Morgunblaðið - 04.07.2001, Qupperneq 16
LANDIÐ
16 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Þjóðlagahátíðin
Undir Bláhimni
verður í Árnesi föstudaginn 6. júlí og laugardaginn 7. júlí
M.a. koma fram: Ásgeir Páll, hljómsveitin Vírus, Árni Johnsen.
Allir sem unna þjóðlagatónlist eru hvattir til að mæta með hljóðfæri
sín og troða upp einir eða með öðrum.
Næg tjaldsvæði og gisting.
Verð á manninn fyrir helgina með
tjaldstæði er 2.000 kr. og 1.000. kr. fyrir
börn 12 ára og yngri.
ÞAÐ var líflegt um að litast í skóg-
ræktinni við Djúpavog á Jónsmess-
unni. Þar mátti sjá börn og full-
orðna vinna saman að því að skreyta
skóginn með ýmsum listaverkum
sem leikskólabörnin höfðu búið til.
Gler-, hljóð- og myndlistaverkum
var komið fyrir víðs vegar um skóg-
inn og fólk hjálpaðist að við að mála
á steina og birkikrossvið.
Hugmyndina átti Hallveig Ingi-
marsdóttir leikskólastjóri en hún
leggur mikla áherslu á að nýta nátt-
úruna í skólastarfinu.
Á næsta ári er stefnt að því að
velja sérstakan reit fyrir útskrift-
arnemendur leikskólans þar sem
þeir gróðursetja 6 ára gamlar birki-
plöntur sem þeir hlúa að í framtíð-
inni.
Um kvöldið tóku margir þátt í
Jónsmessugöngu um skóginn og
vöktu listaverk dagsins mikla
ánægju. Lilja Dögg Björgvinsdóttir
fræddi hópinn um hjátrú og siði
tengda Jónsmessunni og allir voru
sammála um að endurtaka Skóg-
ardaginn að ári.
Fólk á öllum aldri tók þátt í Skógardeginum.
Skógurinn
skreyttur á
Jónsmessu
Djúpivogur
VÆNTANLEG er til Húsavíkur um
miðjan mánuðinn ný kjötpökkunar-
vél frá Nýja-Sjálandi og segja for-
svarsmenn sauðfjárbænda nokkrar
vonir bundnar við aukna hagræð-
ingu í útflutningsmálum sem fylgja
muni notkun hennar. Özur Lárus-
son, framkvæmdastjóri Landssam-
taka sauðfjárbænda og Markaðsráðs
kindakjöts, segir svo ráðgert að
senda fyrstu tilraunasendinguna til
Bandaríkjanna upp úr miðjum
ágúst.
Maður frá Nýja-Sjálandi
með í kaupunum
„Þetta er vél sem kostar um sjö
milljónir og er sú minnsta sem hægt
er að fá,“ segir Özur og áréttar að
mikil hagræðing náist með notkun
vélarinnar. Verðið segir hann vera
heildarverð vélarinnar hingað kom-
innar. „Það fylgir vélinni t.a.m.
maður frá Nýja-Sjálandi sem annast
uppsetningu og þjálfun starfsfólks,“
segir hann og bætir við að Mark-
aðsráð kindakjöts, sem sé sam-
starfsvettvangur sláturleyfishafa og
bænda, fjármagni kaupin.
„Geymsluþol kjötsins eykst verulega
og þess vegna verður hægt að flytja
það sjóleiðina til Bandaríkjanna í
stað flugfraktar áður. Við það spar-
ast 50 til 60 krónur á kílóið í flutn-
ingskostnaði fyrir utan að sending-
arnar eru stærri og öruggari,“ segir
Özur. Þá segir hann að útflytjendur
hafi lent í nokkrum vandræðum með
tollayfirvöld og landbúnaðarráðu-
neyti í Bandaríkjunum en unnið hafi
verið í því með hjálp sendiráðs Ís-
land og vonist þeir til að þau vand-
ræði séu að baki.
