Morgunblaðið - 21.07.2001, Side 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNULEYSISDAGAR í
júní síðastliðnum jafngilda því
að 1.820 manns hafi að meðaltali
verið á atvinnuleysisskrá í mán-
uðinum á landinu öllu. Þar af eru
644 karlar og 1.176 konur sam-
kvæmt Vinnumálastofnun.
Þessar tölur jafngilda 1,2% af
áætluðum mannafla á vinnu-
markaði samkvæmt spá Þjóð-
hagsstofnunar eða 0,8% hjá
körlum og 1,8% hjá konum. Það
eru að meðaltali 433 færri at-
vinnulausir en í síðasta mánuði
en um 14 fleiri en í júní í fyrra.
Búast má við að atvinnuleysið í
júlí geti orðið á bilinu 0,9% til
1,3%.
Atvinnulausum fækkaði
um 19,2% frá maí
Atvinnulausum hefur fækkað í
heild að meðaltali um 19,2% frá
maímánuði en hefur hins vegar
fjölgað um 0,9% miðað við júní í
fyrra. Atvinnuástandið batnar
mun meira en sem nemur árs-
tíðasveiflu milli maí og júní og
skýrist það fyrst og fremst af
opnun fiskvinnsluhúsa eftir sjó-
mannaverkfall.
Atvinnuástandið batnar veru-
lega miðað við síðasta mánuð
alls staðar á landinu nema á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem er
nokkur aukning atvinnuleysis.
Meðalfjöldi atvinnulausra á höf-
uðborgarsvæðinu er 1,3% af
áætluðum mannafla en var 1,2%
í maí sl. Atvinnulausum hefur
fjölgað um 142 að meðaltali á
svæðinu frá maímánuði eða um
13,5% en það hefur hins vegar
minnkað um 4% frá því í júní ár-
ið 2000. Atvinnuleysi er nú hlut-
fallslega mest á Norðurlandi
eystra og minnst á Vesturlandi.
Þegar tafla um flokkun at-
vinnuleysis eftir atvinnugreinum
er skoðuð kemur í ljós að á land-
inu öllu er mest um atvinnuleysi
í heilbrigðis- og félagsþjónustu
sem og í smásölu á öðru en bíl-
um og vélhjólum; viðgerðir á
hlutum til einka- og heimilis-
nota.
Atvinnuleysi í júní jafngilti því að
1820 manns væru án atvinnu
Tvöfalt fleiri
konur án vinnu
BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin
Showtime Networks hefur valið Ís-
land og íslenska náttúru sem grunn
myndefnis ímyndarauglýsinga fyr-
irtækisins næstu tvö árin. Tökur
hófust á þriðjudag og var Sveinn M.
Sveinsson hjá Plús film ráðinn til að
sjá um framleiðsluna hér á landi.
„Það er sem sagt verið að búa til
allsherjar auglýsingar fyrir stöðina
sem birtast kannski á öðrum stöðv-
um líka því fyrirtækið er hluti af
Paramount sem er svo aftur hluti af
Viacom,“ sagði hann.
Tekið upp við
náttúruperlur
Sveinn segir að 12 manns komi
að utan vegna verkefnisins en alls
komi um 40 manns að því. Hann
segist ekki fyllilega vita hvað kom
til að fyrirtækið hafi valið Plús film
til verksins hér á landi. „Þeir höfðu
bara samband við mig símleiðis, ég
veit svo sem ekki hvort talað var
við fleiri. Ég hef líka gert kynning-
armyndir fyrir ferðamálaráð og
trúlega hafa þeir heyrt af mér
vegna þess,“ sagði hann.
„Takmarkalausar“
auglýsingar
Sveinn segir tökur hafa hafist við
Geysi á þriðjudaginn og á miðviku-
dag stóðu yfir tökur við Bláa lónið.
Hann segir að einnig verði tekið
upp á Hjörleifshöfða, við Dyrhóla-
ey, Jökulsárlón og Fláajökul. „Svo
myndum við líka „lógóið“ þeirra
hingað og þangað þannig að íslensk
náttúra á eftir að koma víða við í
Bandaríkjunum varðandi auglýs-
ingar og sýningu á alls kyns efni,“
segir hann.
Að sögn Sveins lýkur tökum á
sunnudagskvöld en samkvæmt
áætlun verða þá teknar upp myndir
við Jökulsárlón.
