Morgunblaðið - 04.07.2001, Side 18
ÚR VERINU
18 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝR bátur bættist nýlega í flota
Ólafsvíkinga. Þá kom til Ólafs-
víkur 145 brúttólesta bátur sem
Klumba ehf. hefur keypt og hlot-
ið hefur nafnið Leifur Hall-
dórsson SH 217, skipaskrárnúmer
1171. Þessi bátur, sem áður hét
Grótta, er sérútbúinn til veiða
með dragnót. Fer hann strax til
veiða enda nýskveraður eins og
sagt er á sjómannamáli. Skip-
stjóri verður Ingi Aðalsteinsson
og verða átta manns í áhöfn. Er
koma þessa báts gleðileg viðbót
við flota Ólafsvíkinga sem hefur
verið að rétta við síðustu miss-
erin. Báturinn er nefndur í höfuð
Leifs Halldórssonar, sem á að
baki langan og farsælan skip-
stjóraferil og var lengst af með
Halldór Jónsson SH 217.
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
Leifur Halldórsson SH í heimahöfn á Ólafsvík.
Nýr bátur til Ólafsvíkur
FUNDUR strandríkja Norðaust-
ur-Atlantshafs vegna kolmunna-
veiða verður haldinn í dag og á
morgun í Færeyjum, en tilgang-
urinn er að reyna að semja um
skiptingu og stjórnun á veiðum úr
kolmunnastofninum.
Til strandríkjanna teljast Evr-
ópusambandið, Noregur, Færeyj-
ar, Grænland og Ísland en Rússum
er einnig boðið að sitja þessa fundi
þar sem þeir hafa veitt töluvert af
kolmunna í úthafinu. Nokkrir
fundir hafa verið haldnir um málið
síðan í fyrra en þetta er sá fyrsti
síðan í febrúar sem leið.
Veiðarnar hafa
tvöfaldast á fjórum árum
Kolmunnaveiðar hafa nær tvö-
faldast á aðeins fjórum árum. Árið
1997 voru veidd um 670.000 tonn,
1,1 milljón tonn 1998, tæplega 1,3
milljónir tonna 1999 og rúmlega
1,4 milljónir tonna í fyrra. 1997
veiddu íslensk skip samtals um
10.500 tonn, um 65.000 tonn árið
eftir, rúm 160.000 1999 og rúm
260.000 tonn í fyrra. Þá var afli
innan lögsögu Íslands um 159.000
tonn og þar af veiddu Íslendingar
um 155.000 tonn, en auk þess
veiddu þeir rúmlega 80.000 tonn í
færeyskri lögsögu. Norðmenn
veiddu um 527.000 tonn í fyrra,
Rússar 222.000 tonn, Evrópusam-
bandið 216.000 tonn og Færeying-
ar 146.000 tonn en aðrar þjóðir
mun minna.
Í ársskýrslu Alþjóða hafrann-
sóknaráðsins sem birt var í nýliðn-
um mánuði, dregur ICES upp
svarta mynd af ástandi stofnsins
og leggur til algjört bann við kol-
munnaveiðum 2002 nema sett hafi
verið saman áætlun um hvernig
byggja megi veiðarnar upp. ICES
lagði til í fyrra að 650.000 tonn
yrðu veidd en veiðarnar eru nán-
ast stjórnlausar og fundir um mál-
ið til þessa hafa ekki borið neinn
árangur. Kolbeinn Árnason, lög-
fræðingur í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, segir að deilt hafi verið um
hlutfall hverrar þjóðar fyrir sig og
samtals hafi verið gerðar kröfur
um 170% af kökunni. Þar af hafi
Ísland gert kröfu um 23% hlut-
deild.
Reynt að semja
um kolmunna
Fundur strandríkja við
Norðaustur-Atlantshaf
FRIÐRIK J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, segir að vél-
stjórar beri ekki skarðan hlut frá
borði vegna úrskurðar gerðardóms í
kjaradeilu sjómanna og útvegs-
manna.
Fulltrúar LÍÚ og Vélstjórafélags
Íslands hittust í fyrradag til að að-
laga áður gerðan samning þeirra að
úrskurðinum. Friðrik segir að þar
sem það eigi við verði laun vélstjóra
hækkuð til samræmis við ákvörðun
gerðardóms. „Það er alveg ljóst að
þeir sem höfðu þá ábyrgð og kjark
til að semja koma ekki verr út úr
því en hinir,“ segir hann.
