Morgunblaðið - 04.07.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.07.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Ég er lögð í einelti, og jafnvel hótað lífláti. GLOBAL Business Television vinnur nú að gerð 30 mínútna sjón- varpsþáttar um viðskiptalífið á Ís- landi fyrir bandarísku viðskiptasjónvarpsstöðina CNBC. Í þættinum eru sex íslensk fyr- irtæki kynnt sérstaklega og meðal annars rætt við Davíð Oddsson forsætisráðherra. Þættinum er ætlað að kynna íslenskt atvinnulíf fyrir hugsanlegum fjárfestum en þeir eru mikilvægur markhópur CNBC. Chris Munz, aðstoðarframleið- andi þáttarins, sagði að vinna við þáttinn hér á landi hefði staðið í einn mánuð og upptökum ljúki eft- ir viku. „Forsætisráðherra og sjáv- arútvegsráðherra hafa veitt okkur viðtöl, við höfum rætt við talsmenn ráðuneyta fjarskipta- og ferðamála og einnig höfum við kynnt okkur verðbréfamarkaðinn,“ sagði hann. Munz vildi ekki upplýsa hvaða fyrirtæki yrðu kynnt sérstaklega því gerð þáttarins væri ekki lokið en hann sagði að reynt væri að kynna þær atvinnugreinar sem vekja áhuga fjárfesta. „Við höfum kynnt okkur upplýsinga- og tækni- fyrirtæki, fjármálaheimurinn vek- ur alltaf áhuga fjárfesta og þá höf- um við kynnt okkur fyrirtæki, sem nú þegar hafa verið skráð á er- lenda verðbréfamarkaði.“ Eitt af þeim fyrirtækjum sem kynnt verða sérstaklega í þættin- um er Síminn, að sögn Hrefnu Bachmann, markaðsstjóra fyrir- tækjaþjónustu Símans. Ekki hefur verið ákveðið ná- kvæmlega hvenær þátturinn verð- ur sendur út en það verður, að sögn Munz, í lok júlí eða byrjun ágúst á CNBC-Europe. Íslenskt atvinnulíf kynnt fjárfestum á CNBC Atferlismeðferð fyrir börn með einhverfu Eftirsótt sér- fræðiþekking UNDANFARIN sexár hafa íslenskirvísindamenn tekið þátt í fjölþjóðlegri rann- sókn á árangri atferlismeð- ferðar á ung börn með ein- hverfu. Sigríður Lóa Jónsdóttir hefur unnið við þessa rannsókn frá upphafi og segir væntanlegar nið- urstöður veita von um bætta möguleika ein- hverfra til að aðlagast sam- félaginu og ná þroska. „Fyrri rannsókn á ár- angri atferlismeðferðar sýndi að tæplega helming- ur barna með einhverfu náði þroska og færni jafn- aldra sinna eftir að hafa notið þessarar meðferðar, þannig að við þurfum með- al annars að kanna áreið- anleika niðurstaðnanna. Margir líta á einhverfu sem ævi- langa fötlun en samt er ekki hægt að líta fram hjá því að niðurstöður rannsókna á öflugri atferlismeð- ferð hafa sýnt fram á að hluti barnanna nær það góðum árangri að þau búa ekki lengur við þessa fötlun. En þó að ein rannsókn sýni fram á þetta eru niðurstöðurnar ekki áreiðanlegar fyrr en aðrar rannsóknir hafa náð sambæri- legum árangri.“ - Nú hefur þú farið til Ísraels sem ráðgjafi við meðferð. Geturðu sagt okkur frá þeim ferðum? „Það er einmitt tengt þessu fjöl- þjóðlega rannsóknarverkefni. Síð- astliðin ár hafa fyrirliggjandi nið- urstöður verið kynntar á ráðstefnum hér og þar og þær eru farnar að vekja nokkra athygli. Nú berast sífellt beiðnir til yfirstjórn- enda rannsóknarinnar um að koma og byggja upp eða veita ráð- gjöf við meðferð á börnum með einhverfu þar sem þekkingu vant- ar. Það er mjög mikil eftirspurn eftir þessari þekkingu en ég gat lengi vel ekki orðið við þessum beiðnum því verkefnin á Íslandi voru ærin. Síðasta vetur fór svo að rofa til og ég sá fram á möguleika á að taka þátt í svona starfi. Hlaut ég þar hvatningu og stuðning yf- irmanna minna á Greiningarstöð- inni. Þá var fyrirliggjandi beiðni frá Ísrael. Sú ferð átti