Grunnhugmynd auglýsinganna
segir Sveinn ganga út á „no limits“
eða „takmarkaleysi“ og íslensk
náttúra hafi verið valin til að tákna
það. „Í Bláa lóninu sýna þeir mynd
af manni sem hleypur um og mynd-
skeiðið endar svo á að hann hleypur
fram á Strokk sem gýs fyrir framan
hann,“ sagði hann og taldi lítið mál
þótt Íslendingar kynnu að reka
augun í visst landfræðilegt mis-
ræmi í myndskeiðinu.
Morgunblaðið/Rax
Sveinn M. Sveinsson og kvikmyndatökumenn Showtime Networks við tökur hjá Bláa lóninu.
Bandarísk sjónvarpsstöð velur íslenska náttúru
Ímyndarauglýsingar
næstu tveggja ára
ÖLVAÐUR maður vopnaður eld-
húshnífi réðst inn á heimili í Mos-
fellsbæ á tíunda tímanum í gær-
morgun. Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík voru í húsinu kona og
barn, en hún flúði í næsta hús með
barnið eftir að maðurinn réðst til
inngöngu. Lögreglumenn í tveimur
eftirlitsbílum og útivarðstjóri
komu á staðinn og yfirbuguðu
manninn um tíu mínútum eftir að
málið var tilkynnt til lögreglu.
Hvorki konuna, sem lögregla segir
hafa þekkt til mannsins, né barnið
sakaði.
Lögreglan í Reykjavík segir lög-
reglumenn hafa verið klædda hlífð-
arvestum þar sem við vopnaðan
mann hafi verið að eiga. Greiðlega
mun hafa gengið að yfirbuga
manninn en hann var með áverka á
hendi þegar hann var handtekinn
og því fluttur á slysadeild til að-
hlynningar. Þaðan var maðurinn
færður í fangageymslu lögreglu.
Réðst inn á
heimili í
Mosfellsbæ
VARÐSKIP Landhelgisgæslunnar
stóð á miðvikudag netabát að ólög-
legum netaveiðum á Breiðafirði.
Farið var með bátinn til hafnar í
Stykkishólmi og samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu var báturinn með um
1.700 kíló af blönduðum afla.
Telst málið upplýst.
Staðinn að ólög-
legum veiðum
HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands
svipti í gær tvo menn vopna- og
veiðileyfum í hálft ár auk þess að
sekta þá fyrir fuglafriðunarbrot
framin í ágústbyrjun árið 1998.
Mennirnir veiddu 115 topp-
skarfa, bæði unga og fullorðna
fugla, og 6 lunda að auki. Var það
mat dómsins að fuglarnir féllu und-
ir ákvæði laga um friðun villtra
dýra þar sem veiðin fór fram utan
þess tíma sem veiði á þeim er
heimil. „Þrátt fyrir mikinn seina-
gang við rannsóknina [...] sem ekki
er réttlætanlegur svo séð verði,
þykir ekki alveg nægileg ástæða til
að líta svo á að rannsóknin hafi
stöðvast um óákveðinn tíma [...]
Verður því ekki fallist á að sök
ákærðu sé fyrnd, en litið verður til
þess við ákvörðun refsingar að
málsmeðferð hefur dregist,“ segir
jafnframt í dómnum.
Þá var mönnunum gert að greiða
tvo þriðju hluta alls sakarkostn-
aðar en ríkissjóður greiði rest.
Sviptir
vopna- og
veiðileyfum
MJÖG góðar göngur hafa verið í
Soginu síðustu daga og veiðitölur
hækkað á skömmum tíma. Til dæmis
hafa veiðst 18 laxar síðustu átta daga
í Ásgarði og heildartalan þar orðin
40 laxar. Eins og vanalega er Bílds-
fellið seinna í gang, en þar hafa menn
einnig verið að setja í laxa síðustu
daga og sama má segja um Syðri-
Brú þar sem fimm laxar höfðu veiðst
síðustu þrjá daga er gluggað var í
veiðibókina á staðnum í gær. Í Al-
viðru voru þá komnir 17 laxar á land
og margir af þeim 9 til 13 punda.
