Morgunblaðið - 04.07.2001, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 9
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Útsala
Allt í versluninni
á útsölu
Kringlunni — sími 568 1822
Lokað í dag
Útsalan byrjar
á morgun
Hefst í fyrramálið kl. 10.
ÚTSALA
Vönduð og falleg föt á börnin frá þekktum
framleiðendum á verulega lækkuðu verði.
TEENO
Laugavegi 56, sími 552 2201 Laugavegi 56, sími 552 2201
– sérverslun – Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347.
Sumarveisla
ÚTSALA - ÚTSALA
Sérhönnun. St. 42-56
undirfataverslun,
1. hæð í Kringlunni - sími 553 7355
30-40%
afsláttur af
öllum vörum
Lokað í dag 4. júlí
inneignarnótur gilda á útsölu
30% af
sl.
40% af
sl.
40% af
sl.
30% af
sl.
Útsalan hefst 5. júlíl f . j lí
STEFNT er að smíði þurrkvíar á
Eiðinu í Vestmannaeyjum sem
mun rúma stærstu fiskiskip flot-
ans.
Teikningar af kvínni liggja fyrir
sem gera ráð fyrir að hún verði 90
metra löng, 20 metra breið og 10
metra djúp.
Kostnaður við kvína er áætlaður
um 350 milljónir króna og mun rík-
ið greiða 60% af framkvæmdinni
eða 216 milljónir króna. Hafnar-
stjórn Vestmannaeyja mun hins
vegar greiða 40% eða 134 milljónir
króna og segir Guðjón Hjörleifs-
son, bæjarstjóri í Vestmannaeyj-
um, að bærinn muni hins vegar
ekki fara í þessar framkvæmdir
nema öruggt sé að öflugt félag sé
tilbúið til að leigja kvína. Þetta sé
hins vegar stórt hagsmunamál fyr-
ir Vestmannaeyjar.
Forráðamenn Skipalyftunnar
ehf. hafa mikinn áhuga á smíði
þurrkvíarinnar og segir Gunnlaug-
ur Axelsson, fjármálastjóri fyrir-
tækisins, að nú þurfi að finna fjár-
festa vegna framkvæmdarinnar.
„Það er alveg ljóst að Skipalyft-
an ein getur ekki tekið að sér að
fjármagna hluta hafnarsjóðs en
dæmið er hugsað þannig að rekstr-
araðilinn leigir mannvirkið af hafn-
arsjóði fyrir þá upphæð sem er
hafnarinnar.“
Gunnlaugur segir að Skipalyftan
hafi tekið endanlega ákvörðun um
að reyna að koma þessari fram-
kvæmd í gegn í síðustu viku og því
sé ekki farið að leita að fjárfestum.
Hann segist þó vera nokkuð bjart-
sýnn.
„Málið er á algjöru frumstigi. Ég
hef þó góða trú á því að fyrirtæki
og stofnanir hér í Vestmanneyjum
sem eiga hagsmuni að gæta er
kemur að velferð bæjarins taki vel
í þetta. Ég er því nokkuð bjart-
sýnn.“
Spurður hvort það sé þörf fyrir
þurrkví í Eyjum segir hann: „Já,
tvímælalaust. Það er stór heima-
markaður. Ástandið er þannig í
dag að lyftan sem fyrir er ræður
ekki við 12-13 skip sem eiga
heimahöfn í Vestmannaeyjum og
þau þurfa því að leita eitthvert
annað. Það eru nákvæmlega sömu
forsendur í dag og þegar hin lyftan
var byggð. Þetta er hluti af þeirri
þróun.“
Svartsýnn ef ekki verður
af framkvæmdinni
Gunnlaugur segist ekki vera
bjartsýnn á framtíð Skipalyftunnar
ef smíði þurrkvíarinnar nær ekki
fram að ganga og þá þurfi jafnvel
að segja upp starfsmönnum.
„Ef þær áætlanir sem Skipalyft-
an hefur látið gera ganga eftir ætti
að minnsta kosti að vera hægt að
tryggja atvinnu fyrir þá starfs-
menn sem nú þegar starfa hjá
Skipalyftunni en það eru um 30
manns. Ennfremur væri jafnvel
hægt að fjölga starfsmönnum. Ef
ekki yrði af framkvæmdinni er það
alveg klárt að það þyrfti að endur-
skoða reksturinn og fækka mann-
skap.“
Að hans sögn taka framkvæmdir
við kvína um eitt ár. „Við stefnum
á að smíði kvíarinnar gæti verið
lokið eftir eitt og hálft ár en takist
það ekki reikna ég með því að við
séum búnir að missa af lestinni.“
Gunnlaugur segir að smíði
þurrkvíar sé mikið hagsmunamál
fyrir Vestmannaeyjar. Það þurfi að
halda þeirri kunnáttu sem fylgi
þessari atvinnugrein í Eyjum og þá
skipti öryggismál sjómanna og út-
gerðarmanna einnig miklu máli.
Áformað að smíða
þurrkví í Eyjum SAMTÖK atvinnulífsins og aðild-arfélög þeirra flytja saman í nýtthúsnæði við Borgartún 35 vorið
2002. Flutningurinn er, að sögn
Ara Edwald, framkvæmdastjóra
samtakanna, liður í þeirri þróun til
einföldunar og hagræðingar í
félagakerfi atvinnulífsins sem
hófst með stofnun SA í september
1999.
Samtökin eru núna til húsa í
Garðastræti 41 sem er 1.210 fer-
metrar að stærð. Arkitekt hússins
var Sigurður Guðmundsson. Ólaf-
ur Thors forsætisráðherra og kona
hans, Ingibjörg, létu byggja húsið
og bjuggu í því frá 1930. Vinnu-
veitendasambandið keypti húsið af
Ingibjörgu árið 1965 og var þá
reist 570 fermetra viðbygging við
það.
Afhending
ráðgerð í apríl 2002
Fyrstu skóflustungu að nýja
húsinu í Borgartúni tók Hildur
Guðmundsdóttir 21. febrúar 2001
en Hildur er ekkja Ólafs B. Ólafs-
sonar, fyrrverandi formanns
Vinnuveitendasambands Íslands.
Stærð nýja hússins verður 3.521
fermetri á fimm hæðum auk kjall-
ara og þakhæðar. Samtals munu
SA og aðildarfélög nýta um 2.200
fermetra undir starfsemi sína. SA
kaupir efstu hæðina sem er 555
fermetrar auk 105 fermetra hlut-
deildar í sameign á 1. hæð og í
kjallara. Núverandi húsnæði SA í
Garðastræti er 1.000 fermetrar.
Skrifstofur Samtaka iðnaðarins
verða 4. hæð, á 3. hæðinni verða
skrifstofur Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, Samtaka
fiskvinnslustöðva og Samtaka
ferðaþjónustunnar, og SVÞ, Sam-
tök verslunar og þjónustu, og sam-
tök atvinnurekenda í raf- og tölvu-
iðnaði verða á hluta 2. hæðar en
annar hluti hennar verður leigður
út til annarrar starfsemi.
SA og aðildarfélög kaupa húsið
tilbúið af Herði Jónssyni bygg-
ingaverktaka og Guðni Pálsson
arkitekt hannaði húsið. Afhending
er ráðgerð fyrir 1. apríl 2002.
SA flytur í Borgartún næsta vor