Morgunblaðið - 21.07.2001, Side 43
María Anna Þorsteinsdóttir í
Reykjavík skrifaði mér bréf
sem hér fer á eftir með einni úr-
fellingu, og færi ég bréfritara
bestu þakkir.
„Sæll og blessaður Gísli.
Ég er ein þeirra sem reglu-
lega lesa þætti þína um íslenskt
mál og hef gaman og fróðleik af.
Ég hef oft hugsað um að senda
þér fyrirspurn um eitt og annað
sem kemur í hugann sérstak-
lega þegar ég er að kenna um
íslenskt mál. (Ég kenni nú um
stundir íslensku við Viðskipta-
og tölvuskólann í Reykjavík).
Tungumálið er óendanleg upp-
spretta hugmynda og sérstak-
lega þykir mér skemmtilegt
þegar þú skrifar um orðsifja-
fræði.
Síðustu pistlar um kvensemi
sjómanna í tengslum við vísuna
„Þyrsklingur um þorska-
grund...“ ráku mig loks að tölv-
unni og ætla ég að senda þér
ljósrit úr sögunni af Ólafi Þór-
hallasyni eftir Eirík Laxdal.
Sagan er rituð um aldamótin
1800 og því líklega elsta skráða
dæmið um að kvensamir menn
séu fisknari en aðrir. Eins og
fram kemur í frásögninni eru
ungir menn og fjörugir að veið-
um og þykir undarlegt að Ólaf-
ur, sem er mikill kvennaljómi,
veiðir ekki neitt. Ólafur tekur
svo frýjun skipverja að hann
grípur ryðgaða hákarlasókn og
með henni húkkar hann þessa
líka fögru hafmey. Hafmeyjan
er ekki aðeins fríð og rík heldur
líka hámenntuð og sprettur
mikil saga af þessum happa-
drætti, sem þú getur skemmt
þér við að lesa ef þú hefur ekki
þegar gert það (Sagan kom út
hjá Þjóðsögu 1987).
(Hér sleppir umsjónarmaður
kafla um örnefni á Vestfjörðum.
Hann er ekki maður til þess að
fjalla um þau, svo að vel sé).
Fyrst ég er nú komin af stað.
Kvenmannsnafnið Blær veldur
mörgum beygingarvandræð-
um. Eignarfallið Blævar þykir
skrýtið þótt flestum þyki það
öllu betra en Blæs enda þá karl-
kyn. Á mínu ágæta landakorti
yfir Vestfirði sá ég örnefnið
Blævardalur á Snæfjallaströnd.
Veist þú eitthvað um þetta nafn
frekar?
Og eitt enn. Nemendur mínir
eru ókátir með að ekki þyki gott
að segja: „Áttu nokkuð súkku-
laði?“ Ég kenni þeim hliðstæðu
myndina í þessu dæmi „nokk-
urt“ en er að sumu leyti sam-
mála nemendum að merkingin í
fyrra dæminu sé að einhverju
leyti önnur – spurning algjör-
lega út í loftið – ekki er neitt
sérstaklega verið að biðja um
súkkulaði – kannski bara eitt-
hvað – gott í munninn? Hvað
segir þú um þetta?
Læt nú gott heita og óska þér
gleðilegs sumars og langra líf-
daga á Mogganum.
Bestu kveðjur.“
Frá umsjónarmanni: Honum
finnst orðsifjafræði, eins og
bréfritara, mjög skemmtileg,
en þar er margs að gæta og
margt að varast. Hollendingur-
inn Jan de Vries er einhver hinn
varkárasti í þessum fræðum
sem ég hef lesið eftir. Hann
segir gjarna á þýsku um það
sem hann veit ekki fyrir víst:
„Etymologie unklar, etymolo-
gie umstritten, etymologie un-
sicher“, og þegar allt er hulið
móðu og mistri: „Das Wort ist
dunkel = orðið er myrkt.
Kvenmannsnafnið Blær er
erfitt í meðförum. Þetta er tök-
unafn úr ensku Blair, og Hall-
dór Laxness gæddi það lífi í
Brekkukotsannál. Eignarfallið
hlýtur að vera Blævar. Ég veit
ekki til þess að mannanafna-
nefnd hafi viðurkennt nafnið.
Súkkulaði þekki ég ekki í svo
víðri merkingu, að það merki
sælgæti yfirleitt, en mér þykir
gott að María Anna heldur fast
við regluna um sérsætt og hlið-
stætt í notkun fornafnanna ein-
hver og nokkur.
