Morgunblaðið - 21.07.2001, Síða 44
DAGBÓK
44 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í gær
fór Mánafoss og í dag er
væntanlegt Naja Arc-
tica sem fer aftur út
samdægurs.
Hafnarfjarðarhöfn: Á
sunnudag er Venus
væntanlegt.
Viðeyjarferjan. Tíma-
áætlun Viðeyjarferju:
Mánudaga til föstudaga:
til Viðeyjar kl. 13, kl. 14
og kl. 15, frá Viðey kl.
15.30 og kl. 16.30. Laug-
ardaga og sunnudaga:
Fyrsta ferð til Viðeyjar
kl. 13 síðan á klukku-
stundarfresti til kl. 17,
frá Viðey kl. 13.30 og
síðan á klukkustund-
arfresti til kl. 17.30.
Kvöldferðir eru föstu-
og laugardaga, til Við-
eyjar kl. 19, kl. 19.30 og
kl. 20, frá Viðey kl. 22,
kl. 23 og kl. 24. Sérferðir
fyrir hópa eftir sam-
komulagi. Viðeyj-
arferjan sími 892 0099.
Lundeyjarferðir dag-
lega, brottför frá Viðeyj-
arferju kl.10.30 og kl.
16.45, með viðkomu í
Viðey, u.þ.b. 2 klst., sími
892 0099.
Fréttir
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Mannamót
Bólstaðarhlíð 43. Ekið
um borgina þriðjudag-
inn 31. júlí og nýju
hverfin skoðuð. Kaffi
drukkið í Golfskála
Reykjavíkur, Graf-
arholti. Lagt af stað kl.
13. Skráning í síma 568-
5052 fyrir kl. 12 mánu-
daginn 30. júlí. Allir vel-
komnir.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Morgungangan verður í
dag, rúta frá Firðinum
kl. 9.50 og kl. 10 frá
Hraunseli. Orlofið á
Hótel Reykholti í Borg-
arfirði 26.–31. ágúst nk.
Skráning og allar upp-
lýsingar í símum ferða-
nefndar 555-0416, 565-
0941, 565-0005 og 555-
1703. Panta þarf fyrir 1.
ágúst. Félagsheimilið
Hraunsel verður lokað
vegna sumarleyfa
starfsfólks til 12. ágúst.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Matur í hádeg-
inu. Mánudagur: Brids
kl. 13. Miðvikudagur:
Göngu-Hrólfar fara í
létta göngu frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 10. Dags-
ferð 7. ágúst, Hítar-
dalur-Straumfjörður.
Brottför frá Glæsibæ kl.
9. Leiðsögn Þórunn Lár-
usdóttir. Skráning hafin.
Ákveðið hefur verið að
fara aðra 8 daga hring-
ferð um Norðausturland
20. ágúst nk.vegna mik-
illar eftirspurnar, ef
næg þátttaka verður.
Þeir sem hafa skráð sig
á biðlista eru vinsamleg-
ast beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu
FEB. Silfurlínan er opin
á mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 f.h. í síma 588-2111.
Upplýsingar á skrifstofu
FEB kl. 10 til 16 í síma
588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar á vegum ÍTR í
Breiðholtslaug á þriðju-
dögum og fimmtudögum
kl. 9.30. Púttvöllurinn er
opinn virka daga kl. 9–
18. Kylfur og boltar í af-
greiðslu sundlaug-
arinnar til leigu. Allir
velkomnir. Veitingabúð
Gerðubergs er opin
mánudaga til föstudaga
kl. 10–16. Félagsstarfið
lokað vegna sumarleyfa
frá 2. júlí–14. ágúst.
Félag eldri borgara
Kópavogi .Púttað verð-
ur á Listatúni í dag,
laugardag, kl. 11. Mæt-
um öll og reynum með
okkur.
Gullsmári. Lokað vegna
sumarleyfa til 7. ágúst.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofur lokaðar í júlí
vegna sumarleyfa. Hár-
greiðslustofan lokuð frá
10. júlí til 14. ágúst.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu. Skrifstofan
verðu lokuð vegna sum-
arleyfa frá 16. júlí til 7.
