem er langt fyrir neðan þær kröfur. Gunnar segir að þroskaþjálfar setji fram alltof miklar kröfur. Aðrir háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn hafi verið að semja um 104-108 þús- und króna byrjunarlaun. Gunnar bendir á að aðeins tæp þrjú ár séu síðan þroskaþjálfanám fór á háskóla- stig hér á landi. „Þau verða að horf- ast í augu við að þau eru nýorðin há- skólastétt og eru, þó að stór hluti þeirra sé ekki með háskólapróf, að gera kröfu til þess að allir verði settir við sama borð,“ segir Gunnar. „Við höfum boðið þeim sambæri- legt launakerfi og aðrir háskólamenn hafa samið um og við erum ekki til- búnir til að bjóða þeim meira en öðr- um háskólamönnum,“ segir Gunnar. Sólveig segir að þroskaþjálfar séu ósáttir við hversu mikill hluti af yfir- vinnunni eigi að fara inn í dagvinnu- launin í launakerfinu sem ríkið hefur boðið. Gunnar segir aftur á móti að þetta sé það sama og aðrir háskóla- menn hafi samið um. Sólveig segist hafa verið bjartsýn eftir fundinn á mánudag. Hún segir fátt gefa tilefni til bjartsýni nú og segir að hún hafi ekki búist við að svo langt yrði til næsta fundar. Verkfallið bitnar á um ellefu hundruð þroskaheftum einstakling- um, sem annaðhvort missa þjónustu alveg, eða að hluta til. Sólveig segir að ástandið sé víða orðið mjög erfitt, bæði fyrir einstaklingana og fjöl- skyldur þeirra. Fengu ekki greidd laun Fimm þroskaþjálfar, sem starfa hjá Landspítalanum – háskóla- sjúkrahúsi og ekki hafa verkfallsrétt sökum mikilvægis starfa þeirra, hafa ekki fengið greidd laun fyrir störf sín eftir að verkfallið hófst. Í frétt frá þroskaþjálfum segir að ekki hafi fengist skýr svör við hverju þetta sæti og að launadeild sjúkrahússins muni ekki leiðrétta þessi mistök fyrr en 13. júlí nk. Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfor- stjóri spítalans og staðgengill for- stjóra, segir að hugsanlega hafi mis- tök verið gerð á launadeild sjúkra- hússins og að sé svo verði því kippt í liðinn samstundis. Næsti fundur í deilu þroskaþjálfa og ríkisins eftir viku Viðræður stranda á launaliðnum BANDARÍSK herflugvél af Hercul- es-gerð flaug í sjónflugi í hringi lágt yfir Skjálfandaflóa í gær. „Þetta flug hefur eflaust ekki fælt hvalina frá, en það hefur mik- ið spillt fyrir upplifun manna í skoðunarferðunum,“ sagði Heimir Harðarson sem gerir út á hvala- skoðunarferðir á Flóanum. Heimir Már Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Flugmálastjórnar, seg- ir að kvartað hafi verið yfir flugi herflugvélarinnar í gær og einnig sl. föstudag. „Við væntum þess að fá skýringar frá varnarliðinu fyrir helgi,“ sagði hann. Að sögn Heimis þarf umrætt flug hvorki að vera óleyfilegt né ólöglegt, en hins veg- ar geti það verið hvimleitt fyrir rekstur ferðaþjónustu á þessum slóðum. Morgunblaðið/Heimir Bandaríska herflugvélin flaug lágt yfir Skjálfandaflóa í gær, en skammt frá var bátur með erlenda ferðamenn í hvalaskoðunarferð. Kvartað yf- ir lágflugi á hvalaslóð sem ríkið fær við sölu á hlut sínum í bönkunum verði ráðstafað áfram í þágu landsbyggðarinnar með því að styrkja fjárhag og útlánagetu Byggðastofnunar,“ sagði Theodór að auki í ræðu sinni. Kristinn H. Gunnarsson, stjórnar- formaður Byggðastofnunar, sagði m.a. í sínu erindi að tregðu gætti við að framfylgja skýrri stefnumörkun Alþingis á flutningi ríkisstofnana út á land. Beitt væri mótsagnakenndum viðbárum. Þetta væri umhugsunar- efni og gera yrði þá kröfu að staðið væri við stefnu Alþingis og látið af undanslætti og vífilengjum. Unnið að mótun nýrrar byggðaáætlunar Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra sagðist í samtali við Morg- unblaðið vita af þeim vanda sem Byggðastofnun stæði frammi fyrir og skoða mætti aðgerðir í því sambandi. BRÝN þörf er á að styrkja lánastarf- semi Byggðastofnunar, að mati Theodórs A. Bjarnasonar, nýs for- stjóra stofnunarinnar, en ársfundur Byggðastofnunar fór fram á Hótel Selfossi í gær. „Ásókn í lánsfé hefur ekki verið meiri en nú og kemur þar m.a. til að stærri fyrirtæki á landsbyggðinni eru aftur farin að snúa sér til Byggða- stofnunar. Þá er því ekki að leyna að svo virðist sem bankarnir reyni að komast hjá því að veita há lán til langs tíma til fyrirtækja á