Morgunblaðið - 21.07.2001, Síða 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
spila frá miðnætti
Vesturgötu 2, sími 551 8900
sími 552 3000
Miðasalan opin frá kl. 14—18.
HEDWIG KL. 20.30
Lau 21/7 örfá sæti laus
fim 26/7 örfá sæti laus, fös 17/8,
lau 25/8, fös 31/8
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Í KVÖLD: Lau 21. júlí kl. 20 – LAUS SÆTI
Fö 27. júlí kl 20 – LAUS SÆTI
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR
WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason
Stórsöngleikur Leikfélagsins WMU
Su 22. júlí kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fi 26. júlí kl. 20 – ÖRFÁ SÆTI
Lau 28. júlí kl. 20 - AUKASÝNING
Ath. SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
ÞEGAR hér er komið sögu ermyndin um græna og góð-lega tröllið Shrek ekki ein-asta vinsælasta mynd árs-
ins, það sem af er, heldur er hún
einnig orðin næstvinsælasta teikni-
mynd kvikmyndasögunnar, á eftir
The Lion King. Það er heldur alls
ekki útilokað að Shrek nái að skjóta
Konungi ljónanna ref fyrir rass á
komandi vikum eða mánuðum.
Á Óskarsverðlaunahátíðinni
næstu verður kynntur til sögunnar
nýr verðlaunaflokkur; besta teikni-
myndin. Margir eru nú þegar farnir
að spá því að Shrek verði þess heið-
urs aðnjótandi að verða fyrsta mynd-
in til að vinna verðlaunin, sérstak-
lega í ljósi þess að tromp ársins hjá
Disney, Atlantis, þykir ekki hafa
staðið undir væntingum. Það yrði
heldur betur saga til næsta bæjar ef
teiknimyndaveldið sjálft, Disney,
næði ekki í þennan fyrsta teikni-
myndaóskar. Ekki einungis vegna
þess að hér er ekki Disney-mynd á
ferð, en hingað til hefur gamla
Mikka Mús-veldið nær einokað
þennan gjöfula markað, heldur er
maðurinn á bak við Shrek fyrrum
starfsmaður Disney, sá er sagður er
eiga heiðurinn að endurreisn Dis-
ney-teiknimyndanna. Jeffrey Kat-
zenberg heitir hann – stuttur, snagg-
aralegur og sjarmerandi náungi –
K-ið í nýjasta kvikmyndaverinu í
Hollywood Dreamworks SKG. Þeg-
ar Katzenberg yfirgaf Disney með
sviplegum hætti og stofnaði Dream-
works, ásamt félögum sínum kvik-
myndakónginum Steven Spielberg
og tónlistarmógúlnum David Geffen,
var hans æðsta markmið að koma á
fót almennilegri teiknimyndadeild,
svo góðri að hún gæti boðið Disney-
risanum birginn. Og nú, tæpum ára-
tug síðar, er allt útlit fyrir að það hafi
tekist, svo um munar.
Teiknimyndin nýtir öll svið
sköpunargáfunnar
Þegar Shrek, sem byggist á lítilli
barnabók eftir William Steig frá
1990, var frumsýnd á kvikmyndahá-
tíðinni á Cannes fyrr í sumar var
ennþá vika í að hún yrði sýnd vest-
anhafs. Hún tók þátt í aðalkeppni há-
tíðarinnar, fyrst teiknimynda í heil
27 ár. Þá þegar var farið af stað fá-
dæma jákvætt orðspor, dómar fag-
blaða verið lofsamlegir og spekingar
spáðu henni mikilli velgengni. Kat-
zenberg hafði því fyllstu ástæðu til
þess að vera ánægður með sig í
Cannes og hann var bersýnilega
ánægður með starfsmenn sína, leik-
stjóra Shrek, Victoriu Jenson og
Andrew Adamson, sem nutu athygl-
innar á hátíðinni með honum. Þau
voru óvön sviðsljósinu enda í fyrsta
sinn í leikstjórastólunum. Þó eru þau
engir nýgræðingar. Jenson hefur
starfað sem teiknari í tvo áratugi og
kom ríkulega að gerð The Road To
Eldorado en Adamson er þaulreynd-
ur brellusérfræðingur sem komið
hefur að myndum á borð við True
Lies, Batman Forever og Batman
and Robin.
