Morgunblaðið - 21.07.2001, Page 10

Morgunblaðið - 21.07.2001, Page 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ RÍKISENDURSKOÐUNhefur kallað eftir gögnumsem varða fjármála- ogumsýslustörf Árna John- sen alþingismanns í fleiri nefndum og ráðum en í byggingarnefnd Þjóðleik- hússins. Þannig hefur nú verið kallað eftir bókhaldi byggingarnefndar Þjóðhildarkirkju í Brattahlíð á Græn- landi og vegna byggingar stafkirkju í Vestmannaeyjum, en í báðum tilvik- um var Árni Johnsen formaður bygg- ingarnefndar. Páll Brynjarsson, sem var fram- kvæmdastjóri Vest-norræna þing- mannaráðsins á byggingartíma Þjóð- hildarkirkjunnar í Brattahlíð, segir að Árni Johnsen hafi sem formaður byggingarnefndar samþykkt alla reikninga nefndarinnar og haft með höndum prókúru. Þá hafi honum ver- ið afhent bókhald vegna fram- kvæmdanna eftir vígslu kirkjunnar, en það hafi þó ekki enn verið endur- skoðað. Talið er að kostnaður við framkvæmdir í Brattahlíð hafi verið á milli 70 og 75 milljónir króna, en kostnaður við móttöku norskrar staf- kirkju til Vestmannaeyja og upp- byggingu á Skansinum var af hálfu ríkisins um 56,8 milljónir. Sigurður Þórðarson ríkisendur- skoðandi staðfesti við Morgunblaðið í gær að kallað hefði verið eftir bók- haldi beggja þessara byggingar- nefnda, enda væri ætlunin að fá yfirsýn yfir öll störf Árna Johnsen al- þingismanns í opinbera þágu á undanförnum árum. „Við tökum fyrir öll viðfangsefni þingmannsins á undanförnum árum og erum að viða að okkur gögnum þessa dagana og hefja rannsóknina,“ sagði Sigurður. Ríkisendurskoðandi seg- ir að starfsfólk stofnunar- innar hafi verið að koma úr fríum og samstundis verið munstrað í rann- sóknina, enda leggi hann áherslu á að hraða henni eins og kostur sé. „Þetta tekur einhvern tíma, en þetta er ekkert áhlaupaverk og við stefnum á að ljúka þessari vinnu í ágústmánuði,“ sagði hann. Ekkert útboð vegna Brattahlíðarverkefnisins Ákveðið var á ársfundi Vest-nor- ræna þingmannasambandsins á fundi í Færeyjum árið 1995 að hefja und- irbúning þess að minnast landa- fundanna árið 1000 með uppbygg- ingu sögulegra menja á Grænlandi. Var m.a. ákveðið að reisa kirkju í Brattahlíð við Eiríksfjörð, sem nú heitir Qassiarsuk, þar sem Eiríkur rauði nam land í Grænlandi. Þaðan sigldi Leifur heppni sonur hans fyrir 1000 árum þegar hann fann Ameríku og þar lét Þjóðhildur kona Eiríks reisa fyrstu kristnu kirkjuna í Ameríku. Var ákveðið að kenna kirkjuna við Þjóðhildi en reisa um leið endurgerð af skála Eiríks skammt frá rústum hinna sögulegu mannvirkja. Hin nýju mannvirki í Brattahlíð voru vígð við hátíðlega athöfn um miðjan júlí í fyrra og afhenti þá Árni Johnsen sem formaður byggingar- nefndar Jonathan Motzfeldt, for- manni grænlensku landstjórnarinn- ar, lyklavöldin. „Ég heyri sérfræðinga hér segja að þetta séu fallegustu hús í þessum norræna stíl sem til eru í heiminum. Það hefur kostað mikla vinnu þar sem nostrað hefur verið við hverja fjöl og planka,“ sagði Árni m.a. af þessu til- efni við Morgunblaðið, en bygging- arnar kostuðu rúmar 70 milljónir króna. Íslenska