Bréf Kristínar Pétursdóttur,
lokakafli:
„6) Framkvæmdastjóri virðu-
legs bókaforlags sem spurður
var um samruna tveggja bóka-
forlaga, sagði: „Undirliggjandi í
málinu er þetta...“ Talsmenn
stofnana og ráðuneyta eru ákaf-
lega eintrjáningslegir í tali.
Endalaust er verið að skoða eða
fara ferðir ofan í mál.“ „Okkar
stofnun eða ráðuneyti er að
skoða eða fara ofan í málið,“
gellur sífellt við. Ekki er sagt:
„Stofnun okkar er að athuga
málið.“
Nýtt sérfræðingamál er að
skapast í kring um EES--
samninginn og ekki hefði veitt
af að fá góðan íslenskumann
eins og þig til að taka til
hendinni í skýrslunni frá
utanríkisráðuneytinu.
7) En svo er allt menningar-
vitaliðið sem maður furðar sig
stundum á að skuli hafa komist í
gegn um menntaskóla, hvað þá
háskóla.
8) Fólk segir enn: Mér eða
mig hlakkar til, í útvarpi og
sjónvarpi.
9) Fólk í útvarpi og sjónvarpi
segir enn: Ég versla vöru á
Laugavegi. Í staðinn fyrir að
kaupa vöru á Laugavegi.
Ágæti Gísli, gerðu það fyrir
mín orð að taka alla þessa bölv-
aða bögubósa sem viðriðnir eru
útvarpið og sjónvarpið, hvaða
kyns sem þeir kunna að vera, á
beinið og skipa þeim að hlífa
tungunni. Og þú mátt gjarna
vitna í mig ef þú vilt.
Ég heyrði að vinur minn,
Guðni Kolbeinsson, réð ekkert
við þetta á einni mínútu, enda
er þetta alger firra og móðgun
við málið, að ætla því ekki lengri
tíma. Hvað kemur næst, mál-
farshálfmínútan? Ég ætla ekki
núna að minnast á öll letidýrin
og pokadýrin í útvarpsráði sem
nenna ekki að hugsa um framtíð
tungunnar. Það bíður síns tíma.
Kristín Pétursdóttir, ís-
lenskukennari og baráttukona
gegn hrörnun íslenskunnar.
P.S. Mér hefur alltaf fundist
þú ásamt Pétri Péturssyni vera
persónugervingur málsins.
Gerið það nú fyrir mig, bjargið
íslenskunni.“
Umsjónarmanni þykir gott að
vera líkt við Pétur Pétursson.
Hann telur víst að átt sé við
Pétur þul. En til að bjarga ís-
lenskunni þarf öll þjóðin að vera
samhuga og sammála.
Hlymrekur handan kom að
máli við mig og bað mig að leið-
rétta limru sína úr þætti 1117.
Hún átti að vera svona:
Hálft annað dúsín hestastóð
yfir heilhveitiakurinn besta óð.
Sagði Páll: Þetta er bölvað
en betra en ölvað
og uppáþrengjandi gestaflóð.
Umsjónarmaður átti sök á
villunni og biður Hlymrek og
aðra lesendur afsökunar.
Auk þess þykir umsjónar-
manni leiðinlegt að sjá og heyra
staglið um að KA og Þór séu
„erkifjendur“. Þar eru engir
óvinir. Hitt gæti staðist, að
þessi félög væru aðalkeppi-
nautar.
ÍSLENSKT MÁL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
1119. þáttur
MESSUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 43
ÁSKIRKJA: Bent á guðsþjónustur í
nágrannakirkjum vegna sumarleyfa
starfsliðs Áskirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Fermdar verða Anna Kristín
Harðardóttir, Noregi, aðsetur
Smárarimi 70, og Hafdís Teresa
Mac Dowell, Bandaríkjunum, aðset-
ur Ýrabakki 26. Organisti Guðmund-
ur Sigurðsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar.
Félagar úr Dómkórnum syngja. Org-
anisti Marteinn H. Friðriksson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Klara Hilmarsdóttir, guðfræð-
ingur, prédikar. Kirkjukór Grensás-
kirkju syngur. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Ólafur Jóhannsson.
GRUND, dvalar- og hjúkrunarheim-
ili: Guðsþjónusta kl. 10.15. Sr.
Hreinn S. Hákonarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Lára B. Eggertsdóttir. Sr.