„Þegar ég ákvað að setja á stofn
nýtt kvikmyndafyrirtæki þá var það
ætíð mitt stóra markmið að koma á
fót teiknimyndadeild,“ segir Katzen-
berg. „Einfaldasta skýringin er sú að
ég er forfallinn unnandi teiknimynda
og veit ekkert ánægjulegra en að
vinna að þeim. Það er tvennt sem
gerir teiknimyndirnar svo yndisleg-
ar; hið óendanlega ímyndunarafl
sem þær bjóða upp á og hversu mikil
hópvinna er fólgin í gerð þeirra. Þær
hringsnúast ekki í kringum einhverj-
ar stórstjörnur heldur standa og
falla með hópefli sérfræðinga á öll-
um sviðum sköpunargáfunnar. Það
eru vinnubrögð mér að skapi.“
Katzenberg þvertekur fyrir að
markmið sitt sé að klekkja á gamla
vinnuveitanda sínum Disney: „Ég er
ekki að þessu til að ögra Disney á
einn eða neinn hátt, heldur til þess
að auka víddina á því sviðinu sem
hefur því miður ekki verið mjög mik-
il hingað til. Og það er það sem
Dreamworks SKG hefur nákvæm-
lega gert. Breiddin er nú þegar orðin
meiri, umfjöllunarefnin fjölbreyttari
og teiknimyndir ekki lengur einvörð-
ungu stílaðar inn á börn. Kjarni
málsins er náttúrlega sá að teikni-
myndir bjóða upp á óendanlega
möguleika og ættu því ekki að höfða
til eins afmarkaðs hóps.“
Fyrir 4 ára til 104 ára
– Eru efnistökin í Shrek þá á ein-
hvern veg hugsuð sem liður í þessari
útvíkkun teiknimyndaformsins?
„Algjörlega.“ Katzenberg er enn
með orðið.
„Við lögðum mikið upp úr því að
hún yrði ævintýri sem höfðaði til
allra aldurshópa, hefði sem víðustu
skírskotun. Það yndislega við hana,
að mínu viti, er að hver aldurshópur
ætti að geta túlkað hana á sinn hátt –
fá eitthvað fyrir sinn snúð sem aðrir
hópar eru kannski ekkert að skynja.
Það var t.a.m. algjör upplifun að sjá
viðbrögð fyrstu áhorfenda að mynd-
inni. Börn og fullornir voru hlæjandi
á gjörsamlega ólíkum stöðum. Hlógu
eiginlega alveg til skiptis þannig að
úr varð hin magnaðasta hlátur-
bylgja, nokkurs konar mexíkósk
hlátursalda.
Það snart mig líka að lesa ummæli
eins og gagnrýnanda kvikmynda-
tímaritsins Variety, sem sagði
myndina höfða til áhorfenda allt frá
4 ára til 104 ára. Það var nákvæm-
lega tilgangurinn.“
Ekki skotið
á Disney
Í Shrek er gert góðlátlegt grín að
hinu sígilda ævintýraformi og að því
er virðist hvernig Disney hefur tekið
á þeim í gegnum árin. Þannig er að
finna nett skot á eyrnastóra fílinn
hann Dúmbó, Mjallhvít og dvergana
hennar sjö, Gosa sem ekki getur
hætt að segja ósatt og vondu stjúp-
una í Öskubusku sem þvingar tal-
andi spegil til að auka sjálfstraust
sitt. Þær raddir hafa heyrst að með
þessu sé Katzenberg að skjóta nettu
en hnitmiðuðu skoti á meinta væmni
og silkihanskameðhöndlun Disney á
þessum gömlu ævintýrum.
„Ég er algjörlega ósammála,“
svarar hann til um þær getgátur.
