Morgunblaðið - 04.07.2001, Side 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 37
GK REYKJAVÍK
menn
laugavegi
konur
kringlunni
Lokað í dag, útsalan hefst
á morgun, fimmtudag kl. 10.02
DRAUMATRÉ okkar Íslendinga
er í laginu eins og tré í litabókum.
Það hefur beinan, kröftugan stofn
og breiða og gróskumikla krónu.
Greinar krónunnar eru það voldug-
ar að auðvelt er að hengja í þær rólu
auk þess sem þær
bjóða upp á fjölbreytt-
ar æfingar í klifri. Trjá-
krónan sjálf er svo um-
fangsmikil að íslensk
stórfjölskylda getur
setið undir trénu í for-
sælunni og forðað sér
undan heitri sólinni um
miðjan daginn.
Draumatré okkar Ís-
lendinga er garðahlyn-
ur.
Garðahlynur, Acer
pseudoplatanus, er
ættaður frá Evrópu og
vestur í vestasta hluta
Asíu. Hann vex einkum
í fjalllendi í heimkynn-
um sínum og getur þar
náð allt að 40 m hæð. Á
Íslandi eru hæstu hlynir rétt um 15
m háir. Krónan verður stór og
hvelfd og þarf hlynurinn mikið og
gott rými til að hann njóti sín til
fulls. Blöðin eru stór og handsepótt
og minna á aðra trjátegund, Plat-
anus en þaðan kemur einmitt merk-
ing tegundarheitis garðahlynsins,
pseudoplatanus sem þýðir ,,eins og
Platanus“. Garðahlynur er af hlyns-
ættinni, Aceraceae en innan hennar
eru tvær ættkvíslir, Acer og Dipter-
onia sem samtals innihalda um 100
tegundir plantna sem aðallega er að
finna á tempruðum svæðum norð-
urhvels jarðar. Eitt af sameiginleg-
um einkennum hlyntegunda er lög-
un blaðanna en þau eru handsepótt
til handflipótt. Stærð blaðanna er
mjög mismunandi milli tegunda og
einnig er fjöldi flipa eða sepa mis-
mikill. Garðahlynurinn fær oft sér-
lega fallega gula haustliti, í haust-
sólinni er jafnvel eins og hann standi
í ljósum logum. Fræin eru einkenn-
andi fyrir ættkvíslina. Þau eru föst
saman tvö og tvö og á
hverju fræi er vængur.
Vængir fræjanna
mynda hvasst horn eða
allt að því rétt horn (60-
90°) hver við annan og
er þetta atriði oft notað
til að greina sundur
mismunandi hlynteg-
undir. Þegar fræið fell-
ur til jarðar gerir
vængurinn það að
verkum að það eins og
skrúfast niður og getur
þannig lent í dálítilli
fjarlægð frá móður-
plöntunni. Í heimkynn-
um sínum getur garða-
hlynurinn orðið
eldgamall eða 400-500
ára þannig að íslensku
plönturnar eru flestar hverjar rétt á
táningsaldri.
Garðahlyni er yfirleitt fjölgað
með fræi. Margir þroskaðir garða-
hlynir ná að mynda gott fræ hér-
lendis og jafnvel eru dæmi um það
að þeir sái sér í görðum sem hrein-
asta illgresi. Sáningin þarf að fara
fram að hausti til sama ár og fræið
þroskast því það geymist mjög illa
og inniheldur einnig svolítið af spír-
unarhindrandi hormónum sem
brotna smám saman niður yfir vet-
urinn. Að vori spírar fræið og geta
sáðplönturnar vaxið um nokkra tugi
sentimetra yfir sumarið. Í ná-
grannalöndum okkar eru til margir
fallegir klónar af garðahlyn og er
þeim fjölgað með ágræðslu því mjög
erfitt er að fjölga hlyn upp af græð-
lingum, sumir ganga jafnvel svo
langt að telja það allsendis ómögu-
legt.
Sem fyrr segir verður garðahlyn-
urinn stórt og mikið tré og á það
einnig við um rótakerfið, það geng-
ur mjög djúpt niður í jarðveginn.
Þess vegna þarf jarðvegurinn að
vera vel djúpur og frjósamur því
garðahlynurinn er frekur til matar
síns. Því er mikilvægt að undirbúa
jarðveginn mjög vel áður en garða-
hlynur er gróðursettur og búa hann
undir lífið með ríkulegt nesti af líf-
rænum áburði og kalki.