Dýrari en aðrar
plastpökkunarvélar
Özur segir jafnframt að leitað hafi
verið að svona vél bæði hér og er-
lendis um nokkurt skeið. „Kjöt frá
Nýja-Sjálandi er allt pakkað á þenn-
an hátt og þeir eru með bestu
tæknina. Samkvæmt kokkabókum
þeirra er geymsluþol kjötsins án
frystingar tryggt í 16 vikur með
þessari aðferð.“ Hann segir að um
vel þekkta aðferð við pökkun kjöt-
vöru sé að ræðan, þ.e. loftþétta plast-
pökkun með gasi. „Tæknin er bara
svo góð hjá Nýsjálendingunum að
þeir ná miklu meiru úr aðferðinni en
aðrir sem eru að framleiða svona vél-
ar. Enda eru þær þó nokkuð dýrari
miðað við aðrar plastpökkunarvél-
ar,“ segir hann.
Özur segir kjötið unnið að mestu
hjá Norðlenska á Húsavík en Goði
hf. standi einnig að verkefninu. Þá
segir hann markaðsetningu hafa
verið unna með dyggri aðstoð frá
fyrirtækinu Áformum og fram-
kvæmdastjóra þess Baldvini Jóns-
syni. Jafnframt segir Özur að Fram-
kvæmdanefnd búvörusamninga hafi
styrkt verkefnið um átta milljónir.
Kjöti pakkað
að hætti
Nýsjálendinga
Stóraukið geymsluþol lambakjöts til útflutnings
ÁTTA tilboð bárust í vega- og brúar-
gerð um Djúpá, Laxá og Brúará á
Hringvegi 1 og átti Rósaberg ehf.
það lægsta. Tilboð þeirra hljóðaði
upp á 157,8 milljónir króna. Vega-
gerðin er verkkaupi og kostnaðar-
áætlun hennar vegna verksins er 181
milljón.
Næstlægsta tilboðið, 162,8 millj-
ónir, átti Lárus Einarsson hf, Klakk-
ur ehf. það þriðja lægsta, 166,8 millj-
ónir, og SG Vélar ehf. það fjórða
lægsta, 167,7 milljónir. Hæst var til-
boð Einingar sf., 214,3 milljónir,
næsthæst var tilboð Ístaks hf., 209
milljónir, þriðja hæst var tilboð Brú-
arverktaka ehf., 194,5 milljónir, og
tilboð Höjgaards og Schults ehf. sem
hljóðaði upp á 181,5 milljónir var
fjórða hæst.
Framkvæmdir hefjast haust og er
áhersla lögð á að ljúka verki á Djúpá
fyrir 15. desember. Sigurður Jó-
hannsson, deildarstjóri fram-
kvæmda Vegagerðarinnar á Selfossi,
segir að á næstu vikum verði tekin
ákvörðun um hvaða tilboði verður
tekið.
Vega- og brúargerð um Djúpá, Laxá og Brúará
Lægsta tilboð
157,8 milljónir
Kolfreyjustaðarprestakall í Aust-
fjarðaprófastsdæmi hefur verið aug-
lýst laust til umsóknar og er staðan
laus frá 1. september 2001. Sr. Carl-
os Ferrer sem vígðist til prestakalls-
ins árið 1994 hefur sagt starfi sínu á
Kolfreyjustað lausu.
Samkvæmt upplýsingum frá Bisk-
upsstofu verður Siglufjarðarpresta-
kall einnig auglýst laust til umsókn-
ar á næstunni.
Kolfreyju-
staðarpresta-
kall laust
♦ ♦ ♦
Á BÆNUM Stokkalæk, skammt
frá Keldum á Rangárvöllum, var
fyrir stuttu opnaður nýr gisti- og
ferðaþjónustustaður með hótel-
gistingu, sumarhúsi, veitingasal
og tjaldsvæði. Gústaf Stolzenwald
og Þorbjörg Atladóttir keyptu
jörðina fyrir þremur árum, en hún
hafði þá verið í eyði um nokkurt
skeið, en áður var stundaður hefð-
bundinn búskapur á bænum.
