Morgunblaðið - 21.07.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.07.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í SUMARBÚSTAÐNUM jafnast ekkert á við að slaka á eða að bregða á leik í heitum potti. Unga kynslóðin er þar engin undantekn- ing en á myndinni eru þær Berg- lind, Melkorka, Lilja og Karen í sumarbústað í Borgarfirði á dög- unum. Morgunblaðið/Ragnhildur Aðalsteinsdóttir Slappað af í heita pottinum LANDHELGISGÆSLAN eyddi í fyrrakvöld djúpsprengju með full- virku sprengiefni sem Sæmundur HF-85 fékk í veiðarfærin í Jökul- djúpi á fimmtudaginn. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að sprengjan hafi verið tekin í land í Keflavík og henni eytt við Stapafell um klukkan hálf tólf í fyrrakvöld. Sigurður Ásgrímsson, deildar- stjóri tæknideildar Landhelgisgæsl- unnar, segir að sprengjan hafi verið bresk og búið um hana eins og til flutninga. Ekki hafi verið virkur kveikibúnaður á henni. Hann segir því minni hættu hafa stafað af sprengjunni en ella, en hún sé þó alltaf nokkur því með aldrinum geti sprengiefni orðið ótryggara og jafn- vel dygði þungt högg til að koma af stað sprengingu. „Djúpsprengjur af þessu tagi eru með því hættulegra sem menn geta fengið í veiðarfærin sín ef þær eru með öllu tilheyr- andi,“ sagði Sigurður og bætti við að sprengikraftur sprengjunnar sem Sæmundur fékk í veiðarfæri sín jafnaðist á við 250 kíló af dýna- míti. Djúpsprengju eytt við Stapafell Evrópumeistari JC í ræðumennsku Keppir á heimsþingi JC NÝLEGA sigraðiIngimundur K.Guðmundsson í ræðukeppni á Evrópu- þingi Junior Chamber í Tampere í Finnlandi. Þetta er í fimmta skipti á sex árum sem Ísland á Evrópumeistara í þessari keppni. Ingimundur var spurður hvers vegna ís- lenskum keppendum gengi svona vel í þessari keppni. „Tvær ástæður get ég nefnt fyrir því, í fyrsta lagi höfum við nokkuð góða þjálfun í ræðumennsku héðan að heiman og einnig er enskukunnátta okkar Íslendinga talsvert góð.“ – Í hverju er keppt? „Keppt er í að halda 5 til 7 mínútna ræðu um efni sem er ákveðið af heims- stjórn JC og tengist slag- orðum heimsstjórnar eða heims- forseta. Slagorðið nú er: Frumkvöðlar í verki.“ – Um hvað ræddir þú í ræðu þinni? „Ég fjallaði fyrst um sögu JC, tók svo starf mitt hjá Tali sem dæmi um frumkvöðulsstarf og ræddi síðan í lokin um þá þjálfun sem við hljótum hjá JC og hvernig hægt sé að nota hana til að auka frumkvæði hjá fólki.“ – Voru margir sem tóku þátt í keppninni? „Það voru tíu keppendur, einn frá hverju Norðurlandanna, þá voru þrír fulltrúar enskumælandi þjóða og tveir frá Suður-Evrópu.“ – Hvers vegna er þetta slagorð- ið í ár? „Þetta er í raun og veru slag- orðið fyrir heimshreyfingu JC næstu ár. Þetta er uppbygging- arslagorð ef svo má segja og mið- ar að hvatningu til manna um að breyta heiminum til hins betra. Heimsforsetinn orðar þetta þann- ig: Stuðlum að friðsælu árþús- undi.