Sigurður Pálsson. Hádegistónleikar
í dag, laugardag, kl. 12–12.30. Fel-
ix Hell frá Þýskalandi leikur á orgel.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Lesmessa-morgun-
bænagjörð kl. 11 í litla sal í
safnaðarheimili. Lena Rós Matt-
híasdóttir, guðfræðinemi, leiðir
stundina. Kaffisopi. Sóknarprestur
verður í sumarleyfi til 8. ágúst. Sr.
Pálmi Matthíasson, sóknarprestur
Bústaðakirkju, þjónar Langholts-
prestakalli á meðan.
LAUGARNESKIRKJA: Kvöldmessa
kl. 20.30. Athugið breyttan messu-
tíma. Gunnar Gunnarsson leikur á
orgel og Kór Laugarneskirkju syng-
ur. Meðhjálpari er Eygló Bjarnadóttir
og sr. Bjarni Karlsson þjónar. Með-
an á prédikun og altarisgöngu
stendur bjóða tvær unglingsstúlkur,
Matthildur og Snædís, upp á barna-
gæslu. Messukaffi.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Frank M. Halldórsson.
Kór Neskirkju syngur. Organisti
Reynir Jónasson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Helgi-
stund kl. 11 í umsjón Halldórs Árna-
sonar. Organisti Pavek Manasek.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Hlé verður
á helgihaldi kirkjunnar vegna sum-
arleyfa starfsmanna fram til 19.
ágúst. Kirkjan er hins vegar opin til
allra kirkjulegra athafna í allt sum-
ar. Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
fellur niður. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Engin guðs-
þjónusta í kirkjunni vegna viðhalds
og sumarleyfa starfsfólks. Fyrsta
guðsþjónusta eftir hlé verður 19.
ágúst. Bent er á helgihald í öðrum
kirkjum prófastsdæmisins. Sr. Gísli
Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20.30. Prestur sr. Gunnar Sigur-
jónsson. Organisti: Kjartan Sigur-
jónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Engin
guðsþjónusta í kirkjunni vegna sum-
arleyfa starfsfólks. Fyrsta guðsþjón-
usta eftir hlé verður 12. ágúst kl.
20.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Grafarvogskirkju syngur. Organ-
isti: Hörður Bragason.
HJALLAKIRKJA: Nú standa yfir mikl-
ar framkvæmdir í Hjallakirkju. Verið
er að skipta um gólfefni í kirkjuskipi
og sinna ýmsu viðhaldi. Af þeim
sökum fellur helgihald niður í sumar
en guðsþjónustur hefjast aftur um
miðjan ágústmánuð. Bent er á
helgihald í öðrum kirkjum Kópavogs
eða prófastsdæmisins. Við minnum
á bæna- og kyrrðarstundir sem
verða áframhaldandi á þriðjudögum
kl. 18 á neðri hæð kirkjunnar.
Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Vegna sumar-
leyfa verða ekki guðsþjónustur í
kirkjunni í júlímánuði. Næsta guðs-
þjónusta verður sunnudaginn 5.
ágúst kl. 11. Kirkjan er opin á
venjulegum opnunartímum og kirkju-
vörður til staðar. Sr. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20. Sr. Ágúst Einarsson prédikar.
Altarisganga. Organisti er Guðný
Einarsdóttir.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Sam-
koma kl. 20. Mikil lofgjörð og fyr-
irbænir. Olaf Engsbraten prédikar.
Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
20, lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir
söng. Ræðumaður Vörður L.
Traustason forstöðumaður. Allir
hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræðis-
samkoma sunnudag kl. 20 í umsjón
Áslaugar Haugland. Allir hjartanlega
velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Sam-
koma kl. 17 í dag. Helga Vilborg
Sigurjónsdóttir talar. Matur seldur
eftir samkomu. Allir hjartanlega vel-
komnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
22. júlí - 29. júlí.
Reykjavík - Kristskirkja í Landa-
koti: Sunnudaga: Hámessa kl.
10.30 Messa á ensku kl. 18.00.
Alla virka daga: Messa kl. 18.00.
23. júlí: vígsludagur Kristskirkju
(1929, stórhátíð).
Reykjavík - Maríukirkja við Rauf-
arsel: Laugardaga: Messa á ensku
kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl.
11.00. Virka daga: Messa kl.
18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa
kl. 17.00.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja:
Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Mið-
vikudaga: Messa kl. 18.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga:
Messa kl. 08.30. Virka daga:
Messa kl. 8.00.
