Morgunblaðið - 04.07.2001, Qupperneq 48
Ráðgátan að leysast – upp?
LEIKKONAN Gillian Anderson, sem verið hefur
sjónvarpsáhorfendum að góðu kunn undanfarin ár
sem hinn ráðagóða og jarðbundna Scully í Ráð-
gátum, lýsti því yfir um helgina í viðtali við breska
blaðið The Sunday Times að hún ætli sér að segja
skilið við þættina að lokinni næstu þáttaröð.
Meginástæðuna segir hún þá að hún vilji eiga
meiri tíma með dóttur sinni en jafnframt upplýsti
hún að hún muni brátt birtast í leikriti á West End
í Lundúnum en framaspor það hefur átt mjög upp
á pallborðið hjá frægum kvikmyndastjörnum upp
á síðkastið.
„Það er einfaldlega kominn tími til að ég segi
skilið við Scully,“ útskýrir Anderson. „Ég vil fá
svigrúm til þess að taka að mér öðruvísi hlutverk
og sýna hvað í mér býr.“ Anderson segir und-
anfarin sjö ár í Ráðgátunum hafa bitnað illa á dótt-
ur sinni: „Hún var mikið að sniglast í kringum mig
á tökustað sem var mjög leiðinlegt fyrir hana og
erfitt.“
Scully kveður senn
Finnur Scully Mulder áður en hún hverfur?
Reuters
48 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTSALA
hefst á morgun
allar útsöluvörur með
50% afslætti
KRINGLAN - LAUGAVEGUR
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B. i. 12. Vit nr. 248
Hluti myndarinnar var tekinn upp á Íslandi
Frábær hasarmynd sem fór
beint á toppinn í Bandaríkjunum
Stærsta ævintýri
sumarsins er hafið
Sýnd kl. 3.45, 5.30, 8 og 10.20. Vit 234
Sýnd kl. 4, 6.15 og 8.
Vit nr. 236.
strik.is
KVIKMYNDIR.is
1/2
Hugleikur
Nýi Stíllinn Keisarans
Sýnd kl. 3.45. Vit nr. 213
Sýnd kl. 10. B. i. 16. Vit nr. 238
VALENTINE
Fjögur súpermódel
og ein venjuleg stúlka.
Strákurinn í næsta húsi
á ekki möguleika.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 242.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 9.30. Vit nr. 235. B.i. 12 ára
PEARL HARBOR
7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu.
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 6 og 10. B. i. 16.
KEANU REEVES JAMES SPADER
2 vikur á toppnum í
Bandaríkjunum.
Keanu Reeves og James Spader
eru fantagóðir í þessum frábæra
spennutrylli í anda Seven
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16
Hluti myndarinnar var tekinn upp á Íslandi
Frábær hasarmynd sem fór
beint á toppinn í Bandaríkjunum
Stærsta ævintýri sumarsins er hafið
Loksins ný mynd frá
leikstjóra Fucking Ámal.
Sænsk snilld og óborganlegur
húmor sem kemur öllum í gott
skap. Tékkið á þessari.
TILLSAMMANS
betra er að
borða grautinn
saman en
steikina einn
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 12 ára.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B. i. 12 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8.
ÓHT Rás 2
RIEN SUR ROBERT
HINSTA kvöldið er frumraun kan-
adíska leikstjórans Don McKellar en
hann skrifar jafnframt handrit og
leikur eitt aðal-
hlutverk þessar-
ar eftirminnilegu
kvikmyndar. Þar
er nokkrum per-
sónum fylgt eftir
eina kvöldstund
en sú kvöldstund
reynist jafnframt
sú hinsta í sögu
heimsins. Við
kynnumst þannig
þessum per-
sónum á ákaflega örlagaríku kvöldi í
lífi þeirra, allir vita að heimsendir
mun verða klukkan tólf á miðnætti og
að ekkert er við því að gera. Í sögunni
er ekki gefin skýring á því að svo er
komið fyrir heiminum, einu merki
náttúruhamfara eru þau að það er
bjart allan sólarhringinn og þar sem
mannkynið hefur vitað um örlög sín í
nokkra mánuði hefur mestöll eðlileg
samfélagsstarfsemi lagst niður, óeirð-
ir og gripdeildir gengið yfir. Menn
ákveða að eyða hinsta kvöldi sínu á
mismunandi hátt, sumir safnast sam-
an niðri í bæ og telja niður, aðrir taka
að sér það göfuga hlutverk að halda
gaskerfi borgarinnar gangandi fram
á síðustu stundu, aðrir reyna að upp-
lifa eitthvað sem þeir hafa ekki reynt
áður en flestir vilja vera í faðmi ást-
vina og fjölskyldu.
Það eru margar og merkilegar pæl-
ingar sem búa í þessari látlausu og vel
gerðu kvikmynd. Andspænis hinum
endanlegu endalokum reynir á marg-
ar spurningar um gildi mannlegrar
tilveru. Merkilegasta ályktun sög-
unnar er þó kannski sú að þótt heims-
endir sé í nánd verða vonir og þrár
hversdagsleikans seint umflúnar.
Hversdags-
legur
heimsendir
Heiða Jóhannsdótt ir
Hinsta kvöldið
(Last Night)
D r a m a
Leikstjórn og handrit: Don McKell-
ar. Aðalhlutverk: Don McKellar,
Sandra Oh, Callum Keith Rennie,
David Cronenberg. Kanada, 1998.
Háskólabíó. Bönnuð innan 12 ára.
MYNDBÖND
M O N S O O N
M A K E U P
lifandi litir