“ – Er JC-hreyfingin vaxandi hreyfing? „Hún hefur staðið nokkuð í stað síðustu tvö árin, enda samkeppni við aðra afþreyingu mikil, en við höfum uppi áætlanir um að auka starfsemina og þar með félaga- fjöldann í framtíðinni. Nú starfa innan JC á Íslandi um 170 manns, en um 400 þúsund manns á heims- mælikvarða. JC er starfandi í all- flestum löndum í heiminum, JC er t.d. mjög sterkt í Asíu. Á heims- þingi JC hittir maður fólk frá hin- um ólíkustu löndum. Það er fróð- legt að hitta fólk frá hinum fjölbreytilegustu menningarheim- um. Auðvitað heyrir maður alltaf fréttir hér, en þegar maður hittir fólk augliti til auglitis fregnar maður ýmislegt sem aldrei er sagt frá í fréttatímum.“ – Hvers vegna er þjálfun í ræðumennsku svona mikið atriði hjá JC? „Vegna þess að ræðumennska er grunnur að því að geta komið fyrir sig orði, hvort sem er í ræðupúlti, við hvers konar þjálfun eða bara á fundum á vinnustað.“ – Hvert er megin- markmið JC? „Þetta er stjórnþjálfunarhreyf- ing, markmiðið er að þjálfa upp stjórnunarhæfileika í fólki.“ – Hvernig atvikaðist það að þú fórst að taka þátt í þessu starfi? „Ég fór á kynningarfund hjá JC fyrir fjórum árum og leist svo vel á það sem ég heyrði og sá að ég gekk til liðs við hreyfinguna ári síðar eða 1998.“ – Hvað annað en ræðumennsku hefur þú þjálfað hjá JC? „Til dæmis hef ég lært ýmislegt um skipulagsvinnu, hvað sé nauð- synlegt til að koma verkefni áfram frá hugmynd til framkvæmda. Oft fá menn góða hugmynd og jafnvel hrinda henni í framkvæmd en gleyma svo að fylgja henni eftir. Eftirfylgni er mjög nauðsynleg og einnig að læra af því sem gert er, bæði því sem heppnast og hinu sem miður fer.“ – Hvað leiðir af sigri þínum í ræðukeppni á Evrópuþingi JC? „Ég fæ keppnisrétt á heims- þingi og keppi þar fyrir hönd Evr- ópu. Þar eru aðeins fjórir kepp- endur, einn frá Evrópu, einn frá Asíu, Ástralíu og Nýja-Sjálandi, einn frá Afríku og einn frá Norð- ur- og Suður-Ameríku.“ – Veistu hvað fjallað verður um í keppninni? „Já, það verður fjallað um sama efni: Frumkvöðlar í verki (Ent- repreneus in action). Venjulega er fólk með sömu ræðuna og það flutti í undankeppninni.“ – Fórstu með ræðuna skrifaða út til Finnlands? „Já, maður fær tækifæri til að skrifa ræðuna sína fyrirfram, sem ég nýtti mér, en það eru þó ekki allir sem nýta sér þetta, sumir tala blaðalaust.“ – Eruð þið ekki þjálfuð í að halda óundirbúnar ræður? „Jú, ég hef keppt á Evrópuþingi og heimsþingi í svokallaðri rök- ræðukeppni. Þar er undirbún- ingstími 15 mínútur eftir að maður fær fyrst að heyra efnið. Tveggja manna lið keppa, annar flytur tvisvar sinnum 3 mínútna ræðu og hinn eina slíka ræðu. Við er- um farin að þjálfa fólk sérstaklega fyrir þessa keppni. Við höldum hér á Íslandi ræðukeppnir sem samsvara þessum erlendu JC- keppnum.“ – Hvenær ferðu í heimskeppn- ina? „Heimsþingið verður haldið í byrjun nóvember í Barcelona á Spáni.“ Ingimundur K. Guðmundsson  Ingimundur K. Guðmundsson fæddist 12. ágúst 1970 í Reykja- vík. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands 1990. Hann hefur starfað hjá Visa í 6 ár og sem kerfisfræðingur hjá Tali frá því að það fyrirtæki tók til starfa. Ingimundur hefur tek- ið þátt í félagsmálum, einkum á vettvangi JC á Íslandi þar sem hann gegnir nú starfi forseta JC í Garðabæ og Kópavogi. Ingi- mundur á dótturina Rakel Rós. Fulltrúi Evr- ópu í ræðu- keppni á heimsþingi JC

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.