ríkið og grænlenska landstjórnin greiða um tvo þriðju hluta kostnaðar en norrænir sjóðir og ýmsir aðrir afganginn. Páll Brynjarsson, fv. fram- kvæmdastjóri Vest-norræna ráðsins, kom mjög að framkvæmdunum í Bröttuhlíð og hafði mikil samskipti við Árna Johnsen vegna þeirra. „Árni var fulltrúi ráðsins í bygg- ingarnefnd og formaður hennar. Auk þess áttu í henni sæti þrír fulltrúar grænlensku landstjórnarinnar,“ seg- ir Páll. Hann bendir á að Árni Johnsen hafi óskað eftir því vorið 1999 að opn- aður yrði reikningur í nafni bygging- arnefnarinnar. „Vest- norræna ráðið stóð í raun fyrir þessum fram- kvæmdum og notuð var kennitala ráðsins. Árni óskaði jafnframt eftir því að ég sem starfsmaður ráðsins myndi hafa umsjón með þessum reikningi og úr varð að Árni sem for- maður hafði samband við mig sem starfsmann ráðsins og óskaði eftir því að ég greiddi eða millifærði reikninga þá sem bárust.“ Páll segir að sjálfsagt hafi um 98% reikninganna verið frá Ístaki, enda hafi fyrirtækið verið verktaki við framkvæmdina sem slíka. Hann segir að sér hafi ekkert þótt óeðlilegt við þetta fyrirkomulag. Ekkert útboð fór fram í tengslum við Brattahlíðarverkefnið, heldur var samið við Ístak um verkið. Páll segist ekki þekkja nákvæmlega hvernig staðið hafi verið að samningnum, en Árni hafi skrifað undir hann og sömu- leiðis framkvæmdastjóri Ístaks. „Árni sá um þessar framkvæmdir að miklu leyti og ég held að menn hafi bara verið mjög sáttir við það, vegna þess að hann gerði þetta af miklum krafti, stýrði byggingarnefndinni og hélt utan um alla stjórnartaumana.“ Páll hætti sem framkvæmdastjóri ráðsins á síðasta ári og varð þá að samkomulagi milli hans og Árna Johnsen að Árna yrði falin varsla bókhaldsgagna vegna fram- kvæmdanna. „Þessi mappa sem hafði að geyma bókhald verkefnisins var fengin formanninum, enda hafði verið um það talað. Auðvitað stóð til að láta endurskoða allt bókhaldið eftir vígslu Brattahlíðar, en þessu verkefni er bara ekki lokið enn og um það snýst málið. Það er ekki búið að greiða reikninginn við Ístak og byggingar- nefnd er enn í dag, að því er ég best veit, að reyna að útvega nokkrar þær milljónir sem vantar til að klára dæmið. Það hafði alltaf verið um það rætt, að um leið og búið væri að klára þetta dæmi, þá færi allt í endurskoð- un,“ segir Páll ennfremur. Hann segist ekki muna eftir nein- um færslum í bókhaldinu sem vakið hafi hjá honum spurningar og kallað eftir frekari skýringum. „Ég man ekki eftir neinu slíku,“ segir hann. Steingrímur J. Sigfússon, alþingis- maður og formaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, sat í stjórn Vest-norrænu þingmannasam- takanna árið 1995 þegar ákvörðun var tekin um að ráðast í framkvæmd- irnar í Bröttuhlíð. Hann vék síðan úr stjórn og fór yfir í Norðurlandaráð þetta sama ár og var því ekki einn þeirra sem kom að ákvarðanatöku. „Ég var eingöngu til staðar þegar málum var hreyft í upphafi og studdi þessar hugmyndir heils- hugar,“ segir hann. „Mig tekur mjög sárt ef þetta góða samstarf Íslands, Færeyja og Grænlands og þetta verkefni, sem er að mörgu leyti til sóma, þarf einnig að lenda í hremmingum af því að óvenju- lega hafi verið að því staðið.