ágúst.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari. Einnig
er hægt að hringja í
síma 861-6880 og 586-
1088.
MS-félag Íslands. Minn-
ingarkort MS-félagsins
eru afgreidd á Sléttu-
vegi 5, Rvk., og í síma
568-8620 og myndrita s.
568-8688.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588- 9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í síma
552-4440 frá kl 13–17.
Eftir kl. 17 s. 698-4426
Jón, 552-2862 Óskar eða
563-5304 Nína.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s. 562-
5605, bréfsími 562-5715.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma 540
1990 og á skrifstofunni í
Skógarhlíð 8. Hægt er
að senda upplýsingar í
tölvupósti (minn-
ing@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma og
í öllum helstu apótekum.
Gíró- og kreditkorta-
greiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingadeildar Land-
spítalans Kópavogi
(fyrrverandi Kópavogs-
hæli), síma 560-2700 og
skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551-5941 gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Landssamtökin Þroska-
hjálp.
Minningarsjóður Jó-
hanns Guðmundssonar
læknis. Tekið á móti
minningargjöfum í síma
588-9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560-1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16. Ut-
an dagvinnutíma er tek-
ið á móti minning-
argjöfum á deild 11-E í
síma 560-1225.
Hranfkelssjóður (stofn-
að 1931) minningarkort
afgreidd í símum 551-
4156 og 864-0427.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru fá-
anleg á eftirfarandi
stöðum: Á skrifstofu
Flugfreyjufélags Ís-
lands, s. 561-4307/fax
561-4306, hjá Halldóru
Filippusdóttur, s. 557-
3333 og Sigurlaugu
Halldórsdóttur, s. 552-
2526.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562-1581 og hjá Kristínu
Gísladóttur, s. 551-7193
og Elínu Snorradóttur,
s. 561-5622.
Í dag er laugardagur 21. júlí, 202.
dagur ársins 2001. Orð dagsins: Þá
er þeir mötuðust, tók Jesús brauð,
þakkaði Guði, braut það og gaf læri-
sveinunum og sagði: Takið og etið,
þetta er líkami minn.
(Matt. 26,26.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 tappagat, 4 heilbrigð, 7
kvabba um, 8 mannsnafn,
9 lítill maður, 11 ungur
lundi, 13 kviður, 14 talaði
um, 15 trog undir beitta
lóð, 17 fitulag, 20 blóm,
22 líkamshlutarnir, 23
hátíðin, 24 málgefni, 25
nauma.
LÓÐRÉTT:
1 viðarbútur, 2 frí, 3 hug-
ur, 4 vatnagangur, 5
bumba, 6 lagvopn, 10 bál,
12 hagnað, 13 á víxl, 15
hríð, 16 veit lítið, 18
drengs, 19 þekkja, 20
elskaði, 21 skaði.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 rembingur, 8 tuddi, 9 taðan, 10 tól, 11 forka, 13
afræð, 15 blund, 18 álfar, 21 ugg, 22 aldan, 23 ólgan, 24
bifreiðin.
Lóðrétt: 2 eldar, 3 beita, 4 netla, 5 Urður, 6 stúf, 7 anið,
12 kæn, 14 fól, 15 blak,
16 undri, 17 dunar, 18 ágóði, 19 fagri, 20 rýna.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
ÞAÐ hefur vart farið framhjánokkrum þeim sem fylgist á
annað borð með dagskrá sjónvarps-
stöðvanna hversu stórstígum fram-
förum erlend dagskrá hefur tekið í
Ríkissjónvarpinu. Á tímabili leit út
fyrir að allt væri hreinlega að fara í
hundana í þeim efnum. Samkeppnis-
aðilar nöppuðu hverju trompinu á
fætur öðru, beint fyrir framan nefið á
mönnum sem þá réðu á Laugaveg-
inum, þannig að það eina sem í friði
fékk að vera voru hvort eð er hund-
þreyttir þættir sem ekki nokkur mað-
ur vildi sýna, hvað þá sjá. Í ofanálag
samanstóð kvikmyndaúrvalið (alla-
vega í minningunni) af níðþungum
sjónvarpsmyndum sem Sjónvarpið
hlýtur að hafa setið uppi með vegna
einhvers evrópsks samstarfs eða ann-
ars flokks bandarískum Hollywood-
myndum sem allir voru búnir að sjá á
öðrum sjónvarpsstöðvum, mynd-
bandi eða einfaldlega í Sjónvarpinu.
