Morgunblaðið - 21.07.2001, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
strik.is
KVIKMYNDIR.is
1/2
Hugleikur
Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti
Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína.
Nýjasti rómantíski gamanmyndasmellurinn
frá framleiðendum
Notting Hill & Four Weddings And A Funeral. Með
Renée Zelweger (Jerry Maguire, Nurse Betty), Hugh
Grant (Notting Hill, Four Weddings And A Funeral)
og Colin Firth (Shakespeare in Love og Fever Pitch).
Kemur báðum kynjum í gott skap.
Sýnd kl. 8.10 og
10.10. Vit nr. 250
Kvikmyndir.com DV
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Vit 243.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Vit 255.
Sýnd kl.8.
Vit 235. B.i. 12.
strik.is
Ó.H.T.Rás2
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Vit nr. 249
Ísl tal. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 245
Enskt tal. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 244
Ævintýrið góða sem aldrei var sagt frá …fyrr en nú.
FRUMSÝNING
Græna tröllið SHREK hefur allstaðar heillað heimsbyggð
alla og nú er röðin komin að Íslandi.
Sjáið eina skemmtilegustu og stærstu kvikmynd ársins.
Með íslensku og ensku tali.
Sýnd kl. 2 og 3.45.
Vit nr. 213.
Spenna á yfir 380 km hraða!
Sýnd kl. 3.50 og 6.
Vit 234
Sýnd kl. 2. Ísl tal.
Vit nr. 231
Kvikmyndir.com
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Hluti myndarinnar var tekinn upp á Íslandi
Frábær hasarmynd sem fór
beint á toppinn í Bandaríkjunum
Stærsta ævintýri sumarsins er hafið
TILLSAMMANS
betra er að
borða grautinn
saman en
steikina einn
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. B.i. 12.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.15. B.i. 12.
1/2 Kvikmyndir.com
H.L. Mbl.
H.K. DV
Strik.is
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 10.30.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
DV
Ó.H.T.Rás2
strik.is
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Ísl tal
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Enskt tal
Ævintýrið góða sem aldrei var sagt frá …fyrr en nú.
FRUMSÝNING
Græna tröllið SHREK hefur allstaðar heillað heimsbyggð
alla og nú er röðin komin að Íslandi.
Sjáið eina skemmtilegustu og stærstu kvikmynd ársins.
Með íslensku og ensku tali.
Heilsuviðvörun: Ef þú tekur upp lífshætti
Bridget Jones þá gæti það skaðað heilsu þína.
Nýjasti rómantíski gamanmyndasmellurinn frá framleiðendum
Notting Hill & Four Weddings And A Funeral. Með Renée
Zelweger (Jerry Maguire, Nurse Betty), Hugh Grant (Notting
Hill, Four Weddings And A Funeral) og Colin Firth
(Shakespeare in Love og Fever Pitch).
Kemur báðum kynjum í gott skap.
ÞRÁTT fyrir hinn almenna skilning
að síðasta hljómplata The Cure,
Bloodflowers, yrði svanasöngur
þeirra eru Robert Smith og félagar
nú á leiðinni í hljóðver að taka upp
nýtt efni. Áætlað er að hljóðrita tvö
ný lög sem aukalög á safnplötu með
þeirra vinsælustu lögum í gegnum
tíðina.
Aðdáendum sveitarinnar verður
boðið upp á að fylgjast með vinnu-
ferlinu á Netinu í gegnum svokall-
aða „Curecam“ á heimasíðu hljóm-
sveitarinnar, www.thecure.com.
Robert Smith er þessa dagana að
velta sér upp úr lagavali plötunnar –
erfitt verkefni það því áætlað er að
hún verði aðeins einföld.
Þetta er ekki eina safnplatan sem
er í vinnslu því einnig er á dag-
skránni að gefa út tvöfalda safnplötu
svokallaðra „b-hliða-laga“ en það
eru þau aukalög sem hafa skreytt
smáskífur sveitarinnar á rúmum
tuttugu ára útgáfuferli hennar.
Mörgum eru enn ferskir í minni
tónleikar sveitarinnar á Hróars-
kelduhátíðinni í byrjun þessa mán-
aðar en það verður víst ekki í síðasta
sinn sem sveitin leikur á tónleikum.
Hún hyggst halda nokkra tónleika
til þess að kynna væntanlega safn-
skífu sem væntanleg er í búðir í lok
ársins.