Friðrik segir ennfremur að ýmis-
legt sé í gerðardómnum sem LÍÚ
hefði viljað sjá öðruvísi. Í því sam-
bandi nefnir hann mönnunarákvæð-
in, kauptrygginguna og gildistím-
ann. Hins vegar verði menn að
sætta sig við niðurstöðuna. „Þeir
sem drógu vagninn og sömdu gjalda
þess ekki,“ segir hann um vélstjór-
ana og bætir við að sjómenn fái eins
mikið og raun ber vitni vegna vél-
stjórasamningsins. LÍÚ hefði teygt
sig mjög langt í viðræðum við vél-
stjóra til þess að ná samningi og nú
nytu aðrir sjómenn þess. „Ef sjó-
menn hefðu fengið gerðardóm án
þess að samningur við vélstjóra
hefði legið fyrir er mjög ólíklegt að
þeir hefðu fengið jafn mikið, en þeir
hefðu fengið mest með því að semja
við okkur.“
Vélstjórar sitja
við sama borð
Úrskurður gerðardóms
VIÐSKIPTI
MIKLAR verðhækkanir urðu á
hlutabréfum í mörgum félögum
sem skráð eru á Nasdaq-hluta-
bréfamarkaðinn síðastliðinn föstu-
dag. Meðal þeirra sem hækkuðu
eru hlutabréf deCODE Genetics
en eins og fram hefur komið nam
hækkunin 42,31% þann dag. Önnur
líftæknifyrirtæki eins og Trans-
genomic hækkuðu einnig en það
félag hækkaði um 91,92%. Gemini
Genomics hækkaði um 18,76% og
Targeted Genetics Corp hækkaði
um 33,74%.
Að sögn Kára Stefánssonar, for-
stjóra Íslenskrar erfðagreiningar,
er það einkum tvennt sem skýrir
þær miklu hækkanir sem urðu á
gengi deCODE þennan dag.
„Föstudagurinn er síðasti við-
skiptadagur annars ársfjórðungs
og sjóðstjórar, sem vilja að sjóðir
sem þeir stýra sýni góða afkomu,
kaupa í þeim félögum sem hafa
hækkað undanfarið. Gengi hluta-
bréfa í deCODE hafði hækkað um
33% á öðrum ársfjórðungi þannig
að það kemur vel út fyrir þá að
kaupa í félaginu áður en þessum
ársfjórðungi lýkur.
Eins voru hlutabréf deCODE
skráð í Russel 2000 vísitöluna
þennan sama dag. Við erum í hópi
þeirra félaga sem hækka einna
mest á föstudag en þetta tvennt
skýrir væntanlega þessa miklu
hækkun að okkar samstarfsfólk
hjá Thomson Financial, sem sér
um að fylgjast með viðskiptum
með bréf í deCODE, telur. Þau
segja að þetta séu eðlilegar skýr-
ingar á þessari miklu hækkun
bréfanna þennan dag og tengist
ekki stóra samningnum sem við
skrifuðum undir við Roche Diag-
nostics, dótturfyrirtæki Hoffman-
La Roche.“
Í mars var sagt frá því í fjöl-
miðlum að til stæði að gera þenn-
an samning sem nú hefur verið
skrifað undir og aðspurður segist
Kári telja harla ólíklegt að þær
upplýsingar sem voru til staðar áð-
ur en markaðnum var lokað á
föstudaginn hafi lekið út. „Að því
sögðu þá voru að minnsta kosti 60
manns sem vissu um þennan
samning.
Ef taldir eru starfsmenn de-
CODE, La Roche og þeirra
tveggja lögfræðifyrirtækja sem
þjónustuðu fyrirtækin. Þannig að
ég get ekki fullyrt neitt um að það
hafi ekki lekið neitt út en líkurnar
á því að það hefði haft marktæk
áhrif á verð okkar hlutabréfa tel
ég litlar,“ segir Kári.
Kári Stefánsson um viðskipti með deCODE á föstudag
Hækkunin tengist vart
stóra samningnum
NÝSTOFNAÐ fyrirtæki, CRM-
markaðslausnir, hefur gert sam-
starfssamning við Íslenska
miðlun og munu CRM-markaðs-
lausnir leigja húsnæði, tækja-
búnað og aðra aðstöðu
Íslenskrar miðlunar. Eigendur
CRM-markaðslausna eru
Tæknival, KÁ og Isoport sem
einnig eru eigendur að Íslenskri
miðlun.
Að sögn Gylfa Þórissonar,
framkvæmdastjóra CRM-mark-
aðslausna, mun fyrirtækið upp-
fylla þá samninga sem Íslensk
miðlun hefur gert en getur ekki
uppfyllt vegna erfiðrar fjárhags-
stöðu auk þess sem stofnað
verður til nýrra samninga og
m.a. stendur til að opna nýtt
samskiptaver á Selfossi. Hann
sagði að starfsfólk Íslenskrar
miðlunar kæmi til starfa hjá
CRM-markaðslausnum og þessa
dagana væri verið að ganga frá
ráðningu þess.
