Morgunblaðið - 21.07.2001, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
RÍKISENDURSKOÐUN hefur
kallað eftir gögnum sem varða fjár-
mála- og umsýslustörf Árna John-
sen alþingismanns í fleiri nefndum
og ráðum en byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins. Þannig hefur nú verið
kallað eftir bókhaldi byggingar-
nefndar Þjóðhildarkirkju í Bratta-
hlíð á Grænlandi og vegna bygging-
ar stafkirkju í Vestmannaeyjum en í
báðum tilvikum var Árni Johnsen
formaður byggingarnefndar.
Páll Brynjarsson, sem var fram-
kvæmdastjóri Vestnorræna þing-
mannaráðsins á byggingartíma
Þjóðhildarkirkjunnar í Brattahlíð,
segir að Árni Johnsen hafi sem for-
maður byggingarnefndar samþykkt
alla reikninga nefndarinnar og haft
með höndum prókúru. Þá hafi hon-
um verið afhent bókhald vegna
framkvæmdanna eftir vígslu kirkj-
unnar en það hafi þó ekki enn verið
endurskoðað. Talið er að fram-
kvæmdir í Brattahlíð hafi velt 70–75
milljónum kr. en kostnaður við mót-
töku norskrar stafkirkju til Vest-
mannaeyja og uppbyggingu á
Skansinum var af hálfu ríkisins um
57 milljónir.
Afsagnarbréf hafði ekki borist
til forseta Alþingis í gær
Bogi Nilsson ríkissaksóknari seg-
ir við Morgunblaðið að næg tilefni
séu nú þegar til að mæla fyrir um
lögreglurannsókn á þeim tilvikum í
stjórnsýslustörfum Árna Johnsen
sem fram hafa komið opinberlega og
þótt athugunar verð.
Fyrir liggi grunur um refsiverða
háttsemi í þeim málum. Embættið
vilji þó doka við þar til Ríkisend-
urskoðun sé lengra á veg komin í
sinni athugun á umsýslu- og nefnda-
störfum Árna.
Afsagnarbréf til forseta Alþingis
hafði ekki borist frá Árna í gær en
samkvæmt lögum um þingfararkaup
á hann rétt á 6 mánaða biðlaunum,
óski hann þess sjálfur. Leiki vafi á
rétti hans til biðlauna þarf forsæt-
isnefnd þingsins að skera úr um það.
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi sagði við Morgunblaðið í
gær að starfsfólk stofnunarinnar
hefði verið að koma úr fríi og sam-
stundis verið munstrað í rannsókn-
ina, enda legði hann áherslu á að
hraða henni eins og kostur væri.
„Þetta tekur einhvern tíma því
þetta er ekkert áhlaupaverk en við
stefnum á að ljúka þessari vinnu í
ágústmánuði,“ sagði hann.
Rannsókn Ríkisendurskoðunar á umsýslu Árna Johnsen
Næg tilefni til lög-
reglurannsóknar
Kallað eftir gögnum/10
LANDMANNALAUGAR eru vin-
sæll áfangastaður meðal ferða-
manna, enda mikil náttúruperla.
Hvort sem er að vetri eða sumri,
þykir gott að komast í þessa heitu
laug og láta ferðaþreytuna líða úr
sér í góðum félagsskap. Það þótti
í það minnsta ferðalöngunum sem
í fyrradag hvíldu lúin bein í Land-
mannalaugum, skoluðu af sér
ferðarykið og ræddu landsins
gagn og nauðsynjar.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Á góðri stundu í
Landmannalaugum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
féllst í gær á kröfu lögreglunnar í
Reykjavík um framlengingu gæslu-
varðhalds til 31. ágúst yfir breskum
karlmanni. Honum var jafnframt birt
ákæra en hann var gripinn á Kefla-
víkurflugvelli með sex kíló af hassi í
ferðatösku fyrir um hálfum mánuði.
Maðurinn hefur haldið fram sakleysi
sínu við lögreglu og vill meina að
hassinu hafi verið laumað í ferða-
töskuna. Ásgeir Karlsson, hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Reykjavík,
segir manninn enn hafa haldið fram
sakleysi sínu fyrir dómi en hafi þó
ekki mótmælt gæsluvarðhaldi.
Stöðvaður með
hass í ferðatösku
Heldur
fram sak-
leysi sínu
MIKLAR líkur eru á að bensínlítr-
inn muni lækka um næstu mánaða-
mót, en lækkun hefur orðið á
heimsmarkaðsverði. Þetta virðist
samdóma álit forsvarsmanna olíu-
félaganna þótt allir telji þeir frem-
ur snemmt að segja til um það.
„Við erum ekki farin að skoða
hversu mikil lækkunin gæti orðið,
það er það mikið eftir af mánuðin-
um. Ég get því ekkert sagt um það
á þessari stundu,“ segir Bjarni
Bjarnason, fulltrúi forstjóra Olíu-
félagsins hf. – Esso, og bendir á að
ákvörðun verði ekki tekin fyrr en
meðalheimsmarkaðsverð mánað-
arins liggi fyrir, en innkaupsverðið
byggist á því. Síðan þurfi auðvitað
að taka inn í dæmið gengi dollar-
ans. Þetta verði ekki ljóst fyrr en
rétt undir lok mánaðarins eins og
alltaf.
„Það eru allar líkur til að það
verði einhverjar lækkanir miðað
við stöðuna í dag. Það er náttúr-
lega heil vika eftir af mánuðinum,
en það bendir flest til þess. Það
hafa verið lækkanir meira eða
minna í mánuðinum, þótt þær hafi
ekki verið miklar,“ segir Reynir
Guðlaugsson innkaupastjóri Skelj-
ungs hf. Hann telur erfitt að segja
til um hversu mikil lækkun verði,
það þurfi að fylgjast með geng-
isþróuninni, en hún hafi verið
nokkuð stöðug. „Það væri óábyrgt
að vera með einhverjar tölur núna.
En það verða ekki eins miklar
sveiflur og verið hafa. Þetta verður
í einhverjum krónum en ekki svo
mörgum,“ segir hann.
Hjá Olís fengust þau svör að enn
væri of snemmt að segja til um
breytingar á bensínverði.
Útlit fyrir lækk-
un á bensínverði
♦ ♦ ♦
GREIÐENDUM námslána sem eru
í skilum býðst nú að borga af lánum
sínum með átta afborgunum á ári í
stað tveggja áður, með rafrænum
hætti. Fulltrúar LÍN og Form.is,
auk menntamálaráðherra, undirrit-
uðu samning þessa efnis í gær.
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra segist vonast til að þessi samn-
ingur ryðji brautina fyrir frekari raf-
ræn samskipti. Hann telur sjálfsagt
að líta til lagabreytinga til að hugs-
anlega verði unnt að dreifa greiðsl-
unum enn frekar, en segir mjög stórt
skref að fjölga afborgunum úr tveim-
ur í átta.
Viðbótarkostnaður vegna
greiðsludreifingarinnar er 0,9% af
greiðslu. Greiðendur námslána eru
alls 26.000 og næsti gjalddagi hjá
flestum er 1. september. Notendur
Form.is eru nú um 5.700 en verða
hugsanlega yfir 30 þúsund með
samningnum.
Afborganir
námslána úr
tveimur í átta
Greiðslum dreift/18