Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 1
LEIÐTOGAR sambandssinna á Norður-Írlandi kröfðust þess í gær að Írski lýðveldisherinn (IRA) hæfi afvopnun tafarlaust, að öðrum kosti gætu þeir ekki stutt róttækar sátta- tillögur sem ríkisstjórnir Bretlands og Írlands lögðu fram í síðustu viku. David Trimble, leiðtogi stærsta flokks sambandssinna, sagði í gær að nýjar yfirlýsingar IRA um afvopnun væru ekki fullnægjandi til að flokk- urinn, Sambandssinnar Ulster (UUP), sæi sér fært að hefja á ný stjórnarsamstarf með fulltrúum flokka kaþólikka, þar á meðal Sinn Fein, pólitísks arms IRA. Alþjóðleg nefnd milligöngumanna, sem hefur haft umsjón með fram- kvæmd afvopnunarákvæða friðar- samkomulagsins, sem kennt er við föstudaginn langa, greindu frá því á mánudag að frá fulltrúum IRA hefði borizt tilboð um ferli sem miðaðist að því að IRA „hætti notkun“ vopna- búrs síns með sannanlegum hætti. Framtíð heimastjórn- arinnar óljós Trimble tjáði blaðamönnum, eftir að hafa rætt við þingmenn úr flokki sínum um sáttatillögurnar og tilboð IRA, að það dygði ekkert minna en að IRA byrjaði í raun að afhenda vopn – að öðrum kosti spáði hann því að brezka stjórnin yrði að gera það upp við sig fyrir föstudag hvort hún tæki aftur upp milliliðalausa stjórn Norður-Írlands. Um næstu helgi rennur út lög- bundinn frestur til að kjósa nýjan forsætisráðherra og varaforsætis- ráðherra n-írsku heimastjórnarinn- ar, en Trimble sagði af sér forsætis- ráðherraembættinu hinn 1. júlí sl. í mótmælaskyni við að IRA skyldi ekki standa við ítrekað framlengdan frest til að hefja afvopnun. Fulltrúar Sinn Fein brugðust reiðir við orðum Trimbles og sökuðu hann um dómgreindarskort. Brezka stjórnin framlengdi í gær frest sem hún hafði gefið deiluaðilum til að bregðast við hinum brezk-írsku sáttatillögum, en í þeim felst meðal annars að n-írska lögreglan verði stokkuð upp og verulega verði fækk- að í herliði Breta í héraðinu. Friðarferlið á Norður-Írlandi enn í lamasessi Sambandssinnar hafna tilboði IRA Belfast. AP. TRÚUÐ kaþólsk kona heldur á loft mynd af heilögum Cayetano, tákn- rænum hveitistönglum og lyklunum að heimili sínu við bænagjörð utan við kirkju í Buenos Aires í gær sem þúsundir Argentínumanna tóku þátt í. Var beðið fyrir betri tíð í at- vinnumálum, en atvinnuleysi í Arg- entínu er nú komið vel á annan tug prósenta og fá teikn eru í augsýn um að eitthvað sé að rofa til í efna- hagskreppunni sem heldur landinu í heljargreipum um þessar mundir. Er hart er í ári heita margir trú- aðir Argentínumenn á heilagan Cayetano, verndardýrling atvinn- unnar. Leiðtogar Chile, Brasilíu og Mexíkó hafa skorað á George W. Bush Bandaríkjaforseta og ráða- menn annarra helztu iðnríkja heims að styðja við aðgerðir Argentínustjórnar gegn kreppunni. Atvinnu- bænir AP 177. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 8. ÁGÚST 2001 ÞRÍR vísindamenn boðuðu á al- þjóðlegri ráðstefnu í Washington í gær að þeir hygðust brátt hefja til- raunir til að klóna menn með því að beita sambærilegum aðferðum og notaðar voru við klónun kindarinn- ar Dollýjar. Hleyptu vísindamennirnir, sem ítalski fósturfræðingurinn Se- verino Antinori fer fyrir, með þessu af stað nýrri bylgju umræðna um siðferðilegt réttmæti klónunar á mönnum. Á ráðstefnu bandarísku vísindaakademíunnar um þetta efni, sem efnt var til viku eftir að Bandaríkjaþing ákvað að hvers kyns klónun mannlegra frumna skyldi bönnuð í Bandaríkjunum, lýstu þremenningarnir því yfir að þeir myndu efna til klónunartil- rauna í því skyni að freista þess að hjálpa barnlausum pörum sem ekki geta með hefðbundnari aðferðum orðið líffræðilegir foreldrar. „Við teljum að þessa tækni megi þróa og að hægt sé að gera hana örugga,“ sagði Panayiotis Zavos, forstöðumaður frjóvgunartækni- rannsóknastofnunarinnar Andro- logy Institute í Lexington í Ken- tucky. Áður hafði Antinori tjáð fjölmiðlum að til stæði að hefja til- raunirnar innan fáeinna vikna, en hann gaf ekki upp hvar þær myndu fara fram. Samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla stendur til að setja einræktaða fósturvísa í leg allt að 200 kvenna sem verða sjálf- boðaliðar í tilrauninni. Zavos og Antinori fullyrtu að hægt væri að sía út gallaða fóst- urvísa sem til yrðu í klónunarferl- inu. Aðrir ráðstefnuþátttakendur staðhæfðu að klónun væri ferli sem gæti ekki sloppið við galla. „Eins og stendur er engin leið til að segja fyrir um hvort tiltekinn klónaður fósturvísir muni þróast í heilbrigð- an eða gallaðan einstakling,“ sagði Rudolf Jaenisch sem starfar við Massachusetts Institute of Techno- logy. Klónun manna boðuð Washington. AFP, AP. Reuters Þremenningarnir Severino Ant- inori, Panayiotis Zavos og Bri- gitte Boisselier á ráðstefnunni. Noregur Hægri- flokkurinn stærstur Ósló. Morgunblaðið. TÆPUM mánuði áður en norskir kjósendur ganga að kjörborðinu og kjósa nýtt Stórþing heldur Hægri- flokkurinn velli sem stærsti flokkur landsins í skoðanakönnunum. Sam- kvæmt niðurstöðum nýrrar Gallup- könnunar hyggja nú 34,5% Norð- manna á að greiða Hægriflokknum atkvæði sitt. Fyrirheit Jens Stoltenbergs for- sætisráðherra og annarra forsvars- manna Verkamannaflokksins um að lækka skatta virðast ekki hafa nein merkjanleg áhrif á afstöðu kjósenda. Flokkurinn fær aðeins um 21% at- kvæða samkvæmt könnun Gallup. Fylgi Hægriflokksins hefur mælzt stöðugt í síðustu könnunum. Ef úrslit kosninganna yrðu í samræmi við nið- urstöður nýjustu skoðanakannana fengi Hægriflokkurinn 59 af 165 þing- sætum á Stórþinginu. Verkamanna- flokkurinn fengi aðeins 40 þingsæti. Framfaraflokkurinn, sem fyrir ári mældist stærsti flokkur Noregs, hef- ur í kjölfar áberandi innanflokkserja hrapað niður í 10,5% fylgi nú. Makedónía Samkomu- lag í nánd? Ohrid í Makedóníu. AP, AFP. VIÐRÆÐUR um lausn á deilum al- banska minnihlutans og slavneska meirihlutans í Makedóníu virtust í gær vera komnar aftur á réttan kjöl, þótt lögregla hefði drepið fimm meinta meðlimi í skæruliðahreyfingu Makedóníu-Albana í handtökutilraun í Skopje í gærmorgun og fregnir bær- ust af brotum á vopnahléssamkomu- lagi skæruliða og stjórnarhersins sem gert var 5. júlí sl. Tíunda degi viðræðnanna, sem fara fram í bænum Ohrid í suðvesturhluta landsins, lauk þó án þess að þátttak- endur í þeim væru tilbúnir að láta hafa meira eftir sér en að þeim miðaði áfram. Fyrr um daginn hafði jafnvel verið látið að því liggja að samkomu- lag kynni að verða í höfn í dag. Gert var hlé á viðræðulotunni á mánudag eftir að stjórnin í Skopje setti óvænt fram þá kröfu að skæru- liðar afvopnuðust áður en friðarsam- komulagi yrði hrint í framkvæmd. ♦ ♦ ♦PALESTÍNSKUR drengur beinirskammbyssu að kröfuspjaldi með samsettum myndum af látnum palestínskum börnum, ísraelskum hermönnum og Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, undir yf- irskriftinni „Stöðvið drápin!“ á mótmælafundi í Hebron á Vest- urbakkanum í gær. Heimastjórn Palestínumanna skoraði á Sameinuðu þjóðirnar að skerast í leikinn og hjálpa til við að stöðva þá alvarlegu átaka- bylgju sem nú hefur staðið yfir í Mið-Austurlöndum í tíu mánuði. Ísraelsk stjórnvöld vilja hins veg- ar ekki heyra minnzt á utan- aðkomandi friðargæzlulið. Í gær voru tveir Ísraelar drepnir á Vesturbakkanum, einn Ísraeli skotinn til bana í Jórdaníu og tveir palestínskir drengir, að sögn 12 og 13 ára gamlir, særð- ust í átökum á Gazasvæðinu. Kallað eftir eft- irlitsliði Reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.