Morgunblaðið - 21.07.2001, Side 42
42 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#
$
%
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
AIESEC (Félag háskólanema), IA-
ESTE (Félag verkfræði- og raun-
vísindanema) og IMSIC (alþjóða-
nefnd íslenskra læknanema, hluti
af alþjóðasamtökum læknanema)
eru þrenn alþjóðleg
samtök sem sjá um
að aðstoða nemend-
ur á háskólastigi að
fá starfsþjálfun í
öðrum löndum. Á Ís-
landi starfa samtök-
in hvert fyrir sig yfir
vetrartímann en á
sumrin sameina þau
krafta sína og skipu-
leggja sumardag-
skrá fyrir alla er-
lendu nemana sem
koma á þeirra veg-
um til Íslands. Í
sumar eru um 35 er-
lendir nemar að
vinna hjá íslenskum
fyrirtækjum og
stofnunum á vegum
samtakanna og er
jafnmörgum íslensk-
um háskólanemum
boðið upp á að fá
starfsþjálfun er-
lendis á móti. Sam-
tökin eru öll rekin af stúdentum á
Íslandi, en í flestum öðrum löndum
er reksturinn að mestu, eða hluta
til, í höndum fulllaunaðra starfs-
manna. Fundir eru haldnir á hverj-
um þriðjudegi í sumar þar sem
nemarnir hittast og ræða málin.
Þessum hópi fylgir alltaf mikið fjör
og eru allir velkomnir á fundina.
Sumardagskráin samanstendur af
útilegum, dagsferðum og veislum,
það er m.a. búið að fara í Þórs-
mörk, Bláa lónið og Gullna hring-
inn, en Landmannalaugar, Mývatn
og Vestmannaeyjar eru á dagskrá
seinna í sumar. Það er í höndum ís-
lensku nemanna að skipuleggja og
kynna atburði komandi helgar á
þriðjudagsfundunum.
Á hverju sumri standa samtökin
fyrir Alþjóðlegum degi og er hann
tilefni þessarar greinar. Hann er
haldinn í dag 21. júlí í Ráðhúsi
Reykjavíkur og hefst dagskrá kl.
15:00. Nemarnir fá þar tækifæri til
að kynna land sitt og þjóð og kynn-
ast ólíkum menningum í leiðinni.
Hvert land fær sinn bás og þar
hafa nemarnir til sýnis ýmsa muni
og myndir frá sínu heimalandi.
Sumir bjóða einnig upp á þjóðar-
rétti sem gestir og gangandi geta
smakkað á og sumir mæta jafnvel í
þjóðbúningum. Íslendingarnir taka
að sjálfsögðu þátt í þessu líka, og
kynna íslenskan mat og þjóðhætti.
Þessi alþjóðlega sýning er öllum
opin og hvet ég fólk til að leggja
leið sína í Ráðhúsið og kynna sér
hvað nemarnir okkar hafa upp á að
bjóða.
Þeim sem hafa áhuga á að taka
þátt í sumarstarfinu, koma í ferð-
irnar og kynnast skemmtilegu fólki
er velkomið að hafa samband við
okkur, iaeste@hi.is, aiesec@hi.is
og imsic@hi.is.
RANNVEIG
MAGNÚSDÓTTIR,
Selbrekku 14 Kópavogi.
Á alþjóðadaginn hefur hver þjóð sinn bás þar
sem sýndir eru munir frá viðkomandi landi.
Alþjóðadagur
AIESEC, IAESTE
og IMSIC
Frá Rannveigu Magnúsdóttur:
NÚNA 1. júlí komu loks hækkanir á
laun aldraðra og þrátt fyrir að það
væri ekki eins mikið og flestir bjugg-
ust við þá var því lofað að það kæmi
meira seinna. Ef einhverjir hafa ver-
ið farnir að gleðjast yfir hækkuninni
þá hefur það staðið stutt. Heilbrigð-
isráðherra kom rétt á eftir og sagðist
ætla að skattleggja sjúka og aldraða
um 300 milljónir. Gjöld almennings
hækka um 20–67% við myndatökur
og fleira og afsláttur afsláttarkorta
lækkar um helming. Samkvæmt
könnun eldri borgara hefur þjónusta
hækkað mun meira en lífeyris-
greiðslur og hefur það aukið á erf-
iðleika aldraðra. Auk þess hækkuðu
meðul stórlega og líka var felld niður
niðurgreiðsla á margar tegundir
meðala en gamalt fólk notar oft mik-
ið af meðulum og sumir ganga fyrir
þeim og eftir því sem meðulin verða
dýrari þeim mun minna er til að lifa
á, enda varð ég vitni að því að gömul
kona gat ekki leyst út meðulin sín í
apóteki og lét geyma þau til mán-
aðamóta, eins og hún sagði. Svo það
stendur víða tæpt að lifa. Auk þess
hækkar rafmagn, hiti og í strætó og
fleira sem reitir þessa fáu aura sem
þeir gömlu eiga að lifa á. Vonandi
getum við gamlingjarnir staðið undir
heilbrigðiskerfinu hjá ráðherra. Við
þessir gömlu með breiðu bökin, enda
sjálfsagt að nota okkur meðan hægt
er. Það styttist hvort eð er í því með
hverjum deginum sem líður.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178 Reykjavík.
Eymdarlíf aldraðra
Frá Guðmundi Bergssyni: