Morgunblaðið - 21.07.2001, Page 14
AKUREYRI
14 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Einbýlishúsið að
Álfabyggð 14
á Akureyri er til sölu.
Húsið er allt endurnýjað, tvær stofur, fimm
svefnherbergi ásamt bílskúr. Þetta er fyrsta
flokks eign á Suður-Brekkunni. Laust í ágúst.
Nánari upplýsingar
Ráðhústorg 5, Akureyri, sími 461 1500
petur@fast.is - Veffang: www.fast.is
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIN „Ein með
öllu“ verður haldin á Akureyri um
verslunarmannahelgina. Forsvars-
menn hátíðarinnar kynntu hana á
fundi við útilífsmiðstöðina að Hömr-
um og greindu frá helstu atriðum sem
þar verður boðið upp á.
Að hátíðinni standa verslanir, veit-
inga- og skemmtistaðir sem og ýmis
fyrirtæki í bænum, en þrjár verslanir
í bænum, Bónus, Hagkaup og 10–11
auk SS veita mestan stuðning.
Fremri kynningarþjónusta hefur
haldið utan um framkvæmdina.
Bragi Bergmann hjá Fremri sagði
að menn væru stoltir af því hve vel
hefði tekist til með að fá góða
skemmtikrafta til bæjarins til að taka
þátt í hátíðinni. Dagskrá verður á
Ráðhústorgi alla dagana þar sem
fram koma fjölmargir listamenn.
Unglingadansleikir verða haldnir í
KA-heimilinu öll kvöldin, þar sem
Skítamórall, Sálin hans Jóns míns og
Greifarnir leika en þessar hljómsveit-
ir koma einnig fram í Sjallanum um
þessa helgi.
Boðið verður upp á skemmtidag-
skrá að Hömrum og leiktæki verða
sett upp í miðbænum svo eitthvað sé
nefnt.
Skrúðganga á íþróttavöll
Á sunnudagskvöldið verður efnt til
skrúðgöngu frá þremur stöðum í
bænum, þ.e. frá Bónusi, Hagkaupi og
10–11 sem sameinast á horni Þórunn-
arstrætis og Glerárgötu þaðan sem
gengið verður á íþróttavöllinn. Þar
mun dúettinn Hundur í óskilum
stjórna brekku- og stúkusöng sem
kyrjaður verður við langeld. Kvöldhá-
tíðinni lýkur með flugeldasýningu um
miðnætti.
Bragi lagði áherslu á að um fjöl-
skylduhátíð væri að ræða þar sem all-
ir aldurshópur ættu að finna eitthvað
við sitt hæfi. Hann sagði ekkert ald-
urstakmark á hátíðina en landslögum
væri fylgt líkt og á öðrum útihátíðum
landsins. „Meginmarkmið okkar er að
þeir sem koma á þessa hátíð fari
ánægðir heim og vilji koma aftur auk
þess sem við væntum þess að bæj-
arbúar sjálfir taki virkan þátt í dag-
skránni,“ sagði Bragi, en stefnt er að
því að festa hátíðina í sessi sem árleg-
an viðburð í bæjarlífinu.
Tjaldstæði á þremur
stöðum í bænum
Tjaldstæði verða á þremur stöðum
í bænum, við Þórunnarstræti, að
Hömrum og á svæði Íþróttafélagsins
Þórs við Skarðshlíð. Tjaldstæði eru
einnig í nágrenni bæjarins, í Húsa-
brekku og Hrafnagili. Ekki er gert
ráð fyrir að tjaldað verði í Kjarna-
skógi líkt og verið hefur síðustu versl-
unarmannahelgar.
Miklar framkvæmdir standa nú yf-
ir á Hömrum og verður, að sögn
Tryggva Marinóssonar hjá skátafé-
laginu Klakki sem rekur svæðið, unn-
ið dag og nótt við að útbúa svæðið
sem best fyrir þessa helgi, m.a. er
verið að leggja vegi og slóðir og útbúa
tjörn á svæðinu.
„Ein með öllu“ á Akureyri
um verslunarmannahelgina
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þeir Tryggvi Marinósson, Ingþór Ásgeirsson, Bragi Bergmann og Sig-
urbjörn Sveinsson með merki hátíðarinnar Ein með öllu við útilífs-
miðstöðina að Hömrum.
AKUREYRARKIRKJA:
Sumatónleikar kl. 17 á morg-
un, sunnudag. Kvöldmessa kl.
20.30 um kvöldið. Sr Birgir
Snæbjörnsson. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja.
Hulda Garðarsdóttir sópran
og Sigrún Arngrímsdóttir
mezzosópran taka þátt í
messunni. Morgunsöngur á
þriðjudagur 24. júlí kl.
Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. næsta fimmtu-
dag. Bænaefnum má koma til
prestanna. Unnt er að kaupa
léttan hádegisverð í Safnað-
arheimili eftir stundina.
GLERÁRKIRKJA: Kvöld-
guðsþjónusta í Glerárkirkju
sunnudagkvöld kl. 21.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Almenn samkoma kl. 20 á
sunnudag, 22.júlí.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Brauðsbrotning í kvöld, laug-
ardagskvöld kl. 20. Yngvi
Rafn Yngvason predikar.
Vakningarsamkoma kl. 20 á
sunnudagskvöld. Dögg Harð-
ardóttir og Fjalar Freyr Ein-
arsson frá Húsavík predika.
Fjölbreytt lofgjörðartónlist
og fyrirbænaþjónusta.
LAUFÁSPRESTAKALL:
Helgistund í Laufáskirkju kl.
13.30 á sunnudag, 22. júlí í
upphafi starfsdags í Gamla-
bænum.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Messa í dag, laugardag kl. 18
og á morgun, sunnudag kl.
11.
Kirkju-
starf
ÓLAFSFJARÐARKIRKJA:
Messa verður í kirkjunni á
morgun, sunnudaginn 22. júlí,
kl. 11. Fermdur verður Hjalti
Rögnvaldsson, Hlíðarvegi 42,
Ólafsfirði. Prestur verður sr.
Stína Gísladóttir.
Fermingarmessa
í Ólafsfirði
„MEÐ þessu erum við að lífga upp
á farartæki okkar,“ sagði Ólafur
Ásgeirsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn á Akureyri, en lög-
regla hefur síðustu daga verið á
ferð á reiðhjólum. Hann sagði að
hjólin hefðu verið keypt í vor og
þónokkuð mikið notuð í sumar.
„Við höfum m.a notað hjólin þeg-
ar við förum í eftirlitsferðir í
miðbæinn eða niður á bryggjur.
Þessi ferðamáti hefur gefið góða
raun og við erum snögg á milli
staða,“ sagði Ólafur. Reiðhjólin
hafa sannað gildi sitt því eitt sinn
náðu lögregluþjónar á ferð að
góma þjófa. „Þeir voru á varð-
bergi gagnvart bílaumferð en al-
veg grandalausir þegar við kom-
um hjólandi að þeim við iðju
sína,“ sagði Ólafur.
Lögreglumennirnir Haraldur Logi Hringsson og Birna Baldvinsdóttir
við reiðhjól lögreglunnar á Akureyri
Lögreglan ferðast um á reiðhjólum
Gómuðu þjófa
UNNIÐ hefur verið við að taka nið-
ur stólalyftuna í Hlíðarfjalli nú í vik-
unni og miðar verkinu vel að sögn
Guðmundar Karls Jónssonar for-
stöðumanns.
Verið er að rýma til fyrir nýrri
lyftu sem sett verður upp á sama
stað, en fyrr í þessum mánuði heim-
ilaði bæjarráð að gengið verði til við-
ræðna við austurríska skíðalyftu-
framleiðandann Doppelmayr um
kaup á nýrri stólalyftu. Sú lyfta verð-
ur ein sú fullkomnasta hér á landi og
um leið sú afkastamesta.
Stólalyftan sem nú er verið að
taka niður var sett upp árið 1967, en
fyrir lá að hún yrði ekki sett í gang á
komandi vetri án viðamikils viðhalds
og endurnýjunar.
Eftir að búið verður að taka lyft-
una niður verður hafist handa við
jarðvegsvinnu og uppsteypu nýrra
stöpla. Áætlanir gera ráð fyrir að
nýja lyftan verði sett upp á tíma-
bilinu október–nóvember og að
vinnu við uppsetningu verði lokið um
miðjan desember. Lyftan flytur um
2.000 manns á klukkustund, en sú
sem nú víkur flutti um 450 manns á
klukkustund. Kostnaður við lyftuna
og uppsetningu hennar kostar um
160 milljónir króna. Þar af greiðir
Vetraríþróttamiðstöð Íslands um 55
milljónir króna, en bæjarsjóður Ak-
ureyrar röskar 100 milljónir.
Gamla stólalyft-
an í Hlíðarfjalli
tekin niður
Smári Einarsson fjarlægir hjóla-
stellið af einum burðarstólpa
gömlu stólalyftunnar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Burðarstólpar gömlu stólalyftunnar eru óðum að hverfa og verða bráð-
um allir fallnir .
inniskór í
miklu úrvali
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 14-18 og laugard. kl. 10-14.
Skóbúðin