Morgunblaðið - 21.07.2001, Side 36
MINNINGAR
36 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Bergur KristinnEðvarðsson
fæddist í Grindavík
20. mars 1973. Hann
lést á heimili sínu á
Sævangi 23 í Hafn-
arfirði 16. júlí síð-
astliðinn. Bergur
var sonur hjónanna
Helgu Enoksdóttur,
f. 27. nóvember
1938, og Eðvarðs
Karls Ragnarsson-
ar, f. 23. júlí 1937.
Systkini Bergs
eru: Hugrún, f. 16.
mars 1956, Ragnar,
f. 9. nóvember 1959, Óskar, f. 28.
nóvember 1961, Hafsteinn, f. 17.
febrúar 1964, og Edda, f. 18.
september 1968.
Unnusta Bergs er æskuvin-
kona hans, Hulda María Stefáns-
dóttir, f. 1. júní 1976 í Grindavík,
og bjuggu þau saman í níu ár.
Bergur ólst upp í Grindavík.
Hann stundaði nám í Grunnskóla
Grindavíkur, síðan lá leið hans í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar
sem hann lauk stúdentsprófi
vorið 1995. Árið 1991-1992 var
Bergur við nám í West High-
skóla í Iowafylki í
Bandaríkjunum og
stundaði körfubolta
jafnhliða náminu.
Bergur hafði lok-
ið þriðja ári við
lagadeild Háskóla
Íslands þegar hann
lést, og hafði starf-
að í Orator, félagi
laganema. Bergur
vann sem lögreglu-
maður við Sýslu-
mannsembættið í
Keflavík í eitt og
hálft ár áður en
hann hóf háskóla-
nám. Hann var lögreglumaður í
sumarstarfi öll sumur með námi
sínu.
Bergur var mikill íþróttamað-
ur og stundaði körfubolta frá
unga aldri, fyrst með UMFG og
síðan með liði Hauka í Hafnar-
firði. Hann varð bikarmeistari
með báðum liðunum. Bergur var
einnig leikmaður unglingalands-
liðs og landliðs Íslands í körfu-
bolta um skeið.
Útför Bergs fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11.
Elsku ástin mín.
Ég græt þig sáran, ég sakna þín
svo mikið að það er sárt. Við áttum
svo margar yndislegar stundir sam-
an og ég veit að minningarnar munu
bera mig í gegnum sorgina við að
missa þig. Þú varst alltaf brosandi
og brosið þitt er brennt í hjarta
mínu. Stríðnisglampinn í fallegu
augunum þínum, stóru spékopparn-
ir, hláturinn og ég mun aldrei
gleyma yndislega góðu lyktinni af
þér þegar ég lá hjá þér í hálsakotinu
og sofnaði. Ég lifi og trúi að örlögin
hafi leitt okkur saman, hlið við hlið,
nágrannar í Grindó, þegar við vor-
um lítil. Ég veit að ég fæddist til að
elska þig og kyssa. Níu árin okkar
saman eru bestu ár lífs míns og ég
ætla mér ekki að gleyma einu
augnabliki sem ég fékk að njóta í
faðmi þínum. Bergur minn, ég
sakna svo mikið hvernig þú kysstir
mig á augun þegar ég var þreytt og
hvernig þú komst mér alltaf til að
hlæja þegar ég var reið eða pirruð,
það varð allt svo einfalt þegar þú
komst og hélst utan um mig, það var
eins og ekkert annað í öllum heim-
inum skipti máli.
Nú stendur tíminn í stað því án
þín hér kann ég ekki að láta hann
líða. Ég þakka Guði fyrir allar
myndirnar sem ég á af þér og okkur
saman, þú sagðir alltaf að ég væri
ljósmyndaóð. Líka öll fallegu bréfin
sem þú sendir mér þegar ég var úti í
Frakklandi. Ég les þau núna og
hugsa til þín og vona að þér líði vel
þar sem þú ert. Ég hugga mig við
það hverja sekúndu sem líður að nú
sértu að sinna einhverju mikilvæg-
ara hlutverki annars staðar, þó ég
vilji helst öskra og skipa Guði að
skila þér til mín aftur. Ég mun
sakna þess að sitja ekki hjá þér í
skólanum, að geta ekki haldið í
höndina á þér í bíó, fara með þér út
að skokka og á rúntinn á höfnina. Þú
vildir alltaf gleðja mig, lagðir meira
að segja á þig að kaupa þér línu-
skauta svo þú gætir farið með mér í
Nauthólsvíkina. Við gerðum allt
saman og áttum svo góðar stundir
tvö ein.