x x x
En nú er öldin önnur. Menn virðastaugljóslega hafa spýtt í lófana,
tekið sig taki og áttað sig á að ef Sjón-
varpið á að búa yfir einhverri reisn þá
verður að sýna áhorfendum virðingu,
taka tillit til óska þeirra, hversu
„ómenningarlegar“ sem þær kunna
að þykja. Nú er svo komið að Sjón-
varpið sýnir flesta af bestu afþreying-
arþáttunum sem nú eru framleiddir
og nægir þar að nefna margverð-
launaða þætti á borð við Bráðavakt-
ina, Vesturálmuna, Frasier og Beð-
mál í borginni. Þetta eru þættir sem
samkeppnisaðilarnir hefðu leikið sér
að að krækja í hér áður fyrr. Ekki má
svo gleyma demöntunum tveimur,
svo óslípuðum og egghvössum að yf-
irboðarar hjá Sjónvarpinu hefðu
aldrei samþykkt að sýna þá fyrir ekki
mjög svo löngu, nefnilega Soprano-
fjölskyldunni og háðfuglinum Ali G.
x x x
En betur má ef duga skal. Nýtil-komið uppátæki hjá stjórnend-
um dagskrár hjá Sjónvarpinu gefur
nefnilega til kynna, að enn eigi þeir
nokkuð í land með að aðlaga sig að
nútíma sjónvarpi og þeim kröfum
sem gera má til stöðvar sem starfar í
skjóli lögboðinni afnotagjalda. Þann-
ig er nefnilega mál með vexti að þrátt
fyrir að gott og blessað sé að end-
ursýna yfir sumartímann vinsæla
þætti eins og Frasier og breska
kvennagrínþáttinn Smack The Pony
þá fær Víkverji ekki skilið sýningar-
tíma þeirra. Hvernig menn geta leyft
sér að bjóða upp á endursýnt efni á
besta sýningartíma og það kvöld eftir
kvöld!
x x x
Vissulega hafa áhorfsvenjur fólksbreyst og það er farið að reiða
sig á að geta horft á endursýningar ef
það missir af frumsýningunni. End-
ursýningar eru algengar á einka-
stöðvunum og eiga reyndar til að
ganga út í öfgar, sérstaklega í tilfell-
um stöðva sem rukka afnotagjöld og
hafa þar með ákveðnum skyldum að
gegna gagnvart áhorfendum sínum.
Það sem einkastöðvarnar hafa hins-
vegar ætíð verið með á hreinu, en
Sjónvarpið greinilega ekki, er að end-
ursýningar eiga hvergi annars staðar
heima í dagskránni en á sýningar-
tíma þar sem áhorf er venjulega lítið
– á daginn eða seint á kvöldin, jafnvel
eftir miðnætti. Endursýningar eiga
þannig, að mati Víkverja, að vera
hrein viðbót við venjulega dagskrá en
ekki til uppfyllingar, til að þynna
hana út.
ÉG vil aðeins senda Vel-
vakanda nokkur orð. Mér
blöskrar alveg hvernig fjöl-
miðlar ganga fram af mis-
kunnarlausri grimmd í máli
Árna Johnsen. Það á ekki
að bíða eftir úrskurði um
málið, heldur er grjótinu
kastað miskunnarlaust og
það kannski úr glerhúsi eða
hver skyldi vera ábyrgð
fjölmiðla á öllum þeim
glæpamyndum, sem birtast
á skjánum. Það er lítil-
mannlegt og níðingslegt að
ráðast að þeim sem orðið
hefur fyrir óláni og ekkert
síður þó hann eigi kannski
sök sjálfur.
