Morgunblaðið - 21.07.2001, Qupperneq 20
!" #
$"
%
&
#
'(
# (
"
)
&' " %
( *
% &
( ""
"
#
& "
+
#) (
*
* $
( &* "
,
! ) (
( # -* &
' ( "
.
) (
(
/ (
01
(("
& ( #(
2% # (
2 (
(("
!"#
3
) ( ) (4 (5 6 - (
7' ( 8! (
(
(
/ ' 9
$
% &'
(
#
&"
ÞAÐ ber fleira til tíðinda af leiðtoga-
fundi átta helstu iðnríkja heims í
Genúa en mótmæli og átök. Leiðtog-
arnir eru saman komnir til að ræða
ýmis mikilvæg mál og tilkynntu
meðal annars á fyrsta degi fundarins
í gær um stofnun sjóðs til að fjár-
magna baráttuna gegn útbreiðslu al-
næmis og annarra smitsjúkdóma í
þróunarríkjum.
Leiðtogarnir sem sækja fundinn
eru George W. Bush Bandaríkjafor-
seti, Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, Jacques Chirac Frakk-
landsforseti, Silvio Berlusconi, for-
sætisráðherra Ítalíu, Junichiro Koiz-
umi, forsætisráðherra Japans, Jean
Chrétien, forsætisráðherra Kanada,
Vladímír Pútín Rússlandsforseti og
Gerhard Schröder, kanslari Þýska-
lands, en Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, er einnig
viðstaddur.
Fulltrúum nokkurra þróunarríkja
var einnig boðið til viðræðna við leið-
togana.
1,2 milljarðar dollara
til alnæmisvarna
Silvio Berlusconi kynnti fyrrnefnd
áform um stofnun alnæmissjóðs á
fréttamannafundi með Kofi Annan í
Genúa í gær.
G8-ríkin hyggjast leggja 1,2 millj-
arða dollara (um 121,5 milljarða
króna) í sjóðinn til að byrja með en
vonast til að hann vaxi fljótlega í 2
milljarða dollara með framlögum
annarra ríkja og stórfyrirtækja. Ráð
tuttugu sérfræðinga hefur verið
skipað til að hafa umsjón með verk-
efninu og gert er ráð fyrir að farið
verði að veita fé úr sjóðnum á næsta
ári. Megináhersla verður lögð á bar-
áttuna við alnæmi en fé verður einn-
ig varið til varna gegn útbreiðslu
annarra smitsjúkdóma í þróunar-
ríkjum, til dæmis berkla og malaríu.
Efnahagsmál voru annars efst á
baugi í gær. Leiðtogarnir ræddu
versnandi horfur í bandarísku efna-
hagslífi, samdrátt í Japan og kreppu-
ógn sem steðjar að stórum efnahags-
kerfum á borð við Argentínu sem
berst í bökkum við að greiða afborg-
anir af erlendum lánum. Búist var
við að í yfirlýsingu fundarins um
efnahagsmál yrði fjallað um nauðsyn
þess að auðugri ríki veittu þróunar-
löndum aðstoð við að auka hagvöxt.
Meðal annars yrði lagt til að Heims-
viðskiptastofnunin hæfi nýja við-
ræðulotu sem miðaði að því að af-
nema tollmúra, eins og ríkari löndin
æskja, en ráðast einnig í þær skipu-
lagsbreytingar á stofnuninni sem
þróunarlöndin hafa farið fram á.
Meðal annarra mála sem leiðtog-
arnir taka til umræðu á fundinum
um helgina eru áform Bandaríkja-
stjórnar um að koma upp eldflauga-
varnakerfi, svæðisbundin átök, að-
gengi fátækari íbúa heimsins að
menntun og tækni, umhverfismál og
skuldabyrði þróunarríkja.
Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims funda með Kofi Annan í Genúa
Samþykkt að stofna
sjóð til alnæmisvarna
Genúa. AFP, AP.
AP
Kofi Annan kynnir áform um sjóð til alnæmisvarna í Genúa í gær. Tony
Blair, George W. Bush, Jacques Chirac og Silvio Berlusconi hlýða á hann.