“ Steingrímur kveðst undrandi á að verkefnið hafi ekki verið boðið út á sínum tíma, en leggur áherslu á að fjármálaumsýsla vegna Brattahlíðar- verkefnisins sé aðeins til skoðunar og ekkert liggi fyrir um að eitthvað óhreint hafi verið þar á ferðinni. „Þessi stjórnsýsla hlýtur að kalla á margar spurningar og ég undra mig á því sem komið hefur í ljós. Ég veit ekki annað en þegar Alþingi ákveður fjárframlög til einstakra verkefna, að lögð sé áhersla á að útvega greinar- gerðir og að öllum reglum um upp- gjör og skilagreinar sé fylgt. Þess vegna koma þessar fréttir mér af- skaplega spánskt fyrir sjónir,“ segir Steingrímur. Móttaka stafkirkjunnar kostaði 56,8 milljónir Norsk stjórnvöld ákváðu fyrir nokkrum árum að gefa stafkirkju í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi og var henni valinn staður í Vestmannaeyjum. Kirkjan sjálf var smíðuð í Noregi, en undirstöður og annað því tengt hér á landi. Árni Johnsen var forgöngumaður um að stafkirkjunni skyldi valinn staður í Vestmannaeyjum og hann var skipaður formaður byggingar- nefndar kirkjunnar skv. erindisbréfi forsætisráðherra frá 7. mars 1999. Með honum í nefndinni voru Skarp- héðinn B. Steinarsson, frá forsætis- ráðuneytinu, Guðni Ágústsson al- þingismaður, Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Kristján Björnsson, sóknarprestur í Eyjum. Guðni vék sæti í nefndinni er hann tók við ráðherraembætti og við starfi hans tók Ármann Höskuldsson forstöðumaður. Þær upplýsingar fengust í forsæt- isráðuneytinu að framkvæmdir við stafkirkjuna hafi verið hluti af um- fangsmiklum endurbótum á Skansin- um í Vestmannaeyjum. Aðrar fram- kvæmdir, svo sem endurgerð Landlystar og hafnarkantur, hafi verið á forræði Vestmannaeyjabæjar og þar sem svæðið myndi eina heild hafi byggingarnefndin ákveðið að dagleg umsjón framkvæmda skyldi vera í höndum bæjaryfirvalda. Byggingarnefndin hafði með alla ákvarðanatöku að gera um fyrirkomulag fram- kvæmda og ráðstöfun fjárheimilda, að því er Guðmundur Árnason, skrifstofustjóri í forsætis- ráðuneytinu, tjáði Morgunblaðinu. Hann sagði einnig að bæjartækni- fræðingur Vestmannaeyjabæjar hefði haft eftirlit með framkvæmdum og áritað reikninga sem síðan voru sendir aðalskrifstofu forsætisráðu- neytisins til samþykktar og greiðslu. Upphafleg kostnaðaráætlun, sem gerð var í ársbyrjun 1998, var 38 milljónir króna. Endurskoðuð kostn- aðaráætlun í ársbyrjun árið 2000 var 52,5 millj. kr. Heildarkostnaður við framkvæmdina nam 56,8 millj. kr., en það er 8% yfir endurskoðaðri kostn- aðaráætlun og um 49% meira en upp- haflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Unnið er að gerð skilagreinar fyrir verkefnið. Kallað eftir gögnum um Brattahlíð og Eyjar Morgunblaðið/RAX Árni Johnsen afhendir Jonathan Motzfeldt lykilinn að Þjóðhildarkirkju í júlí í fyrra. Ríkisendurskoðun hyggst hraða rannsókn á fésýslu Árna Johnsen og ljúka henni í næsta mánuði, skrifar Björn Ingi Hrafnsson. Árni Johnsen var