smærri stöðum,“ sagði Theodór og benti á að lánsumsóknum hefði fjölgað um 23% milli áranna 1999 og 2000, eða úr 248 í 305, og það sem af væri árinu væri aukningin 26%. Áætlað er að aðeins 30-40% umsókna fái jákvæða af- greiðslu og er lánsfé þessa árs sam- kvæmt fjárheimildum þegar uppurið. „Að mínu mati ætti það að liggja beint við að hluta af þeim fjármunum Hún sagði það reyndar orðum aukið að bankarnir neituðu fyrirtækjunum almennt um lán. Hún hefði gengið úr skugga um það með fyrirspurn til bankanna á liðnu ári. En hún sagðist geta tekið undir það að hluta af sölu- virði ríkisbankanna yrði varið til stuðnings Byggðastofnun. Hún flutti erindi á ársfundinum og rakti þar nýjar áherslur stjórnvalda í byggðamálum. Vinna við mótun nýrrar byggðaáætlunar til ársins 2006 væri hafin með skipun verkefn- isstjórnar og vinnuhópa. Vinnan mið- aði að því að þróttmikil byggð gæti þrifist í öllum landshlutum þar sem það væri skylda hins opinbera að stýra byggðaþróuninni eins og kostur væri. Kallaði Valgerður þar m.a. eftir samstarfi við sveitarfélögin, atvinnu- lífið og fólk í menningarmálunum. Hún sagði það til dæmis mikilvægt að efla aðgang fólks á landsbyggðinni að menntun. Brýnt að stofnunin fái aukið lánsfé Forstjóri Byggðastofnunar á ársfundi á Selfossi í gær BRÉFDÚFA sem merkt var á báð- um fótum sást á Blönduósi í gær og lék mörgum forvitni á að vita hvernig stæði á veru hennar. Að sögn Eggerts Snorrasonar, áhugamanns um bréfdúfnarækt, fór fram bréfdúfnakeppni á veg- um Bréfdúfnafélags Reykjavíkur um síðustu helgi frá Grímsstöðum á Fjöllum, en þar um slóðir er talsvert um fálka á hreiðrum. „Það var mjög skýjað þegar keppnin fór fram og þá eru dúf- urnar lengi að finna réttu áttina. Fálkar hafa því komist í hópinn sem í framhaldinu tvístraðist um allt land. Einhverjar dúfur komu heim, en aðrar gáfust upp á flug- inu og svo eru þær ekki vanar að bjarga sér útivið,“ segir Eggert. Því er mögulegt að dúfan á Blönduósi nái að komast til síns heima í Reykjavík eftir nokkra daga, finni hún sér æti og geti byggt sig upp fyrir flugið. Ljósmynd/Jón Sigurðsson Dúfan hvílir lúin bein á Blöndu- ósi eftir langt flug frá Gríms- stöðum á Fjöllum. Fálki tvístr- aði hópi bréfdúfna ÞÝSKUR ferðamaður, 34 ára að aldri, lést í sundlauginni á Skógum undir Eyjafjöllum seint á mánudags- kvöld. Dánarorsök hefur ekki verið staðfest. Tildrög slyssins hafa verið tekin til rannsóknar hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Vinnueftirlit ríkisins og Heilbrigðisnefnd Suðurlands að- stoða við rannsóknina. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Hvolsvelli var maðurinn ásamt unnustu sinni í sundlauginni þegar slysið varð en engir aðrir voru viðstaddir. Parið hafði komið hingað til lands til að ganga í hjónaband og voru gestir á Edduhótelinu á Skóg- um en sundlaugin tilheyrir hótelinu. Unnusta mannsins dvelur meðal vina hérlendis. Lést í sund- lauginni á Skógum ♦ ♦ ♦ ÞRÍR krókaleyfisbátar lögðu upp frá Ísafirði í gærkvöldi ásamt móð- urskipi til grálúðuveiða norður af Ísafjarðardjúpi. Bátarnir, sem eru allir undir sjö tonnum, ætla að leggja línuna á um 500 metra dýpi nyrst á Strandagrunninu og er hugmyndin að leggja átta bala eða fjögur þúsund króka í einu og hafa ból á báðum endum. Móðurskipið Stundvís, sem er í raun aðeins 25 tonna rækjubátur, verður með um 300 bala af beittri línu og aukaolíubirgðir fyrir línu- bátana. Á hverjum bátanna fjög- urra er tveggja manna áhöfn og er ætlunin að vera í tvo til þrjá daga. Veiðibátarnir mega ekki landa í móðurskipið, þar sem bannað er að flytja afla milli skipa á sjó, og tak- markast því veiðarnar við burðar- magn bátanna en að sögn kunn- ugra gætu þeir komið með allt að sjö tonnum af grálúðu á bát ef allt gengur vel og veður helst gott. Á miðunum eru nú þrjár trillur úr Bolungarvík í sínum öðrum róðri en aflinn í fyrri róðrinum var um eitt og hálft tonn á bát. Til 1. september eru grálúðu- veiðarnar utan kvóta hjá króka- leyfisbátunum og eru sjómennirnir að nýta síðustu möguleikana til frjálsra veiða en mjög dræm veiði er nú á hefðbundnum línuveiði- svæðum Vestfirðinga. Á miðin með móðurskipi Ísafirði. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.