Að sögn Gústafs var tilgangur-
inn með kaupunum að breyta úti-
húsunum til nota fyrir ferðaþjón-
ustuna og stefnt að því frá upphafi
að nýta húsin sem best. „Þannig
er fjósið nú hótelálma, hlaðan
veitingasalur eða nokkurs konar
innigarður tengdur við hótelið og
klakhúsinu við lækinn var breytt í
sumarhús. Við erum með átta
tveggja manna herbergi, öll með
sér baðherbergi, þar af er eitt sér-
hannað fyrir fatlaða og eitt er sér-
staklega vel búin sveitasvíta. Í
innigarðinum er mikill trjá- og
blómgróður ásamt heitum potti,
þannig að alltaf er hægt að njóta
garðstemmningar þótt úti blási
vindar, rigni eða snjói. Á tjald-
svæðinu er útigrill og ætlunin að
vera með varðeld á laugardags-
kvöldum yfir sumartímann.“
Í fótspor smalans
Einn hluti þjónustunnar sem í
boði er á Stokkalæk eru göngu-
ferðir um svokallaðan Stórastíg
sem Gústaf hefur sjálfur skipulagt
í tengslum við aðra þjónustu sem í
boði er hjá fyrirtækinu. Göngu-
ferðin, sem tekur 4–5 daga, hefst
að fjallabaki, annaðhvort í Land-
mannahelli eða Landmannalaug-
um. Gengið er í svokallaðan Dala-
kofa, þaðan á Hungurfit, að
eyðibýlinu á Fossi og endað á
Stokkalæk.
„Þessar gönguferðir eru að
festa sig í sessi á hálendinu og eru
ágætistilbreyting fyrir þá sem eru
búnir að ganga allar þessar hefð-
bundnu leiðir eins og t.d. Lauga-
veginn. Það er ægifagurt á þess-
um slóðum, gengið um
háhitasvæði og litadýrðin og nátt-
úrufegurðin blasir alls staðar við,
ýmist í formi eyðisanda, fagurra
fjalla eða tindrandi vatnsfalla. Þá
höfum við líka boðið upp á útsýn-
isferðir um Syðra-Fjallabak þar
sem ýmist er ekið um á jeppum
eða gengið hluta af leiðinni,“ sagði
Gústaf.
Staður fyrir
náttúruunnendur
Stokkalækur er vel í sveit sett-
ur, um 110 km frá Reykjavík og
um 15 km austan Hellu á Rang-
árvöllum, þar sem alla almenna
þjónustu er að finna, s.s. verslanir,
sundlaug, veitingastaði o.þ.h.
Golfvöllurinn á Strönd er skammt
undan sem og Rangárnar og stutt
er í allar helstu náttúruperlur hér-
aðsins.
Náttúrufegurð er mikil á
Stokkalæk en lækurinn, sem bær-
inn dregur nafn sitt af, rennur í af-
ar fögru gili þar sem hraunfossar
gleðja augað á öðrum bakkanum
en melar og klettar prýða hinn
bakkann. Vatnsdalsfjall, Þríhyrn-
ingur og Tindfjöll mynda umgjörð
um þessa vin við hálendisjaðarinn.
Fjallið Skyggnir er útsýnisstaður
við túnfótinn og þaðan má líta
jafnt fagra fjallasali sem sælan
sveitablóma. Þannig er Stokka-
lækur svo sannarlega staður fyrir
náttúruunnendur.
Morgunblaðið/Aðalheiður
Þorbjörg Atladóttir og Gústaf
Stolzenwald, hótelhaldarar á
Stokkalæk, í sínu fínasta pússi
á opnunardaginn í einu af
herbergjum hins nýja hótels,
sem áður hýsti m.a. Huppu og
Skjöldu í fjósinu á bænum.
Morgunblaðið/Aðalheiður
Fjöldi gesta kom að skoða nýja hótelið á Stokkalæk. Gott pláss er í
innigarðinum, þar sem taðan fyllti allt rými áður, og möguleikar á
margs konar samkomuhaldi í tengslum við hótelið og tjaldsvæðið.
Úr eyði í
miðstöð
hálendis-
jaðarsins
Hella
Ferðaþjónustan Stokkalæk á Rangárvöllum