sér langan aðdraganda. Henni seinkaði vegna tvísýns ástands í Ísrael en ég fór út í apríl og það er ráðgert að ég fari reglulega næstu tvö árin. Ég tengist meðferðarteymum nokk- urra barna. Teymi eru allir þeir sem koma nálægt daglegri með- ferð barnsins; sérfræðingar, með- ferðaraðilar og foreldrar. Þessum teymum veiti ég þjálfun í beitingu meðferðarinnar sem felst til dæm- is í því að takast á við ýmiss konar óæskilega hegðun eins og sjálfs- örvandi og sjálfsmeiðandi hegðun. Við reynum að brjóta upp þessa hegðun og kenna þeim meiri sveigjanleika í hegðun og hugsun. Auk þess kennum við barninu nýja færni. Í Ísrael skortir mik- ið á þekkingu á með- ferð og því hafa foreldrar og stofn- anir tekið sig saman um að flytja inn þekkingu tímabundið.“ - Hér er því um að ræða þekk- ingarútflutning frá Íslandi? „Já, og foreldrar þessara barna vita að tíminn er svo dýrmætur að ekki er hægt að bíða eftir fólki úr námi erlendis.“ - Telurðu íslenska sérfræðinga hafa mikið fram að færa í alþjóð- legu samstarfi? „Já, íslenskir sérfræðingar hafa verið mjög duglegir við að afla sér bestu mögulegu þekkingar í sam- bandi við greiningu, meðferð og kennslu, þannig að það er mikil þekking fyrir hendi á Íslandi og við erum fullfær í alþjóðlegt sam- starf. En þó að þekkingin sé til staðar á Íslandi skortir heilmikið upp á að þjónustuþörfinni sé full- nægt hér. Það þarf að fjölga þeim sem hafa sérþekkingu á sviði með- ferðar, kennslu og ráðgjafar til þess að hægt sé að bjóða upp á öfl- uga faglega þjónustu. Greiningar- stöðin hefur komið til móts við það með því að bjóða upp á námskeið fyrir foreldra og fagfólk. En það þarf meira til og þar strandar allt á fjármagninu. Þau ráðuneyti sem bera ábyrgð á þessum málaflokki hafa ekki veitt fjármagn í hann í takt við þróunina. Fleiri greinast með einhverfu nú en fyrir nokkr- um árum og þjónustukerfið hefur ekki getað brugðist sem skyldi við þeirri staðreynd. Það sem skiptir máli í þessu samhengi er að byrja snemma á því að veita börnum með þroska- frávik vandaða og markvissa þjón- ustu. Það hefur sýnt sig að það er hægt að draga úr áhrifum fötlun- arinnar á seinni lífsskeiðum ef börnin og fjölskyldur þeirra njóta viðeigandi þjónustu strax frá unga aldri. Nokkur sveitarfélög hafa þó sem betur fer brugðist við þörf- inni og eru að byggja upp sérþekkingu hjá sér.“ - Hvað er svo fram undan? „Í ágúst munu verkefnastjórar rannsóknarinnar funda hér á Ís- landi. Þar munu menn kynna fyr- irliggjandi árangur og nýjustu þróun í meðferðinni. Einn þátttak- endanna verður með opið nám- skeið 30. ágúst með yfirskriftinni Skrifuð orð sem tjáskiptatæki fyr- ir börn með einhverfu sem ekki hafa vald á talmáli. Síðan fer að koma að því að við förum að birta niðurstöður rannsóknarinnar í við- urkenndum fag- og vísindaritum.“ Sigríður Lóa Jónsdóttir  Sigríður Lóa Jónsdóttir fædd- ist í Reykjavík 1952. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum við Hamrahlíð 1972, BA- prófi í sálfræði frá Háskóla Ís- lands 1977 og embættisprófi í sálfræði frá Árósaháskóla 1980. Sigríður stundaði framhaldsnám við UCLA 1993-94. Hún fékk sér- fræðiviðurkenningu á sviði fötl- unar barna árið 1994. Sigríður hóf störf árið 1995 á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og starfar auk þess að fjölþjóðlegu rannsóknarverkefni. Sigríður er gift Sigurði Inga Ásgeirssyni kvikmyndagerðarmanni og þau eiga eina dóttur. Vantar fleiri sér- fróða aðila í þjónustu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.