Þú varst alltaf svo duglegur að
þjálfa líkamann, varst alltaf að lyfta
og hlaupa. Þú ert svo myndarlegur
og hár og stæltur. Enda varstu og
ert, ástin mín, fallegasti karlmaður
sem ég hef nokkru sinni augum litið.
Áramótin 1999/2000 þegar þú baðst
mig að giftast þér og gafst mér
hringinn var mesti hamingjudagur
lífs míns. Ég mun aldrei lifa önnur
áramót án þess að hugsa til þín, ást-
in mín. Þú varst alltaf svo snyrti-
legur og skipulagður og varst alltaf
að taka til eftir mig, litla fiðrildið
þitt. Þú gerðir mig hamingjusama.
Bergur þú hélst mér alltaf niðri á
jörðinni, þú varst svo yfirvegaður
og þolinmóður. Þú varst kletturinn
minn í ólgandi hafi. Þú kenndir mér
að opna augun og njóta alls þess
góða í kringum mig. Hvað ég gæfi
ekki til að fá að njóta þín aftur, ástin
mín.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt
aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti sem
brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast
sem aldrei verður tekið til baka.
(Einar Ben.)
Þú verður alltaf rússssínan mín
og ég verð þín að eilífu.
Ég elska þig óstjórnlega,
þín
Hulda María.
Bergur, elsku drengurinn okkar.
Nú kveðjum við þig í hinsta sinn.
Bergur þú varst yngsta barn
hjónanna Lilla og Helgu í næsta
húsi við okkur í Heiðarhrauninu í
Grindavík. Það var góð samvinna á
milli okkar hjónana, þótt einhver
aldursmunur væri á milli okkar.
Bergur var því strax mikið að leika
sér við okkar börn allt í kringum
bæði húsin, það voru hann, Kalli
frændi hans, Hulda María dóttir
okkar og síðan Gunnar sonur okkar,
og öll hin börnin í götunni. Þetta
voru góð ár fyrir bæði heimilin og
börnin kynntust vel.
Síðan skildi leiðir. Við fluttum um
skeið til Ameríku og þegar við kom-
um heim hafði Bergur farið til náms
til Ameríku líka. Stuttu eftir heim-
komu Bergs veittum við foreldrar
Huldu Maríu því athygli að dóttir
okkar sat langtímum saman og
horfði út um stofugluggann á strák-
inn í næsta húsi spila körfubolta í
innkeyrslunni, eða bara koma og
fara. Hún kallaði: Mamma, komdu
og sjáðu hvað hann Bergur er
myndarlegur. Það leið ekki á löngu
áður en þau fóru að draga sig sam-
an, og næstu ár voru þau ýmist hjá
okkur eða yfir hjá Bergi.
Þegar við svo fluttum í Hafnar-
fjörð fyrir sex árum kom Bergur
með okkur og þau Hulda María
bjuggu í kjallaranum hjá okkur. Þau
gerðu allt saman. Voru saman í leik-
skólanum, grunnskólanum, kláruðu
stúdentsprófið saman og að lokum
lá leiðin í Háskólann í lögfræði. Allt
nám þeirra var til fyrirmyndar. Þau
voru reglusöm og samviskusöm,
stunduðu íþróttir af kappi, mest þó
körfubolta og náði Bergur miklum
og góðum árangri í því sviði.
Til þess að kynnast betur lögum
og atferli okkar Íslendinga ákváðu
þau að ráða sig sem lögreglumenn í
sumarstörf á milli námsanna. Það
var eins í þessum störfum sem öðr-
um, þau stóðu sig með stakri prýði.
Það er óhætt að fullyrða að Berg-
ur var einn af fáum sem hafa orðið á
okkar lífsleið sem við getum kallað
með hreinni samvisku „drengur
góður“. Hann var stolt foreldra
sinna og okkar.
Bergur, við kveðjum þig nú með
miklum söknuði og eftirsjá. Þú
varst sem eitt af börnunum okkar
og yngstu börnin okkar tvö þekktu
þig sem bróður og einlægan vin.
Þegar þeim var sagt að þú værir
kærastinn hennar Huldu Maríu
okkar, en ekki bróðir þá ákváðu þau
að kalla þig tengdabróður. Við get-
um því sagt að við höfum misst eitt
af börnunum okkar og þau Gunnar,
Rebekka og Arnar misst kæran
bróður að morgni mánudagsins síð-
asta.