Tískusveiflur í plöntuvali hafa
haft áhrif á ræktun garðahlyns á Ís-
landi. Hlynurinn vex hægt og getur
kalið illa á haustin ef frystir
snemma. Fyrstu árin eftir að tréð er
gróðursett í garði geta því verið dá-
lítið erfið, bæði fyrir tréð og fyrir
óþolinmóða eigendur þess. Nú á síð-
ari árum í kjölfar aspafársins mikla
hafa hægvaxta tré fengið uppreisn
æru og fara vinsældir garðahlyns
vaxandi ár frá ári. Í flestum tilfell-
um er garðahlynur fluttur inn til Ís-
lands frá Evrópu, oftast Danmörku.
Þessar innfluttu plöntur eru mis-
duglegar við það að aðlaga sig að ís-
lensku loftslagi og getur þær kalið
illa fyrstu árin. Plöntur sem rækt-
aðar eru upp af íslensku fræi eru
ekki endilega betri en þær innfluttu
því fræmæðurnar eru jú af sama
uppruna. Garðeigendur ættu þó
ekki að hræðast það að fá sér garða-
hlyn í garðinn sinn, hann sýnir það
strax í upphafi hvort hann fellir sig
við íslenskt veðurfar eða ekki.
Margar aðrar hlyntegundir eru
vinsælar garðplöntur og eru þær
ýmist ræktaðar vegna blaðanna eða
barkarins. Sumar hlyntegundir
hafa börk með ákaflega fallegu
mynstri og hafa því verið nefndir
slönguskinnshlynir (snake bark
maples). Kanadamenn láta sér þó
ekki nægja að dást að hlyntrjánum
úr fjarlægð. Sykurhlynur (Acer
saccharum) hefur ákaflega sætan
plöntusafa sem notaður er til að búa
til hlynsýróp en eins og sigldir Ís-
lendingar vita er það algerlega
nauðsynlegt út á amerískar pönnu-
kökur. Hér í lokin fylgir því sérlega
einföld og ljúffeng uppskrift að slíku
hnossgæti:
3 bollar hveiti, 1 bolli sykur, 1 egg,
1 tsk matarsódi, mjólk eftir þörfum,
slatti af bláberjum ef árstíminn
leyfir. Allt hrært saman og deigið
haft fremur þykkt. Pönnukökurnar
eru steiktar á pönnu og bornar fram
með smjöri, osti og hinu ómissandi
hlynsýrópi. Verði ykkur að
góðu!
Guðríður Helgadóttir,
garðyrkjufræðingur.
GARÐAHLYNUR
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
456. þáttur
(ACER PSEUDOPLATANUS)
Í KVÖLD, miðvikudagskvöld, 4. júlí
heldur Hafnagönguhópurinn áfram
að ganga með strönd Skerjafjarðar.
Farið verður frá Hafnarhúsinu,
Miðbakkamegin, kl. 20 upp Grófina,
Aðalstræti og um Austurvöll og í
Lækjargötu. Síðan farið með Strætó
leið 7 suður í Öskjuhlíð og skógar-
gatan gengin suður á Lyngberg við
Nauthólsvík, þaðan gengið með
ströndinni inn í Fossvogsbotn og út
með voginum í Kópavogshöfn. Þar er
valið um að ganga til baka eða fara
með Strætó inn í Lækjargötu. Hægt
verður að stytta gönguferðina og
koma í hana við Nesti í Fossvogi um
kl. 21.
Gengið með
strönd
Fossvogs
UMSÓKNARFRESTUR um há-
skólanám með vinnu við Háskólann í
Reykjavík rann út 1. júlí og bárust
alls 337 umsóknir. Konur eru í meiri-
hluta umsækjenda eða um 62%.
Mest ásókn reyndist vera í BS-nám,
alls 102 umsóknir.
Nemendur í háskólanámi með
vinnu geta lokið BS-prófi (90 eining-
ar) á þremur árum og diploma-prófi
(45 einingar) á 21 mánuði. Kennsla
fer fram þrjá daga í viku kl. 16 – 19
og eru námsannir þrjár á ári í stað
hefðbundinna tveggja námsanna.
Alls munu um 100 nemendur fá inn-
göngu í námið sem hefst síðustu vik-
una í ágúst,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Háskólanum í Reykjavík.
Háskólanám með
vinnu fær góðar
undirtektir
♦ ♦ ♦