Mok í Rangánum
Enn er mokað upp úr báðum
Rangánum og eru t.d. að veiðast 40
til 65 laxar á dag, einungis á flugu, á
12 stangir í Ytri-Rangá. Í gær voru
komnir yfir 700 laxar á land úr ánni
og eitthvað meira, milli 800 og 900 úr
Eystri-Rangá, þar sem dagsaflinn er
oft meiri. Stórir sjóbirtingar hafa
einnig veiðst í neðri hluta Ytri-Rang-
ár, allt að 9 punda.
Það reytist upp úr Laxá í Aðaldal,
m.a. einn 18 punda á þriðjudags-
morgun. Voru þá komnir 227 laxar
úr Laxá sem er svipað og í fyrra, að
sögn Magnúsar Jónassonar, félaga í
Laxárfélaginu sem var að veiðum í
ánni. „Mestöll veiðin er á þremur
neðstu svæðum Laxár en á efri
svæðunum er einstaklega léleg veiði,
aðeins um 30 laxar veiðst á svæðum
4-7 þessar fimm vikur sem veitt hef-
ur verið, en það er aðeins einn lax á
stöng á viku,“ sagði Magnús.
Vel gengur í Hítará, hollin flest
með 10 til 15 laxa og það besta var
með 18 laxa og reyting af sjóbleikju.
Síðasta holl í Gljúfurá var með
átta laxa og fór þá sumartalan upp í
35 laxa sem er ívið meira en á sama
tíma í fyrra, en þá gekk veiðiskapur í
ánni einstaklega illa.
Laxá í Nesjum var opnuð um síð-
ustu helgi og veiddust strax 3 laxar,
5 til 8 punda og allir á flugu. Eitthvað
hefur verið að reytast síðan, að sögn
Bergs Steingrímssonar, fram-
kvæmdastjóra SVFR, sem hefur ána
í umboðssölu.
Helgi Héðinsson, Guðmundur Þorsteinsson, Magnús Þorvaldsson og
Magnús Jónasson með fallega morgunveiði af Æðarfossasvæðinu í Laxá
í Aðaldal fyrir fáum dögum. Stærsti laxinn á borðinu var 18 pundari
tekinn á maðk í Efri Háfholu.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Lifnar
mjög yfir
Soginu
FARÞEGUM í innanlandsflugi
fækkaði að meðaltali um 21%
fyrstu sex mánuði ársins miðað við
sama tíma í fyrra, samkvæmt
bráðabirgðatölum frá Flugmála-
stjórn. Fjöldi farþega nú, ríflega
176 þúsund borinn saman við tæp-
lega 224 þúsund eftir fyrri helming
ársins 2000, er svipaður og hann
var áður en áætlunarflug var gefið
frjálst fyrir fjórum árum.
Mest hefur fækkunin orðið á
Hornafjarðarflugvelli milli ára eða
um 37%. Alls fóru tæplega 3 þús-
und manns um völlinn í áætlunar-,
leigu- og sjúkraflugi fyrstu sex
mánuðina samanborið við um 4.700
í fyrra. Næstmest varð fækkunin á
Vestmannaeyjaflugvelli, eða 26%,
en þetta eru þeir tveir áfangastaðir
sem Flugfélag Íslands hefur ákveð-
ið að hætta áætlunarflugi til frá 1.
október nk. Minnst varð fækkunin
á Grímseyjarflugvelli, eða 3%, milli
ára og á Bakkaflugvelli í A-Land-
eyjum fækkaði farþegum um 7%.
Farþegum fækkaði á öllum
helstu flugvöllum landsins frá ára-
mótum til loka júní sl. Þannig nem-
ur fækkunin 22% á Egilsstöðum,
21% á Ísafirði, 18% á Akureyri og
17% á Sauðárkróki.
Húsavíkurflugvöllur má muna
sinn fífil fegri því á fyrri helmingi
ársins fóru 12 farþegar um völlinn,
þar af 9 í leiguflugi og 3 í sjúkra-
flugi. Áætlunarflugi var hætt til
Húsavíkur á síðasta ári, en fyrstu
sex mánuðina árið 2000 fóru alls
tæplega 4 þúsund manns um völl-
inn í áætlunar-, leigu- og sjúkra-
flugi.
Innanlandsflugið
fyrstu sex mánuðina
Mest fækk-
un á Höfn í
Hornafirði
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