En þú varst líka yngsta barn á
öðru heimili í Grindavík. Barn mik-
ils sómafólks og ólst upp í stórum
systkinahóp sem umvafði þig alla
tíð.
Hvíl þú í friði, elsku drengur, og
við erum samfærð um að þér líður
vel þar sem þú ert núna.
Við biðjum góðan Guð að veita
okkur öllum styrk og æðruleysi til
að takast á við þann mikla missi og
þá miklu sorg sem hefur barið að
dyrum hjá okkur ástvinum þínum.
Stefán og Erla.
Elsku Bergur. Maður spyr: Af
hverju þú? En því getur enginn
svarað, svo maður stendur eftir ber-
skjaldaður og tómur á sál og líkama.
Guð einn veit tilganginn.
Ég á margar góðar minningar um
þig. Til dæmis þitt síðasta bros, sem
þú sendir mér er við mættumst við
lögreglustöðina í Hafnarfirði á
sunnudagskvöld þegar þú varst að
aka Huldu Maríu unnustu þinni í
vinnuna. Að morgni varst þú allur,
þvílíkt áfall.
Minningarnar eru margar sem ég
mun alltaf geyma í hjarta mínu. Þið
Hulda María ömmustelpan mín vor-
uð svo dugleg að hugsa um ömmu
Maríu. Ég get ímyndað mér að vinir
ykkar hafi verið hissa þegar þeir
voru að spyrja: hvar voruð þið? Ég
hringdi og enginn svaraði í símann,
en þá var svarið oft hjá Huldu Mar-
íu: Við fórum með ömmu í bíó, eða út
að borða. Oft var farið í bíltúra svo
ég væri ekki of mikið ein. Ekki er
hægt að telja allt upp sem mig lang-
ar til að segja, en ég á það fyrir mig.
Elsku Bergur, þín verður sárt
saknað af öllum. Gunnar minn, þú
hefur misst kæran vin og litlu
barnabörnin mín, Rebekka Sif og
Arnar Kristinn, systkini ykkar
Huldu Maríu eiga bágt með að
skilja af hverju Guð kom og tók þig.
Þeim fannst þú vera stærsti bróðir
þeirra, en þegar þau skildu að þú
værir ekki alvöru bróðir þeirra þá
sættu þau sig við að þú værir
tengdabróðir þeirra.
Elsku Hulda María mín, þú hefur
staðið þig eins og hetja. Ég bið al-
góðan Guð og allar góðar vættir að
styðja þig og alla ástvini ykkar í
þessari miklu sorg.
Ykkar (amma),
María.
Einstakur er orð
sem notað er, þegar lýsa á því sem engu
öðru er líkt,
faðmlagi
eða sólarlagi
eða manni sem veitir ástúð með brosi
eða vinsemd.
Einstakur lýsir fólki
sem stjórnast af rödd síns hjarta
og hefur í huga hjörtu annarra.
Einstakur á við þá sem eru dáðir
og dýrmætir
og hverra skarð verður aldrei fyllt.
Einstakur er orð sem best lýsir þér.
(Terri Fernandez.)
Elsku Bergur minn.
Þá er komið að kveðjustund og
mig langar að þakka þér fyrir að
hafa fengið að kynnast þér.
Síðan ég kom fyrst til ykkar í
Grindavík að vinna sumarið 1977
hef ég fylgst með þér vaxa og þrosk-
ast úr litlum fjögurra ára gömlum
leikskólagutta í stóran og myndar-
legan fullorðinn mann. Þegar þú
varst yngri man ég að þú áttir risa-
stóran Playmo-kastala með fullt af
köllum sem þú lékst þér mikið með.
Þú æfðir fótbolta og varst þar mark-
maður í nokkur ár með yngri flokk-
unum, en svo stækkaðir þú í orðsins
fyllstu merkingu upp í körfubolt-
ann. Þú stækkaðir svo hratt á þess-
um árum og ég man þegar þú ætl-
aðir að fara í fermingarbuxurnar
næstu jól á eftir, þá náðu skálm-
arnar þér aðeins niður á miðja kálfa.
Þegar þú varst yngri lékuð þið Kalli
ykkur mikið saman og oft vildi
Hulda María úr næsta húsi fá að
vera með. Hulda María sem fyrir
tæpum níu árum síðan kom með þér
í þrítugsafmælið mitt og þú kynntir
þá sem nágranna þinn. Hulda María
sem alla tíð síðan þá hefur verið ást-
in þín og hluti af lífi okkar allra.