Gylfi sagði fortíðarvanda Ís-
lenskrar miðlunar hafa orðið
fyrirtækinu ofviða en sá mark-
aður sem það hefði starfað á
væri vaxandi og stöðugt að
þróast í rétta átt. Hann sagði að
CRM-markaðslausnir myndu
bjarga þeim skuldbindingum
sem Íslensk miðlun hefði tekist
á hendur og ekki væri síður mik-
ilvægt að starfsfólkinu yrði
tryggð atvinna.
Tekur yfir skuld-
bindingar Ís-
lenskrar miðlunar
AFKOMA Íslenskra aðalverktaka
hf. verður umtalsvert lakari á fyrstu
sex mánuðum yfirstandandi árs en á
sama tíma í fyrra.
Í afkomuviðvörun til Verðbréfa-
þings Íslands kemur fram að það
skýrist fyrst og fremst af verulegu
gengistapi sem félagið hefur orðið
fyrir en stærstur hluti skulda
félagsins er bundinn erlendum
gjaldmiðlum og vegur það verulega
þyngra á tímabilinu en sá hluti
tekna félagsins sem er í erlendum
gjaldmiðlum. Gengistap félagsins
nam þannig rúmum 300 milljónum
króna fyrstu fjóra mánuði ársins.
Rekstur félagsins á fyrri helmingi
ársins hefur að öðru leyti að mestu
gengið með svipuðum hætti og ráð
var fyrir gert og verkefni verið næg.
Þótt útlit sé fyrir, miðað við núver-
andi verkefnastöðu félagsins, að
umsvif þess kunni að dragast nokk-
uð saman á síðari hluta ársins er
ljóst að eins og nú horfir vegur
þyngst um endanlega niðurstöðu
rekstrarins á árinu hver verður þró-
un og aðstæður á fjármagnsmarkaði
síðari hluta ársins.
300 millj-
óna króna
gengistap
Íslenskir aðalverktakar
BRESKA farsímafyrirtækið Voda-
fone er ekki aðeins illa stætt eins og
mörg önnur farsímafyrirtæki vegna
mikilla fjárfestinga í þriðju kynslóð
farsíma. Skynsemin í yfirtökunni á
þýska keppinautnum Mannesmann
fyrir 113 milljónir punda, sem hélt
fjármálaheiminum í spennu vikum
saman meðan á ferlinu stóð, er líka í
vaxandi mæli dregin í efa.
Um leið er samstarf BT og AT&T
á Bandaríkjamarkaði að leysast upp,
að sögn Financial Times. Báðar þess-
ar hræringar eru enn eitt dæmið um
erfiðleika símafyrirtækjanna, sem
þar til í fyrra virtust ekki eiga neitt
nema glæsta framtíð í vændum. Í
þeim geira vara menn við að jafnof-
metnar og vonirnar hafi verið sé
heldur ekki ástæða til að draga upp
of dökka mynd.
Rétt ákvörðun að
kaupa Mannesmann
Hið þýska Mannesmann var farið
að seilast mjög inn á breska síma-
markaðinn og stefndi í að taka yfir
Orange, harðan keppinaut Vodafone
á heimamarkaðnum breska. Ýmsir
álíta því að Vodafone hafi ekki átt
annarra kosta völ en taka yfir Mann-
esmann. Staðreyndin er þó sú að mál-
in horfa öðru vísi við nú og svo virðist
sem yfirtakan á Mannesmann og
önnur kaup Vodafone á útþenslutím-
anum hái nú fyrirtækinu.
Yfirtakan jók reyndar ekki á
skuldir Vodafone, eins og fyrirtækja-
kaup BT og annarra símafyrirtækja
gerðu, heldur notaði Vodafone hátt
skráð hlutabréf sín til kaupanna og
hluthafar tóku á sig þynningu hluta-
bréfanna gegn því sem þá virtust
góðar horfur. En við breyttar að-
stæður horfa málin öðru vísi við, því
bæði hafa hlutabréfin fallið og einnig
eru ýmsar fjármálastofnanir sem
tóku bréf á sínum tíma til að fjár-
magna kaupin, farin að selja þau á
fremur tregum markaði.
Forstöðumenn Vodafone halda þó
fast við að yfirtakan hafi verið rétt
aðgerð og Vodafone hafi ekki greitt
of mikið fyrir Mannesmann.
Concert var samstarf BT og AT&T
í Bandaríkjunum, en hefur aldrei
uppfyllt þær vonir, sem voru gerðar
til þess þegar það fór af stað fyrir
þremur árum. Nú stefnir í að Con-
cert verði leyst upp og sagt að tapið í
mars og næstu þrjá mánuði á undan
hafi numið 89 milljónum punda.
Fyrirtækin tvö höfðu vonast eftir
samlegðaráhrifum í þjónustu við
stóra viðskiptavini í London og New
York, en þær áætlanir gengu aldrei
eftir.
Kreppir að
hjá Vodafone
London. Morgunblaðið.