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LÍK tveggja eftirlitsmanna á
vegum Evrópusambandsins
(ESB) og túlks þeirra fundust í
gær í Makedóníu og er talið að
bifreið þeirra hafi ekið yfir
jarðsprengju. Eftirlitsmenn-
irnir, Norðmaður og Slóvaki,
voru á leið til baka frá borginni
Tetovo í norðaustur-hluta
landsins á fimmtudagskvöld,
en þegar þeir skiluðu sér ekki
var hafin leit. Bíllinn fannst í
skriðu um hundrað metra frá
þeim stað sem sprengjan
sprakk á svæði sem er á valdi
albanskra skæruliða. Yfirvöld í
Makedóníu kenna albönskum
skæruliðum um að hafa komið
jarðsprengjunni fyrir en
skæruliðarnir segja Makedón-
íuher einan hafa notað jarð-
sprengjur í átökunum.
Sprengju-
árás á Norð-
ur-Írlandi
SPRENGJU var í gær varpað
að lögreglustöð í þorpinu
Castlewellan, sem er rétt sunn-
an við Belfast, og nokkrum
byssuskotum var hleypt af í átt
að henni. Enginn slasaðist í
árásinni, en síðdegis í gær
hafði enn enginn lýst yfir
ábyrgð á verknaðinum. Castle-
wellan er aðallega byggt kaþ-
ólikkum og segir þorpsprestur-
inn að líklega hafi einhver
armur Írska lýðveldishersins
(IRA) staðið fyrir árásinni.
Seinna í gær var gerð skotárás
á félagsmiðstöð kaþólskra í
Belfast. Enginn slasaðist held-
ur í þeirri árás en fjöldi stúlkna
sem var í miðstöðinni var flutt-
ur á sjúkrahús þar sem þær
þáðu áfallahjálp. Hópur sam-
bandssinna sem kallar sig
Verndarflokk rauðu handar-
innar lýsti árásinni á hendur
sér.
Óvissa
í Nepal
AFSÖGN forsætisráðherra
Nepals, Girija Prasad, hefur
aukið enn á stjórnmálaóvissuna
í landinu. Skæruliðar maóista
höfðu tekið 71 lögreglumann
höndum og héldu þeim í gísl-
ingu. Kröfðust skæruliðarnir
afsagnar Prasads og sögðust
ekki mundu ræða afhendingu
gíslanna fyrr en forsætisráð-
herrann færi frá. Nepalbúar
eru ennþá að jafna sig eftir
áfallið sem fylgdi fréttum um
að krónprins landsins hefði
myrt flesta nánustu ættingja
sína og kemur því afsögnin á
mjög viðkvæmum tíma.
Flóð á
Indlandi
ÞRJÁTÍU og níu manns hafa
látið lífið í flóðum undanfarna
viku á Indlandi, en um 8.000
þorp hafa farið í kaf eða
einangrast í miklum rigning-
um. Meira en ein milljón
manna hafa misst heimili sín og
hundurð þúsund hektara rækt-
arlands hafa farið undir vatn.
Margir hinna látnu drukknuðu
en nú hafa farsóttir látið á sér
kræla. Fólk hefur ekki aðgang
að hreinu vatni og sjúkdómar
eins og kólera skjóta fljótt upp
kollinum við þessar aðstæður.
STUTT
Þrír falla
í Make-
dóníu
TALSMENN Palestínumanna vör-
uðu við blóðbaði yrði ekkert gert
til að hafa hemil á öfgahópum land-
nema sem grunaðir eru um að hafa
myrt þrjá Palestínumenn í Hebron
á fimmtudagskvöld. Meðal hinna
látnu var þriggja mánaða barn og
faðir þess. Fjórir aðrir fjölskyldu-
meðlimir særðust í árásinni. Sam-
tök landnema af gyðingaættum
sem kalla sig Vegaöryggisnefndina
eru grunuð um að bera ábyrgð á
skotárásinni. Þau eru talin hluti
hinnar ólöglegu Kach-hreyfingar
sem vill að öllum Palestínumönnum
verði vísað frá vesturbakka Jórd-
anár. Slík öfgasamtök voru lýst
ólögleg í kjölfar morðsins á Yitz-
hak Rabin, þáverandi forsætisráð-
herra Ísraels, en hann var myrtur
af landnema af gyðingaættum.
Drepum landnemana
Um 10.000 Palestínumenn fylgdu
barninu og ættingjum þess til graf-
ar í gær og dreifðu fulltrúar Ham-
as-samtakanna blöðum þar sem
lesa mátti skilaboðin „við munum
kenna hinum zíóníska óvini okkar
að við verðum aldrei sigruð“.
Heyrðust menn öskra „drepum
landnemana“ og sagðist móðir
barnsins sem lést vona að þess yrði
hefnt.