Núna á hún svo óskaplega erfitt, en
við skulum öll halda utan um hana
og reyna að hugga hana og gæta
hennar fyrir þig. Við munum alltaf
verða til staðar fyrir hana.
Síðustu daga höfum við öll hugsað
um hvað varð til þess að þú bast
enda á líf þitt. Þú sem varst alltaf
svo tillitssamur við alla og þetta var
svo ólíkt þér. Við höfðum heldur
ekki orðið vör við neitt í fari þínu
sem benti til þess að þú ættir við
eitthvert vandamál að stríða. Þú
hafðir þó minnst eitthvað á að þú
ættir erfitt með svefn eftir nætur-
vaktirnar og að þér þóttu vaktirnar í
Grindavík erfiðar. En kannski
varstu bara þreyttur eftir erfiðan
vetur í lögfræðinni og vinnu fyrir
Orator og síðan mikla vinnu í lög-
reglunni í sumar. Þeirri spurningu
verður víst ekki svarað.
Elsku Bergur minn. Þú varst
elskaður og dáður af báðum þínum
fjölskyldum og þín er sárt saknað af
okkur öllum. Þú getur rétt ímyndað
þér hvað við höfum grátið. Ég sem
hágræt alltaf yfir sorglegum bíó-
myndum. Hafsteinn bróðir þinn
sagði líka við mig að það væri gott
að geta grátið. Það er mikill missir
að þér úr fjölskyldunni. Þú varst
alltaf svo góður og hugulsamur og
alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd.
Það var alveg sama hvað það var, að
leika við krakkana og passa þau,
pakka niður og flytja búslóðir, að-
stoða við fjármál, útréttingar eða
bara ljá okkur eyra. Kannski hefð-
um við átt að hlusta betur. Ég man
líka hvað þú varst alltaf góður og til-
litssamur við ömmu Kristínu og
Berg gamla á Skagaströnd þegar
þau voru í heimsókn. Þægilegri ung-
ling var ekki heldur hægt að hugsa
sér fyrir neina foreldra og yfir höfuð
aldrei nein vandamál með þig. Þú
gast að vísu verið mjög ákveðinn og
þrjóskur ef þér fannst ástæða til og
vildir fá þitt fram. Systkinum þínum
fannst þú stundum svolítið frekur
þegar þú varst yngri og fá allt sem
þú vildir, enda varstu yngstur. Þeg-
ar þú útskrifaðist sem stúdent úr
FS útskrifaðist þú með góðar ein-
kunnir af tveimur brautum í einu,
og við vorum svo stolt af þér. Þér
gekk líka svo vel í lögfræðinni og
framtíðin virtist blasa björt við ykk-
ur Huldu Maríu. Þess vegna eigum
við líka svo erfitt með að sætta okk-
ur við að þú sért farinn frá okkur.
Nú þegar þú ert farinn frá okkur
minnumst við allra samverustund-
anna með þér. Við vorum alltaf vön
að koma saman á jólunum í Heið-
arhrauninu og þá komuð þið Hulda
María alltaf til Grindavíkur eftir að
búið var að taka upp gjafirnar í
Sævanginum og þá fékkst þú þér
alltaf að borða, aftur. Það var alltaf
passað upp á að það væri nóg eftir
að borða handa þér. Eftir að þú
fluttir yfir í næsta hús til Huldu
Maríu varstu vanur að koma í mat
til mömmu þinnar og pabba eftir að
þú varst búinn að borða hjá Erlu og
Stebba. Þú þurfir alltaf mikið að
borða og oft hefur verið atgangur
við matarborðið, sérstaklega þegar
margir eru samankomnir eins og á
jólunum. Gjafirnar sem þú valdir
gátu líka verið skondnar. Ég mun
alltaf passa upp á síðustu jólagjöf-
ina sem þú valdir handa okkur. Lít-
ill trékall sem lítur út eins og
Skreppur seiðkarl og þér fannst
passa Óskari svo vel. Það var líka
vaninn að hittast á öðrum hátíðum
og afmælum og núna eru líka rétt
tveir mánuðir síðan við komum öll í
28 ára afmælið þitt. Um síðustu
helgi þegar við vorum á Lands-
mótinu á Egilsstöðum og Helga
Hrönn vann til verðlauna í sundinu
vorum við að tala um að núna væru
það bara hún og þú af fjölskyldunni
sem hefðuð unnið til verðlauna á
landsmóti. Núna rifjum við líka upp
allt það sem við ætluðum að gera
saman einhvern tímann seinna en
getur nú ekki orðið af. Þegar þið
Hulda María væruð búin í lögfræð-
inni áttum við að koma reglulega í
mat til ykkar í staðinn fyrir öll mat-
arboðin okkar. Við ætluðum ein-
hvern tímann að fara öll saman í
keilu og þú ætlaðir að kenna Helgu
Hrönn á línuskauta.
Óskar minn hefur nú ekki aðeins
misst bróður sinn, heldur einnig
sinn besta vin. Það sem þið gátuð
líka hangið í símanum tímunum
saman og talað um allt og ekki neitt.
Þrátt fyrir að þið væruð að fara að
hittast, eða fara saman í golf eins og
þið hafið gert svo mikið upp á síð-
kastið. Samband ykkar hefur sífellt
orðið meira með árunum, sérstak-
lega eftir að þið Hulda María fluttuð
í Hafnarfjörð og voruð nær okkur.
Núna eigum við aldrei eftir að fá þig
í heimsókn aftur og sjá þig koma
gangandi eftir stéttinni með þínu
sérkennilega göngulagi sem var
auðþekkjanlegt úr langri fjarlægð.
Og hvað þið Óskar, eins og allir aðr-
ir í fjölskyldunni ykkar, gátuð röflað
endalaust ef sá gállinn var á ykkur.
Svo ég tali nú ekki um þegar þið
komuð allir bræðurnir saman með
pabba ykkar, þá var nú stundum
mikið fjör í umræðunum og þú lést
þá ekki þitt eftir liggja. En allt var
þetta nú á léttu nótunum og þið yf-
irleitt allir sammála. Á einhvern
óskiljanlegan hátt varð Óskar líka
að komast heim aðfaranótt mánu-
dagsins og keyrði þess vegna heim
að norðan um nóttina. Við vorum
einmitt nýsofnuð heima þegar
Ragnar bróðir þinn og Kalli vöktu
okkur með þeirri frétt að þú værir
dáinn. Þá eins og nú áttum við erfitt
með að trúa þessari frétt.
Elsku Bergur minn, megir þú
hvíla í friði.
Þín frænka og mágkona
Sigríður Klemensdóttir.
Ég kynntist Bergi fyrir réttum
þremur árum, þegar við vorum að
hefja nám í lagadeildinni. Ég tók
strax eftir honum þar sem hann sat
fyrir framan mig. Engum manni
hefur tekist jafn vel að skyggja á út-
sýni mitt á skólatöfluna. Þrátt fyrir
þessa brösóttu byrjun kynntist ég
Bergi og unnustu hans, Huldu Mar-
íu, með tímanum vel og þróaðist
með okkur vinátta.
Það var því mikið reiðarslag að fá
fregnirnar af andláti míns kæra vin-
ar. Þegar áföllin ríða yfir með þess-
um hætti hellast minningarnar yfir
mann.
Ég minnist þess þegar mér var
falið það mikla ábyrgðarstarf að
halda stuðningsmannaræðu fyrir
Berg vegna framboðs hans til al-
þjóðaritara Orators. Þannig var mál
með vexti að mér hafði seinkað
nokkuð á áfangastað og var ennþá
heima hjá mér þegar síminn
hringdi. Bergur var á línunni og
spurði alvarlegur í bragði hvar ég
væri eiginlega. Ég væri næstur í
pontu og hann myndi tapa kosning-
unum ef ég hraðaði mér ekki á stað-
inn. Með hjartað í buxunum flýtti ég
mér af stað. Þegar ég loks mætti á
staðinn og hitti Berg þá hristist
hann allur af hlátri. Þá gerði ég mér
grein fyrir því að hann hefði leikið á
mig. Þótti mér þetta nokkuð djarfur
leikur af hans hálfu, sérstaklega
með hliðsjón af því að þrátt fyrir allt
átti ég eftir að tala um hann uppi í
pontu þetta kvöld. Sá hlær best sem
síðast hlær, hugsaði ég með mér. En
þrátt fyrir að ég hafi hefnt mín
rækilega þetta kvöld í ræðu minni
um kosti og galla Bergs fór allt vel
og Bergur vann eftirminnilegan
stórsigur. Bergur var svo sannar-
lega glaðbeittur þetta kvöld.
Mér finnst það nánast óhugsandi
að þú sért farinn, kæri félagi. Það er
svo stutt síðan við vorum saman úti í
Washington með málflutningsliði ís-
lenskra laganema. Þar varst þú,
eins og venjulega, stoð okkar og
stytta, alltaf tilbúinn að rétta hjálp-
BERGUR KRISTINN
EÐVARÐSSON