Svo eru stórglæpamenn
látnir njóta nafnleyndar
þótt þeir séu hættulegir
samfélaginu. Er þetta rétt-
læti? Ég hef aldrei verið
sjálfstæðismaður og er því
ekki að verja hann sem
slíkan, en mér blöskrar al-
veg þessi villimannlega
framganga í þessu máli.
Þeir sem kasta steini að
öðrum eru að óvirða sjálfan
sig.
Gunnþór
Guðmundsson,
rithöfundur,
Hvammstanga.
„Sá yðar sem
syndlaus er...“
MIG langar að hvetja alla
til þess að lesa grein eftir
Halldór Jónsson, sem birt-
ist í Morgunblaðinu 18. júlí
sl. og heitir „Sá yðar sem
syndlaus er...“. Þetta er
frábær grein.
Lesandi.
Fyrirspurn
KONA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
vita hvort einhver vissi
hvar væri tekið við velmeð-
förnum leikföngum, sem
hætt er að nota?
Tapað/fundið
Veski hvarf úr
Motor í Kringlunni
LÍTIÐ veski með svörtu og
hvítu sebramynstri hvarf
úr mátunarklefa í verslun-
inni Motor í Kringlunni
laugardaginn 14. júlí sl. um
kl. 18. Í veskinu voru meðal
annars peningar og bíllykl-
ar. Skilvís finnandi er vin-
saml. beðinn að hafa samb.
í s. 899-4268.
Bleikt snákaveski
tapaðist
BLEIKT snákaveski tap-
aðist í Árbæjarsundlaug
fyrir um það bil hálfum
mánuði. Í veskinu voru skil-
ríki. Skilvís finnandi er vin-
samlegast beðinn að hafa
samband í síma 867-8778.
Hver á Bamba?
VEIT einhver hvar ég get
nálgast videospóluna um
Bamba frá Walt Disney?
Vinsamlegast hafið sam-
band við Ólöfu í síma 552-
6604.
Karlmannsúr
tapaðist
OMEGA-karlmannsúr tap-
aðist fyrir stuttu á leiðinni
frá Holtsgötu upp Túngötu,
síðan niður á Hávallagötu
upp að Hávallagötu 16 og
til baka niður Hofsvalla-
götu á Melhaga. Skilvís
finnandi er vinsaml. beðinn
að hafa samb. í s. 551-4302.
Nokia-sími
tapaðist
NOKIA 3310 GSM-sími
tapaðist, annaðhvort á
Laugavegi eða á Hlemmi,
fyrir u.þ.b. tveimur vikum.
Vinsaml. hafið samb. í s.
554-4947.
Dýrahald
Kettling vantar
heimili
YNDISLEGUR, kassavan-
ur kettlingur fæst gefins.
Svartur og hvítur fress.
Uppl. í s. 565-1019 eða 897-
8205.
Tík í óskilum
SVÖRT, hvít og brún
labradorblendingstík, lág-
fætt, með fjólubláa ól og
taum, er í óskilum á
Hundahótelinu í Leirum.
Uppl. í s. 566-8366 eða 698-
4967. Hreiðar.
Svört kanína í óskilum
SVÖRT kanína fannst í
Fossvogi fyrir stuttu. Uppl.
hjá Guðrúnu í s. 864-9195.
Míu vantar heimili
MÍA er eins og hálfs árs
geld læða og hana vantar
gott heimili vegna flutnings
eigenda erlendis. Mía er
innikisa og hún er mjög
barngóð. Upplýsingar í
síma 587-1964 eða 696-
7100.
Ljósblár páfagaukur
flaug út um gluggann
LJÓSBLÁR páfagaukur
flaug úr um glugga á Ás-
vallagötu mánudaginn 16.
júlí sl. Hann er mjög gæfur.
Ef einhverjir geta gefið
einhverjar upplýsingar um
ferðir hans, vinsamlegast
látið vita í síma 437-2294
eða 557-4304.
Kettlingur fæst gefins
BRÖNDÓTTUR tveggja
mánaða kettlingur fæst
gefins á gott heimili. Upp-
lýsingar í síma 699-4772.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Miskunnar-
laus grimmd
fjölmiðla