Morgunblaðið - 04.07.2001, Side 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 41
21. JÚNÍ sl. birtist í Ríkissjónvarp-
inu svohljóðandi frétt: „Hæstiréttur
dæmdi í dag Ásgeir Inga Ásgeirsson
í 16 ára fangelsi
fyrir að hafa ban-
að Áslaugu Perlu
Kristjóndóttur
við Engihjalla í
Kópavogi hinn 27.
maí í fyrra. Með
dómi Hæstarétt-
ar var refsing
ákærða þyngd
um 2 ár en fyrir
héraðsdómi hlaut
ákærði 14 ára fangelsi. Jafnframt
hækkaði Hæstiréttur miskabætur til
foreldra hinnar látnu. Hæstiréttur
taldi hafið yfir skynsamlegan vafa að
ákærði hefði banað Áslaugu Perlu
með því að koma henni fram af svöl-
um 10. hæðar fjölbýlishússins að
Engihjalla 9. Atlaga hans að stúlk-
unni í kjölfar samfara sem rofnar
voru eftir hennar kröfu og svívirð-
ingar af hans hálfu hefði verið snörp
og aflmikil en hún hefði ekki haft
svigrúm eða getu til að verjast
henni.“ Ég get ekki lofað að ég hafi
þessa frétt orðrétt eftir en þetta var
innihald hennar. Þessi frétt minnir
mig á „Ekki-fréttir“ sem fréttamað-
urinn Haukur Hauksson var með um
tíma í Ríkisútvarpinu. Þar lagði
hann spurningar fyrir þekkt fólk, að-
allega stjórnmálamenn og konur og
svörin fékk hann úr hinum og þess-
um ræðum og viðtölum og tók orð og
setningar úr samhengi. Það var allt
til gamans gert og áheyrendum til
skemmtunar.
Þessi frétt var ekki skemmtifrétt
heldur háalvarlegs eðlis. Hún fjallaði
um dóttur mína sem fyrir rúmu ári
var myrt á hrottalegan hátt þá rétt
tuttugu og eins árs gömul. Ríkis-
sjónvarpið tók fréttina um dóm
Hæstaréttar út úr samhengi þar
sem þeir létu áframhald niðurstöðu
dómsins ekki fylgja með sem er svo-
hljóðandi: „Bent var á, að Ásgeir
væri einn til frásagnar um síðustu
atvikin, er leiddu Áslaugu Perlu til
dauða. Héraðsdómur hefði ekki talið
framburð hans um þau fá staðist... Í
niðurstöðu héraðsdóms segir á ein-
um stað: „ þegar öll fram komin
sönnunargögn og vitnisburðir þessa
máls svo og framburður ákærða
sjálfs eru virt í heild sinni þykir
framburður ákærða ekki fá staðist
hvað varðar síðustu atvikin er leiddu
til dauða Áslaugar Perlu.“ Annars
staðar stendur: „ Í gögnum máls
þessa eru ýmis atriði er benda til
þess að samfarir Áslaugar Perlu og
ákærða hafi verið að óvilja hennar.“
Það sjá allir hversu ólíka túlkun
fréttin fær þegar áframhaldið er tek-
ið í burtu.
Ég talaði við fréttamenn og frétta-
stjóra mörgum sinnum og bað þá um
að leiðrétta þessa frétt, en þeir
sögðu mér að þeir sæju enga ástæðu
til þess. Það hefði ekki verið neitt í
fréttinni sem þeir hefðu farið rangt
með.
Þegar Ásgeir Ingi Ásgeirsson var
handtekinn fannst hann með rifnar
nærbuxur dóttur minnar í rassvas-
anum, sem hún hafði keypt daginn
áður. Þegar hún fannst var brotin
krækjan á smekkbuxum hennar. Við
prófun kom fram að talsvert átak
þurfti til að laska krækju á sams
konar buxum og hún var í. Ásgeir
hélt því fram að hún hefði verið með
buxurnar um mittið þegar hann
„hrinti“ henni fram af svölunum, en
hún var nánast fjötruð um fætur
með buxurnar vafðar um ökkla. Hún
var með 4x1 cm langan áverka á ytri
skapabörmum. Ásgeir sagði að þau
hefðu klætt sig úr fötunum áður en
þau hófu samfarir. Hann bar tölu-
verða áverka sem hann gat ekki út-
skýrt við læknisskoðun sem bentu til
þess að hann hefði lent í átökum
skömmu fyrir skoðun. Þar sem kom
til átaka við handtöku hans og í lög-
reglubíl var ekki hægt að fullyrða að
áverkarnir hafi verið til staðar við
handtöku hans. Dóttir mín hefði
aldrei undir nokkrum kringumstæð-
um sætt sig við að láta nokkra mann-
eskju rífa utan af sér fötin.
Ég var sannfærð um að hann yrði
kærður fyrir nauðgun. Ég fékk þá
skýringu að engin „vitni“ hefðu verið
til staðar né frásögn hennar sjálfrar.
Orð morðingjans stóðu ein eftir, sem
margkemur fram að fá ekki staðist.
Mér finnst þessi fréttaflutningur
Ríkissjónvarpsins fyrirlitlegur.
Dóttir mín er ekki hér til að verja
sig, þess vegna skrifa ég þessa grein.
GERÐUR BERNDSEN,
Kaplaskjólsvegi 37, Reykjavík.
„Fréttir“ eða
„Ekki-fréttir“
Frá Gerði Berndsen:
Gerður
Berndsen
Útsala
hefst á morgun!
Mörg þúsund pör!
Mikill afsláttur
Verðdæmi:
500 1.000
1.500 2.000
2.500 3.000
Kringlan
sími 568 6062
Enduruppbyggja húðina
Vinna á öldrunareinkennum
Vinna á brúnum blettum
Vinna á appelsínuhúð og sliti
Stinna og þétta húðina
Vinna á unglingabólum
Viðhalda ferskleika húðarinnar
20% afsláttur
Apótekið Iðufelli
í dag
Apótekið Smiðjuvegi
á morgun
Apótekið Hafnarfirði
á föstudaginn
Kynningar kl. 14-18
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland