Morgunblaðið - 21.07.2001, Síða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 39
„ALLIANZ Ísland hf. heitir því á
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna, SKB, að greiða til félagins
500 krónur með hverri barnasparn-
aðartryggingu, Forskoti, sem félag-
ið selur.
Sparnaðartryggingin er leið fyrir
foreldra til að gefa börnum sínum
forskot út í lífið með því að leggja
fyrir mánaðarlega og þannig
byggja upp sjóð sem barnið getur
notað síðar t.d. til náms eða hús-
næðiskaupa. Allianz er stærsta
tryggingasamsteypa heims með
starfsemi í 77 þjóðlöndum, 113 þús-
und starfsmenn og 60 milljónir við-
skiptavina. Thomas Pleines, einn af
forstjórum fyrirtækisins í Þýska-
landi, var staddur hérlendis á dög-
unum og afhenti SKB gjöf að upp-
hæð hálf milljón króna þegar
áheitið var undirritað. Áheit Allianz
gildir í tvö ár,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Allianz.
Allianz Ísland hf. og SKB
Heita á sjúk börn
SKJÁVARP og ferðaskrifstof-
an Sól hafa að undanförnu
staðið fyrir léttum sumarleik á
Netinu. Leikurinn fór fram á
slóðinni www.skjavarp.is.
Svöruðu þátttakendur nokkr-
um spurningum og gátu fyrir
vikið unnið sér inn sólarlanda-
ferð.
Á þriðja þúsund manns tóku
þátt í leiknum og nú hefur
nafn sigurvegarans verið
dregið úr pottinum. Sú heppna
heitir Freygerður Ólafsdóttir
og býr á Ísafirði.
Í vinning hlaut Freygerður
tveggja vikna ferð fyrir tvo til
Kýpur með ferðaskrifstofunni
Sól. Á Kýpur verður gist á
íbúðahótelinu Ermitage Beach
Hotel sem staðsett er við Li-
massol ströndina.
Hlaut ferð
fyrir tvo
til Kýpur
NÝ auglýsingastofa sem ber heitið
Tunglið hefur tekið til starfa í Hellu-
sundi 3 í Reykjavík.
Í fréttatilkynningu segir að þrír
reyndir auglýsingamenn standi að
opnun fyrirtækisins. Það eru hönn-
uðirnir Þór Ingólfsson og Tómas
Tómasson og Anton Helgi Jónsson
sem er textagerðarmaður og skáld.
„Tunglið býður einstaklingum og
fyrirtækjum alhliða þjónustu við
gerð auglýsinga- og kynningarefnis
og leggur megináherslu á vandaða
grafíska hönnun og lifandi textameð-
ferð,“ segir ennfremur í fréttatil-
kynningu.
Ný auglýsingastofa tekur til starfa
DILBERT mbl.is SúrefnisvörurKarin Herzog
Vita-A-Kombi olía
Fullkomnaðu verkið
með .........
þakrennukerfi
þakrennukerfi
Söluaðilar um land allt
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Fag
men
nska
í
fyrir
rúm
i