The Cure á lífi
Taka upp
tvö ný lög
„Við hætta? Hver sagði það?“
Bobby G. er ósyndur
(Bobby G. Can’t Swim/Drug
Dealer)
S P E N N U M Y N D
Leikstjórn John-Luke Montias. Að-
alhlutverk John-Luke Montias, Sus-
an Mitchell. (89 mín.) Bandaríkin
FYRSTA skot. Sjúskuðum
náunga er sparkað harkalega út af
krá að morgni til. Hann er illa leik-
inn, drullugur,
drukkinn og dóp-
aður. Hann þarf að
létta af sér og ger-
ir það strax. Veg-
farendum er lítt
skemmt. Maðurinn
er Bobby G. Hann
er dópsali og
ósyndur.
Í fyrstu virkar
þessi litla og fátæklega öngstræt-
ismynd sem hvert annað ómerkilegt
myndbandafóður en strax í upp-
hafsatriðinu rennur upp fyrir manni
að hún er annað og miklu meira.
Leikstjórinn og aðalleikarinn
Montias, allsendis óþekkt stærð í
kvikmyndaheiminum, fjallar af ein-
stöku raunsæi um örvæntinguna
sem ríkir meðal fólks sem býr á
öngstrætum New York-borgar.
Hún er ekki gallalaus, þráðurinn
seint talinn frumlegur og leikurinn
upp og ofan. En myndin er bara
svo innilega sönn og hrá. Maður
trúir því að nákvæmlega svona sé
bragðið af rotna hluta Stóra epl-
isins.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Örvænt-
ing í öng-
strætumHELGA Björnsson þarf vart aðkynna. Hann hefur komið víða við
á ferli sínum sem leikari, poppari
og alsherjar athafnarmaður en
þekktastur er hann ef til vill sem
söngvari einnar elstu starfandi
hljómsveitar á Íslandi fyrr og síð-
ar, SSSól, sem forðum daga gekk
undir nafninu Síðan skein sól.
Sveitin sú hefur farið mikinn í
sveitaballamenningu landsins
lengur en margan kærir um að
muna og hún er enn að, hefur
sjaldan eða aldrei verið kraftmeiri
og mun troða upp vítt og breitt
um landið, á völdum samkomum
í sumar. Sveitin á líka lag á plöt-
unni Svona er sumarið 2001 og
það nýtt. „Ég veit þú spáir eld-
gosi“ er hið sérkennilega
nafn þess og hefur það
fengið að hljóma ótt og
títt á útvarpsstöðvum
landsins, eins og
venjan er þegar nýr
SSSól smellur er
annars vegar.
Það er annars af Helga sjálfum
að frétta að hann mun skemmta
á Kántrýhátíðinni á Skagaströnd
um verslunarmannahelgina
ásamt hljómsveit sinni Trigger,
sem ekki fer nánari sögum af
hér.
Hvernig hefur þú það í dag?
Alveg frábært, er á leiðinni í
hestaferð.
Hvað ertu með í vösunum í
augnablikinu?
Kort, gemsa og bíllykla.
Ef þú værir ekki tónlist-
armaður hvað myndirðu
helst vilja starfa við?
Leikari.
Bítlarnir eða Rolling Stones?
Stones.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir
sem þú fórst á?
Hljómsveitin Náttúra í Sjallanum
á Ísafirði, Diddi fiðla ber að ofan
og allur hippisminn í hámarki.
Hvaða hlut myndir þú fyrst
bjarga úr eldsvoða?
Tölvunni sem geymir hugmyndir
og lög óútgefin.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Allt sem er gott.
Hefurðu tárast í bíó?
Man það ekki.
Finndu fimm orð sem lýsa per-
sónuleika þínum vel.
Þolgóður, skapgóður, fótviss,
þrautgóður og hneggja í svefni.
Hvaða lag kveikir blossann?
„All I Want Is You“ með U2.
Hvert er þitt mesta prakk-
arastrik?
Hverju á ég að ljúga núna?
Hver er furðulegasti matur sem
þú hefur bragðað?
Pasta með niðursoðnum ávöxtum
sem ég eldaði sjálfur í Varmahlíð.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
American Yodeling 1911-1946
Hvaða leikari fer mest í taug-
arnar á þér?
Hugh Grant því hann er svo asna-
legur.
Hverju sérðu mest eftir í lífinu?
Engu.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Nei, vegna þess að ég er hættur
að blekkja sjálfan mig.
Hestamaður sem
hneggjar í svefni
SOS
SPURT & SVARAÐ
Helgi Björnsson
M
or
gu
nb
lað
ið/
Bi
lli