Morgunblaðið - 21.07.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.07.2001, Blaðsíða 12
TVÆR lausar kennslu- stofur, sem notaðar hafa verið undir smíðakennslu í Hlíðaskóla mörg undanfarin ár, voru fluttar af lóð skól- ans í vikunni vegna fyr- irhugaðrar endurskipulagn- ingar húsnæðismála skólans. Stofurnar voru fluttar upp í Grafarholtsskóla þar sem þær munu koma að notum. Stefnt er að einsetningu Hlíðaskóla á næsta ári og stendur jafnframt til að gera gagngerar breytingar á hús- næði skólans. Um 1.900 fer- metra viðbygging er fyr- irhuguð og er ráðgert að ljúka jarðvinnu í haust. Morgunblaðið/Arnaldur Smíðastofur fjarlægðar Reykjavík HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ SUNDLAUGIN í Laugardal mun taka miklum breytingum á næstu árum og er stefnt að því að opna hana með ger- breyttu sniði árið 2004. Fram- reiknaður kostnaður er talinn vera einn milljarður króna. Markmiðið með breytingun- um er tvíþætt, að sögn Stein- unnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns Íþrótta- og tóm- stundaráðs Reykjavíkur. Ann- ars vegar á að ná fram betri nýtingu á sundlauginni í nú- verandi formi og hins vegar að búa til keppnis- og æfinga- sundlaug fyrir íslenskt keppn- issundfólk. „Það hefur verið talað um það í mörg ár að það þyrfti 50 m yfirbyggða sund- laug á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Steinunn Valdís. „Þegar upp er staðið mun þetta mann- virki verða mjög glæsilegt, með fullkominni keppnisað- stöðu sem verður boðleg á al- þjóðavísu.“ Hún tekur þó fram að laug- in eigi einnig að þjóna öðrum markmiðum enda verði unnt að kenna þar ungbarnasund og bjóða upp á leikfimi fyrir eldri borgara. Heilsuræktarstöð frá World Class í viðbyggingunni Gert er ráð fyrir að ný við- bygging við sundlaugina hýsi heilsusræktarstöð, sem byggð verður og rekin af World Class. Um þessar mundir er unnið að samstarfssamningi milli ÍTR og World Class um þjónustu við viðskiptavini beggja aðila. Steinunn Valdís segir að m.a. sé unnið út frá því að gera sundlaugina að eftirsóknar- verðum baðstað í Reykjavík og tengja framkvæmdina við hugmynd um Reykjavík sem heilsuborg. „Það er gert ráð fyrir að þarna verði ekki ein- göngu um að ræða líkams- ræktarstöð í venjulegum skilningi þess orðs, heldur geti fólk hugsanlega leitað sér þar óhefðbundinna lækninga með bökstrum, leirböðum og slíku. Þetta gæti gerst í tengslum við heilsuræktarstöðina og í garðinum sem myndast fyrir framan stöðina á grassvæðinu sem ekki er nýtt við laugina sjálfa. Því má segja að við séum að búa til heilsu- og vatnaparadís.“ Stefnt að því að taka húsið í notkun 2004 Gert er ráð fyrir því að ljúka hönnun, jarðvinnu og upp- steypun í lok þessa árs. Í árs- byrjun 2003 er síðan stefnt að því að ljúka ytri frágangi svo unnt verði að taka húsið í notkun með öllu árið 2004. Búið er að samþykkja deili- skipulag fyrir svæðið og hafa teikningar af húsinu verið lagðar inn á fundi skipulags- og byggingarnefndar. Tillaga Ara Lúðvíkssonar arkitekts að viðbygginu við sundlaugina var á sínum tíma valin úr hópi fjölmargra til- lagna, en hún var talin falla vel að hugmyndum um vatna- paradís í Laugardalnum. Við- byggingin, sem er 14.500 fer- metrar, er mánalaga og skapar gott skjól í kringum sundlaugarsvæðið auk þess sem höfundur gerir ráð fyrir að færa aðalinngang í sund- laugina til vesturs. Viðamiklar breytingar ráðgerðar á Laugardalslauginni með 14.500 fermetra viðbyggingu Tölvuunnin loftmynd sem sýnir Laugardalslaug framtíðarinnar. Vatnaparadís í Laugardalnum Reykjavík Mynd/Onno ehf. Staðgeng- ill skóla- stjóra ráðinn Hafnarfjörður BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur staðfest samþykkt skólanefndar á ráðningu Leifs S. Garðarssonar í stöðu aðstoðarskólastjóra Öldutúnsskóla frá 1. ágúst næstkomandi. Samkvæmt upplýsingum frá Hafnar- fjarðarbæ eru tveir aðstoð- arskólastjórar í skólanum og er annar þeirra stað- gengill skólastjóra, en það er staðan sem Leifur hefur verið ráðinn í. Hann gegndi áður stöðu annars aðstoð- arskólastjóra við Öldutúns- skóla. Tillaga að mats- áætlun komin Garðabær SKIPULAGSSTOFNUN hefur borist tillaga Vegagerð- ar ríkisins og Garðabæjar að matsáætlun vegna mats á um- hverfisáhrifum Álftanesvegar og Vífilsstaðavegar og er stefnt að því að ákvörðun stofnunarinnar um tillögu framkvæmdaraðila að mats- áætlun muni liggja fyrir 16. ágúst nk. Öllum frjáls aðgangur Allir geta kynnt sér tillög- una og lagt fram athugasemd- ir. Hægt er að óska eftir ein- tökum af tillögunni hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, en einnig má nálgast til- lögu að matsáætlun á heima- síðu hönnunar, www.honnun- .is. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 30. júlí til Skipulagsstofn- unar. TILBOÐ vegna lokaðs út- boðs í fjármögnun, byggingu og rekstur nýs leikskóla við Tjarnarbraut voru opnuð á þriðjudag. Lægstbjóðandi í leikskólann Hörðuvelli er FM-hús ehf. en tilboð þeirra hljóðar upp á 96,5% af kostn- aðaráætlun. Þá er fyrirhugað að opna tilboð 1. ágúst næst- komandi vegna útboðs í nýj- an Lækjarskóla og íþrótta- húsnæði við Sólvangsveg. Óskað eftir umsóknum einkaaðila Hafnarfjarðarbær hafði óskað eftir umsóknum einka- aðila um að taka þátt í lok- uðu útboði vegna fjármögn- unar, byggingar og rekstrar skólahúsnæðis, íþróttahúss og sundlaugar, alls um 7.500 m2, auk leikskólans sem er áætlaður 650 m2 að flatar- máli. Alls bárust þrjú tilboð í leikskólann. Frá Nýsi hf. og Ístaki hf., ÍAV, ISS Íslandi og fleirum auk tilboðs frá FM-húsum ehf. Kostnaðar- áætlun, sem miðast við með- alkostnað í 25 ár, hljóðar upp á rúmar 19,5 milljónir á ári en tilboð FM-húsa hljóðaði upp á tæpar 19 milljónir. Áætlað er að verkinu verði að fullu lokið 5. apríl 2002. Arkitektastofa Finns og Hilmars, Landmótun ehf. og VSÓ Ráðgjöf koma að hönn- un leikskólans. Á fundi bæjarráðs fimmtu- daginn 19. júlí var samþykkt að heimila bæjarstjóra að ganga til samninga vð lægst- bjóðanda, FM-hús ehf., um byggingu og rekstur leik- skólans á Hörðuvöllum. Bæj- arráðsmenn Samfylkingar lögðu fram bókun á fundin- um þar sem þeir ítrekuðu stuðning sinn við endurnýjun húsakosts leikskólans en einnig andstöðu sína við þá einkaframkvæmdarleið sem farin er við verkið. Stefnt er að því að fyrsta áfanga nýs grunnskóla við Sólvangsveg ljúki í ágúst 2002, öðrum áfanga í ágúst 2003 og þriðja áfanga, sem snýr meðal annars að leik- fimihúsi og kennslusundlaug, í ágúst 2004. Útboð vegna rekstrar á nýjum leikskóla Lægstbjóðandi bauð tæpar 19 milljónir Hafnarfjörður ÍSLENSKU menntasamtök- in hafa ekki getað staðið við skilyrði í útboðsskilmála um fjárhagslegar tryggingar til Hafnarfjarðarbæjar vegna skólahalds í leikskóla og grunnskóla í Áslandi, að sögn bæjarráðsmanna Samfylk- ingarinnar í Hafnarfirði. Við- bætur og breytingar á samn- ingi Hafnarfjarðarbæjar og Íslensku menntasamtakanna um kennslu og þjónustuverk- efni við grunnskóla í Áslandi hafa verið samþykktar af bæjarráði, en þær fela meðal annars í sér að fjárhagslegar tryggingar til bæjarins af hálfu Íslensku menntasam- takanna vegna skólahaldsins eru lækkaðar úr sex mán- uðum niður í tvo. Í útboðs- skilmálum var gerð krafa um sex mánaða tryggingu, í samningsgerð við Íslensku menntasamtökin var trygg- ingatími færður niður í fjóra mánuði en við lokafrágang samningsins nú er trygginga- tími orðinn tveir mánuðir, sem er einn þriðji hluti upp- haflegrar kröfu. Segir ÍMS ekki geta uppfyllt nýju skilyrðin Að sögn Lúðvíks Geirsson- ar, bæjarfulltrúa Samfylking- arinnar í Hafnarfirði, geta Íslensku menntasamtökin ekki uppfyllt hin nýju skil- yrði um tveggja mánaða tryggingu og því sé nú með sérstökum yfirlýsingum reynt að búa til málamynda- tryggingar. „Svo virðist sem samtökin sem ætla að standa að rekstri skólanna hafi ekk- ert fjárhagslegt bakland og geti ekki staðið fyrir þessum tryggingum, “ segir Lúðvík. Lúðvík bendir á að aðrir aðilar sem höfðu í huga að bjóða í verkið hafi ef til vill ekki treyst sér í það vegna tryggingaskilmálanna, en nú hafi samningar verið gerðir við fyrirtæki sem svo ekki geti staðið undir tryggingun- um þegar til kastanna kem- ur. Fjárhagsleg- ar tryggingar ÍMS lækkaðar Hafnarfjörður Níu lóðarhafar sviptir lóðum í Áslandshverfi Hafnarfjörður NÍU lóðarhafar sem höfðu fengið úthlutað lóð í hinu nýja Áslandshverfi í Hafn- arfirði hafa verið sviptir lóð- arúthlutun, þar sem þeir hafa ekki staðið við úthlut- unarskilmála. Að sögn Krist- jáns Þórarinssonar, starfandi byggingarfulltrúa Hafnar- fjarðarbæjar, felst meðal annars í úthlutunarskilmál- um að lóðarhafar þurfa að greiða staðfestingargjald fyr- ir lóðina og sé það ekki gert fari fyrsta svipting fram. Einnig þurfa lóðarhafar að skila inn uppdráttum af lóð- unum og rann fresturinn til þess vegna lóðanna í Ás- landshverfi út 13. júlí síðast- liðinn, en þá höfðu níu aðilar ekki staðið skil á uppdrætt- inum. Kristján segir að nú sé í höndum bæjarráðs að taka ákvörðun um hvort lóðirnar verði auglýstar aftur eða hvort gengið verði á vara- mannalistann, en lóðir í Ás- landshverfi séu mjög eftir- sóttar. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.