Marwan Barghouti, leiðtogi
Fatah-hreyfingar Yassers Arafats,
sagðist óttast viðbrögð Palestínu-
manna og að yrði ekkert að gert
myndi blóðbað hljótast af.
Shimon Perez, utanríkisráðherra
Ísraels, hét því að morðingjarnir
yrðu dregnir fyrir rétt og látnir
bera ábyrgð á gjörðum sínum.
Alls hafa um 650 manns látið lífið
frá því að átökin hófust í septem-
ber í fyrra og ljóst er að vopnahléð
sem á að ríkja á svæðinu er aðeins í
orði kveðnu. Seint í gærkvöldi lét
einn Palestínumaður lífið þegar
ísraelskar herþyrlur skutu flug-
skeytum á skrifstofur Fatah-sam-
takanna í Hebron, að sögn palest-
ínskra ráðamanna. Vitni sem búa í
nágrenni skrifstofunnar kannast
hins vegar ekki við að hafa heyrt í
þyrlum.
Utanríkisráðherrar átta helstu
iðnríkja heims lögðu það til á
fimmtudag að alþjóðlegir eftirlits-
menn yrðu sendir til Ísraels til að
sjá til þess að ákvæðum vopnahlés-
samningsins væri fylgt. Ísraels-
stjórn hefur hins vegar lagst gegn
slíku alþjóðlegu eftirlitsliði.
Ungabarn lést í skotárás í Hebron
Peres lofar að
refsa þeim seku
Jerúsalem, Hebron. AP, AFP.
SEX rússneskir hermenn, sem þjón-
uðu í Tsjetsjníu, hafa verið handtekn-
ir í Rússlandi í tengslum við rannsókn
á glæpum gegn óbreyttum borgurum
í Kákasushéraðinu, sem framdir voru
er hermenn leituðu hús úr húsi í
tsjetsjneskum bæjum að meintum
uppreisnarmönnum.
Mannrán, rán og misbeiting valds
eru meðal ákæruatriða sem verið er
að rannsaka í tengslum við þetta, eftir
því sem Sergei Jastrzembskí, aðal-
talsmaður rússnesku ríkisstjórnar-
innar í málefnum Tsjetsjníu, greindi
frá.
Óbreyttir borgarar í Tsjetsjníu,
fulltrúar mannréttindasamtaka og
starfsmenn Rússlandshollra stjórn-
valda í héraðinu hafa sagt, að rúss-
neskir hermenn hafi gengið berserks-
gang í þremur tsjetsjneskum þorpum
fyrir um hálfum mánuði, undir því yf-
irskini að þeir væru að leita að skæru-
liðum. Að sögn vitna söfnuðu her-
mennirnir öllum karlmönnum í
þorpunum á aldursbilinu 15 til 50 ára
saman og létu þá krjúpa úti á torgi í
marga tíma. Sumir sökuðu hermenn-
ina um að beita mennina pyntingum
og að niðurlægja þá.
Ýmiskonar ásakanir á hendur her-
mönnum í Tsjetsjníu eru algengar, en
fátítt er að þeir sæti refsingum.
Handtaka hermannanna var tilkynnt
er Vladimír Pútín Rússlandsforseti
var á leið á fund með leiðtogum sjö
helztu iðnríkja heims í Genúa á Ítalíu.
Maskhadov sendir
G7-leiðtogum áskorun
Aslan Maskhadov, leiðtogi stjórnar
uppreisnarmanna, sem fór með völd í
Tsjetsjníu eftir að Rússar hörfuðu
þaðan árið 1996, skoraði í gær á leið-
togana sem nú eru saman komnir í
Genúa að þeir krefðust þess af Pútín
að hann bindi enda á stríðið í Tsjetsj-
níu, sem nú hefur staðið í 20 mánuði.
„Ég, Aslan Maskhadov, lýðræðis-
lega kjörinn forseti Tsjetsjníu, rita
þessa örvæntingarfullu áskorun í
nafni þjóðar minnar, fórnarlamba
stríðs sem jaðrar við þjóðarmorð, og
heimurinn sem þið stjórnið á enn eftir
að vakna til vitundar um,“ segir í bréfi
Maskhadovs.
Af vettvangi Tsjetsjníu-stríðsins
fréttist það annars í gær, að níu rúss-
neskir hermenn hefðu farizt er her-
þyrla hrapaði í fjalllendi, þar sem
uppreisnarmenn stunda enn skæru-
hernað.
Meint mann-
réttindabrot
í Tsjetsjníu
Moskvu. AFP, AP.