formaður byggingarnefnda Þjóð- hildarkirkju í Brattahlíð á Grænlandi og staf- kirkjunnar í Vest- mannaeyjum og hefur Ríkisendurskoðun kall- að eftir gögnum um báð- ar framkvæmdirnar. bingi@mbl.is Áætlað að ljúka rannsókn á fjármálaumsýslu Árna Johnsen fyrir lok ágúst Þessi stjórn- sýsla kallar á spurningar Sárt ef þetta verkefni lendir í hremmingum FORSETA Alþingis hafði í gær ekki borist bréf frá Árna Johnsen um að hann segði af sér þing- mennsku, líkt og hann tilkynnti sl. fimmtudag. Búist er við að bréfið komi eftir helgi, samkvæmt upplýs- ingum á skrifstofu Alþingis en bæði forseti, skrifstofustjóri og aðstoðar- skrifstofustjóri þingsins voru í fríi í gær. Samkvæmt lögum um þingfarar- kaup og þingfararkostnað alþingis- manna frá árinu 1995 á þingmaður rétt á biðlaunum er hann lætur af þingmennsku. Hafi þingmaður setið í tvö kjörtímabil eða lengur á hann rétt á sex mánaða biðlaunum en þriggja mánaða biðlaunum ef þing- setan nær aðeins yfir eitt kjörtíma- bil. Samkvæmt þessu á Árni rétt á sex mánaða biðlaunum, þar sem hann var á miðju sínu fjórða kjör- tímabili sem aðalmaður á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Suðurlandi þegar hann tilkynnti afsögnina. Venjan hefur verið sú að þing- menn, sem látið hafa af þing- mennsku, hafa þurft að óska sjálfir eftir biðlaunum, hvort sem það er á miðju kjörtímabili eða að því loknu. En í fyrrgreindum lögum segir að ef vafi leiki á um rétt þingmanns til biðlauna eða annarra kjara sam- kvæmt lögum þurfi forsætisnefnd þingsins að skera úr. Nokkur for- dæmi eru fyrir því að þingmenn, sem látið hafa af störfum á miðju kjörtímabili, hafa nýtt sér réttinn til biðlauna. Á rétt á sex mán- aða bið- launum Afsagnarbréf Árna Johnsen hefur ekki borist forseta Alþingis RÍKISSAKSÓKNARI, Bogi Nils- son, segir að þau tilvik í störfum Árna Johnsen sem formanns bygg- ingarnefndar Þjóðleikhússins, sem fram hafa komið opinberlega og Árni viðurkennt að hafa komið nærri, gefi sér næg tilefni nú þegar til að mæla fyrir um lögreglurannsókn. Emb- ættið vilji þó doka við þar til Rík- isendurskoðun sé lengra á veg komin í sinni athugun á umsýslu Árna og afsögn hans sem þingmanns breyti engu í þeim efnum. Bogi segir að hins vegar verði ekki beðið þar til Ríkisendurskoðun hefur lokið heildarathugun á umsýslu- störfum Árna. Fylgst sé með fram- vindu athugunar Ríkisendurskoðun- ar í óformlegum samskiptum embættanna og ljóst sé að reynt verði að hraða afgreiðslu málsins eins og kostur er, sér í lagi varðandi þau atvik sem hafa verið mest í um- ræðunni. „Til þess að hafa frumkvæði að lögreglurannsókn þarf að liggja fyrir grunur um að refsiverð háttsemi hafi verið framin. Í mínum huga liggur málið þannig fyrir að því er varðar þrjú tilvik sem fjallað hefur verið rækilega um í fjölmiðlum. En ég tel þó rétt að doka við um stund á meðan Ríkisendurskoðun er að safna gögn- um út af þessum tilvikum og fara yfir þau,“ segir Bogi. Næg tilefni til að mæla fyrir um lögreglu- rannsókn Ríkissaksóknari um mál Árna Johnsen ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.