Keflavík - Barbörukapella: Skóla-
vegi 38: Sunnudaga: Messa kl.
14.00. Fimmtudaga kl.19.30:
Skriftir. Kl. 20.00: Bænastund.
Stykkishólmur, Austurgötu 7:
Sunnudaga: Messa kl. 10.00.
Ísafjörður og Vestfirðir: séra Marek
er í sumarleyfi.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 16.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum:
Guðsþjónusta kl. 11 með léttum
æskulýðssöngvum og gítarleik.
Skírn. Æskulýðsfulltrúinn okkar,
Ólafur Jóhann Borgþórsson, lætur
af störfum og kveður. Hvet ég alla
samstarfsmenn og ungt fólk í
Æskulýðsfélagi Landakirkju að fjöl-
menna, kveðja kappann og óska
honum góðs gengis í guðfræðinám-
inu í vetur. Allir hjartanlega vel-
komnir. Kaffisopi í safnaðarheim-
ilinu eftir þessa æskulýðsmessu á
sumri, kl. 14 helgistund á Hraun-
búðum. Allir hjartanlega velkomnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Julian
Hewlet. Félagar úr kór kirkjunnar
leiða söng. Prestur sr. Gunnþór Þ.
Ingason.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Hans Markús
Hafsteinsson. Kór Víðistaðasóknar
syngur. Organisti Úlrik Ólason. Sig-
urður Helgi Guðmundsson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Kvöldguðsþjón-
usta í Vídalínskirkju kl. 20.30.
Félagar úr kór kirkjunnar leiða al-
mennan safnaðarsöng. Organisti:
Jóhann Baldvinsson. Sr. Hans
Markús Hafsteinsson þjónar við at-
höfnina. Mætum vel og eigum ró-
lega stund að afloknu helgarfríi.
Prestar Garðaprestakalls.
NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 11. Barn borið til
skírnar. Kirkjukór Njarðvíkur syngur
undir stjórn Steinars Guðmundsson-
ar organista. Sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fermingar-
messa sunnudag kl. 11 árd. Fermd-
ur verður Pétur Þór Kalatschan frá
Bandaríkjunum, p.t.a Heiðarhorni
12, Keflavík. Prestur sr. Sigfús
Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkur-
kirkju leiðir söng. Organisti og kór-
stjóri Örn Falkner. Meðhjálpari
Hrafnhildur Atladóttir.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11.
Morguntíð sungin kl. 9 frá þriðju-
degi til föstudags. Kaffi og brauð að
henni lokinni. Foreldrasamvera kl.
11 á miðvikudögum. Sóknarprestur.
BORGARPRESTAKALL: Borgarnes-
kirkja. Messa kl. 14. Álftártungu-
kirkja: Messa kl. 17. Sóknarprestur
HÓLADÓMKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Forsöngvari Jó-
hann Már Jóhannsson. Organisti Jó-
hann Bjarnason. Séra Magnús
Magnússon prédikar og þjónar fyrir
altari. Allir velkomnir.
BAKKAGERÐISPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Vinaminni á Borgarfirði
eystra kl. 11 f .h. (vegna viðgerða á
kirkjunni). Organisti Kristján Giss-
urarson. Allir velkomnir. Sóknar-
prestur.
HJALTASTAÐARKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 14. Sumarbúðirnar
við Eiðavatn koma í heimsókn. Arna
Grétarsdóttir sumarbúðastjóri pré-
dikar. Organisti Muff Worden. Allir
velkomnir. Sóknarprestur.
MÖÐRUDALSKIRKJA: Á sunnudag
verður árlega messa í Möðrudals-
kirkju. Messan hefst kl. 14. Barn
verður borið til skírnar. Sóknarprest-
urinn, séra Lára G. Oddsdóttir, pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Organisti
er Kristín Axelsdóttir, kór Möðru-
dalssóknar syngur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
verður í Þingvallakirkju kl. 14. Þor-
valdur Halldórsson verður forsöngv-
ari eins og honum er einum lagið.
Organisti: Guðmundur Vilhjálmsson.
Prestur: Sr. Þórey Guðmundsdóttir
MOSFELLSPRESTAKALL Grímsnesi:
Helgistund verður í Grunnskólanum
á Laugarvatni kl. 16.30, sunnud.
Þorvaldur Halldórsson syngur og
leikur undir almennum söng. Prest-
ur: Sr. Þórey Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið/Ómar
Mosfellskirkja.
Guðspjall dagsins:
Réttlæti faríseanna.
(Matt. 5.)