„Tilgangurinn var að gera meinlaust
grín að sjálfum ævintýrunum sem
slíkum, ekki hvernig Disney tók á
þeim. Reyndar ef betur er að gáð er
fátt sem okkur er heilagt og blamm-
eringarnar fá að fjúka til hægri og
vinstri, blygðunarlaust.“
Nú vaknar Adamson til lífsins:
„Við höfðum samt að leiðarljósi að
þótt greinilega væri verið að gera
grín að ákveðnum hlutum eða per-
sónum gengi það aldrei svo langt að
vera meiðandi, illa innrætt eða nið-
urlægjandi.“ Adamson er það sem
stundum er kallað sláni. Hann er
með axlasítt, ljóst hár. Svolítið
hippalegur og talandinn afhjúpar
ólgandi ástríðu í garð umræðuefnis-
ins.
„Það á enginn að þurfa að vera sár
út af skotunum í myndinni því þau
eru öll meinlaus. Fyrst og fremst átti
þetta alltaf að vera ljúft og upp-
byggjandi ævintýri með góðum boð-
skap,“ segir hann síðan og ekki er
laust við að greina megi ofurlítinn
hæðnistón í rödd hans. Augljóslega
nettur prakkari.
Myers tók við af
Farley heitnum
– Tölvugrafíkin í myndinni er með
því betra sem sést hefur hingað til og
nákvæmnin mikil. Hver voru mark-
miðin hvað það varðar?
„Vitanlega gáfum við nákvæmn-
inni góðan gaum,“ svarar Jenson,
brosmild og aðlaðandi kona, jafnvel
svolítið kennslukonuleg í útliti.
„Við höfðum samt engan áhuga á
því að gera allt sem „eðlilegast“,
gera mannfólkið sem líkast alvöru
mannfólki. Það heillar okkur ekkert.
Það heftir hreinlega ímyndunaraflið.
Fremur vildum við skapa nýjan æv-
intýraheim, með hreinræktuðum
ævintýrapersónum og við erum ein-
mitt stoltust af því að hafa afrekað
það.“
– Voru persónur skapaðar með
ákveðna leikara sem ljá þeim raddir í
huga og hversu stóran þátt eiga leik-
ararnir í orðræðum þeirra?
„Já, við vorum búin að skipa í
helstu hlutverkin áður en teikningar
hófust og þróun persóna,“ svarar
Katzenberg. „Persónur, eða réttara
sagt fyrirbæri, Eddies Murphys
(sem leikur asna), Cameron Diaz
(prinsessan) og Johns Lithgows
(vondi prinsinn) voru þannig fullmót-
aðar með þau í huga en upphaflega
átti Chris heitinn Farley að leika
Shrek þannig að hann endaði sem
einhvers konar blanda af Farley
heitnum og góðvini hans Mike
Myers, sem leysti hann af.
Hvað þátt leikara í orðræðunni
varðar þá á Murphy, eins og gefur að
skilja heilmikið, hann getur náttúr-
lega ekki hætt að bulla þegar hann á
annað borð er byrjaður. Myers bjó
líka til slatta á staðnum, t.a.m. þenn-
an ótrúlega hreim, sem er einhvers
konar grautur af skosku, írsku og
kanadísku – nákvæmur Shrek-
hreimur.“
– Nú í kjölfar velgengni þessarar
myndar og Toy Story-myndanna,
teljið þið vera hættu á því að tölvu-
teiknaðar myndir fari brátt að leysa
þær hefðbundnu af hólmi?
„Nei ég á alls ekki von á því,“ svar-
ar Jenson. „Eina sem það gerir er að
auðga flóruna og ég er sannfærð um
að bæði formin eiga eftir að geta lif-
að góðu lífi saman í framtíðinni.“
skarpi@mbl.is
Græna
byltingin
Spánnýjar en þó sígildar söguhetjur í ævintýrinu um græna tröllið Shrek.
Vinsælasta mynd ársins, enn sem komið er,
er tölvuteiknimyndin Shrek. Skarphéðinn
Guðmundsson ræddi við framleiðanda
myndarinnar, mógúlinn Jeffrey Katzen-
berg og leikstjóra hennar á heimsfrumsýn-
ingunni í Cannes fyrr í sumar.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Mike Myers mætti til frumsýningarinnar í Cannes ásamt Katzenberg (á
hægri hönd) og leikstjórunum Anderson og Jenson (á vinstri hönd).
Sýningar hafnar á tölvuteiknimyndinni Shrek